Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 ✝ Fanney Hjalta-dóttir fæddist á Hólmavík 14. nóv- ember 1913. Hún lést á hjartadeild Land- spítalans 14. janúar 2011. Fanney var dóttir hjónanna Hjalta Steingrímssonar frá Hólum í Staðardal, smiðs og útgerð- armanns á Hólmavík, og Sigurlínu Tómas- dóttur frá Gljúfurá í Arnarfirði, fyrstu tal- símakonunnar á Hólmavík, en Hjalti faðir Fanneyjar varð fyrsti símstöðvarstjórinn á staðnum er hann tók símann inn á sitt heimili árið 1910. Fanney var eina barn foreldra sinna. urtney Mary, f. 1997, og Brittany Nicole, f. 2000, og Fanney Anna, bankastarfsmaður í New York, en fjölskylda Ásthildar býr í Banda- ríkjunum. Börn Hjalta Ingimundar og Guðrúnar Jónsdóttur eru tvö. Þorsteinn, kennari, í sambúð með Söru Níelsdóttur, barn þeirra er Arna Þorsteinsdóttir, f. 2006, og Sigurlaug, jarðeðlisfræðingur, í sambúð með Böðvari Sveinssyni, barn þeirra er Hjalti Böðvarsson, f. 2007. Börn Guðmundar og Krist- ínar Mögnu Guðmundsdóttur eru þrjú. Fanney, Þórður, guðfræð- ingur og þroskaþjálfi, og Bjarni, læknir, sem er í sambúð með Lindu Viðarsdóttur. Barn Bjarna og Lindu Viðarsdóttur er Kristín Em- ilía, f. 27. sept. 2010. Barnabörn þeirra Fanneyjar og Þórðar eru sjö og barnabarnabörnin fimm. Jarðaför Fanneyjar fer fram frá Garðakirkju, Garðabæ í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Fanney Hjaltadótt- ir giftist haustið 1934 Þórði Guðmundssyni múrara frá Kleifum á Selströnd í Stein- grímsfirði. Þau áttu eftir að búa saman í hjónabandi næstu 70 árin eða þar til Þórð- ur féll frá 2004. Börn þeirra urðu þrjú: Ást- hildur, gift Guðmundi Benediktssyni, Hjalti Ingimundur, í sambúð með Helgu Bahr, áð- ur kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur og Guðmundur, kvænt- ur Kristínu Mögnu Guðmunds- dóttur. Börn Ásthildar og Guð- mundar Benediktssonar eru tvö, Benedikt rafvirki, kvæntur Diane Benediktsson, börn þeirra eru Co- Langt erum liðið, hátt í fimmtíu ár, síðan ég hitti Fanneyju í fyrsta sinn. Ég kom í fylgd með syni henn- ar. Ég hafði hálfkviðið fyrir þessari heimsókn en þess var ekki þörf. Hún tók mér vel frá fyrstu stundu. Mér fannst einhvern veginn eins og ég hefði þekkt hana lengi og með okkur tókst vinátta sem hélst í gegnum árin. Hún opnaði heimili sitt fyrir okkur þegar við komum heim eftir dvöl erlendis, ekki bara einu sinni heldur aftur þar til við gátum flutt inn á eigið heimili. Hún var ávallt fús til að gæta barnanna okkar og taldi það aldrei eftir. Margar ógleymanlegar stundir áttu þau hjá ömmu, úti í garði eða inni í stofu sem oft var breytt í leikvöll. Hún kunni að laða að sér börn og taka þátt í leik þeirra. Fanney var fædd og uppalin á Hólmavík og átti heima þar fyrri hluta ævinnar. Henni varð tíðrætt um æskuslóð- irnar og vinina sem hún yfirgaf á miðjum aldri þegar hún og Þórður brugðu búi og fluttu suður. Hólma- vík bar oft á góma í samræðum okk- ar. Einn uppáhaldsstaðurinn hennar voru Borgirnar fyrir ofan þorpið. Þangað gekk hún oft og horfði út yf- ir sjóinn. Ég gisti í þorpinu að sum- arlagi fyrir fáeinum árum. Vaknaði snemma og gekk upp í Borgirnar í glampandi sól og logni. Sjórinn var spegilsléttur og sindraði í sólarbirt- unni. Þá