Morgunblaðið - 11.04.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.04.2011, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Lítið hefur farið fyrir Robbie Ro- bertson, forsprakka hinnar forn- frægu hljómsveitar The Band, und- anfarið, en nú er komin út hans fyrsta plata síðan 1998 og ber hún heitið How to Become Clairvoyant. Platan er ekki leiðarvísir um hvernig hægt er að verða skyggn, þótt nafnið gefi það til kynna, og reyndar frekar horft til fortíðar. Robertson, sem var heiðraður í Kanada í liðinni viku fyrir framlag sitt til rokksins, segist þó ekkert myndu hafa á móti því að geta skyggnst fyrir horn og séð hvað er í vændum. „Það myndi nýtast við að koma sér áfram,“ segir hann í viðtali við kanadíska blaðið Globe and Mail, „og væri praktískt, en á uppruna sinn í því að ég er andlega þenkj- andi.“ Platan á sér upphaf í því að Ro- bertson og Eric Clapton, sem hafa verið vinir frá því að The Band gerði plötuna Music From Big Pink 1968, settust niður og spiluðu saman. Um tveimur árum síðar tók Robertson fram upptökur af þessum samleik þeirra og sá að meira var í hann spunnið en honum hafði fundist þá. Robertson og Clapton leiddu aftur saman hesta sína. Á endanum varð úr að hún yrði plata Robertsons, en Clapton myndi leika á henni. Indíáni og gyðingur Robertson fæddist 1943 í Toronto í Kanada og heitir upprunalega Jamie Royal Klegerman. Hann er gyðingur í föðurlegg, af Mohawk-indíánum kominn í móðurætt og ólst upp að hluta á verndarsvæði indíána, sem kennt er við þjóðflokkana sex. Hann segist vera með annan fótinn í ind- íánatjaldinu, hinn í bænahúsi gyð- inga. Þegar hann var 16 ára tók Ron- nie Hawkins hann í hljómsveitina sína, The Hawks, og tónlistarferill- inn hófst fyrir alvöru. Hann segist hafa hitt marga af þeim ótrúlegu per- sónuleikum, sem voru á ferð í tónlist- arheiminum á sjöunda áratugnum þegar hann lék með hljómsveit Hawkins og sumir þeirra komi fyrir á nýju plötunni. Hljómsveitin The Band naut mik- illar hylli á sínum tíma. Tónlist hljómasveitarinnar á sér rætur í blússkotinni þjóðlagatónlist. Um tíma lék hljómsveitin með Bob Dylan og kom fram með honum á tónleikum þar sem hún sá ekki bara um undir- leik heldur lék einnig eigin tónlist. Að gera réttu mistökin  Robbie Robertson sendir frá sér plötu um litríka fortíð og löngunina til að vera skyggn og sjá fyrir horn  Heiðraður í Kanada fyrir framlag til rokksins ABC via Getty Images Slyngur Robbie Robertson kom fram í þættinum The View á sjónvarpsstöð- inni ABC í liðinni viku í tilefni af útkomu nýrrar plötu eftir 13 ára hlé. Tvöfalda tónleikaplatan Before the Flood ber þessu frjóa samstarfi við Dylan gott vitni. Árið 1978 sleit The Band samstarf- inu með tónleikum þar sem margir af helstu tónlistarmönnum þess tíma stigu á svið og var uppákomunni haldið til haga í myndinni The Last Waltz eftir leikstjórann Martin Scor- sese. Þar fer The Band á kostum og landar hljómsveitarmeðlima, Neil Young og Joni Mitchell, eiga einna eftirminnilegustu innkomuna. Þegar nóttin var ung Þessum tímum eru gerð skil á plötunni. Í einu laginu, When the Night Was Young, er fjallað um tíma þegar „við áttum okkur drauma“, „gátum stöðvað stríð“ og nóttin