Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.01.2011, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 249 8160 14645 21910 30790 38815 46852 54389 61735 72953 328 8415 14696 22204 30812 39125 46877 54522 62287 73205 357 8486 14970 22290 30838 39134 46879 54643 62366 73309 375 8701 15072 22340 31861 39624 47005 54852 62489 73413 439 8804 15116 22578 31929 39806 47133 55023 62501 73589 647 8909 15178 22776 31994 40020 47202 55664 62597 73780 743 8942 15492 23095 32238 40527 47420 56133 63046 73817 783 9093 15872 23272 32335 40570 47594 56137 63301 74021 797 9102 15996 23370 32500 40599 47869 56334 63506 74354 1237 9422 16233 23374 32595 41093 47907 56496 63578 74714 1571 9476 16316 23459 32678 41175 48378 56504 63685 74748 2058 9533 16545 23665 32725 41389 48384 56532 63702 75233 2204 9679 16583 23689 32778 41486 48471 56587 64450 75534 2253 10892 16674 24087 33168 41653 48530 56910 64486 75580 2355 10962 16801 24262 33431 41705 48649 56947 64525 75593 2838 11001 16817 24313 34129 41707 48702 57057 64682 75658 3016 11341 17085 24384 34241 42483 48875 57377 64797 75664 3148 11378 17498 24907 34408 42746 49146 57392 64998 76176 3180 11586 17621 24952 34502 42913 49229 57566 65306 76224 3308 11666 17679 25416 34503 43179 49522 57675 66048 76538 3451 11870 17698 25497 35290 43464 49716 57773 66320 76838 3559 12197 17777 25540 35448 43553 49938 57799 66570 77003 3642 12238 17963 25741 35571 43600 50381 57810 66639 77445 3925 12420 17979 26969 35595 43695 51135 57936 67999 77834 3946 12743 18466 27170 35648 43737 51137 58780 68420 77892 4756 12760 18756 27239 35650 43806 51414 58899 69010 78035 4819 12799 18947 27316 36065 43938 51502 59048 69339 78087 4935 12868 19095 27491 36484 44083 51922 59135 69445 78179 5068 12955 19240 27515 36537 44407 52228 59366 69769 78272 5219 13142 19329 27817 36559 44635 52268 59646 69957 78341 5853 13163 19682 27956 36715 44637 52533 59680 70280 78383 6255 13317 19909 28562 37074 44900 52727 60126 70652 78850 6321 13507 19928 28713 37090 44958 52846 60391 70842 79020 6559 13590 20308 28770 37613 45200 53432 60765 71107 79039 6641 13600 20634 28944 37877 45470 53651 60934 71227 79200 6719 13609 20759 29068 37922 45800 53720 60985 71689 79406 6853 13906 20927 29105 38304 46151 53924 61354 71720 79454 7322 14414 21135 29301 38348 46329 54004 61396 72058 79501 7888 14540 21643 29929 38451 46354 54011 61513 72592 79587 8156 14561 21844 30040 38455 46373 54361 61611 72937 79996 Næsti útdráttur fer fram 27. jan 2011 Heimasíða á Interneti: www.das.is V i n n i n g a s k r á 39. útdráttur 20. janúar 2011 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 7 2 2 2 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 1 5 2 8 9 4 4 7 2 2 5 5 8 4 7 6 0 1 9 5 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 15 13926 35955 52264 62457 68673 11716 26615 48879 53740 64595 74300 V i n n i n g u r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 5 9 7 1 2 7 1 9 4 8 5 3 1 5 4 7 4 0 7 3 6 4 9 3 1 7 5 9 7 3 3 6 7 1 0 5 1 0 0 5 7 5 0 4 1 9 5 3 5 3 2 3 7 8 4 0 9 7 1 4 9 4 5 7 5 9 9 9 4 6 9 9 8 5 1 0 8 8 7 