varð mér hugsað til Fann- eyjar og skildi vel dálæti hennar á þessum stað. Eftir að suður kom var reist hús í Garðabænum á Smáraflötinni sem var heimili hennar þar til fyrir fáein- um mánuðum þegar heilsan gaf sig. Á Smáraflötinni festi hún yndi á ný og þar ræktaði hún fagran blóma- og trjágarð, einn hinn fegursta í hverfinu. Þau hjónin Fanney og Þórður voru afar gestrisin og þang- að lögðu margir leið sína. Oft var gengið um garðinn og dáðst að gróðrinum og ýmsum sjaldgæfum tegundum sem Fanney hafði komið til. Síðan var sest að kaffiborði inni í stofu en þau hjónin voru sannkall- aðir höfðingjar og veitingarnar hefðu sómt sér vel á hvaða veislu- borði sem var. Fanney var í Garðyrkjufélaginu og tók virkan þátt í starfi þess. Hún var mikil handavinnukona og eftir hana liggja mörg falleg verk og prjónaflíkur. Að leiðarlokum er margs að minn- ast og fyrir margt ber að þakka. Á okkar löngu samleið var hún mér einstakur vinur og bandamaður jafnt í gleði og sorg. Síðasta heimsóknin mín til hennar var á Þorláksmessu. Hún var hress og við áttum góða stund saman. Ég hefði svo gjarnan viljað koma aftur en biðinni hennar er nú lokið og hún er komin til hans Þórðar sem vitjaði hennar svo oft í draumi. Ég kveð vinkonu mína með ást og þakklæti fyrir allt það sem hún var mér og öllu mínu fólki. Guðrún Jónsdóttir. Lítil hnáta leikur sér í garðinum hjá ömmu sinni á sumardegi, garð- urinn er stór og í matjurtargarð- inum, þar sem kartöflugrösin eru farin að teygja vel úr sér, hefur arf- inn einnig notið næringarríks jarð- vegsins. Amman missir sjónar á telpunni, er orðin áhyggjufull og fer að kalla á þá litlu. Þá heyrist loks: „Amma, ég er hér, í arfahúsi.“ Það var nýlega sem amma minntist á þetta litla atvik úr æsku minni sem ég hafði gleymt, en varð á ný ljóslif- andi í huga mér. Síðan þá hefur mér æ oftar orðið hugsað til allra þeirra mörgu ljúfu samverustunda sem við áttum á Smáraflötinni, heimili þeirra afa í Garðabænum. Stóri, gróni garðurinn, sem bar merki um ástríðu hennar á garð- rækt og hafði þegar best lét að geyma meira en 300 tegundir plantna, var endalaus uppspretta nýrra ævintýra og kennslustunda í að raka heyi í garða, gera að, læra að þekkja öll skrautblómin og hvað var illgresi. Við fórum gjarna í spássitúra í kaupfélagið eða niður að læk þar sem ég fékk oft að hlaupa yfir allar brýrnar þrjár og við tíndum hóf- sóleyjar og hrafnaklukkur. Amma var ekki lengi að töfra fram gull- fallegar prjónaflíkur, útsaumaða púða eða dúkkuföt á handsnúnu saumavélina sína, og hún kenndi mér líka að prjóna, hekla og sauma flíkur í höndum, kunnátta sem var fyrst um sinn óspart notuð til þess að hanna og framleiða hverja nýtískudúkkuflíkina á fætur ann- arri, og svo síðar eitthvað stærra á góða vini og nána fjölskyldumeðlimi. Amma mín Fanney var mér svo miklu, miklu meira en þessi fáu minningarorð ná að segja og ég er henni óendanlega þakklát fyrir allt sem hún gaf mér. Það er erfitt að kveðja hana en eftir ríflega 97 ára langa ævi var hún farin að þrá hinstu hvíld. Ég vil þakka henni fyr- ir allt og allt. Sigurlaug Hjaltadóttir. Fanney Hjaltadóttir ✝ Þorsteinn BjörnGuðmundsson var fæddur í Efri-Hlíð í Helgafellssveit á Snæfellsnesi 13. nóv- ember 1921. