Morgunblaðið - 31.01.2011, Page 27

Morgunblaðið - 31.01.2011, Page 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 VINSÆLA STA MYND V ERALDAR TVÆR VI KUR Í RÖ Ð! NÁNARI UPPL. Á AF.IS OG MIDI.IS SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ THE DILEMMA kl. 5.50 - 8 - 10.10 THE GREEN HORNET 3D kl. 8 - 10.10 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 5.50 L 12 L Nánar á Miði.is THE DILEMMA kl. 5.30 - 8 - 10.30 THE DILEMMA LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 THE GREEN HORNET 3D kl. 5.25 - 8 - 10.35 BURLESQUE kl. 8 - 10.35 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30 THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.30 - 5.50 MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40 NARNIA 3 3D KL. 3.30 L L 12 L L 12 L L 7 THE FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30 BURLESQUE KL. 10.10 GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 LÍFSLÖNGUN kl. 8 Enskur texti BARA HÚSMÓÐIR kl. 8 Enskur texti HVÍTAR LYGAR kl. 10 Íslenskur texti LAFMÓÐUR kl. 10 Enskur texti EINS OG HINIR KL. 6 Enskur texti ÆVINTÝRI ADÉLE KL. 6 Íslenskur texti 14 L 7 L L L L L L HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5% 5% /haskolabio/smarabio -Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN-H.S.S., MBL LAUGARÁSBÍÓ THE FIGHTER Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20 THE GREEN HORNET 3D Sýnd kl. 8 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal SAW 3D Sýnd kl. 10:20 ótextuð ALFA OG ÓMEGA Í 2D Sýnd kl. 6 ísl. tal LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 8 og 10 HHHHH „SKEMMTILEG, FYNDINN OG SPENNANDI” - S.V BOXOFFICE MAGAZINE SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. LÖGIN ERU BROTIN ÞEIM TIL BJARGAR í3D SÝND Í 3D HROTTALEG SPENNA Í ÞVÍVÍDD Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þúgreiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Sýningartímar -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir áramót er til siðs að velja þær plötur sem menn telja öðrum fremri og birta árslista. Eina óvæntustu plötu á árslistum fjölmargra tónlistar- tímarita og dagblaða í Bretlandi hlýt- ur að verða telja skífuna Losing Sleep með skoska tónlistarmanninum Ed- wyn Collins. Ekki er hún óvænt á þeim lista vegna hæfileikaskorts, Coll- ins er afskaplega fær lagasmiður og flytjandi, heldur vegna þess að fyrir ekki svo mörgum árum veiktist Coll- ins svo hastarlega að honum var vart hugað líf og enginn átti von á að hann gæti tekið upp tónlistarsþráðinn, hvað þá að það yrði gert af öðrum eins glæsibrag. Edwyn Collins er um fimmtugt, hóf sinn feril í rokksveitinni Orange Juice 1976, en sló síðan í gegn sem sóló- listamaður með laginu A Girl Like You 1994. Það var það lag sem hann hefur komið hæst á vinsældalista (annað þekkt lag eftir Collins er Rip it Up), en varð líka svo vinsælt, og er enn, að hann gat komið sér upp einka- stúdíói og þar varð þriðja sólóskífan til, Gorgeous George, sem kom út 1994 og seldist einkar vel fyrir tilstilli A Girl Like You. Í stúdíóinu hefur Collins líka stýrt upptökum hjá öðrum, þar á meðal The Proclaimers, A House og The Cribs, en hann setti líka saman fleiri sólóskíf- ur, I’m Not Following You kom út 1997 og Doctor Syntax 2002. Þó hamingjan hafi verið honum hliðholl glímdi hann við smádjöfla, þar á meðal drykkjusýki, háan blóðþrýst- ing og ýmislegt annað óheilbrigt líf- erni sem kom honum í koll – haustið 2004 fékk hann heilablóðfall og þegar hann rankaði við sér á sjúkrahúsi var Marr, Ryan Jarman og Jacob Graham úr The Cribs og Connor Hanwick og Jonathan Pierce úr The Drums koma allir við sögu á