Ný saga - 01.01.1999, Page 85
mikið er gagn í því veganesti, hvernig sem allt
er eftir það.
Þetta er nú of langt mál vinir mínir en að-
eins minnast á þessa rnörgu kynflokka sem
hér eru og ég hefi aldrei séð fyrr t.d. Indverja
hefi ég ekki séð fyrr. Svo eru Kínverjar og
Japanir, ég hefi reynt dálítið að kynnast þessu
fólki en það er ekki eins ...l6 og t.d. Arnerík-
anar svo það er ekki gott að þekkja þá náið
einstaka.
Það sem ég hefi um það að segja er að það
er langt á undan okkur í siðsemi og fallega
framkomu hefur það allt. Þú sérð aldrei þess-
ar gulu þjóðir kjaftandi út á götu eða troðast
á sölutorgi og aldrei sýnist það vera að flýla
sér og þó segja allir sem hafa það í vinnu að
það sé duglegt að vinna. Til dæmis eru hér
nrörg pláss sem selja gömul föt, og ég geri mig
seka í því að kaupa surnt garnalt drasl, garnla
lampa eða eitthvað fornt, og þar eru oft rnikl-
ar ryskingar og handagangur. Aldrei nokkru
sinni hefi ég séð gulu þjóðirnar þar eða svert-
ingja og eru þeir eins fátækir og aðrir. Ég
reyndi einu sinni að koma því svo fyrir að tala
unr þetta við Kínakonu. Hún segir: „Því
skyldum við vera að safna að okkur, nei við
reynum bara að hafa það sem er nauðsynlegt
fyrir börnin okkar og við kærum okkur ekki
um neitt meira.“
Einu sinni var ég í liúsi þar sem kennari var
og hún kenndi mörgum af þessum Kínabörn-
um og Indverja. Hún sagði þau væru alls stað-
ar auðþekkt fyrir góða hegðun. Ein ensk
stúlka 10 ára gömul sagðist fara á sunnudaga-
skóla til Kínverja, hún sagðist ekki hafa trúað
þessu og spyr móðurina um hvorl þetta sé
satt. „Já“ segir hún, ég sendi hana þangað því
börnin haga sér miklú betur en hjá okkur, mig
langar að dóttir mín verði prúð í framkomu
eins og þessi Kínabörn eru. Aldrei hefi ég séð
Kínverja eða Japana drukkna út á götu en
einstaka sinnum Indverja og þá var aumingja
karlinn sofandi á götunni og heilagleikinn far-
inn úl í veður og vind, tuskan eða það sem
hann hafði á höfðinu fokið út á götu, en lög-
reglan tók hann heim í rólegheitum.
í kirkju eða musteri þeirra kom ég einu
sinni. Þegar ég nú athuga alla þessa kynþætti
eða kynflokka hefur aldrei komið í huga
minn eins oft og nú þessi ritningargrein. Guð
skapaði manninn í sinni mynd, hvað finnst
ykkur konur?
Verið þið blessaðar og sælar og líði ykkur
ætíð sem best, ykkar einlæg
Halldóra Jónasdóttir
Tilvísanir
1 Halldóra Jakobína Guðmundsdóttir (26. febrúar 1891-22.
september 1990), amma greinarhöfundar.
2 Anna Sveinbjörnsdóttir (1855-1948) var tvígift. Fyrri
maður hennar var Ólafur Árnason (d. 1886). I'eirra börn
voru: Páll, Einar, Petrína og Málfríður. Pau systkinin voru
þau fyrstu úr fjölskyldunni sem fluttu vestur. Seinni
maður Önnu var Jónas Ikaboðsson (1866-1912). Þeirra
börn voru: Halldóra (f. 18. ágúst 1890), Ásgeir (lést níu
ára), Benedikt (f. 1885), Helga (f. 1885) og Sveinbjörn
(f. 1887). Þau voru öll fædd í Halakoti á Akranesi.
Fjölskyldan fluttist vestur 1911 og tók sér nafnið Ólafsson
eins og systkinin sem farin voru á undan því heppilegast
var taliö að allir gengju undir sama fjölskyldunafninu.
3 Jónas Ikaboðsson kona lians Anna Sveinbjörnsdóuir og
börn þeirra. Án útg. árs og höf.
4 Guðmundur Sveinbjörnsson (1852-1932) og Katrín
Jakobsdóttir (1848-1937).
5 Erla Hulda Halldórsdóttir, „Að vera sjálfstæð", Saga
XXXV 1997, bls. 65.
6 Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka, kona Páls Kolka læknis.
7 Únitaratrú: kirkjuleg stefna sem hafnar þrenningarkenn-
ingunni um guðdóm Krists og kennir að Guð sé óskiptan-
leg eining. Únitarakirkjan álti unt skeið talsverðu fylgi aö
fagna meðal Vestur-fslendinga.
8 Meðan Halldóra dvaldist á fslandi flulli hún útvarpserindi.
Það hefur ekki varðveitst og ekki er vitað um hvaö það
fjallaði.
9 f bréfi dagsettu 29. júní 1959 minnist hún aftur á þessa
dýrakirkjugarða og þá fylgir þessi athugasemd: „Þaö er
t.d. enginn söknuður hjá neinum þótt blessað indfána-
barn sé kvalið eða deyi, enginn finnur til þess, en hund-
greyin er meira haft við. Svona er nú lífið hjá okkur hér á
þessari jörð hvað sem tekur viö eftir það, en við vonum
öll það besta um það.“
10 Á spássíu er skýring: Búðin sem ég var að spinna í er
EATON'S. Eigandinn er giftur íslenskri stúlku, miljón-
erar.
11 Steingrímur 'l horsteinsson, „Þið sjáisl aldrei framar".
12 Hér var fyrst skrifað lieinia en sfðan slrikað yfir það.
13 Liklega hefur Halldóra hér í huga kosningu Dwights D.
Eisenhowers í embætti forseta Bandaríkjanna í nóvem-
ber 1952.
14 Ólafía Jóhannsdóttir (1863-1924) var ein af stofnendum
Hins íslenska kvenfélags 1894 og beitti sér fyrir stofnun
Hvítabandsins 1895. Hún lijó í Noregi 1903-21 og starfaði
þar að líknarmálum.
15 Vantar eitt orð sem er ólæsilcgt.
16 Vantar eilt orð sem er ólæsilegl.
Þegar ég nú
athuga alla
þessa kynþætti
eða kynflokka
hefur aldrei
komið í huga
minn eins oft
og nú þessi
ritningargrein.
Guð skapaði
manninn í sinni
mynd, hvað
finnst ykkur
konur?
83