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 12. janúar 2011. Foreldrar hans voru Guðmundur Ari Gíslason, f. 1880, d. 1956, og Sigríður Helga Gísladóttir, f. 1891, d. 1970. Systk- ini Þorsteins voru Sigurlaug, f. 1911, d. 2003, Vil- hjálmur, f. 1912, d. 1971, Gunnar, f. 1913, d. 1974, Sigrún, f. 1915, d. 2000, Anna, f. 1916, d. 1990, Hulda, f. 1918, d. 1995, Gísli, f. 1919, d. 2001, Guðrún, f. 1920, d. 2003, Mar- grét Fjóla, f. 1923, d. 1998, Ey- steinn, f. 1924, Ingimar Hólm, f. sonur), b) Þröstur, f. 1982, c) Birkir Örn, f. 1984, d) Haukur Smári, f. 1990, e) Þorsteinn Húni, f. 1991. 3) Hugrún, f. 1963. Maki Kristján Reynir Pálsson, f. 1962. Börn þeirra eru: a) Sara Sólveig, f. 1997, b) Lena Lísbet, f. 1999, c) Jóel Thó- mas, f. 2002. Fyrir átti Kristján son- inn Daníel Hoe, f. 1985. Barna- barnabörn Þorsteins og Sigríðar eru sex. Þorsteinn stundaði nám við Hér- aðsskólann í Reykholti 1938-1939, Íþróttaskólann í Haukadal 1943- 1944 og við Kennaraskóla Íslands 1944-1947 er hann lauk kenn- araprófi. Þorsteinn kenndi við Laugarnesskóla í Reykjavík 1947- 1952 en síðar við Langholtsskóla í Reykjavík allt til ársins 1993 er hann lét af störfum. Einnig vann Þorsteinn um árabil fyrir Orðabók Háskóla Íslands samhliða kennslu. Þorsteinn stundaði ýmsa útivinnu á sumrin, s.s. byggingarvinnu og garðyrkjuvinnu. Síðustu æviárin dvaldi Þorsteinn á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli í Reykjavík. Útför Þorsteins fer fram frá Langholtskirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. 1926, Bogi Þorberg- ur, f. 1927, d. 1959, Jóhann Sigurfinnur, f. 1928, d. 1945. Þorsteinn giftist 19.10. 1950 Sigríði Sólveigu Jóhanns- dóttur, f. 19.10. 1932. Foreldrar Sigríðar Sólveigar voru Jó- hann Ingvi Guð- mundsson, f. 1905, d. 1992, og Guðbjörg Lárusdóttir, f. 1908, d. 1974. Börn Þor- steins og Sigríðar eru 1) Heiður, f. 1949. Maki Sveinn Bárðarson, f. 1944. Börn þeirra eru: a) Fjölnir, f. 1970, b) Vigdís, f. 1972, c) Bárður Þór, f. 1974, d) Sig- urður Steinn, f. 1982. 2) Hlynur, f. 1953. Maki Gunnur Kristín Gunn- arsdóttir, f. 1953. Börn þeirra eru: a) Gunnar Kristján, f. 1972 (stjúp- Pabbi minn fæddist vestur í Helga- fellssveit og ólst þar upp hjá móður- ömmu sinni og síðari manni hennar en einnig ólust upp með pabba tveir synir þeirra hjóna, þeir Gísli og Guð- mundur, sem voru nokkru eldri en hann. Pabbi var af Húnvetningum kominn í móðurætt og Skagfirðing- um í föðurætt og fluttu foreldrar hans norður í Skagafjörð þegar hann var 6 mánaða gamall en þar sem systkinahópurinn var stór og fátækt mikil varð pabbi eftir fyrir vestan. Pabbi hlaut gott veganesti fyrir lífs- gönguna hjá ömmu sinni og fóstra og talaði alltaf ákaflega vel um þau bæði og af því sem ég hef heyrt get ég trú- að að amma hans hafi haft á honum nokkurt dálæti enda hét hann í höf- uðið á syni hennar og móðurbróður sínum. Pabbi stundaði nám við Héraðs- skólann í Reykholti og einnig stund- aði hann nám við Íþróttaskólann í Haukadal en hann valdi sér kennslu að ævistarfi og lauk námi við Kenn- araskóla Íslands vorið 1947. Pabbi kenndi við Laugarnesskóla fyrstu 5 árin eftir nám en hóf kennslu við Langholtsskóla