Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 ✝ Haukur Már Sig-urðsson fæddist 29. júní 1968. Hann lést 12. janúar 2011. Foreldrar hans eru Sigurður Birgir Magnússon, fæddur 14.9. 1935 í Hafn- arfirði, og Hjördís Hentze, fædd 7.9. 1932 í Færeyjum. Systkini Hauks eru Ólafur Sigurðsson, fæddur 15.4. 1961, eiginkona Winnie Bertholdsen, Björn Bragi Sigurðsson, fæddur 11.4. 1962, eiginkona Ingibjörg Gunn- arsdóttir, og Freyja Margrét Sig- urðardóttir, fædd 30.7. 1965, eig- inmaður Helgi Jón Harðarson. Haukur kynntist eiginkonu sinni, Ágústu Heru Birgisdóttur, árið 1989 og gengu þau í hjóna- band 24.6. 1995. Foreldrar Ágústu eru Erla Gísladóttir, fædd 4.4. 1938, og Birgir Breiðfjörð Pét- ursson, fæddur 31.12. 1934, d. 17.12. 1998. Börn Hauks og Ágústu eru Stefán Breiðfjörð Gunn- laugsson, fæddur 8.1. 1985, og Hjördís Hera Hauksdóttir, fædd 20.9. 1990. Son- ur Stefáns er Tristan Breiðfjörð, fæddur 9.1. 2009. Haukur ólst upp í Hafnarfirði og bjó þar allt sitt líf, fyrir utan eitt ár í Reykja- vík. Haukur byrjaði ungur að stunda sjómennsku og gerði það allt til febrúar 2006 er hann hóf störf hjá Jarðborunum. Starfaði hann þar til haustsins 2010, þegar hann hóf aftur að stunda sjó- mennsku. Útför Hauks verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 21. janúar 2011, og hefst at- höfnin kl. 13. Elsku hjartans sonur. Við þökkum þér fyrir allar yndislegu stundirnar okkar saman, sorgin að þurfa að kveðja þig er ólýsanleg. Við trúum að þú sért í góðum höndum, umvafinn horfnum ástvinum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Sofðu rótt drengurinn okkar. Mamma og pabbi. Elsku pabbi minn. Mér er þungt um hjarta að setjast niður og skrifa um þig minningargrein. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért far- inn og sért ekki lengur til staðar eins og það hefur alltaf verið. En allar þær fallegu og skemmtilegu minningar sem þú skilur eftir á ég eftir að eiga til að ylja mér um hjartarætur um ókomna tíð. Ég var aðeins rúmlega þriggja ára þegar við kynntumst og alla tíð síðan höfum við búið undir sama þaki og skapað einstök vináttutengsl á þeim 23 árum sem liðin eru. Það fór vel á með okkur félögum saman og bröll- uðum við ýmislegt. Þú varst alltaf til staðar þegar maður leitaði til þín með hitt og þetta. Það er ekki bara eitt- hvað eitt, það er bara allt, þú reyndir alltaf að hjálpa manni og oft þurfti maður ekki að biðja um það, þú varst bara búinn að því. Maður brosir í gegnum tárin að hugsa um alla brandarana og fíflalæt- in í kringum þig oft og mörgum sinn- um. Vinir mínir lágu oft í gólfinu í hláturskasti yfir uppátækjum þínum. Þú varst svona náttúrulega fyndinn, þurftir ekkert að hafa fyrir því. Elsku pabbi, það voru svo bjartir tímar framundan hjá okkur. Við vor- um að fara að flytja inn saman á nýj- an stað þar sem við ætluðum að sníða íbúðina að afabarninu honum Tristan Breiðfjörð og skapa fallegt og gott umhverfi fyrir hann. Ég var alveg að klára námið og ætluðum við sko að fara saman að veiða og bralla hitt og þetta. Ég mun aldrei gleyma hversu góð- ur afi þú varst. Þú elskaðir afabarnið þitt svo mikið að þú alveg ljómaðir alltaf þegar hann kom í heimsókn, enda ekki við öðru að búast því eins barngóðan mann var ekki hægt að finna. Tristan sá mynd af þér í gær, hann fékk alveg ljóma í augun, benti á myndina og sagði „afi“ og velti mynd- inni svo fyrir sér. Hann er svo lítill ennþá að hann skilur ekki að afi hans sé farinn. Ég mun alltaf sjá til þess að Tristan fái að vita af Hauki afa og mun verða duglegur að segja honum sögur af þér og öllu því fallega og skemmtilega sem þú hefur gert. Elsku pabbi