Morgunblaðið - 21.01.2011, Page 22

Morgunblaðið - 21.01.2011, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 ✝ Steindór Hjörleifs-son fæddist í Hraungerði, Hraun- gerðishreppi, Árnes- sýslu, 25. apríl 1938. Hann lést á lungna- deild Landspítalans í Fossvogi 6. janúar 2011. Foreldrar Stein- dórs voru Hjörleifur Sigurbergsson, f. 5.9. 1897, d. 10.5.1988, fæddur í Kotey í Með- allandi, bóndi í Hraun- gerði í Árnessýslu og síðar í Súluholtshjá- leigu og þar á eftir verkamaður í Reykjavík, og Ingveldur Ámunda- dóttir húsmóðir frá Kambi í Flóa, f. 24.12. 1903, d. 17.6. 1994. Börn þeirra auk Steindórs eru: Hulda Hjörleifs- dóttir, f. 13.7. 1925, Ingibjörg Hjör- leifsdóttir, f. 14.11. 1929, d. 27.11. 1993, Guðrún Hjörleifsdóttir, f. 30.4. 1931, og Bergný Hjörleifsdóttir, f. 8.1. 1935. Steindór kvæntist Unni Hjart- ardóttur, f. 4.1. 1945, hinn 6. apríl 1974. Foreldrar hennar voru Anna M. Hjartarson húsmóðir, f. 21.7. 1915, d. 24.9. 1974, og Hjörtur Hjartarson forstjóri, f. 6.4. 1915, d. 2.1. 1992. og vann sem sölumaður hjá Vélsmiðj- unni Héðni í mörg ár. Seinna ákvað Steindór að söðla um og réð sig þá til Almennra trygginga sem síðar urðu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Síð- ustu árin vann Steindór hjá forsæt- isráðuneytinu. Félagsstörf voru Steindóri ávallt mikilvæg og var hann virkur félagi innan Kiwanis- hreyfingarinnar og síðar einnig í Frí- múrarareglunni á Íslandi. Steindór gekk í Kiwanishreyfinguna (Kiwanis- klúbbinn Elliða í Reykjavík) í janúar 1973 og var virkur í starfi innan hreyfingarinnar allt til dánardags. Hápunktur embættisgöngu Steindórs innan Kiwanis var 1991-1992 er hann var umdæmisstjóri Kiwanishreyfing- arinnar fyrir Ísland og Færeyjar. Helstu embætti sem Steindór gegndi voru m.a.: Forseti Kiwanisklúbbsins Elliða (1983-1984), ritari umdæm- isþingnefndar Kiwanishreyfing- arinnar (1985), svæðisstjóri Þórs- svæðis (1986-1987), umdæmisritari (1988-1989), umdæmisstjóri umdæm- isins Ísland og Færeyjar (1991-1992) og ritari Evrópuþingnefndar í Reykjavík (1995). Steindór gekk í Frímúrararegluna á Íslandi árið 1993. Gegndi Steindór margvíslegum embættum og trúnaðarstörfum innan reglunnar. Útför Steindórs verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Sonur Steindórs og Unnar er Hjörtur Þór, f. 15.4. 1977. Kona hans er Thelma Guðmunds- dóttir, f. 18.9. 1977. Börn þeirra eru Ter- esa, f. 14.8. 2001, og Viktor Steinn, f. 2.8. 2010. Uppeldisbörn Steindórs eru: 1) Bald- vin Örn, f. 3.7. 1962, kona hans er Berglind Helgadóttir, f. 21.4. 1966, og börn þeirra eru Rakel Rut, f. 2.12. 1989, Unnur Björk, f. 26.10. 1997, og Baldvin Þór, f. 23.1. 2004, og 2) Jóhanna Sigríður, f. 26.4. 1964. Börn Steindórs úr fyrri sam- böndum eru: 1) Páll Steindór Stein- dórsson, f. 3.12. 1966, kona hans er Sigríður María Hammer, f. 19.1. 1971. Þeirra dætur eru Guðný Birta, f. 22.1. 2001, og Sara Elísabet, f. 7.8. 2002, og 2) Hanna Kristín Steindórs- dóttir, f. 21.7. 