plötunni, Losing Sleep, sem kom út 13. nóvember síðastliðinn. Þeirra framlag gerir líka sitt í því hvað platan er vel heppnuð, en Collins er í banastuði á skífunni, syngur eins og engill og lögin hans eru fram- úrskarandi að hætti hússins. getur nærri að dauðinn er honum hugleik- inn í textunum, en þeir eru þó fyrst og fremst hylling lífsins. Edwyn Collins er ódrepandi  Sneri aftur eftir heilablóðfall með eina af bestu skífum síðasta árs  Gat aðeins sagt fjögur orð er hann rankaði við sér eftir áfallið  Stjörnum prýdd sólóskífa höfundar A Girl Like You Þrautseigur Þrátt fyrir alvarleg veikindi sem sér ekki fyrir endann á er Edwyn Collins í banastuði á nýrri sólóskífu. hann lamaður að mestu og gat aðeins sagt fjögur orð; já, nei, Grace og Max- well, en eiginkona hans til margra ára heitir einmitt Grace Maxwell. Smám saman komst Collins til heilsu þó enn eigi hann langt í land, en alls lá hann á sjúkrahúsi í hálft ár. Eft- ir því sem honum óx ásmegin fóru lög- in að verða til og þó hann hafi ekki getað spilað á gítar lengur fann hann ráð við því; sonur hans slær strengina og Colins sér um gripin. Skífa sem hann var langt kominn með er hann veiktist, Home Again, kom út haustið 2007, en hann hafði lokið upptökum á henni og átti aðeins eftir að hljóð- blanda. Breska ríkissjónvarpið, BBC, gerði heimildarmynd um veikindi Collins og leið hans til heilsu á árinu 2007, Ed- wyn Collins: Home Again, sem sýnd var sumarið 2008. Þulur í myndinni var Alex Kapranos, leiðtogi rokksveit- arinnar Franz Ferdinand, en í henni má meðal annars sjá er Collins tekur fyrstu skrefin inn í sviðsljósið að nýju á Electric Proms tónlistarhátíð BBC. Þess má einnig geta að eiginkona hans, Grace Maxwell, skrifaði bók, Falling and Laughing, um veikindi Collins og leiðina til bata. Eins og getið er þá tók Collins að semja lög ekki löngu eftir að hann komst til meðvitundar að nýju og tók síðan upp nýja plötu frá haustuinu 2009 fram á mitt ár 2010. Það vantar ekki gestina á þeirri skífu, Alex Kapr- anos úr Franz Ferdinand, Roddy Frame úr Aztec Camera, Johnny A Girl Like You er þekkt- asta lag Ed- wyn Collins og lag sem annar hver maður þekkir þó fæstir viti kannski hver samdi. Það var samið til að hylla Iggy Pop, kom út á smáskífu 1994 og sló þegar rækilega í gegn, sat í fjór- tán vikur á breska smáskífu- listanum, fór hæst í fjórða sæt- ið á þeim lista. Margir þekkja það eflaust úr kvikmyndunum Empire Records, The Secretary og Charlie’s Angels: Full Throttle. Trommuleikari Sex Pi- stols, Paul Cook, leikur á víbra- fón í laginu. Sungið um stelpur A GIRL LIKE YOU Edwyn Collins Engin Pantera Pantera mun aldrei koma saman aftur segir fyrrver- andi trymbill hennar, Vinnie Paul. Hann er bróðir Dimebag Darrell sem var myrtur í desember 2004 og þar með hvarf einn af mikilhæfustu rokkgítarleik- urum sögunnar af sjónarsviðinu. Paul sagði í viðtali við rússnesku vefsíðuna Darkside að það kæmi ekki til greina að ræsa bandið í gang á nýjan leik, Dime- bag hefði einfaldlega átt of stóran þátt í velgengni bandsins. Bítlarnir þrír hefðu mátt taka sér Paul til fyrirmyndar … Grallaraspóinn og poppsnillingurinn Elton John mun verða viðfang Hollywoodmyndar að því er hann segir sjálfur. Mun hann þar með feta í fótspor goðsagna eins og Johnny Cash, Edith Piaf og Buddy Holly sem eru að vísu öllu komin undir græna torfu. „Þetta verður ábyggilega mynd sem verður í ætt við Moulin Rouge. Þetta er svo súrrealískt líf sem ég hef lifað,“ segir söngvarinn. Það er Lee Hall, handritshöfundur Billy Elliot, sem skrif- ar handritið. Elton í bíó Ekki einhamur Elton gamli John.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.