og afi, þín mun alltaf verða sárt saknað og vitum við að þú ert kominn á stað þar sem þér líður vel og þú munt vaka yfir okkur. Ástarkveðjur, Stefán Breiðfjörð og Tristan Breiðfjörð. Elsku pabbi minn. Þú varst besti pabbi sem stelpa getur átt, ég elska þig meira en allt. Ég veit að þótt þú verðir ekki með mér líkamlega þá verður þú með mér í hverju skrefi sem ég tek og munt eiga stóran þátt í öllum ákvörðunum sem ég tek. Ég get nú ekki annað en þakkað fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman þar sem ég var algjör pab- bastelpa. Þótt þú færir svona skyndi- lega veit ég að þú elskaðir mig eins mikið og ég elska þig. Allar þær minningar og myndir, eiginlega allt það sem við gerðum saman, hlýja mér um hjartarætur og mun ég alltaf varðveita þær og minnast þeirra. Elsku pabbi minn, flotti pabbi minn, þú varst sá sem ég gat alltaf treyst á. Gátum við ávallt hlegið og grátið saman og var það eitt sem þú gast alltaf og það var að koma mér í gott skap. Ég elska þig svo mikið, þú ert minn eini pabbi og verður það allt- af. Mér leið alltaf svo vel með þér og ég veit að ég á vísan verndarengil núna, sem mun fylgja mér ávallt í gegnum lífið. Þín dóttir, Hjördís Hera Hauksdóttir. Elsku litli bróðir. Síðustu dagar hafa liðið hjá eins og í þoku, ég bíð alltaf eftir að þú hringir eða gangir inn um dyrnar. Það er svo sárt að geta ekki heyrt í þér röddina og faðm- að þig einu sinni enn. Ég reyni að hugga mig með því að hugsa um allar skemmtilegu stundirnar okkar, bæði þegar við vorum krakkar og eins eftir að við urðum fullorðin. Mikið var hlegið og varst þú alltaf mesti fjör- kálfurinn af okkur systkinunum, enda yngstur og mikið dekraður að því er mér fannst. Alltaf gat ég leitað til þín, hvort sem mig vantaði öxl til að gráta við, eða þá að eitthvað þurfti bara að laga. Ég skal passa upp á Hjördísi og Stefán og fylgja þeim í gegnum lífið. Við fjölskyldan stöndum öll saman og styrkjum hvert annað. Þín er svo sárt saknað. Hvíldu í friði, Haukur minn. Þín stóra systir, Freyja. Hann er farinn frá okkur hann Haukur mágur minn. Það erfitt að kveðja Hauk, hann fór allt of hratt, og svo skyndilega. Eftir sitja minningar um góðan dreng sem ég kynntist 22 ára gamall, þá nýbúinn að kynnast systur hans, henni Freyju minni. Haukur var þarna 17 ára og nýkomin með bílpróf. Ég skynjaði strax náið samband þeirra á milli, og hann var í miklu uppáhaldi hjá Freyju, enda þau yngst barna tengdaforeldra minna, þeirra Sigga og Hjördísar, eldri bræður eru Diddi og Óli. Haukur fór ungur maður á sjóinn með Didda bróður sínum, þeir voru saman vel á annan áratug, á Hring GK, sjómennska lá vel fyrir Hauk, síðan kom nokkurra ára hlé frá sjó- mennsku, en sl. mánuði var Haukur aftur kominn á sjó fyrir tilstilli bróður síns. Haukur var 42 ára þegar hann yfirgaf þennan heim, samt hafði hann lítið breyst á milli ára, alltaf grannur, hraustur, og myndarlegur, hann hafði einhvern sjarma eða nærveru yfir sér, sem heillaði mann og annan við náin kynni. Haukur kom oft í heimsókn, enda mikill fjölskylduvinur, þá oftar en ekki með augasteininn hana Hjördísi dóttur sína með sér og stjúpsoninn, hann Stefán. Þá var ávallt glatt á hjalla og Haukur fór á kostum í gríni og glensi, hann átti það líka til að vera svolítið stríðinn, og fóru systur hans og dætur okkar ekki varhluta af því. Haukur var afar barngóður maður og hjálpsamur, gat sjaldan sagt nei, alla- vega ekki við systur sína, hann var bara mættur ef eitthvað bjátaði á og þurfti að laga, og eða bara að kokka góðan mat sem hann hafði sjálfur veitt í sveitinni okkar. Haukur náði vel til dætra minna, hann gat skrafað