1972. Steindór lærði vélsmíði í Iðnskól- anum á Selfossi og var á námssamn- ingi hjá Kaupfélagi Árnesinga. Á þessum árum var hann meðlimur í Leikfélagi Selfoss og Lúðrasveit Sel- foss. Síðar flutti hann til Reykjavíkur Elsku pabbi, takk fyrir allar góðu stundirnar og ómetanlegan stuðning í gegnum tíðina. Þín er sárt saknað. Þótt minn elskulegi faðir og kæri vinur hafi nú kallaður verið heim til himinsins sælu sala og sé því frá mér farinn eftir óvenju farsæla og gefandi samferð, þá bið ég þess og vona að brosið hans blíða og bjarta áfram fái ísa að bræða og lifa ljóst í mínu hjarta, ylja mér og verma, vera mér leiðarljós á minni slóð í gegnum minninganna glóð. Og ég treysti því að bænirnar hans bljúgu mig blíðlega áfram muni bera áleiðis birtunnar til, svo um síðir við ljúflega hittast munum heima á himnum og samlagast í hinum eilífa ljóssins yl. (Sigurbjörn Þorkelsson) Hjörtur Þór. Mig langar að minnast tengdaföður míns, Steindórs Hjörleifssonar, með nokkrum orðum, margar minningar koma upp í hugann. Fyrstu kynni mín af Steindóri voru fyrir 15 árum, þegar ég kynntist núverandi manni mínum. Ég fann fljótlega að Unnur tengda- móðir mín og Steindór voru samheld- in hjón sem gott var að heimsækja. Hann hafði gaman af að bjóða okkur fjölskyldunni í grillmat eða annað góðgæti, ekki má gleyma sætu kart- öflunum sem hann skar í skífur og lauknum sem varð að vera með, hann lagði mikið upp úr góðu rauðvíni með matnum sem alltaf stóð fyrir sínu. Steindór var kátur og virkilega skemmtilegur maður, hann hafði húmor og sagði hlutina eins og þeir voru. Steindór hafði gaman af að dytta að húsi og garði þeirra hjóna í Vesturberginu. Hann málaði oftast eina til tvær hliðar á hverju sumri, því þá myndi það aldrei verða of mikið verk; ef það voru ekki hliðarnar á hús- inu þá var farið í þakið. Á vorin voru trén klippt og garðurinn snyrtur enda var Steindór mikið snyrtimenni. Það verður tómlegt að fá þig ekki aftur til okkar í Laufrimann með þína hlýju og góðu nærveru. Ég þakka þér fyrir, Steindór minn, allar góðu stundirnar og minningarnar geymi ég í hjarta mínu og bið góðan Guð að vera með þér. Elsku Unnur mín og aðrir ástvinir, megi Guð styrkja okkar og efla á erf- iðum stundum. Ég minningar geymi, ég man þær og skil. Þær minna á vordagsins blessaðan yl. Því syrgir minn hugur, ég sé þína mynd í sólhýru blómi, í fjallanna lind. Þá haustblærinn kaldur um heiðina fer ég hlusta og vaki og bið fyrir þér að veturinn hverfi, að vorsólin blíð vermi þitt hjarta um ókomna tíð. (Steinunn Þ. Guðmundsdóttir.) Þín tengdadóttir, Berglind Helgadóttir. Elsku Steindór, það er með miklum trega í hjarta mér sem ég sit hérna og rifja upp ótal minningar um atburði sem á vegi okkar urðu. Ég er mjög þakklátur fyrir þær allar og mig lang- ar að minnast á nokkrar. Meðal annars eru þau skipti sem þú varst að hugsa um garðinn í Vesturberginu sem var alltaf til fyrirmyndar eða að laga húsið. Það var málað á hverju ári og því hald- ið mjög snyrtilegu bæði að innan og ut- an. Einnig þau skipti sem þú stóðst við grillið og útkoman var flott nautasteik með grilluðum lauk og öðru meðlæti. Afi Steindór er það sem þú varst kallaður á mínu heimili. Mér er sér- staklega minnisstætt hversu vel þú tókst á móti henni Bellu minni þegar ég kom með hana og dóttur hennar, Rakel Rut, og kynnti fyrir þér og mömmu. Þú og Bella gátuð talað um tryggingar og hluti tengda þeim þar sem þið voruð bæði að starfa í þessu á þeim tíma. Síðan þegar fleiri barnabörn bætt- ust við, Unnur Björk og Baldvin Þór, þá varst þú alveg frábær í afahlut- verkinu. Krakkarnir vildu alltaf fara til ömmu og afa sem var ósjaldan því þið voruð svo skemmtileg heim að sækja. Einnig eru þau mörgu skiptin sem þið komuð í heimsókn á heimili