Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 30

Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 ✝ Fannar IngiKárason fæddist í Reykjavík 2. októ- ber 2008. Fannar Ingi lést á bráða- móttöku Barnaspít- alans 13. janúar eftir skyndileg alvarleg veikindi. Foreldrar hans eru Inga Hrund Gunnarsdóttir, f. 18. mars 1975, og Kári Halldórsson, f. 30. júní 1979. Systir Fannars er Anna Valgerður, f. 12. apríl 2006. Foreldrar Ingu Hrundar eru Gunnar Ingi Gunnarsson og Vig- dís Hallgrímsdóttir. Bróðir Ingu er Ketill. Foreldrar Kára eru Halldór Halldórsson og Ragnheiður Héð- insdóttir. Bræður Kára eru Skarphéð- inn og Ingólfur. Son- ur Skarphéðins er Kjartan. Fannar Ingi var í daggæslu hjá Önnu Steinunni Þórhalls- dóttur og svo hjá hjónunum Nínu Kvaran og Lazaro Nunez Altuna. Í ágúst 2010 hóf hann skólagöngu við leik- skólann Klambra og var á deild- inni Hlíð. Útför Fannars Inga verður frá Háteigskirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Mjög erum tregt, tungu að hræra eða loftvægi ljóðpundara; era nú vænlegt um Viðurs þýfi né hógdrægt úr hugar fylgsni. (Sonatorrek) Það er okkur sárara en tárum taki að skrifa minningargrein um barna- barn okkar. Eðli málsins vegna ætti það að vera öfugt. Að tveggja ára barn skuli vera kallað í burtu er virkilega óréttlátt. Fannar Ingi, þessi litli drengur, sem vann hug og hjarta allra sem í kringum hann voru, lést af bráðasýk- ingu á Barnaspítala Hringsins 13. janúar síðastliðinn. Hann var rétt byrjaður að tala og hafði mikið að segja þótt maður skildi ekki alltaf allt sem honum lá á hjarta. Yndi foreldra sinna og stóru systur og hjartaknúsari afanna og ammanna. Megi allar góðir vættir styrkja foreldrana og Önnu Valgerði til að takast á við sonar- og bróðurmissi. Minning um góðan lítinn dreng mun alltaf lifa með okkur. Orð hafa hér ákaflega takmarkaða meiningu. Hvíl í friði. Kveðja frá afa og ömmu. Gunnar Ingi og Vigdís. Fannar Ingi, þú varst besti og skemmtilegasti litli drengur sem ég hef nokkurn tímann hitt. Að þú skul- ir vera farinn frá okkur er nokkuð sem ég á ennþá mjög erfitt með að skilja. En ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og fyrir þann tíma sem við áttum saman. Við áttum sérstaklega saman skemmtilegar stundir um þessi jól. Ég mun alltaf muna eftir því þegar ég fékk það verkefni að koma þér í hátíðargallann á áramótunum. Þú spriklaðir í höndunum á mér og það varð eiginlega ekkert tjónkað við þig fyrr en þú sást að klaufabárðarnir voru í sjónvarpinu. Þá fékk ég loks- ins smátómarúm til að troða þér í restina af fötunum. Fannar, ég mun halda fast í þessa og aðrar minningar um þig. Þú varst einstakur gleðigjafi og þín verður sárt saknað. Meira en orð og tár fá lýst. Þinn frændi, Ketill Gunnarsson. Dag einn í októberbyrjun árið 2008 gerði óvenjulegt kuldahret í Reykjavík. Um kvöldið féll þykkur hvítur snjór á götur bæjarins. Ég hef alltaf fagnað snjónum og fögnuður minn varð engu minni þegar ég frétti að Kára bróður og Ingu Hrund hefði fæðst hraustur drengur um nóttina. Hann var nefndur Fannar eftir snjónum, Ingi í höfuðið á afa sínum. Fyrstu mánuðina má segja að drengurinn hafi sofið nærri samfellt. Að minnsta kosti gat hann sofið af sér ærslaganginn í Önnu Valgerði án þess að rumska. Með tímanum fór hann þó að opna augun lengur í einu og virða okkur fyrir sér. Í fyrstu hafði hann góðar gætur á mér en tók strax miklu ástfóstri við Ingólf bróð- ur minn. Enda lýsti Anna Valgerður því hátíðlega yfir að „ég er glöð í Skarphéðin en Fannar er glaður í Ingólf“. Það kom þó að því eitt kvöld- ið að hann sendi mér smátennt bros yfir matarborðið hjá ömmu Ragn- heiði og upp frá því urðum við perlu- vinir. Fyrir alla fjölskylduna hefur verið unun að fylgjast með litlu systkinunum vaxa og dafna, lifa og leika sér. Við höfum fylgst með Fannari verða að sjálfstæðum litlum manni sem þurfti ekki lengur að sitja Fannar Ingi Kárason ✝ Árni Baldvinfæddist á Dalvík 3. janúar 1930. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja 11. janúar 2011. Foreldrar hans voru Jónína Anna Magnúsdóttir, f. 20. apríl 1895, d. 5. októ- ber 1980, og Her- mann Árnason, f. 15. september 1901, d. 4. september 1978. Systkini Árna eru: Ingvi Gunnar Eben- hardsson, f. 11. júní 1921, d. 10 júní 2003. Friðbjörn Hjálmar Her- mannsson, f. 25. febrúar 1927, d. 20. apríl 1995. Sigríður Magnea Her- mannsdóttir, f. 23. mars 1934. Árni kvæntist 8. september 1956 Þóru Svanlaugu Ólafsdóttur, f. 23. júlí 1938. Foreldrar hennar voru Ólafur Árni Guðjónsson, f. 6. októ- ber 1909, d. 24. maí 1984, og Sveindís Marteinsdóttir, f. 2. júlí 1910, d. 28. desember 1983. Börn Árna og Þóru eru: 1) Sveindís Árnadóttir, f. 6. júní 1958. Maki Jóhann Gunnar Einarsson, f. 6 janúar 1958, d. 27. desember 1991. Börn þeirra eru Einar Árni, f. 1977, Ingvi Steinn, f. 1979, og Þóra Björg, f. 1989. 2) Hermann Árnason, f. 5. maí 1960. Sambýliskona hans er Ásta Baldvinsdóttir, f. 14. desember 1962. Barn Hermanns úr fyrra sam- bandi er Thelma Rós, f. 1988. Barn Ástu úr fyrra sambandi er Eva Kar- en, f. 1991. Saman eiga þau Daníel, f. 1996. 3) Jón Ólafur Árnason, f. 3. október 1969. Sambýliskona hans er Soffía Karen Grímsdóttir, f. 22. september 1975. Barn þeirra er Kristján Snær, f. 1997. Barna- barnabörnin eru 5 talsins. Árni fæddist í Sæ- bakka á Dalvík og ólst þar upp. Ungur fór hann að heiman með föður sínum á vertíð til Keflavíkur og vann þar nokkra vetur. Árni kynntist eftirlif- andi eiginkonu sinni fyrir sunnan. Hófu þau hjón búskap á Karlsbraut á Dalvík og bjuggu þar til ársins 1962 er þau fluttu til Keflavíkur og settust að á Hátúni. Árni vann við ýmis störf eins og sjó- mennsku, beitningu, verkstjórn og smíðar og féll sjaldan verk úr hendi. Árni tók sveinspróf í smíði árið 1986. Hann hóf störf hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli árið 1978 við smíðar og vann þar í 21 ár. Árni hafði mikinn áhuga á íþróttum alla tíð og fylgdist mikið með þeim. Hann stundaði sjálfur frjálsar íþróttir og fótbolta þegar hann var ungur og vann til verðlauna. Einnig hafði hann yndi af veiðum og að spila bridge við félagana. Árni hafði mikinn áhuga á ræktun græn- metis til eigin nota og hafði sinn eigin kartöflu- og grænmetisgarð á Miðnesheiði sem hann hugsaði vel um í mörg ár. Af þessu hafði hann ómælda ánægju. Útför Árna fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku pabbi. Það fyrsta sem kem- ur upp í hugann er minning um að standa við hliðið heima á Karls- brautinni og bíða eftir að þú kæmir heim til mín eftir langan vinnudag. Þú hefur alltaf staðið mér við hlið sem klettur, haldið í hönd mína og þerrað tárin mín þegar ég og börnin mín þurftum á þér að halda. Ég tel það vera forréttindi að hafa átt þig sem föður, sem gafst mér alla þá umhyggju og ást sem ég þurfti á að halda. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Ég mun varðveita stundirnar sem við áttum og eru þær mér dýrmætar minningar í hjarta mínu og huga. Ég vil þakka öllu hinu góða starfs- fólki D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Sveindís Árnadóttir. Elsku hjartans afi minn, nú skilur okkar leiðir og þú heldur í ferðalag norður, á sjóinn eða á annan fallegri stað. Þú vildir alltaf spila svartapétur við mig og oftar en einu sinni leyfð- irðu mér að vinna með glottið á vangasvipnum. Þú leyfðir mér að klappa fuglunum, sagðir mér sögur, leitaðir í vasanum eftir ópali, allar stundirnar þar sem við sátum saman og lögðum kapal og þú sem aldrei skildir hví hann gekk alltaf upp hjá mér frekar en þér. Þú gafst þér alltaf tíma til að spjalla við mig um lífið og tilveruna, hvað á daga okkar dreif. Ég minnist þess með stóru glotti í fyrsta og eina skiptið sem þú skammaðir mig á Hátúninu í eldhúsinu, ég man þó ekki ástæðuna en hún hefur verið góð því ég skammaðist mín vel og lengi eftir á. Þú brýndir aldrei rödd- ina við mann heldur talaðir við mann í eðlilegum tón og sýndir mikla virð- ingu. Á litlum skóm ég læðist inn og leita að þér, afi minn. Ég vildi að þú værir hér og vært þú kúrðir hjá mér. Ég veit að þú hjá englum ert og ekkert getur að því gert. Í anda ert mér alltaf hjá og ekki ferð mér frá. Ég veit þú lýsir mína leið svo leiðin verði björt og greið. Á sorgarstund í sérhvert sinn ég strauminn frá þér finn. Ég Guð nú bið að gæta þín og græða djúpu sárin mín. Í bæn ég bið þig sofa rótt og býð þér góða nótt. (S.P.Þ.) Ég er heppin að eiga þig að fyrir afa og ég mun alltaf eiga pláss í hjartanu og huganum fyrir þig. Elsku afi, takk fyrir allar sam- verustundirnar, minningarnar, allt sem þú gerðir fyrir mig og kenndir mér. Þín Þóra. Elsku afi. Ég vil þakka þér sam- verustundirnar sem við áttum. Ég elska þig og mun ávallt sakna þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Minning þin lifir. Kristján Snær. Árni Baldvin Hermannsson ✝ Páll Arason ferða-frömuður fæddist á Akureyri 2. júní 1915. Hann lést á Ak- ureyri 7. janúar 2011. Foreldrar hans voru Dýrleif Páls- dóttir saumakona og Ari Guðmundsson skrifstofustjóri. Systir Páls er Guðný, hús- móðir í Reykjavík. Páll kvæntist Huldu Björnsdóttur 1942, en hún lést 1983. Eign- uðust þau tvö börn, Rannveigu, f. 1942, d. 1993, og Björn, f. 1948, búsettur á Akureyri. Seinni kona Páls var Kristín Hrafn- fjörð, búsett í Reykjavík, en þau slitu samvistir. Störf vann Páll ýmiskonar í gegn- um tíðina, var leigubílstjóri hjá Steindóri, sýningarmaður í Gamla bíói og rak ferðaskrif- stofu um tíma. Hann var mikill öræfamaður og ferðaðist með fjölda fólks um hálendi Ís- lands enda þekktur frumkvöðull á því sviði. Páll bjó um tíma í Þýskalandi þar sem hann undirbjó hópferð- ir með íslenska ferða- menn til Evrópu fyrst- ur manna. Þá starfaði hann hjá Vegagerðinni en lét af störfum 1982, flutti norður yfir heið- ar og byggði sér hús í Bugi í Hörg- árdal þar sem hann stundaði skóg- rækt og fiskeldi af mikilli elju þar til hann fluttist til Akureyrar 2001. Útför Páls fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. Meira: mbl.is/minningar „Áfram skröltir ei meir“ þetta ætti að vera titillinn á seinni hluta ævisögu móðurbróður míns, Páls Arasonar eða Palla eins og flestir kölluðu hann. Æv- intýri Palla á öræfum Íslands og er- lendis er kapítuli sem ég læt aðra um að segja frá, enda vel lýst í fyrri hluta ævisögu hans „Áfram skröltir hann þó“. Ég kynntist Palla ekki vel fyrr en ég flutti til Akureyrar upp úr 1990 og bjó hann þá í Bugi í Hörgárdal. Þar hafði hann byggt sér lítið 30 ferm. hús í landi Gerðis sem hann flutti í 1982, en 4 ár þar á undan hafði hann eytt öll- um sumarfríum sínum í að ræsa fram mýri sem þarna var og gróðursetja tré á reit sem hann hafði fengið til um- ráða úr landi Þúfnavalla en lönd Gerð- is og Þúfnavalla liggja saman. Þar