Morgunblaðið - 31.01.2011, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.01.2011, Qupperneq 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Sudoku Frumstig 5 8 4 3 3 1 5 4 3 5 2 8 2 6 5 4 9 9 5 2 1 6 5 8 1 4 8 7 1 3 9 7 8 1 9 5 8 4 3 6 8 7 9 7 1 3 6 1 4 5 9 8 3 5 2 7 4 5 7 2 6 2 4 1 5 1 5 3 4 1 6 9 7 6 9 2 4 8 3 5 1 5 4 2 3 6 1 8 7 9 8 3 1 7 9 5 2 6 4 1 2 7 9 5 3 6 4 8 3 8 6 4 1 7 9 2 5 9 5 4 8 2 6 1 3 7 4 7 8 1 3 2 5 9 6 6 1 3 5 7 9 4 8 2 2 9 5 6 8 4 7 1 3 7 8 6 1 9 4 2 5 3 5 1 9 8 3 2 7 6 4 4 2 3 5 6 7 8 1 9 9 3 1 4 5 8 6 7 2 6 4 5 7 2 9 1 3 8 8 7 2 6 1 3 9 4 5 1 5 4 9 8 6 3 2 7 3 9 7 2 4 1 5 8 6 2 6 8 3 7 5 4 9 1 5 9 7 3 1 2 6 8 4 8 3 1 9 4 6 7 2 5 6 4 2 8 5 7 9 1 3 4 8 9 7 3 5 2 6 1 7 1 5 6 2 8 3 4 9 3 2 6 4 9 1 8 5 7 2 6 3 1 7 4 5 9 8 9 5 4 2 8 3 1 7 6 1 7 8 5 6 9 4 3 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 31. janúar, 31. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) Það var þungbúið kvöld sem tóká móti Víkverja eftir kvöld- skattinn á laugardag. Regnið lamdi göturnar og faldi húsin í húminu. Víkverja langaði ekki heim. Úr varð bíóferð og lét Víkverji afgreiðsludömuna um að velja mynd. Heyrði Víkverji þá tal tveggja manna í röðinni. Annar ætlar að freista gæfunnar á Nýja-Sjálandi en hinn í Rómönsku-Ameríku. „Hér er ekkert að hafa,“ sagði sá sem ætlar að gerast andfætlingur og samsinnti félaginn þá því. x x x Blár himinn yfir Parísarborgbeið Víkverja á hvíta tjaldinu. Dularfull þokkagyðja bregður sér á kaffihús og tekur á móti leyni- legum skilaboðum. Leyniþjónustan fylgist með. Úr verður eltingar- leikur. Leikurinn berst til Feneyja. Lífs- leiður stærðfræðikennari kveður gyðjuna eftir málsverð í lestinni með hryggð og sorg í hjarta. Nokkrum myndrömmum síðar bíður maðurinn á bryggju. Leigu- bát ber þá að og er gyðjan um borð. Hana vantar félagsskap. Þau sigla að lúxushóteli í borg- inni og koma sér fyrir á svítu sem Honoré de Balzac og Marcel Pro- ust notuðu sem skrifstofu. Gul ekkja bíður á ísbaði í silfur- fötu og við arininn standa tylftir nýútsprunginna rósa á marm- arahillu. Fataherbergið er þakið gulli og gimsteinum sem ástmaður gyðjunnar hefur sérvalið með dans- leiki og aðra viðburði næstu daga í huga. Sá dularfulli ástmaður bíður í leyni. Við tekur kvöldverður og kampa- vínslegið risotto. Undir kvöldið blandar kennarinn hanastél en nokkrum andartökum síðar skilur svefnherbergishurðin hann og gyðj- una að. Hann stendur upp en skortir hugrekki til að opna dyrnar. Helena fagra, öðru nafni Angel- ina Jolie, bíður með kjólinn frá- hnepptan til hálfs. Svo leggst hún til svefns. Víkverja vöknar um augu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vesæll, 4 loð- skinns, 7 spjalds, 8 ófagurt, 9 andi, 11 vitlaus, 13 lykkja, 14 upptekið, 15 hæð, 17 óhapp, 20 ótta, 22 bælir nið- ur, 23 snúið, 24 glerið, 25 bik. Lóðrétt | 1 tryggingafé, 2 rolan, 3 þvaður, 4 minni, 5 skímu, 6 miðlaði málum, 10 frek, 12 aðgæsla, 13 eld- stæði, 15 vesældarbúskapur, 16 heitbundin, 18 ves- almenni, 19 illfygli, 20 eydd, 21 næðing. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gamlingja, 8 útveg, 9 gætni, 10 Níl, 11 tegli, 13 auðum, 15 hængs, 18 strút, 21 tek, 22 lotni, 23 innan, 24 griðungur. Lóðrétt: 2 alveg, 3 lagni, 4 negla, 5 játað, 6 búnt, 7 fimm, 12 leg, 14 urt, 15 hólf, 16 nótur, 17 stirð, 18 skinn, 19 rennu, 20 tonn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6 dxc6 5. 