okkar bæði í Berjarima og nú síðast í Laufrimann. Margar ferðir okkar í sumarbústaði þar sem þú og amma Unnur komuð með þar sem var grill- aður góður matur, tekið í spil og spjallað. Skemmtileg er ferðin til London sem við fórum í fyrir nokkr- um árum. Bella, ég og börnin okkar Rakel Rut, Baldvin Þór, Unnur Björk og amma Unnur og þú, afi Steindór. Við skoðuðum nánast alla borgina á morgnana og leyfðum síðan dömunum að fara að versla eftir hádegi. Síðan var farið út að borða á kvöldin og skál- að í góðu rauðvíni, sem þú hafðir mikið vit á og leiðbeindir okkur hvað ætti að drekka með hvaða mat. Ógleymanlegt er þegar við fórum á „pöbbinn þinn“ The Marlborough Head, Marble Arch. Ég var búinn að heyra svo margar sögur af þessum stað þannig að það varð að heimsækja hann og fengum við okkur kaldan bjór þar. Seinna í ferðinni fórum við tveir á knattspyrnuleik að sjá Arsenal taka á móti Newcastle á Highbury-vellinum gamla, það var mjög gaman og að sjálfsögðu var skálað í einni „pint“. Það er svo margs að minnast og mun ég hafa allar þessar minningar í hjarta mér og hugsa til þeirra þegar mig langar að hugsa til þín. Þú hafðir sterkar skoðanir, varst fastur fyrir og hlutirnir voru alltaf á sínum stað þar sem hægt var að ganga að þeim. Ég mun búa að þessu alla tíð og þakka þér fyrir það. En þrátt fyrir að vera með ákveðnar skoðanir á öllu, þá var alltaf stutt í húmorinn og það skildu allir í sátt. Ég er stoltur af því að þú hafir verið uppeldisfaðir minn og ég elska þig mjög mikið. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og kennt mér. Guð geymi þig og vaki yfir þér. Þú lifir áfram í hjarta mínu um ókomin ár. Baldvin Örn. Í örfáum orðum langar mig að kveðja kæran mág minn og vin, Stein- dór Hjörleifsson, sem lést hinn 6. jan- úar sl. langt um aldur fram. Hann kom inn í fjölskyldu mína þegar þau Unnur, systir mín, gengu í hjónaband 6. apríl 1974. Steindór gekk tveimur börnum Unnar, Baldvini Erni og Jóhönnu Sig- ríði, í föðurstað. Þau Unnur eignuðust síðan soninn Hjört Þór árið 1977. Þau byggðu sér hús við Vesturberg. Eins og þá var títt lögðu þau sjálf mikla vinnu í húsbygginguna og nutu sín þá margþættir hæfileikar Stein- dórs á sviði handverks. Breiðholtið var að byggjast upp á þessum tíma og börnin eignuðust góða vini í hverfinu. Hjörtur Þór æfði knattspyrnu hjá Leikni, íþróttafélagi hverfisins. Steindór hafði einhvern tíma orð á því að stundum hefði verið erfitt að vakna snemma flesta morgna um helgar til að fylgjast með ungu knatt- spyrnumönnunum. Þetta átti síðar eftir að koma syninum vel, því að hann naut knattspyrnuhæfileika sinna þegar hugur hans stefndi á há- skólanám í Bandaríkjunum. Þar greiða menn götu góðra íþrótta- manna í háskólum og naut Hjörtur Þór þess. Morgnarnir hans Steindórs við knattspyrnuvöllinn skiluðu sér margfalt. Steindór vann lengi við sölu og ráð- gjöf hjá Héðni og hafði kynnt sér vel stýrikerfi frá Danfoss. Hann þótti vel að sér í þessum fræðum og leituðu margir ráða hjá honum um þessa tækni, bæði lærðir og leikir. Eftir margra ára farsæl störf hjá Héðni sneri hann sér að sölu og ráðgjöf á allt öðru sviði og réð sig til starfa hjá Al- mennum tryggingum, síðar Sjóvá-Al- mennum. Steindór var fljótur að setja sig inn í heim vátryggingamála sem vænta mátti. Hann ávann sér fljótt traust og virðingu, bæði samstarfsmanna og