Ný saga - 01.01.1999, Page 22

Ný saga - 01.01.1999, Page 22
Qonfcssío turpsíma í sálina þó að nauðigur sé, eigi líka lieldur skap- lega, það er að skilja burt af porthúsi míns lélega4 líkama og fram í syrgileg og þó makleg umskipti píslanna sakir minna synda, þær sem mig óttar nú þó að síðla sé að fjandinn muni til eldsneytis geymt hafa minni hörmulegri sál til bótlausrar bölvana, nema hinn hæsti guð virðist sínum miskunnaraug- um til hennar líta í hverjunt eg set nú feginsamlega alla mína von. Einkanlega hefi eg misgert í sýnileg- um stuld og ósýnilegum, því í sýnilegum að eg hefi oftsinnis kúgað lítilmagnann með okursamlegri fjárútheimtan, ljúgandi svo margan pening inn í minn garð þann sem eg hafði hvorki heimilan fyrir gjald né gjöf og þó að eg ætti mála á nokkurs manns fé fyrir ýmislegan kaupskap milli hans og mín hafði eg oftlega þann mun sem mér stóð verr því að eg heimti mína skuld miklu frekara en eg vissi sannindi til vera í undirstöðu kaupsins, af- flettandi svo náunginn sínu góssi með sviksamleg- um plóg fjandlegrar ágirni svo hörmulega sem ómannlega að þar fyrir varð hann öreigi og staf- karl, þolandi hér með hungur og þorsta, kulda og krankleika og að síðustu lífstjón og reiðuleysi and- ar og líkama en eg hélt hjá mér hans góss og þá skuld sem eg átti honum að gjalda, lokkandi aðra menn með mér að neyta þeirra peninga í kosti og klæðum sem eg hefi svo svívirðilega aflað. Hér með fylgdi það sem enn var hörmulegra að þurrð og minnkan á mínu góssi tjáði eg og greindi ólat- lega sakir ölmusuleysis við hinn volaða. En vöxt og aukan minna peninga sagði eg nauðug og þó með falsi og undirhyggju þá sjaldan er það varð leggj- andi þar við minn bókareið með mörgum mála- krókum að mitt góss væri eigi meira en eg sagði, hvar fyrir allir tollar og tíundir er eg átti að lúka kirkju, prestum, biskupum og fátækum mönnum voru sjaldan eður aldrei af mínum peningum rétt- lega lukt. En sakir míns ofsa og ójafnaðar þorði enginn maður mér ásakan að gefa þó að þeir vissu mín rangindi svo afskaplega öflgast móti guðs lög- um og heilagra feðra setningu. En því hefi eg mis- gert í ósýnilegum stuld, andlegur faðir, að þeir hlutir sem mér voru fengnir lil geymslu eður beðin að gera eitthvað úr þeim skutlaði eg með ódyggð og afdrætti og umskipti, afhendandi þeim er mér fékk minna eður verra en eg meðtók í fyrstu, vefj- andi fyrir þeim aftur og fram sem eg kenndi eigi jafnklókan mér í brögðum og kyndugskap svo hann trúði minni sögn. Glöddumst eg ómögulega með sjálfri mér af þessari lymsku sem eg hefði rétt- lega fyrr greindra hluta aflað. I annarri grein sem enn var háskasamlegra að þá er eg var í nokkrum nauðum stödd, heitandi ýmsum hlutum, pílagríms- ferðum eður offri til heilagra staða í föstum og vökum eður bænahaldi eða afláti einhverra glæpa þeirra sem minni sálu voru til eilífs óbata þá rauf eg þetta þegar allt samt er eg komst úr mínum þrengingum, takandi það aftur undir mig með eig- inlegum illvilja sem eg játaði guði og hans helgum mönnum, og eigi fannst mér meira um þennan guðræka glæp en eg hefði dárað minn líka. Oftlega hefi eg, minn sæti faðir, stolið frægðinni burt af mörgum manni með gallblandinni bakmælgi, í áleitni og umlestri því að þá leynda hluti sem minn náungur lagði undir mig í trúskap rauf eg litlu síð- ar með hróplegri opinberan, viðaukandi marga hluti illa með lygilegum falsráðum. Þá er eg heyrði gjarna aðra umlesturinn frambera, þar með neitaði eg sanna vera þá góða hluti sem maður ber í sjálfs síns samvisku en eg kostaði af öllu megni illskunn- ar að fordrífa og opinbera mannsins góða hluti, og að síðustu sneri eg um góða hluti míns samkristins manns í þá hluti sem honum yfirgæfust iðulega í versta efni eftir því sem eg gat minni illsku fremst tilkomið. En eg sjálf var sem annar skröksmaður, líkjandi mig góða hluti fremjandi fyrir manna aug- um en eg óttuðumst eigi að reita guðs ásjónu með svívirðilegum og skemmdarfullum ódáðum, girn- andist að kallast heilagur af mönnum en eg var ljót og leiðileg í guðs augliti. Oftsinnis féll eg í greypi- lega guðlastan því að eg eignaði þá hluti guði sem eigi voru hans þá er eg sagði með mér hann skap- að hafa efni og undirstöðu syndanna. Neitaði eg og djarflega hans hluti þá vera sem hans voru, leggj- andi hans helgasta nafn við hégómlega5 hluti með hæsta svardaga. En nú allar fyrr nefndar greinir með sérhverjum articulis legg eg undir miskunnar- vald drottins míns jesú christi. Hér með hefi eg misgert vitandi og óvitandi, vakandi og sofandi, viljandi og óviljandi á nótt og degi og á hverri stundu. Fleiri og meiri eru mína syndir en eg megi orðum inna eður hug til koma. En nú vil eg fegin ... 5 Fornbréfasafn hefur hégónui hluíi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.