0-0 f6 6. d4 Bg4 7. c3 Bd6 8. Be3 Re7 9. Rbd2 0-0 10. Db3+ Kh8 11. h3 Bh5 12. Dxb7 Bf7 13. dxe5 fxe5 14. Rb3 Bc4 15. Hfd1 Hb8 16. Da7 Ha8 17. Db7 Be2 18. Rxe5 De8 19. Hxd6 cxd6 20. He1 dxe5 21. Hxe2 Rg6 22. Hd2 De6 23. Rc5 Dxa2 24. Kh2 Dc4 25. Hd7 Hab8 26. Dxc6 Hxb2 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti í Reggio Emilia á Ítalíu. Spænski stór- meistarinn Francisco Vallejo Pons (2.698) hafði hvítt gegn bandarískum kollega sínum Alexander Onischuk (2.683). 27. Hxg7! Hfxf2 28. Bxf2 Hxf2 29. Dc8+ Kxg7 30. Re6+ Dxe6 31. Dxe6 hvítur hefur nú unnið tafl. Framhaldið varð eftirfarandi: 31. … Hxg2+ 32. Kh1 Hg3 33. c4 Hc3 34. Dd7+ Kh8 35. h4 h5 36. Dc8+ Kg7 37. Dd7+ Kh8 38. Dd6 Kg7 39. c5 Hh3+ 40. Kg1 Hxh4 41. c6 Hg4+ 42. Kf2 Hf4+ 43. Ke3 Hf6 44. Dd8 Hf7 45. c7 Re7 46. Dd6 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fyrsta spilið. Norður ♠D9832 ♥108643 ♦6 ♣92 Vestur Austur ♠– ♠K105 ♥DG2 ♥97 ♦9853 ♦ÁG107 ♣K108743 ♣ÁG65 Suður ♠ÁG764 ♥ÁK5 ♦KD42 ♣D Suður spilar 4♠. Fyrsta spil Bridshátíðar reyndist vera skólabókardæmi um litaríferð. Sagnhafi gefur slag á hvern hliðarlit og má því engan gefa á tromp. Verk- efnið er að spila trompinu á réttan hátt. Einn möguleiki er að negla niður ♠Á í von um fósann blankan. Líkur á slíkri draumalegu eru aðeins 26%. Betra er að spila litlu úr borði og svína gosanum. Þannig má ráða við kóng blankan og annan í austur. Líkur á slíku samanlagt eru 39%. Best af öllu, auðvitað, er að fara af stað með drottn- inguna. Legan sannast þegar austur leggur á og svíningin fyrir tíuna verð- ur sjálfgefin. Þessi íferð er 50%, bygg- ist á því einu að kóngurinn sé réttur. Spilið kom upp í „Starwars“- upphitunarkeppni mótsins og skemmst frá því að segja að fjórar stjörnur féllu á prófinu. 31. janúar 1951 Flugvélin Glitfaxi fórst út af Vatnsleysuströnd og með henni tuttugu manns. Hún var á leið frá Vestmanna- eyjum til Reykjavíkur. „Tutt- ugu og sex börn innan ferm- ingaraldurs misstu föður sinn,“ sagði á forsíðu Morg- unblaðsins. 31. janúar 1981 Allsherjarmanntal var tekið í tuttugasta og annað sinn, en síðast hafði það verið gert árið 1960. Fyrsta manntalið var tekið árið 1703. 31. janúar 1995 Tilkynnt var að Einar Már Guðmundsson hlyti bók- menntaverðlaun Norð- urlandaráðs fyrir Engla al- heimsins. Verðlaunin voru afhent á þingi ráðsins í Reykjavík 28. febrúar. 31. janúar 1998 Hraðbanka var stolið úr and- dyri Kennaraháskólans í Reykjavík. Fjórir menn ját- uðu verknaðinn. Þeim hafði ekki tekist að ná pening- unum, á sjöttu milljón króna, úr bankanum. 31. janúar 2010 Landslið Íslands í handknatt- leik hlaut bronsverðlaun á Evrópumeistaramóti í Vín í Austurríki, með sigri á Pól- verjum. Alexander Petersson náði boltanum af andstæðingi undir lok leiksins. Guð- mundur Guðmundsson sagði að varnartilburðirnir færu í sögubækurnar. „Þessu augnabliki má aldrei gleyma í íslenskri íþróttasögu,“ sagði Ólafur Stefánsson. