Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 15% afsláttur Fæst án lyfseðils N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R Nýtt lok! Auðvelt að opn a Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Meira en þúsund farþegar þurftu að bíða fastir í tíu flugvélum á Keflavíkurflugvelli í nokkra klukku- tíma meðan veðrið gekk yfir. Sjö af vélunum voru frá Ice- landair. Að sögn Hjördísar Guðmunds- dóttur, upplýsingafulltrúa Isavia, var snarvitlaust veður á flugvell- inum. Hlutir fuku við flugstöðina og því var ekki hægt að koma vélunum upp að landgangi án þess að taka áhættu af því að skemmdir yrðu á vélunum. Skemmdir urðu á rönum flugstöðvarinnar í óveðrinu. Vél- arnar voru látnar standa í svo- nefndri „rokstöðu“ úti á vellinum. Allar vélar Icelandair sem voru á leið til Íslands í eftirmiðdaginn lentu áður en vindurinn náði hámarki, að sögn Guðjóns Arngrímssonar upp- lýsingafulltrúa. Þetta þýddi engu að síður að sex vélar félagsins sem halda áttu áfram yfir hafið lentu í seinkunum. Þurftu að bíða í flug- vélunum Flugvélarnar komust ekki að flugstöðinni Jónas Guðmundsson hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg segir að fleiri beiðnir um hjálp vegna brot- inna rúðna í svalahurðum, úti- hurðum og þess háttar hafi borist í óveðrinu í gær en vanalega í veðrum sem þessum. Hann hafði ekki heyrt af neinum teljandi meiðslum vegna óveðursins. Þó meiddist maður lít- illega þegar grindverk fauk á hann á Skólavörðuholtinu. Þrátt fyrir að veðrið hafi verið einna verst á Suðurnesjum bárust einnig beiðnir um aðstoð frá höfuð- borgarsvæðinu, Akranesi, Borgar- nesi og víðar. Víða fuku þakplötur. Með vaxandi trjágróðri kemur aukið skjól en trén gefa sig líka stundum. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins þurfti m.a. að aðstoða hús- eiganda við Túngötu þar sem tré brotnuðu. Björgunarsveitin Ársæll þurfti að saga og fjarlægja fallið tré á Vitastíg, til að opna götuna aftur fyrir umferð. Grindverk fauk á mann Ljósmynd/Valdimar Axelsson Tjón Borð fauk í gegnum bílrúðu í Rjúpnasölum í Kópavogi. Stórt gat kom á flugskýli Icelandair við Keflavíkurflugvöll þegar óveður gekk yfir landið í gær. Einna verst var veðrið á Suðurnesjum, en 300- 400 tilkynningar bárust til lögreglu, þar af um 140 á Suðurnesjum. Kalla þurfti til björgunarsveitir utan svæð- isins til að ráða við ástandið, en um 200 björgunarsveitarmenn voru að störfum í gær. Málmplötur rifnuðu utan af flug- skýlinu og myndaðist lóðrétt gat á húsinu. Lögreglan í Borgarnesi lokaði Borgarfjarðarbrúnni um hádegisbil í gær eftir að bílar lentu í grjóthríð á brúnni. Rúður brotnuðu í a.m.k. fjór- um bílum. „Það kom hrikaleg hviða með grjóti og öllu,“ sagði Pétur Dav- íðsson frá Grund í Skorradal. Hann var á heimleið með fjölskyldu sína, konu og þrjú börn, þegar grjóti tók að rigna yfir bílinn. „Maður sá varla í næstu stiku og er stutt á milli þeirra á brúnni,“ sagði Pétur. „Við ákváðum að snúa við og þá sáum við að hliðarrúðurnar höfðu far- ið úr þremur bílum og úr þeim fjórða fóru bæði hliðarrúðurnar og afturrúð- an út.“ Engar rúður brotnuðu hjá Pétri, grjótið buldi á hlið jeppa fjölskyld- unnar en náði ekki upp í rúðurnar. Grjótregnið var hins vegar í rúðuhæð fólksbíla. Pétur sagðist aldrei fyrr hafa lent í svona grjóthríð. Hann er þó ýmsu vanur og hefur verið skólabíl- stjóri í Borgarfirði í 11 ár. Að beiðni lögreglunnar í Borgar- firði og Dölum opnaði Rauði krossinn Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgar- nesi fyrir ferðafólki. Yfirfullt var orðið af fólki í Hyrnunni. Fólk beið einnig í Hótel Brú sunnan við Borgarfjarðar- brúna. Brúin var opnuð á ný í gær- kvöldi. Ljósmynd/Bergsveinn Norddahl Flugvélar Veðrið var það slæmt að ekki var hægt að koma flugvélunum upp að flugstöðinni og því urðu farþegar að bíða í flugvélunum. Gat kom á flugskýlið  300-400 tilkynningar um aðstoð bárust vegna óveðurs sem gekk yfir landið  Loka þurfti Borgarfjarðarbrú eftir að grjóti rigndi yfir bíla og rúður brotnuðu Ljósmynd/Hilmar Bragi Óveður Gat kom á flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Aðeins brot af þeim fjölda erlendra fjölmiðlamanna sem lögðu leið sína til landsins í fyrra vegna þjóðar- atkvæðagreiðslunnar um Icesave kom til landsins vegna Icesave- kosninganna á laugardaginn var. Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, stað- festi þetta en fyrir rúmu ári fylltu erlendir fjölmiðlamenn 2. hæð í Iðnó þegar kosið var 6. mars. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upp- lýsingafulltrúi fjármálaráðuneyt- isins, var ekki með ýtarlegan lista yfir heimsóknir erlendra fjölmiðla við höndina þegar spurst var fyrir um málið seint í gærkvöldi. Hún staðfesti þó að fransk-þýski fjölmiðillinn Arte, svissneska ríkis- sjónvarpið, sjónvarpsstöðin Al Ja- zeera, norska ríkisútvarpið NRK og finnska og danska ríkisútvarpið hefðu sent hingað blaðamenn. Til viðbótar hefðu fréttastofurnar AFP og Reuters fulltrúa á Íslandi, ásamt því sem á annan tug fjölmiðla hefðu haft samband að utan. Þótt heimsóknirnar hafi ekki verið margar ber að geta þess að helstu fjölmiðlar heims gerðu Icesave- málinu skil á vefjum sínum í gær. Fáir erlendir fjölmiðlar komu vegna Icesave Morgunblaðið/Árni Sæberg Komu að utan Erlent fjölmiðlafólk hlustar á fjármálaráðherra í gær. Einn lést í bílslysi sem varð í Langa- dal á Möðrudalsöræfum í gærmorg- un. Lögreglu barst tilkynning um slysið um kl. 6.45 í gærmorgun. Tveir voru í bílnum og gat sá sem lifði slysið af gert lögreglu viðvart. Hinn var úrskurðaður látinn á slys- stað. Bíllinn fór út af veginum. Óljóst er hvað olli slysinu, að sögn lögreglu. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Lést í um- ferðarslysi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.