Ný saga - 01.01.1999, Side 40

Ný saga - 01.01.1999, Side 40
Sverrir Jakobsson í aldanna rás hafa margar sagnir orðið til um Harald en lítið er vitað um staðreyndir Oþekkti konungurinn Sagnir um Harald hárfagra Y> jið gefumst aldrei upp þótt móti blási \/ á fslandi við getum verið kóngar allt sem eitt og látum engan yfir okkur ráða þótt ýmsir vilji stjórna okkur bœði Ijóst og leynt. Erling Ágústsson Samtímaheimildir Seinastliðin 870 ár hefur það verið alrnenn og útbreidd söguskoðun að á 9. öld hafi maður að nafni Haraldur hárfagri sameinað Noreg í eitt konungsríki. Telst hann fyrstur Noregs- konunga með því nafni en núverandi konung- ur er sá fimmti. ísland á að hafa fundist sam- tímis og jafnvel vegna þess að Haraldur sam- einaði Noreg. Landnámsmenn hafi verið flóttamenn undan ráðríkum einvaldskonungi. Litlar líkur eru á því að nokkuð af þessu sé byggt á staðreyndum. Flest af því sem ritað hefur verið um Harald hárfagra er byggt á sagnahefð en ekki sagnfræðirannsóknum. Af þeim sökum hafa menn mjög skýrar hug- myndir unr Harald, enda þótt veruleikinn sé óljós, eru fullvissir í stað þess að efast og byggja hugmyndir sínar á trú í stað þess að leita þekkingar. I aldanna rás hafa margar sagnir orðið til um Harald en lítið er vitað um staðreyndir. Verður nú þess freistað að rekja þær, eins og þær eru framast kunnar. í ljósi þess sem vitað er um sögu 9. aldar á Norðurlöndum er afrek Haralds einstakt. Aðrir konungar voru víkingahöfðingjar og veldi þeirra náði einkum til verslunarþorpa, en Haraldur á að hafa sameinað mikið land og myndað fyrsta ríkið á Norðurlöndum.1 Þó er hans hvergi getið í samtímaheimildum. Frakkneskir annálar eru fjölorðir um nor- ræna konunga á níundu öld, einkum þó danska, en geta Haralds hvergi. í sögum af Haraldi frá tólftu og þrettándu öld er sagt frá hernaði hans á Bretlandeyjum. Irskir og engilsaxneskir annálar eru yfirleitt greinar- góðir um norræna menn á þeim slóðum en enginn Haraldur kemur við sögu í annálum milli 850 og 930. Þeir menn norrænir sem þar birtast helstir eru Ketill hvíti, Olafur, Hálfdan og Ivar, „konungur allra norrænna manna á Bretlandseyjum“ en síðan afkomendur Ivars. Sjálfur Ragnar loðbrók kemur við sögu frakk- neskra annála.2 Sagnaritarar tóll'tu og þrelt- ándu aldar töldu Hálfdan og Ivar hafa verið syni Ragnars loðbrókar og Haraldur hárfagri átti líka að vera af þeirri ætt. En frændi Ragn- arssona virðist hafa haft lítil afskipti af ævin- týrum þeirra á Vesturlöndum. En hvað með aðrar samtímaheimildir um Norðurlönd? Alfreð (849-99), konungur Vest- ur-Saxa, gekkst fyrir engilsaxneskri þýðingu á landafræði Orosiusar. I inngangi að ritinu segir frá Óttari (Ohthere), Norðmanni er heimsótti konunginn. Ekki er ljóst hvað orð- ið Norðnraður merkir á þessum tíma.3 Landið sem hann minnist á er langt í norðri og næst- um því í eyði, að frátöldum fáeinum Finnum (Sömum). Hér er augljóslega ekki átt við Noreg allan, sennilega eingöngu Hálogaland. Eftir að Óttar hefur greint frá ferðum sínum norður á bóginn, snýr hann sér að Norð- manna landi, sem sé „swyþe lang and swyþe smæl“. Nýtanlegt land þrengist er norðar dregur. Inni í landi séu mýrar og þar búi ein- ungis Finnar. Að sunnanverðu, hinum megin við mýrarnar og í norður, sé Svíaland en norðan við það Kvenland og eigi þeir oft í stríði við Norðmenn. Frá Hálogalandi að Sciringes heal, sem sé höi'n eins og Heiða- bær, er Norvegur á bakborða alla leið en á stjórnborða fyrst íraland og síðan eyjan sem 38
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.