7 2 5 1 9 8 6 3 3 2 6 1 7 4 1 5 9 9 4 9 9 9 9 6 0 3 9 3 7 0 5 3 9 2 5 5 3 9 5 2 8 2 0 8 9 0 3 2 9 7 6 4 3 3 9 1 5 0 2 9 3 6 1 1 1 2 7 0 7 3 1 2 5 7 4 9 8 4 7 2 2 4 2 7 3 3 9 4 0 4 3 7 3 5 5 3 4 9 8 6 1 4 3 0 7 2 1 9 4 3 8 3 9 1 0 1 7 5 2 2 4 6 1 3 5 1 8 2 4 5 4 8 0 5 3 5 5 9 6 2 5 0 8 7 5 2 1 8 5 7 7 8 1 0 2 7 6 2 3 7 8 6 3 6 1 9 9 4 6 4 6 8 5 3 7 0 1 6 2 6 4 9 7 5 9 0 5 5 9 3 8 1 3 9 8 2 2 4 3 7 2 3 7 7 1 3 4 7 9 5 8 5 3 9 4 8 6 3 0 9 0 7 6 1 4 6 6 0 9 2 1 6 2 1 6 2 8 0 2 8 3 8 8 9 4 4 8 0 7 6 5 5 1 0 7 6 3 7 2 4 7 6 4 2 8 6 6 4 9 1 8 9 0 5 3 0 0 4 2 4 0 1 5 6 4 8 4 7 3 5 5 8 0 6 6 4 2 1 4 7 7 5 3 3 ✝ Anna SigríðurGunnarsdóttir fæddist á Bangastöð- um í Þing. 11. sept- ember 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 11. janúar 2011. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Jón- atansson, f. 5. maí 1877, d. 25. júní 1958, og Vilfríður Guðrún Davíðsdóttir, f. 20. nóvember 1897, d. 25. maí 1973. Systkini Önnu eru Óli Jónatan, samfeðra, f. 19. júlí 1911, d. 1.8. 1986, Jónína Guðný, f. 13. maí 1927, d. 8. september 1988, Kristjana El- ínborg, f. 7. desember 1928, Að- alheiður, f. 4. október 1932, Davíð, f. 15. mars 1935, Signý, f. 17. janúar 1939, Sigurbjörg, f. 27. september 1940, Soffía Björk, f. 27. september 1940, d. 2. júní 1996. 11. september 1954 giftist Anna Jóni Sveinbirni Óskarssyni frá Klömbur, f. 20. september 1924, d. 14. apríl 2001. Foreldrar hans voru Hildur Baldvinsdóttir frá Nesi, f. 23. brúnar Jónsdóttur, f. 20.3. 1957, sonur Hrafnhildar Önnu og Krist- jáns Samúelssonar, f. 23.6. 1979, er Elvar Ingi, f. 16.6. 2009, þau eru bú- sett í Svíþjóð, og Eygló Dögg, f. 22.2. 1986, dóttir Hildar Halldórs- dóttur, f. 8.9. 1966, dóttir Eyglóar Daggar og Þorgríms Jóelssonar, f. 2.1. 1986, er Erla Rut, f. 24.9. 2007, þau eru búsett á Húsavík. 6) Har- aldur, f. 5.11. 1965, búsettur á Höfn í Hornafirði, hans kona er Sigurbörg Einarsdóttir, f. 22.8. 1959, börn þeirra eru Einar, f. 16.5. 1985, Helga, f. 30.8. 1988, og Baldvin, f. 19.8. 1990. 7) Einar, f. 7.9. 1967, bú- settur í Mývatnssveit, hans kona er Kolbrún Ívarsdóttir, f. 26.7. 1969, börn þeirra eru Heiðbjört, f. 4.2. 1999, Ívar Helgi, f. 18.2. 2002, og Gunnar Bragi, 18.2. 2002. 8) Davíð, f. 7.9. 1967, búsettur á Húsavík, hans kona er Helga Dóra Helgadótt- ir, f. 31.5. 1970, börn þeirra eru Davíð Helgi, f. 9.12. 1992, Óskar Páll, f. 25.12. 1997, Hrefna Ósk, f. 19.2. 2008, og dóttir Davíðs er Elva Björg, f. 28.9. 1990, búsett í Banda- ríkjunum, móðir hennar er Guðlaug Linda Káradóttir, f. 5.8. 1971. Anna lauk sínu skyldunámi en kom svo sem ráðskona í Klömbur vorið 1951 og bjó þar til dánardags. Útför Önnu Sigríðar fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. júní 1892, d. 22. jan- úar 1948, og Óskar Jónsson frá Klömbur, f. 21. nóvember 1883, d. 12. ágúst 1969. Börn þeirra: 1) Óskírður sonur, fædd- ur andvana 7.11. 1952. 2) Hildur, f. 26.7. 1955, búsett í Reykja- vík, hennar maður er Arnar Gunnar Hjálm- týsson, f. 12.2. 1964, dætur hennar og Sig- urðar Héðins Harð- arsonar, f. 16.2. 1963, eru Anna Björt, f. 28.11. 1987, henn- ar maður er Mikael Þór Ásgeirsson, f. 19.5. 