Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hugsanlega hefði verið hægt að komast inn í tölvupósta þingmanna og „hlera“ netsamskipti þeirra í gegnum fartölvuna sem komið var fyrir við skrifstofur þingmanna á Austurstræti í Reykjavík. Þetta er mat tveggja sérfræðinga í tölvumálum sem Morgunblaðið ræddi við en þeir gáfu kost á viðtali gegn því að nafnleyndar yrði gætt. Grunur leikur á að tölvan hafi ver- ið notuð til njósna í gegnum netkerfi Alþingis en það er óstaðfest. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær var búið af afmá allar rekjanlegar upplýsingar af tölvunni, s.s. skráningarnúmer, auk þess sem engin gögn fundust á henni. Að sögn heimildarmanna blaðsins getur skýringin verið sú að notast hafi verið við hugbúnað sem aðeins „lifi“ í innra minni tölvunnar. Þar geti verið á ferð vírusar, spilli- forrit og hugbúnaður af öðru tagi sem aldrei hefur viðkomu á harða diski tölvunnar. Það þýðir að ef slökkt er á tölvunni án þess að taka afrit af hugbúnaðinum er þar með búið að þurrka út það sem var í innra minninu. Slóðin verður órekjanleg. Hugsanlegar vísbendingar Á hitt er bent að á tölvunni kunni að finnast vísbendingar um að hug- búnaður hafi verið keyrður upp á vélinni í upphafi, þótt eiginlegar „leifar“ af hugbúnaðinum finnist ekki á innra minninu. Annar tölvufræðinganna segir að verklagið þegar grunsamleg tölva sé gerð upptæk hafi breyst. „Í gamla daga fékk lögreglan skýr fyrirmæli um að rífa tölvuna úr sam- bandi og gera hana upptæka. Í dag – og þá sérstaklega erlendis – er við- horfið breytt. Nú byrja menn á því að taka innra minnið og svo vélina, enda hafa kom- ið fram tilfelli þar sem hugbúnaður lifir aðeins í innra minninu en snertir aldrei á diskinum.“ Í notkun hjá lögreglunni Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins er umræddur hugbúnaður til hlerunar í innra minni tölvu yfir- leitt mjög einfaldur og benda þeir á að lögreglan hafi undir höndum minnislykla með slíkum hugbúnaði sem sjái um að afrita gögn úr innra minni tölva sem séu til rannsóknar. Þegar spurt er hvort eftirlitsaðil- ar ættu ekki að verða varir við slíkar njósnir er svar þeirra að reynslan sýni að slíkan hugbúnað megi „keyra“ án þess að það veki eftir- tekt. Annars vegar sé hægt að vera með „óvirkan“ hugbúnað sem hleri tölvupósta og aðra netumferð og hins vegar „virkan“ hugbúnað þar sem njósnarinn noti tölvuna sem „bakdyr“ að viðkomandi netkerfi. Sérfræðingarnir benda á að slíkur aðgangur geri ekki kleift að nálgast einkabanka einstaklinga eða til dæmis Gmail-tölvupósta þeirra, enda séu slík samskipti dulkóðuð. Þó er hægt að komast hjá slíkum vörn- um með „Maður í milli“-árásum, eins og þær eru nefndar í tölvuheiminum. Annar sérfræðinganna telur að sannur fagmaður myndi alla jafna ekki fara á staðinn og skilja eftir tölvu, nema mjög vel falda, heldur fremur nota kunnáttu sína til að brjótast inn í tölvukerfið utan frá og breyta útstöð þingmanns eða starfs- manns Alþingis í bakdyr án þess að viðkomandi yrði þess var.  Njósnatölva getur veitt miklar upplýsingar um einstaklinga og netnotkun þeirra  Hægt að nota hugbúnað í innra minninu sem þurrkast út þegar slökkt er á tölvunni  Bakdyr að lokuðum kerfum Mögulegt að komast í tölvupósta Morgunblaðið/G.Rúnar Öflugt vopn Trúnaðarupplýsingar má nýta í margvíslegum tilgangi. Lögreglan getur ekki stuðst við myndbandsupptökur við rannsókn á hinni grunsamlegu tölvu sem fannst á skrif- stofu Alþingis fyrir tæpu ári. Eftirlitsmynda- vélar á svæðinu voru bilaðar á þeim tíma sem tölvunni var komið fyrir. Þetta segir