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir, prjónahönn- uður og söngkona, er fertug í dag. Hún segist ekki ætla að standa fyrir neinu stórpartíi í tilefni af- mælisins þar sem hún sé upptekin í undirbúningi fyrir flutninga um næstu helgi. Í staðinn hafi hún verið með fjölskyldunni á laugardag en hún á þrjá syni og sex systkini. „Ég er prjónahönnuður, ég hanna flíkur og hef unnið svolítið fyrir Saumaklúbbinn sem er áskrift- artímarit. Svo hef ég rekið verslunina Gallerí Garn sem er garnverslun í bílskúrnum heima. Hún fer samt í smá pásu vegna flutninganna núna,“ segir Ingibjörg. Segist hún vera svo löt að hún nenni ekki að standa í fjöldaframleiðslu á flíkum sjálf heldur geri uppskriftirnar og selji þær. Það var amma Ingibjargar sem kenndi henni að prjóna en hún segist hafa verið að prjóna fyrir aðra og gera uppskriftir frá því hún var um átta ára gömul. Ingibjörg söng meðal annars með hljómsveitinni Blátt áfram á ní- unda áratugnum og nú síðast Sveitasveitinni Hundslappadrífu og var þá þekkt sem Inga Guðmunds. Hún segist hins vegar vera í smá pásu frá söngnum til að hvíla röddina. kjartan@mbl.is Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir 40 ára Hefur prjónað frá 8 ára aldri Flóðogfjara 31. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.50 3,5 11.09 1,0 17.10 3,3 23.17 0,9 10.12 17.11 Ísafjörður 0.28 0,6 6.49 1,9 13.15 0,5 19.07 1,6 10.34 16.59 Siglufjörður 2.39 0,4 8.50 1,2 15.15 0,2 21.54 1,1 10.18 16.41 Djúpivogur 1.52 1,7 8.09 0,6 14.01 1,5 20.11 0,3 9.46 16.36 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Allar ákvarðanir þínar eru vel ígrund- aðar. Þú skalt varast að láta það stíga þér til höfuðs þó einhver hæli þér. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert full/ur af orku í vinnunni um þessar mundir. Minningar úr æsku þinni sækja á þig en nú sérðu atburðina með aug- um fullorðinnar manneskju. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Gerðu upp við þig hvað þú vilt fá út úr tilteknu sambandi. Hvers þarfnast þú? Þörfina má fylla á marga vegu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Virtu árstíðirnar í sjálfum þér, nátt- úrlega hringrás orkunnar. Láttu allar ákvarð- anir bíða meðan þú hreinsar hugann af því sem dreifir honum um of. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú finnur hugsanlega til ergelsis í garð einhvers í dag án þess að átta þig fyllilega á ástæðunni. Nú væri rétt að gera ferðaáætlun. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ef einhver hefur hæfileika til að heilla aðra upp úr skónum ert það þú. Sjáðu tak- markið fyrir þér eins og því hafi verið náð. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Einhver löngu liðinn atburður setur svip sinn á nútíma þinn. Hvaða ráð gefur þú sjálf- um þér? Og ertu nógu hugrakkur/hugrökk til að hlíta þeim? (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú stjórnar umferðinni í lífi þínu. Búðu þig undir það að þiggja gjafir, greiða og/eða hlunnindi frá öðrum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Einhver lofar þér öllu fögru í dag, taktu því sem sagt er með fyrirvara. Dagurinn hentar vel til nákvæmrar skipulagningar og verkefna sem krefjast vandvirkni og þol- inmæði. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er algjörlega undir þér komið hvort hamingjan er þér hliðholl eða ekki. Þú skynjar það á sama hátt og dýrin nema að jarðskjálfti sé í vændum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur látið vini þína sitja á hak- anum að undanförnu. Treystu innsæi þínu og réttu vini eða vinum þínum hjálparhönd. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Láttu þér ekki bregða þótt einhver vinur þinn komi fram við þig með óvenju- legum hætti. Hafðu allan vara á þér og ljóstr- aðu engu upp við fyrstu kynni. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.