viðskiptavina. Mannkostir hans nutu sín einkar vel í þeim nánu mannlegu samskiptum sem góðum trygginga- manni eru svo mikilvæg. Prúð- mennska, hæverska og yfirvegun voru aðalsmerki Steindórs bæði í leik og starfi. Þegar Íslandsbanki eignaðist Sjóvá komu til nýjar starfsaldurs- reglur, sem gerðu það að verkum að starfsmenn hættu störfum fyrr en áð- ur hafði tíðkast. Ég man að Steindór var fremur ósáttur við þetta, þar sem hann hafði bæði heilsu og áhuga á að vera lengur við störf. Það voru ekki síður viðskiptavinir hans sem voru ósáttir við að missa sinn mann úr starfi. Ég minnist þess að bæði mitt fyrirtæki og fleiri urðu hálfpartinn munaðarlaus við brottför Steindórs, þar sem hann hafði árum saman séð um öll tryggingamál af natni og ná- kvæmni. Síðustu árin starfaði Stein- dór í forsætisráðuneytinu í gamla Stjórnarráðshúsinu og líkaði það vel. Steindór var mikill félagsmálamað- ur og starfaði bæði í Kiwanishreyf- ingunni og Frímúrarareglunni. Þar eins og annars staðar ávann hann sér virðingu og traust og voru honum fal- in margvísleg trúnaðar- og ábyrgð- arstörf. Steindór var einstaklega þægilegur í allri viðkynningu, hægur, hlýr og húmorinn aldrei langt undan. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum nú Steindór Hjörleifsson. Ég bið Guð að styrkja Unni og fjöl- skyldu á þessum erfiðu tímamótum. Það er þó huggun harmi gegn að minningin um góðan dreng lifir. Hjörtur Örn Hjartarson. Við fráfall Steindórs Hjörleifsson- ar hvarflar hugurinn til löngu liðinna daga þegar ég sá hann í fyrsta sinn, sjö ára snáða sem síðar átti eftir að verða mágur minn. Þetta var árið 1945 þegar ég gerðist kennari í Vill- ingaholtshreppi og kynntist fjöl- skyldu Hjörleifs og Ingveldar. Stein- dór var yngsta systkinið, augasteinn foreldra sinna og systranna fjögurra enda mikil gleði í fjölskyldunni þegar hann fæddist og strákur bættist loks- ins í stelpnahópinn. Frá blautu barnsbeini var Steindór afar félagslyndur og skemmtilegur og einkenndu þessir eðlisþættir hann alla tíð. Þegar hann var strákur í heimsókn hjá okkur Huldu á Brekkustíg 19 lað- aði hann börnin í nágrenninu um- svifalaust að sér og varð foringi þeirra og hrókur alls fagnaðar. Sem ungur maður fór Steindór í Iðnskólann á Selfossi og útskrifaðist þaðan. Þá kom enn betur í ljós hversu vel hann naut sín í félagsstarfi. M.a. spilaði hann í Lúðrasveit Selfoss og lék með Leikfélagi Selfoss. Við í fjöl- skyldunni dáðumst að leik hans í Nirflinum eftir Molière og túlkun hans á Arneas í Fjalla-Eyvindi, enda fékk hann góða dóma. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hann starfaði m.a. hjá Vélsmiðjunni Héðni, Trygg- ingafélaginu Sjóvá og nú síðast hjá forsætisráðuneytinu. Alls staðar var hann sérlega vel liðinn og duglegur til vinnu. Steindór var alla tíð í miklum og góðum tengslum við fjölskylduna á Hjarðarhaga 26. Hann var ómissandi í hvert sinn sem haldið var upp á af- mæli, fermingarveislur voru haldnar, prófum fagnað eða annað tilefni var til að hittast og gleðjast. Ekki spillti fyrir þegar við fengum að kynnst Unni og fylgjast með samheldni þeirra og hamingju. Að leiðarlokum er okkur í fjöl- skyldunni efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt að jafn góðan bróður, mág og frænda og Steini var. Hans verður sárt saknað enda er óhætt að segja að hann lýsti upp um- hverfið í hvert sinn sem fundum bar