við þær á þeirra nótum, sæmilega kærulaus, glettinn og kátur, virkaði yngri fyrir vikið, svolítill töffari, þetta svínvirkaði, hann var tekinn í guða- tölu á heimilinu, hann leysti mig líka stundum af hólmi í pabbastarfinu þegar ég var ekki heima. Mér líkaði vel við Hauk, kostirnir miklir og gall- arnir fáir, hann var ekki bara frændi barnanna okkar hjóna og vinur, held- ur eitthvað miklu meira, eitthvað sem orð fá ekki lýst. Góðar minningar um Hauk eru endalausar. Helgi Jón Harðarson. Elsku Haukur frændi. Ég sakna þín svo sárt og vildi óska þess að þú værir hérna hjá mér. Enn bíð ég eftir að þú komir í heimsókn, þótt ég viti að þú hvílir þig annars staðar. Minning- arnar um þig mun ég varðveita í hjarta mínu alla tíð og eru þær marg- ar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín litla frænka, Glódís. Elsku frændi, orð fá því ekki lýst hversu sárt og mikið ég sakna þín. Ég vissi ekki að það væri hægt að finna fyrir svona mikilli sorg og söknuði. Ég hef ekki enn náð því að þú sért ekki lengur hjá okkur og mun líklega ekki gera það strax, ég bara bíð eftir að þú labbir inn um dyrnar brosandi, nýkomin af sjónum. Mér finnst þetta svo óraunverulegt. Fjölskyldan okk- ar hefur alltaf verið svo náin og það er svo sárt að vita að það vanti núna einn í hópinn. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért ekki hjá okkur lengur. Ég á svo endalaust af góðum minn- ingum um þig sem ég mun aldrei gleyma. Þú varst alltaf svo góður, gerðir allt fyrir okkur systurnar og fyrir alla sem báðu um hjálp þína eða þurftu á þér að halda. Þú varst svo frábær maður, alltaf glaður og bros- andi. Þú komst okkur krökkunum alltaf til að hlæja með öllu gríninu þínu og sögunum frá því að þið systk- inin voruð lítil. Þú varst einstaklega góður í því að herma eftir ömmu og alltaf hlógum við jafnmikið að þér. Ég leit alltaf svo upp til þín, sér- staklega þegar ég var lítil og þú tókst mig alltaf með að gera eitthvað skemmtilegt með ykkur Hjördísi, ljósinu í lífi þínu. Ég mun aldrei gleyma hversu spennt ég var í hvert skipti sem ég sá bílinn þinn keyra nið- ur götuna, ég hljóp alltaf út að taka á móti þér, það var alltaf svo gaman að fá Haugga frænda í heimsókn. Ég elti þig um allt þegar ég var lítil og keppti um athygli þína við Hjördísi. Ég var svo heppin að eiga svona góðan frænda sem gerði allt fyrir mig. Þú varst svo stoltur pabbi og afi og sinntir þeim hlutverkum svo vel eins og öllu öðru. Ég hef alltaf litið á þig sem miklu meira en bara móðurbróður minn. Þú varst svo miklu meira fyrir mér en það. Þú varst fyrirmynd mín og vinur. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og hafa þig í lífi mínu og fyrir allar þær frábæru minningar sem ég á um þig. Ég trúi því að nú sért þú í góðum höndum og munir alltaf vaka yfir okkur og passa okkur. Ég vona svo innilega að við hittumst einhvern tímann aftur öll fjölskyldan saman. Ég lofa þér því að ég mun alltaf passa upp á Hjördísi þína, ég veit hversu mikið þú dýrkaðir og elskaðir hana. Þú varst besti frændi sem nokkur gæti hugsað sér. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu og ég mun alltaf sakna þín. Hvíldu í friði elsku frændi. Þín Freydís. Það kom eins og þruma úr heið- skíru lofti þegar síminn hringdi og mér sagt að bróðursonur minn Hauk- ur Már hefði látist fyrr um daginn. Ég át það upp eftir þeim sem hringdi og ætlaði ekki að trúa því. Haukur, sem alltaf var svo léttur, horfinn á braut. Það var sem tíminn hefði staðnæmst. Var þetta satt? Ánægjulegar samverustundir í ný- liðnu jólaboði þar sem allir hittust glaðir og ánægðir og svo bara allt bú- ið. Enginn spyr að