þegar sá skóli var tekinn í notkun og kenndi þar allt þar til hann lét af störfum fyrir aldurs- sakir. Pabbi var mikill bókamaður og hagyrðingur góður. Það var gott að leita til hans um úrlausn ýmissa mála og gaman að tala við hann því hann var fróður og víðsýnn og um leið góð- ur hlustandi. Pabbi var rólegur og yf- irvegaður maður með ákaflega góða nærveru og lítið fyrir að berast á. Hann og mamma voru gestrisin og góð heim að sækja og mér er í barns- minni hvað ég dáðist oft að þeim hæfileika pabba að sitja og ræða við gesti og það var sama hvað talað var um, alls staðar var hann vel heima. Erfitt er að minnast á pabba án þess að geta móður minnar en þau gengu í hjónaband árið 1950 og hafa því átt 60 ár saman. Virðingin og væntumþykjan þeirra á milli var ein- stök. Þau voru sannir sálufélagar og bestu vinir. Pabbi var léttur á fæti og mikill úti- vistarmaður og náttúruunnandi. Hann hafði ánægju af allri hreyfingu og gekk mikið og oft. Það var eins og hann væri þindarlaus þegar hann gekk á fjöll, hvort sem var hér í ná- grenni borgarinnar eða á æskuslóð- um hans fyrir vestan, en einnig voru fjöllin í Þórsmörk í miklu uppáhaldi hjá honum. Einnig fór hann mikið í sund og á skíði á sínum yngri árum. Þegar ég lít til baka sé ég að líf pabba var gæfuríkt. Hann var farsæll í sínu starfi, góður fjölskyldufaðir og ræktaði vel sína hæfileika. Hann naut lífsins á meðan hann gat en þau mamma voru dugleg að ferðast bæði innanlands og erlendis, á meðan þau höfðu þrek til. Heilsu pabba byrjaði að hraka fyrir um það bil 10 árum en þá hvarf hann á sinn rólega hátt inn í Alz- heimerssjúkdóminn. Hann kvaddi svo þetta líf á nýju ári þegar sólin hækkar á lofti og geislar hennar lýsa eins og minningin um hann pabba minn. Söknuður og eftirsjá er mér efst í huga nú, en einnig þakklæti fyrir að hafa átt góðan föður. Heiður. Langt í órafjarska er heimur heimur þar sem engar áhyggjur ríkja heimur þar sem fossar dynja lækir streyma fuglasöngurinn ómar gróðurinn er fagurgrænn og ferskjutrén blómstra. Á kvöldin er sólarlagið ólýsanlega fagurt og stjörnumergð himinsins glitrar af fegurð. Þetta er undursamlega fallegur og friðsæll staður. Þarna veit ég að ég finn þig elsku afi minn. Þín Sara Sólveig. Þeir tínast yfir móðuna miklu einn af öðrum, sem luku prófi frá Kenn- araskóla Íslands vorið 1947. Að þessu sinni er það Þorsteinn Björn Guð- mundsson, hann er sá áttundi úr 18 manna hópi sem kveður þetta mann- líf. Þorsteinn hélt mikilli tryggð við okkur bekkjarsystkin úr Kennara- skólanum og mætti ævinlega, þegar eitthvað stóð til hjá okkur, til að sam- fagna með okkur og minnast liðinna stunda sem við áttum saman í Kenn- araskólanum. Þorsteinn var mjög hæglátur mað- ur í fasi, íhugull, vel greindur, góður námsmaður og með trútt minni. Hann var sífellt leitandi að fróðleik og las því mikið meðan heilsa hans leyfði, var tíður gestur á bókasöfnum í leit að góðum bókum. Hann sóttist ekki eftir mannvirð- ingu á opinberum vettvangi, en var trúr lífsstarfi sínu kennslunni, sem hann stundaði alla ævi. Þar nýttist hans skarpa greind vel, hógværðin og næmur mannskilningur. Í mínum huga geymist skýr mynd af þessum hægláta og trausta manni þar sem tryggð