Morgunblaðið - 31.01.2011, Side 13

Morgunblaðið - 31.01.2011, Side 13
Þriggja manna áhöfn og sautján farþeg- ar létu lífið þegar Glitfaxi steyptist í sjó- inn. Lík hinna látnu hafa aldrei fundist. Flestir farþeganna voru frá Vestmann- eyjum, þar á meðal yngsti farþeginn, hinn fimm mánaða gamli Bjarni Gunnarsson. Mennirnir sem fórust létu eftir sig 48 börn, þar af 26 innan fermingaraldurs. Þar að auki voru tvö börn hinna látnu í móð- urkviði og fæddust skömmu eftir slysið. Alls misstu því fimmtíu börn föður sinn. Barnflesta heimilið var í Þingholti í Vest- mannaeyjum. Þar misstu tólf börn föður sinn og fyrirvinnu, Pál Jónsson skipstjóra. Í leiðara Morgunblaðsins hinn 2. febrúar 1951 var skrifað: „Glitfaxi er horfinn – Jel- inu ljettir, en skuggi kvíða, og síðan sorgar og saknaðar leggst yfir heimili þess fólks sem átti vini og venslamenn með hinni týndu flugvjel.“ Morgunblaðið 24. febrúar 1951. Ljósmynd/Snorri Snorrason/snorrason.is Glitfaxi Flugfélag Íslands keypti flugvélina Glitfaxa árið 1946. Hún var upphaflega smíðuð sem herflugvél í Bandaríkjunum, en var síðar breytt í farþegaflugvél. 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Glitfaxi var af gerðinni Douglas C-47 og var gömul herflugvél frá Bandaríkjunum, smíðuð árið 1942. Flugfélag Íslands keypti hana af Scottish Aviation í nóv- ember 1946, sem hafði breytt henni til farþegaflutninga. Flug- vélin þótti afar öflug á sínum tíma. Hún var útbúin sætum fyrir 21 farþega og fjögurra manna áhöfn. GLITFAXI, TF-ISG Morgunblaðið 2. febrúar 1951.Morgunblaðið 1. febrúar 1951. GÖMUL STRÍÐSVÉL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.