1985, og Hildur Ósk, f. 8.10. 1991, báðar búsettar í Reykjavík. 3) Óskírð dóttir, fædd andvana 23.8. 1956. 4) Óskar, f. 4.6. 1960, d. 19.2. 1990, eftirlifandi kona hans er Ester Sveinbjarnardóttir, f. 9.9. 1963, bú- sett í Reykjavík, synir þeirra eru Markús, f. 15.9. 1986, og Jón Svein- björn, f. 22.2. 1990. 5) Gunnar, f. 23.3. 1962, búsettur í Klömbur, hans dætur eru Hrafnhildur Anna, f. 20.10. 1983, dóttir Ásdísar Kol- Elsku Anna mín. Nú ertu farin frá okkur á annan stað þar sem ég veit að vel verður tekið á móti þér af ástvin- um þínum. Kynni okkar hófust fyrir 20 árum þegar ég kynntist Davíð þín- um, eða Davíð okkar, eins og við urð- um ásáttar um að segja þegar við grínuðumst um það hvor okkar ætti hann. Við Davíð komum ótal sinnum í Klömbur til ykkar Jóns og áttum góð- ar stundir þar með ykkur. Þú varst al- veg einstök kona og betri tengda- mömmu er ekki hægt að hugsa sér, alltaf glöð, sást góðu hliðarnar á öllum málum og gaman að ræða við þig um allt milli himins og jarðar. Þú varst yndisleg amma, hjartahlý og ljúf, og börnin hændust að þér. Minningarnar streyma fram nú þegar ég sit og skrifa til þín og ferskt er í minni mínu afmælið þitt síðast- liðið haust er þú varðst áttræð. Við komum þá, stórfjölskyldan, í Klömb- ur og áttum ógleymanlega helgi sam- an. Veðrið lék við okkur og þú varst svo glöð og ánægð með þennan af- mælisdag. Ég spurði þig svo hvort þú værir ekki ánægð með daginn og þú svaraðir mér svo snilldarlega: „Jú Helga mín, ég er bara dösuð af ham- ingju.“ Þú kunnir að þakka fyrir þig og nú langar mig til að þakka þér samfylgdina sl. 20 ár. Og ég segi bara eins og þú; ég er dösuð af hamingju yfir að hafa fengið að kynnast þér. Hafðu þökk fyrir allt elsku Anna mín. Ég veit að guð og englarnir vaka yfir þér. Guð blessi þig. Þín tengdadóttir, Helga Dóra. Í Klömbur bjó hún amma og þar leið henni vel, því þar voru berja- brekkurnar stutt frá henni, þær voru hennar líf og yndi. Eyddi hún heilu dögunum þar við að tína ber. Hún var með garð í kring um húsið sem var fullur af blómum og trjám sem henni fannst gaman að hugsa um. Þar tíndi hún líka ánamaðka og seldi veiði- mönnum sem voru að veiða í Laxá í Aðaldal, ánni sem hún átti hlut í. Flat- kökurnar hennar voru þær bestu. Amma hafði um tíma gróðurhús þar sem hún ræktaði meðal annars jarð- arber. Amma var líka með heitan pott, hann var vel notaður þegar við sem börn komum að heimsækja hana norður. Elsku amma þú fékkst að lifa og hrærast í Klömbur, staðnum sem þú elskaðir, við þökkum fyrir allar stundirnar með þér í gegnum árin, hvíl í friði. Þínir Hornfirðingar, Einar, Helga og Baldvin. Elsku amma okkar. Við viljum byrja á því að þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Mikið vorum við ríkar að eiga þig að, elsku amma, það sem við gátum fíflast alveg endalaust. Það var alltaf jafngott að koma í Klömbur og við hlökkuðum alltaf jafnmikið til að koma til þín og fara í berjamó, baka eða gera bara hvað sem er. Við eigum svo margar góðar minningar um þig amma, gæt- um skrifað heilu blaðsíðurnar um þig, ætluðum nú bara að hafa þetta stutt og þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Minning þín mun alltaf lifa í hjörtum okkar og við elsk- um þig, hvíldu í friði frábæra kona. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Hildur Ósk Sigurðardóttir og Anna Björt Sigurðardóttir. Elsku Anna mín. 1989 kynntist ég þér og fjölskyldu þinni, þegar ég flutti í Aðaldalinn. Þú varst mér sem besta móðir þessi sex ár sem ég bjó í Mið- hvammi og vinátta okkar varð „eilíf“ frá þeim tíma. Við áttum okkar frá- bæru stundir, ferðir með sauma- klúbbnum, Glasgow, Reykjavík, Akur- eyri og svo bara kvöldstundir sem aldrei gleymast. Hvað við gátum hleg- ið. Það er ómetanlegt að hafa kynnst þér, notið elsku þinnar og hugulsemi. Þú og fjölskylda þín eru orðin mikill hluti af mínu lífi. Þú óttaðist ekki dauð- ann, beiðst róleg og vissir að þú mynd- ir hitta þá sem fóru á undan þér. Við áttum báðar Óskar, þú ert hjá þínum núna. Elsku Anna mín, takk fyrir allt sem við áttum saman og ég get varla nægjanlega þakkað fyrir að kynnast þér og þinni fjölskyldu. Elsku Hildur, Gunnar, Davíð, Ein- ar, Haraldur, Eygló og ykkar fjöl- skyldur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð um leið og ég veit að hún verður alltaf einhvern veginn hjá okkur. Ástarkveðja, Linda. Jæja Anna, þá kom kallið og auðvit- að kom það þegar fæstir bjuggust við. Þó svo að tengsl rofni milli einstak- linga og við hverfum á braut eða hvert frá öðru vegna breyttra aðstæðna í lífi okkar, þá er það þannig að við munum eftir bestu stundum lífs okkar. Með mínum yndislegustu stundum í mínu lífi eru stundirnar sem ég átti í Klömbur þegar ég átti þar athvarf og ég mun alla tíð muna margar af þeim dásemdarstundum sem ég átti með Klömbrungum, þér og Jóni bónda, Baldvini, börnum og barnabörnum ykkar. Ég veit Anna að þú hefur geng- ið í gegnum margar raunir, varst lífs- reynd manneskja og vissir af eigin reynslu hvað ástvinamissir er. Auðvit- að hafa mörg spor þín verið þung, en sem betur fer voru þau fleiri sem voru létt. Eitt var það sem einkenndi þig sem manneskju og það var glaðværð þín og hvað það var stutt í hlátur þinn og sérstaklega þegar þið Banga- staðasystur voruð samankomnar í hóp. Hlátur ykkar systra var einstak- ur og flestir ef ekki allir smituðust af honum sem voru nálægt ykkur þegar þið voruð í Bangastaða-hamnum því að í raun var hann hláturs-hamur. Einnig voru berjamó-stundirnar yndislegar og viðveran í brekkunum ofan við Klömbur var stundum æv- intýri líkust, að vera í þessu gósen- landi sem gaf nóg af berjum og það aðalbláberjum. Það var líka gantast með nafn lagsins „Eigið þér orma frú Norma“ og var þá helst verið að vísa til ormatínslunnar sem garðurinn í Klömbur gaf. Það er af svo mörgu að taka og ótal hlutir sem hægt er að minnast á stundum sem þessum þeg- ar minningarnar hrúgast upp. Ein er þó minningin sem ég verð að minnast á og það er fyrsti hádeg- ismaturinn sem ég átti í Klömbur, en hann er með þeim skrautlegri sem ég hef upplifað. Þú varst að steikja kjöt- bollur á tveim pönnum og fannst mér það æði skrautlegt því ekki hafði ég vanist slíkum vinnubrögðum á mínu æskuheimili. Þú steiktir og