var hann svo öll sumur, frá páskum og fram yfir réttir en bjó ýmist í Reykja- vík eða á Akureyri yfir háveturinn. Al- farinn flutti Palli inn á Akureyri síðla árs 2001. Ég heimsótti hann nánast um hverja helgi út í Bug öll árin sem ég var á Akureyri og hafði mjög gam- an af. Hann vann þrekvirki við gróð- ursetningu á nánast ónýtanlegu landi og í dag stendur tæpra þriggja hekt- ara skógur í Bugi eftir hann. Palli var sögumaður mikill og minninu hélt hann ótrúlega vel allt til hins síðasta. Öllum fjöllum vissi hann nöfn og hæð á sem og þekkti til dala og hóla um nánast allt land. Ættfræð- in var honum sem opin bók og var stundum erfitt að fylgja eftir þegar hann fór að rekja ættir okkar eða annarra. Oft tók ég vini og kunningja með vestur í Bug að heimsækja karl- inn og urðu margir hissa er hann byrjaði að rekja forfeður þeirra 100- 200 ár aftur í tímann. Það var hefð hjá Palla að bjóða upp á snafs þegar gesti bar að garði og oft var gaman að fylgjast með fólki þegar það reyndi að koma sér undan að þiggja veitingarn- ar þar sem það væri akandi. Þær af- sakanir tók hann yfirleitt ekki gildar en aldrei fékk hann sér sjálfur ef hann ætlaði að aka þjóðveginn, það mátti sko alls ekki. Eftir að Palli flutti inn á Akureyri urðu dvalirnar færri í Bugi og eftir 90 ára afmælið 2005 tók ég við Bugi sem ég nú nýti sem sumarbústað mér og mínum til mikillar ánægju. Þegar heilsan fór að dvína fyrir um tveim ár- um flutti Palli á dvalarheimilið Hlíð þar sem hann bjó þar til yfir lauk. Við Palla langar mig að segja: jæja frændi, þá er þessu lokið eftir langan veg. Þakka þér fyrir samferðina hin síðustu tuttugu ár, þakka þér fyrir Bug, hans mun ég gæta svo lengi sem mér er unnt. Ari frændi. Ég vil með þessum fáu orðum minnast vinar míns Páls Arasonar sem andaðist í hárri elli hinn 5. janúar sl. Páll var á margan hátt at- hyglisverður maður og fór ekki alltaf troðnar slóðir, auk þess var hann ekki allra, eins og sagt er. Hann hóf ungur afskipti af ferða- málum, fyrst sem leigubílstjóri en síð- an rútubílstjóri í hálendisferðum. Hann fór sína fyrstu eigin fjallaferð með farþega á Dodge Weapon-hert- rukk í Herðubreiðarlindir 1945 og eftir það rekur hann ferðir um hálendi landsins öll sumur vítt og breitt í 20 ár. Árið 1948 fer hann sína frægðarför, fyrstur manna á bíl suður Sprengi- sand. En Páll var ekki einungis braut- ryðjandi á hálendi Íslands heldur einnig í ferðum til annarra landa. Árið 1954 fer hann með 14 manns í átta vikna utanlandsferð. Farið var á Dodge Weapon-bíl hans í sex landa ferð, líklega fyrsta ferð sinnar teg- undar sem farin var frá Íslandi. Á þessum tíma voru vegir víða slakir og þjónusta við bíla ekki alls staðar sem best verður á kosið, ekki síst breytta ameríska hertrukka með háa bilana- tíðni. Það þurfti því áræði til að fara í slíka ferð einbíla. Það má því með sanni segja að Páll hafi verið einn af frumkvöðlum ís- lenskra ferðamála. Ég kynntist Páli stuttu eftir að hann hætti afskipt- um af ferðamálum og síðar þegar hann byggði hús sitt í Bug í Hörg- árdal heimsótti ég hann iðulega og var í góðu sambandi við hann alla tíð síðan. Hann var mjög vel að sér um sögu ferðamála og einstaklega minnugur og skemmtilegur sögumað- ur. Við áttum því margar ánægjuleg- ar stundir saman, þar sem hann fór á kostum í lýsingum á atvikum úr ferð- um sínum hér heima og erlendis. Ég vil þakka vináttu hans og sam- veru í gegnum árin og óska honum góðrar ferðar nú þegar hann leggur í sína hinstu för. Kjartan Lárusson. Páll Arason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.