Stef- án Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að ekki sé talið að um saknæmt athæfi sé að ræða. „Þær voru bara ekki í gangi á þessum stað á þessum tíma. Það hafði ekkert verið átt við þær eftir því sem við komumst næst. Við höfum ekki fengið neinar upplýs- ingar um að þingið hafi einhverjar grunsemdir um slíkt,“ segir Stef- án. Rannsókn lögreglu stendur enn yfir að sögn Stefáns. Mestur þungi hafi þó verið á henni fyrst eftir að málið var tilkynnt. Vett- vangurinn og gögn hafi verið rannsökuð sem og mannaferðir á þessum slóðum. Það hafi hins veg- ar ekki leitt til neinnar niðurstöðu. Þingmenn ekki yfirheyrðir Stefán segir að þingmenn hafi ekki verið spurðir út í mannaferð- ir á svæðinu, þrátt fyrir skort á upplýsingum vegna bilana eft- irlitsmyndavélanna. „Þær upplýsingar sem við höfð- um um mannaferðir á þessum slóðum leiddu ekki til þess að við yfirheyrðum menn um það í hvaða tilgangi þeir hefðu verið þarna inni. Einfaldlega út af því að við höfðum ekkert í höndunum um það hver hafði komið þessu þarna fyrir,“ segir lögreglustjórinn. „Við þurfum að hafa eitthvað meira í höndunum áður en við yfirheyrum fólk eða köllum það fyrir okkur. Þetta er það lagaumhverfi sem lögreglan býr við.“ Stefán vill ekki tjá sig um hvort lögreglan hafi skoðað vefsíðuna Wikileaks í tengslum við málið. „Málið er ennþá opið til rann- sóknar og það er enginn sérstakur grunaður,“ segir Stefán sem mun eiga fund með forsætisnefnd í dag vegna málsins. gislibaldur@mbl.is Eftirlits- myndavél- ar bilaðar Stefán Eiríksson  Rannsókn er ekki enn lokið Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Julian Assange og aðrir fulltrúar WikiLeaks voru þar ásamt fjölda annarra gesta. Ef það á gera mál úr því vil ég benda á að Sjálfstæðis- flokkurinn er með miklu fleiri skrif- stofur á þessari hæð en við. Sjálf- stæðismenn eru með miklu meiri umgang og miklu fleiri gesti en við. Þannig að ef það á að fara að vinsa úr einhverja grunsamlega gesti í samsæriskenningastíl þá ættu menn að velta því fyrir sér hvort við færum að planta tölvu inn á fv. skrif- stofu okkur til þess að hlera um aðra þingmenn,“ segir Þór Saari, þing- maður Hreyfingarinnar, og gagn- rýnir harðlega að leiddar skuli hafa verið líkur að tengslum WikiLeaks við njósnatölvumálið í umfjöllun á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Ekki í samræmi við aðferðir Þór bendir á að slíkar njósnir brytu í bága við aðferðir WikiLeaks. „Mönnum ætti að vera kunnugt að fulltrúar WikiLeaks vinna ekki svona. Þeir vinna út frá upplýsingum sem þeim eru veittar. Rauði þráð- urinn í starfi WikiLeaks er að taka við upplýsingum frá öðrum. Ef menn vilja vera með samsæris- kenningar í tengslum við málið ligg- ur beinast við að ætla að einhverjir hafi komið tölvunni fyrir til að fylgj- ast með Hreyfingunni […] Ég bendi á að vitað er að bandarísk stjórnvöld eru að afla upplýsinga um Birgittu [Jónsdóttur] úti um allan heim.“ Þór gagnrýnir einnig Ástu Ragn- heiði Jóhannesdóttur þingforseta harðlega fyrir að hafa ekki upplýst þingheim um málið strax. „Ég held að hún ætti að íhuga stöðu sína í framhaldi af málinu,“ segir Þór og upplýsir að þingforseti hafi þrívegis fullyrt á fundi forsætis- nefndar í gær að hún hafi sagt Jó- hönnu Sigurðardóttur [forsætisráð- herra] og Bjarna Benediktssyni [formanni Sjálfstæðisflokksins] frá málinu. Síðar um daginn kvaðst Bjarni aldrei hafa verið upplýstur um málið þegar ummæli Ástu Ragn- heiðar voru borin undir hann. Þingforseti íhugi að segja af sér Þór Saari  Fulltrúar WikiLeaks voru á skrifstofunni Heitar umræður voru um grunsemdir um njósnir á Alþingi á þingfundi í gær í kjölfarið á frétt Morgunblaðsins. Þingfundur hófst á umræðum um mál- ið. Þar kom í ljós að þingmenn höfðu ekki vitneskju um að fartölva hefði fundist í skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurstræti í febrúar í fyrra. