Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 Brian Cowen, forsætisráðherra Írlands, féllst í gær á að boðað yrði til þingkosninga 11. mars eftir að hafa sætt harðri gagnrýni frá því í nóvember þegar stjórn hans óskaði eftir aðstoð Evrópusam- bandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna bankakreppunnar í landinu. Cowen tilkynnti þetta á þinginu eftir að fimm ráðherrar höfðu sagt af sér. Afsagnirnar ollu miklu uppnámi á þinginu og Græningjar, sem eiga aðild að ríkisstjórn Fianna Fail, höfnuðu því að ný- ir ráðherrar yrðu skipaðir í stað þeirra sem sögðu af sér. Ráðherrarnir fimm höfðu allir sagt að þeir myndu ekki sækjast eftir endurkjöri. Græningjar telja því að markmiðið með afsögnunum hafi verið Boðað til kosninga á Írlandi í mars  Afsagnir fimm ráðherra ollu miklu uppnámi  Græningjar höfnuðu uppstokkun á stjórninni  Búist er við að flokkur Cowens forsætisráðherra gjaldi mikið afhroð að gera Cowen kleift að stokka upp í stjórninni og styrkja stöðu Fianna Fail fyrir kosn- ingarnar með því að koma nýj- um vonarstjörnum flokksins í stjórnina. „Afsagnirnar virðast vera samtekin ráð sem snúast lítið um þjóðarhagsmuni held- ur miklu meira um hagsmuni Fianna Fail,“ sagði einn þing- manna Græningja. Cowen sagði þegar hann til- kynnti kjördaginn að engir nýir ráðherrar yrðu skipaðir í ríkisstjórnina fyrir kosningarnar. Ráð- Brian Cowen forsætisráðherra herrarnir sem eru enn í stjórninni ættu að taka við ráðuneytum þeirra sem sögðu af sér. Ný fjárlög fyrir þingrof Forsætisráðherrann sagði að stefnt væri að því að ný fjárlög yrðu samþykkt á þinginu fyrir kosn- ingarnar, en fjárlögin eru mikilvægur þáttur í samkomulaginu um aðstoð ESB og AGS. Cowen er 51 árs og var fjármálaráðherra í fjög- ur ár áður en hann tók við forsetaembættinu árið 2008. Áður en ríkisstjórn hans leitaði á náðir Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafði hún ítrekað lýst því yfir að engin þörf væri á slíkri aðstoð. bogi@mbl.is Rúinn trausti » Búist er við að Fianna Fail, flokkur Cowens forsætisráð- herra, gjaldi mikið afhroð í kosningunum í mars. » Nýleg könnun bendir til þess að 10% Íra styðji Cowen og 14% ætli að kjósa Fianna Fail. Cowen hefur m.a. verið gagn- rýndur fyrir að vera of tengdur bankastjóra Anglo Irish Bank sem stjórnin þjóðnýtti. Einn starfsmanna dýragarðs í Dúshanbe, höfuðborg Mið-Asíuríkisins Tadsjikistan, er hér á göngu um dýra- garðinn með Vadík, átján mánaða gömlu ljóni sem tek- ið er úr búri sínu tvisvar sinnum á hverri viku. Starfs- menn garðsins ganga þá með ljóninu um dýragarðinn til að sýna það en gæta þess að halda alltaf á kjötstykki til að halda athygli ljónsins og koma í veg fyrir að það hlaupi í burtu. Reuters Á göngu með svöngu ljóni Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hu Jintao, forseti Kína, sagði á blaðamannafundi með Barack Obama Bandaríkjaforseta í Wash- ington að Kínverjar ættu enn „margt ógert“ í mannréttindamálum. Er þetta í fyrsta skipti sem forseti Kína viðurkennir opinberlega að mann- réttindum sé ábótavant í landinu. „Kína er þróunarland með gríðar- mikinn íbúðafjölda og einnig þróunarland á mikilvægu stigi um- bóta,“ sagði Hu Jintao í fyrrakvöld. „Kína stendur enn frammi fyrir mörgum erfiðum úrlausnarefnum hvað varðar efnahagslega og fé- lagslega þróun. Og margt er enn ógert í Kína í mannréttindamálum.“ Forsetinn bætti við að þótt Kín- verjar væru tilbúnir til að ræða mannréttindamál við bandarísk stjórnvöld þyrftu slíkar viðræður að byggjast „á gagnkvæmu trausti og þeirri meginreglu að ríki hafi ekki afskipti af innanríkismálum hvers annars“. „Vinsamleg samkeppni“ Obama hefur rætt ágrein- ing ríkjanna í mannrétt- indamálum tvisvar sinnum opinberlega í tengslum við heimsókn kínverska forsetans til Washington. Hann kvaðst hafa rætt mannrétt- indamál hreinskilnislega við Hu Jintao og lagt áherslu á að mannrétt- indi væru algild. Fréttaveitan AFP hafði eftir bandarískum embættis- manni að Obama hefði m.a. rætt mál friðarverðlaunahafans Liu Xiaobo sem er í fangelsi í Kína. Obama áréttaði að ríkin greindi á um nokkur mál, m.a. gengi