leikslokum. Haukur var yngstur fjögurra barna bróður míns, fæddur 29. júní 1968, en sá dagur var brúðkaupsafmælisdagur foreldra okkar. Hann var góður vinur yngri sona minna sem voru nær hon- um í aldri en eldri börn mín, en engu að síður er þetta jafnmikið áfall fyrir þau. Fyrstu samverustundir minnar fjölskyldu og Hauks voru þegar hann var nokkurra vikna og við fórum báð- ar fjölskyldurnar með foreldrum okk- ar Magnúsi og Freyju í Ölfusborgir, við viljum trúa því að þau hafi tekið á móti honum þar sem hann er núna. Kæri Siggi og Hjördís, Ágústa, Hjördís Hera, Stefán, Óli, Diddi og Freyja og fjölskyldur, við vottum ykkur innilega samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur öll í þessari stóru sorg. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Hvíl í friði kæri frændi. Sigfús og Elísabet. Í dag verður hann Haukur Már frændi okkar borinn til grafar – og Guði falinn. Við systkinin minnumst Hauks með hlýju og sorg í hjarta. Haukur var sonur Sigurðar föðurbróður okk- ar og Hjördísar konu hans. Yngstur af systkinum sínum en mitt á milli okkar systkinanna í aldri. Sum okkar minnast hans því sem litla barnsins en önnur sem stóra frænda. Þó svo að leiðir hafi skilið á fullorð- insárum heyrðum við alltaf hvert um annað. Fylgdumst með stórum stundum í lífi hvert annars og hitt- umst af og til á góðum stundum. Það hefur alltaf verið hlýtt á milli okkar frændsystkina þó svo að við værum ekki í daglegu sambandi, en góð og sterk tilfinning um að við til- heyrðum hvert öðru. Við getum ekki alltaf skilið lífsins vegi, og hvers vegna ungur maður kveður í blóma lífsins. Við getum bara hugsað fallega til hans Hauks og beðið Guð að taka vel á móti honum. Kæra Ágústa, Hjördís Hera, Stef- án, Siggi og Hjördís, Óli, Freyja, Diddi og fjölskyldur, hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Megi Guð gefa ykkur styrk i sorg- inni. Magnús, Elísabet, Þór, Steingrímur og fjölskyldur. Út við sjóndeildarhringinn eru hvít segl, sem smám saman hverfa sjón- um okkar. Við rétt sjáum til skipsins sem flyt- ur þig elsku Haukur í síðasta sinn yf- ir hafið. Á ströndum eilífðarlandsins bíða ættingjar og vinir eftir að taka á móti þér og umvefja þig ást og hlýju. Í þetta sinn var okkur ekki ætlað að fara saman um borð, eins og svo oft áður. Við höfum verið nánast allt- af saman til sjós frá því að þú hófst þína sjómennsku. Minningar frá bernskuárunum og sjómennskunni eru dýrmætar perlur auk allra sam- verustundanna sem við höfum átt svo margar með fjölskyldum okkar, og ylja okkur um hjartarætur í framtíð- inni. Elsku Haukur. Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum þig og fylgj- um þér síðasta spölinn. Guð geymi þig og varðveiti. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þinn bróðir og fjölskylda, Björn (Diddi), Ingibjörg, Sigurður, Birna, Hermann og börn. Haukur Már Sigurðsson ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, JÓNASAR HELGASONAR frá Stórólfshvoli, Núpalind 4, Kópavogi. Guðrún Árnadóttir, Særún Jónasdóttir, Kjartan Sigurðsson, Helgi Jónasson, Bodil Mogensen og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og lang- afa okkar, GUNNARS VALS HERMANNSSONAR, Höfðavegi 11, Hornafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks HSSA, Hornafirði, fyrir frábæra umönnun. Birna Skarphéðinsdóttir, Bragi Hermann Gunnarsson, Natalja Gunnarsson, Sæmundur S. Gunnarsson, Guðrún Halla Einarsdóttir, Ólöf Kristjana Gunnarsdóttir, Benedikt Helgi Sigfússon, Hulda Valdís Gunnarsdóttir, Jón Garðar Bjarnason, Matthildur Birna Gunnarsdóttir, Gunnar Kristófer Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.