saman. Eftirlifandi eiginkonu, börn- um og öðrum aðstandendum bið ég guðs blessunar. F.h. fjölskyldunnar, Sveinbjörn Einarsson. Elsku afi Steindór. Við söknum þín mjög mikið og munum geyma minningar um þig í hjarta okkar. Þú varst alltaf svo góð- ur við okkur og skemmtilegur. Ó, himins blíða hjartans tár er hjúpar sorg, þótt blæði sár, þín miskunn blíð, hún mildar barm, hún mýkir tregans sára harm. Þú ert það ljós, það lífsins mál, er ljúfur drottinn gefur sál. Nú hljóð er stund, svo helg og fríð, að hjarta kemur minning blíð. Hún sendir huga bros þitt bjart, blessar, þakkar, þakkar allt. Hún minnir sál á sorgaryl, sendir huggun hjartans til. (Steinunn Guðm.) Rakel Rut, Unnur Björk, Baldvin Þór. Nú kveð ég svila minn og góðan vin sem á þrettánda degi jóla lét undan í baráttunni við sjúkdóm sinn. Við Steindór kynntumst á áttunda áratug síðustu aldar rétt eftir að við Ia gift- umst og Steindór hóf að draga sig eft- ir Unni yngri systur Iu með þeim ár- angri að úr varð hjónaband milli þeirra sem stóð allt til þess að dauð- inn skildi þau að. Strax tókst góð vinátta milli okkar Steindórs enda maðurinn skemmti- legur með afbrigðum og hrókur alls fagnaðar þegar sá gállinn var á hon- um, hvort sem við vorum í sunnu- dagskaffi í Laugarásnum, á laxveið- um í Dölunum eða Hrútafirði, lágum fyrir gæsum í Súluholti, í fjölskyldu- útilegum á fegurstu stöðum Íslenskr- ar náttúru eða síðast en ekki síst þeg- ar við sinntum tösku- og pokaburði fyrir systurnar í ótal „tuskusafarí“- ferðum til Glasgow, Lundúna eða Amsterdam. Allt eru þetta góðar minningar sem hrannast upp nú þegar litið er yfir farinn veg og góður drengur kvadd- ur, nú þegar ljós hans hefur slokknað hérna megin. En ég veit hann trúði á nýtt upphaf handan lífs og grafar, megi Alfaðir taka við Steindóri og leiða hann inn í ríki sitt um leið og hann veitir Unni, börnum þeirra og fjölskyldum líkn og huggun í missi þeirra og styrki þau í sorg sinni. Björn Jóhannsson. Í dag er til moldar borinn Steindór Hjörleifsson frændi, samstarfsmaður og síðast en ekki síst vinur minn. Þótt ég hafi alltaf vitað af Steindóri frænda mínum hófust kynni okkar ekki fyrir alvöru fyrr en við urðum samstarfsmenn í Héðni fyrir nokkr- um áratugum. Þar varð mér fljótt ljóst að hann hafði traust og virðingu hvort heldur var samstarfsmanna eða viðskiptavina. Þarna unnum við sam- an í nærri tuttugu ár, og ég horfi ætíð til þessara ára með ánægju og er það ekki síst vegna þess umhverfis sem Steindór og félagar okkar sköpuðu á vinnustaðnum. Eftir árin í Héðni fór Steindór að vinna við tryggingasölu hjá VÍS og síðar hjá Sjóvá. Nú var ég orðinn einn af hans viðskiptavinum, alltaf reynd- ist hann ábyrgur og leiðbeindi af heil- indum. Aftur lágu leiðir okkar Steindórs saman þegar hann kom til vinnu í for- sætisráðuneytinu, en þar vann hann sem vaktmaður, í stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu, og unnum við þar saman síðustu sex árin. Steindór naut sín vel í þessu starfi og gerði ávallt sitt besta enda mikill heiðursmaður að upplagi. Steindór var mikill félagsmálamað- Steindór Hjörleifsson ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, BERTA BREKKAN PÉTURSDÓTTIR, lést á heimili sínu Tibro í Svíþjóð laugardaginn 25. desember. Bálför hefur farið fram. Helgi Pétursson, börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.