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf- stæðisflokks, hóf umræðuna á því að krefjast þess að tekin yrði sérstök um- ræða í þinginu um málið. Þingmenn skiptust á orðum um málið í nokkra stund áður en næsta mál á dagskrá var tekið fyrir. Flestir virtust þó vera á þeirri skoðun að þetta væri alvarlegt mál. Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, sagði til að mynda að svo virtist sem um væri að ræða grófustu árás sem Alþingi hefði orðið fyrir í sinni sögu. Þá sagði hann, að það vekti grunsemdir, að þessi tölva hafi fundist í skrifstofuhúsnæði Hreyf- ingarinnar en einn þingmaður hennar hefði haft náin tengsl við uppljóstr- unarvefinn Wikileaks. Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sagði fráleitt að beina grunsemdum að tilteknum þingflokki og vildi að þingmenn yrðu ávíttir fyrir slíkar ásakanir. Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, forseti Alþingis, varð við bón Ólafar Nordal og las upp skýrslu um málið síðar um daginn. Þar út- skýrði Ásta málið fyrir þingmönnum og sagði meðal annars að engar vís- bendingar væru um hver hefði komið tölvunni fyrir. Sagði hún greinilegt að fagmaður hefði verið að verki og af- máð spor sem lögreglan gæti fetað sig eftir við rannsókn. Ásta Ragnheiður sagði, að rannsókn lögreglunnar hefði staðið yfir í um viku og að skrif- stofustjóra Alþingis hefði að lokum verið tilkynnt að rannsókninni hefði lokið án árangurs. „Tölvudeild skrifstofu þingsins fór mjög rækilega yfir hvort þess væru nokkur merki að óviðkomandi aðili hefði farið í gögn þingsins, hvort ein- hverjar skemmdir hefðu verið unnar og hvort ástæða væri til að ætla að gögn hefðu verið skoðuð, afrituð og tekin. Svo reyndist ekki vera. Þannig stóð málið að lokinni rannsókn lög- reglu og enn hefur ekkert nýtt komið fram í málinu. Við vitum ekkert meira um það,“ sagði Ásta Ragnheiður. Þingmenn gagnrýndu stjórnendur Alþingis í kjölfarið fyrir að hafa haldið þessum upplýsingum leyndum. Vissu ekki af tölvunni  Gagnrýndu starfsmenn Alþingis Morgunblaðið/Kristinn Alvarlegt mál Flestir þingmenn voru sammála um að þetta væri alvarlegt mál og litu sumir á það sem árás á Alþingi. ’ Það vekur auðvitað grun- semdir, svo það sé bara sagt, að þessi tölva hafi fundist í skrifstofuhúsnæði Hreyfing- arinnar, ekki síst vegna tengsla eins hv. þingmanns við vef sem hefur það að markmiði að birta illa fengin gögn. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ’ …er gersamlega fráleitt af þingmanninum sem ég nefndi og þeim sem talaði síð- ast, að algerlega órannsökuðu máli á grundvelli einnar blaða- fréttar eftir Agnesi Bragadóttur, að beina grunsemdum að til- teknum þingmönnum og til- teknum þingflokki vegna tengsla þeirra við Wikileaks og forystumenn þess. Ég tel í fyrsta lagi að þingmaðurinn eigi að halda munni eftir þessa frammistöðu í ræðustól og í öðru lagi tel ég að forseti eigi að íhuga að víta þá þingmenn sem ráðast svona að heiðri al- þingismanna sem hér eru staddir og þingflokka sem hér starfa. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar ’ Alvarlegt mál eða stormur í vatnsglasi? Ég velti því fyrir mér. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna Orðrétt frá Alþingi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.