steiktir og kjötbollurnar hrúguðust upp svo að mér þótti nóg um. Þetta var sett á borðið og það sem gerðist þar þegar allir heimilismeðlimir voru sestir við borð var ólýsanlegur atgangur að kjötbollunum, þeim var hreinlega komið fyrir kattarnef og hverri á fæt- ur annarri var sporðrennt að hætti Klömbrunga. Þegar kjötbolluátinu var hætt þá kom Klömbrunga-aðal og það var skyr með aðalbláberjum, þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk slíkt á diskinn minn og þvílíkur mat- ur. Þá gerði ég mér grein fyrir því að Klömbrunga-skyr er ekki það sama og bláberjaskyr. Anna, ég þakka þér allt það sem þú hefur kennt mér og einnig vil ég þakka þér fyrir þann heiður að fá að kynnast þér. Fjölskyldu þinni votta ég innilega samúð mína og megi ljós- ið verða hennar vegvísir í framtíð- inni. Sigurður Héðinn. Fallin er frá mæt og góð kona, Anna í Klömbur. Þó að hún væri búin að vera slök um tíma kom þetta svo óvænt og fljótt, við áttum eftir að spila meira og ferðast meira saman. Anna var búin að búa í Klömbur í um 60 ár og féll aldrei verk úr hendi á stóru heim- ili. Henni þótti gaman að fara í berja- mó og fyllti margar föturnar. Hún fór með nesti og nýja skó, í berjamó, þar söng hún og hló, uppi í heiðanna ró. Við Anna vorum búnar að þekkjast lengi og vorum góðar saman. Önnu þótti mjög gaman að ferðast og fór- um við saman í tvær orlofsferðir hús- mæðra. Fyrri ferðin var í Skagafjörð, fórum þar meðal annars í Kántríbæ og gistum svo á Hólum. Við vorum saman í herbergi og þar var mikið hlegið. Seinni ferðin var til Danmerk- ur, já, við vorum saman á erlendri grund, skoðuðum þar söfn, fórum í tí- volí og fleira. Þetta voru ógleymanlegar ferðir. Anna hafði yndi af góðri tónlist og harmonikkuleik og fórum við saman á marga tónleika og samkomur. Hún hafði líka mjög gaman af því að spila á spil, við fórum saman um allar sveitir að spila félagsvist og létum við veðrið sjaldan stoppa okkur. Einnig spiluðum við einu sinni í viku í Hvammi á Húsavík og vorum búnar að gera það í tíu ár, mamma fór með okkur á meðan hún lifði en nú eru þær báðar farnar. Það verður skrítið að fara þangað næst og hennar verð- ur sárt saknað þaðan. Anna var alltaf glöð og jákvæð, kvartaði aldrei og hallaði ekki á nokkurn mann. Henni var annt um fjölskylduna sína og alla í kringum sig. Fyrir fjórum mánuðum varð Anna áttatíu ára, þá kom fjölskyldan saman í Klömbur og hélt henni veislu og það var eftirminnilegur dagur. Síðast sá ég Önnu á aðfangadag, það er góð minning, heyrði svo í henni í síma á nýja árinu. Það er margs fleira að minnast en ég ætla að geyma það hjá mér eins og þú sagðir svo oft „Við geymum það hjá okkur“. Elsku Anna, nú er komið að leið- arlokum og nú er gullmolinn þinn dapur, ég mun sakna og minnast þín við ýmis tilefni. Nú munt þú dansa og spila í háum himinsölum með fólkinu þínu sem er farið, guð geymi þig, Anna mín. Ég sendi fjölskyldu hennar, systk- inum og vinum mínar hlýjustu sam- úðarkveðjur. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Þín, Kristjana Helgadóttir (Didda.) Anna Sigríður Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.