og festa ríkti. Ánægjulegt var að eiga samfylgd með honum gegnum árin. Með samúðarkveðju til eiginkonu og fjölskyldu, Stefán Ólafur Jónsson. Minningar og þakklæti streyma fram við fráfall samstarfsmanns til margra ára. Við Þorsteinn vorum í hópi fyrstu kennara í nýjum skóla, Langholtsskóla, sem tók til starfa á haustdögum 1952. Þessi hópur skyldi móta skólabrag þessa nýja skóla. Þetta var áhugavert og mikilvægt verkefni. Þó að kennsla hæfist ekki fyrr en í nóvember var húsnæðið ekki fullbúið og var kennt undir hamars- höggum fyrstu vikurnar. Þessi skóli varð okkar vinnustaður í áratugi eða til starfsloka okkar. Það streymir um mig ylur er ég hugsa til Þorsteins. Hógværðin, prúðmennskan og græskulausa kímnigáfan lýstu upp dagana. Þor- steinn kenndi að mestu yngri börnum og ekki er síst mikilsvert að móta námsvenjur þeirra og leggja grunn að framhaldi alls náms. Þar naut hóg- værð og háttvísi Þorsteins sín vel. Í einkalífi finnst mér að Þorsteinn hafi verið hamingjuhrólfur. Það var ánægjulegt að sjá þau hjón saman Steina og Diddu. Þau máttu líka vera stolt af velgengni barna sinna. Mér er mjög minnisstætt þegar yngri dóttir þeirra kom í inntökupróf í skólann 6 ára. Hún renndi sér hiklaust yfir allt lesefnið, sem ætlað var til barnaprófs 12 ára barna, með skýrum og fínum framburði á innan við tveim mínútum þegar margir jafnaldrar hennar þekktu vart stafina. Heilsuleysi tók skerf af lífi hans síðustu árin. Oft hitti ég hann þó á bókasafninu í Sólheim- um og fékk þá hlýtt handtak og faðm- lag. Hjartans þakkir og samúðarkveðj- ur til fjölskyldunnar. Þú virtir fyrir þér óreglulega myndbyggingu marglitra steina og glerja og gleymdir um stund að þú sjálfur varst greyptur þar í sem flís í myndfleti mannlífs steinn eða gler og gazt ekki flúið. Þú varst steinn eða gler þú varst flís sem einn dag verður færð úr stað hverfur án þess að myndin hrynji. (Þuríður Guðmundsdóttir.) Elín Vilmundardóttir. Jafnt og þétt fækkar bekkjarfélög- unum úr Kennaraskólanum sem tóku kennarapróf 1947. Í dag kveðjum við Þorstein Guðmundsson. Kennsla var hans aðalævistarf, sem hann lagði mikla rækt við og var alla tíð farsæll kennari. Frá 1947-1952 var hann kennari við Laugarnesskóla, en þá fór Þorsteinn, ásamt fleiri kennurum skólans, yfir í Langholtsskóla, sem þá var að taka til starfa. Þar var hann kennari til starfsloka. Við Þorsteinn eða nafni, eins og við oftast nefndum hvor annan, vorum sessunautar í þriðja og fjórða bekk Kennaraskólans. Það var gott að vera í návist nafna. Aldrei bar skugga á samveru okkar í skólanum. Prúðari og hógværari mann er ekki hægt að hugsa sér. Það má ef til vill segja að hann hafi verið óþarflega hlédrægur. Þorsteinn var góðum gáfum gæddur og ágætur námsmaður. Mér er minnisstæð hans næma til- finning fyrir réttu og fögru máli, sem ég naut góðs af í sameiginlegri verk- efnavinnu okkar. Með þessum fáu orðum vil ég þakka nafna fyrir gömul og góð kynni og kveð hann með virðingu og þökk. Blessuð sé minning Þorsteins Guð- mundssonar. Eiginkonu, Sigríði Sól- veigu Jóhannsdóttur, fjölskyldu og öðru venslafólki votta ég samúð mína. Þorsteinn Ólafsson. Þorsteinn B. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.