júansins sem Bandaríkjastjórn telur að Kín- verjar haldi óeðlilega lágu til að bæta samkeppnisstöðu sína. Hann hvatti einnig kínversk stjórnvöld til að hefja viðræður við fulltrúa Dalai Lama um Tíbet. Obama lagði þó áherslu á að samskiptin við Kínverja væru vinsamleg og „friðsamlegur uppgangur“ Kína væri af hinu góða fyrir Bandaríkin. Hann sagði Banda- ríkjamenn hlakka til „tímabils vin- samlegrar samkeppni“ við Kína. „Margt ógert í Kína í mannréttindamálum“  Hu Jintao, forseti Kína, viðurkennir í fyrsta skipti opinberlega að mannréttindum sé ábótavant í landinu Þótt ríki heims hafi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að koma í veg fyr- ir sjórán á heimshöfunum gerðu sjóræningjar fleiri árásir á liðnu ári en nokkru sinni fyrr. Árásunum fjölgaði fjórða árið í röð. Sjóræningjar gerðu árásir á 445 skip á liðnu ári og þeim tókst að ræna a.m.k. 53 skipum. Um 90% skipanna var rænt undan strönd Sómalíu og í lok ársins héldu sómalskir sjóræningjar enn 28 skipum og 638 skipverjum. Alls var 1.181 skipverji tekinn í gíslingu og átta skipverjar biðu bana. Árásunum fjölgaði um 10% frá árinu áður, að því er fram kemur í skýrslu IMB, stofnunar sem safnar upplýsingum um sjórán í heiminum. Fjöldi skipverja sem var ræntFjöldi tilkynntra árása HEILDARFJÖLDI ÁRÁSA GÍSLAR SJÓRÁN Á HEIMSHÖFUNUM Heimild: Alþjóðlega siglingamálaskrifstofan (IMB) IndlandshafAtlantshafKyrrahaf 20102009200820072006 20102009200820072006 239 263 293 410 445 188 292 889 1.050 1.181 259 4 40 44 70 AMERÍKA Fjöldi árása sjóræningja eftir heimshlutum á liðnu ári ÖNNUR AFRÍKA INDLAND/ PAKISTAN/ BANGLADESS SUÐAUSTUR- ASÍA AUSTURLÖND FJÆR Helstu svæði sem sjóræningjar herja á 28 Sjóránum fjölgar enn Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið yfir 100 meinta mafíu- menn í tengslum við rannsókn á sjö mafíufjölskyldum í New York, New Jersey og Rhode Island, að sögn bandarískra fjölmiðla í gær. Fréttastofan AP sagði að á meðal hinna handteknu væru menn sem grunaðir væru um morð, fjárkúganir og fíkniefnasmygl. Handtökurnar eru álitnar mikið áfall fyrir mafíu- fjölskyldurnar í New York. Áður höfðu nokkrir forsprakkar mafíunn- ar í borginni verið handteknir í tengslum við rannsóknir alríkislög- reglunnar sem hefur fengið upplýs- ingar frá fyrrverandi mafíumönnum. Enn einn ósigurinn Hermt var að á meðal þeirra sem voru handteknir í gær væru margir mafíuforingjar og nokkrir sam- starfsmenn mafíunnar í byggingar- iðnaði. Vefútgáfa The New York Times sagði að svo virtist sem þetta væru umfangsmestu aðgerðir sem alríkisyfirvöld hefðu gripið til gegn skipulögðum glæpasamtökum. Búist var við að Eric H. Holder, dóms- málaráðherra Bandaríkjanna, myndi skýra frá handtökunum og ákærun- um á hendur mönnunum á blaða- mannafundi síðar um daginn. Mafíufjölskyldurnar hafa orðið fyrir hverjum ósigrinum á fætur öðr- um frá árinu 1991 þegar mafíufor- inginn Alphonse D’Arco sneri baki við mafíunni og féllst á að bera vitni gegn henni. Annar mafíuforingi, Salvatore Gravano, fór að dæmi hans síðar á árinu og vitnisburður hans varð til þess að mafíuleiðtoginn John Gotti var dæmdur í fangelsi árið 1992 fyrir morð og fjárkúganir. Yfir 100 mafíósar handteknir vestra Mafíuforingi John Gotti fyrir rétti áður en hann var dæmdur í fangelsi. Bandarískir embættismenn sögðu í gær að skrifað yrði undir við- skiptasamninga sem fælu í sér að Kínverjar myndu kaupa bandarísk- an varning fyrir alls 45 millj- arða dollara, jafnvirði rúmra 5.200 milljarða króna. Kín- verjar hyggjast meðal annars kaupa 200 Boeing- farþegaþotur fyrir 19 milljarða dollara, eða 2.200 milljarða króna. Bandarísku embættismennirnir sögðu að áætlað væri að við- skiptasamningarnir við Kína gætu skapað um það bil 235.000 störf í tólf sambandsríkjum Bandaríkj- anna. Barack Obama Bandaríkja- forseti sagði að Kína væri mikil- vægasti markaður bandarískra út- flutningsfyrirtækja og nær hálf milljón starfa í Bandaríkjunum væri háð útflutningi til Kína. Skapa um 235.000 störf SKRIFAÐ UNDIR RISASTÓRA VIÐSKIPTASAMNINGA Hu Jintao

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.