var ung. Þar kemur Andy Warhol inn í hótelmóttöku, spyr um músu sína og fær að vita að hún komi ekki aftur fyrr en í fyrramálið, hún sé farin í bæinn að hlusta á blús. „Við vorum að vinna með Bob Dyl- an,“ segir Robertson. „Ég bjó á Chelsea-hótelinu og Edie Sedgwik [sem umgekkst Warhol í New York og fjallað er um í kvikmyndinni Fac- tory Girl] kom iðulega upp í herbergi til mín til að spjalla. Andy Warhol var svo heillaður af henni að hann kom þangað að leita að henni. Þá var hringt upp á herbergi og sagt: Herra Warhol er í móttökunni og er að velta fyrir sér hvort ungfrú Sedg- wick sé í herberginu þínu. Og hún hvíslaði: Nei, nei, segðu honum að ég sé ekki hér.“ Slíkum glefsum úr lífi Robertsons bregður fyrir á plötunni og meira mun víst vera í vændum í ævisögu, sem væntanleg er 2013. Margir hafa viljað fá að skrá sögu hans og tók hann slíku tilboði og hófst handa, en hætti við. „Mér fannst að enginn gæti sagt þessar sögur jafn vel og ég,“ segir hann. Í öðru lagi, The Right Mistake syngur Robertson að hann hafi bara verið að gera réttu mistökin; drasl eins er fjársjóður annars, sársauki eins sæla annars. Og sá sem gengur of hart fram endar með því að vera afhjúpaður. Eftir lokatónleikana með The Band hætti Robertson að fara í hljómleikaferðalög og hefur lítið komið fram. Hann hefur gefið út nokkrar plötur og lag hans Some- where Down That Crazy River gekk í endurnýjun lífdaga í meðförum Baggalúts nú fyrir jólin þar sem Leppalúði grét undan illum örlögum sínum. „Ég spila mikið á gítar vegna þess að ég er að leita að einhverju,“ segir Robertson. „Ég spila ekki til að leika af fingrum fram með öðrum heldur vegna þess að ég er á veiðum. Ég er að leita að einhverju, sem ég vona að aldrei finnist. Ef ég finn það er ég hræddur um að ég muni ekki hafa þörf fyrir að gera þetta lengur.“ Umslagið á hinni nýju plötu Rob- bies Robert- sons, How to Become Cla- irvoyant, er mynd, sem hjá flestum kæmist ekki einu sinni í fjölskyldu- albúmið. Þar stendur gítarleik- arinn í hettupeysu með sólgler- augu og undir arminum er bók sem nefnist The Whole Person eða Persónan öll. Myndin virðist tekin gegnum rúðu og í henni speglast blossinn frá myndavél- inni. Í bakgrunni er einhvers konar skjár sem jafnvel virðist notaður til ómskoðunar. Dularfulla umslagið HIN HEILA PERSÓNA? Hljómsveitirnar Coldplay, Muse og tónlistarmaðurinn Damon Albarn hafa verið beðin um að semja ein- kennislag Ólympíuleikanna í Lund- únum sem haldnir verða á næsta ári. Breska dagblaðið Daily Mirror segir að skipuleggjendur leikanna hafi viljað fá þessa tónlistarmenn í lið með sér. Söngvarinn Chris Mart- in úr Coldplay vegi þar þyngst. Auk þess mun söngkonan Joss Stone hafa verið beðin um að koma fram á opnunarathöfn leikanna auk Coldplay, þ.e. ef Coldplay taka verkefnið að sér. Leikstjórinn Danny Boyle mun stýra athöfninni. Coldplay, Muse og Albarn á ÓL 2012 Morgunblaðið/Jim Smart ÓL Chris Martin á tónleikum með Coldplay á Íslandi árið 2001. Rappsveitin Beastie Boys hefur sent frá sér stiklu fyrir væntanlegt myndband sem mun vera framhald á myndbandinu við einn helsta smell sveitarinnar, „(You Gotta) Fight for Your Right (To Party!)“, frá árinu 1987. Margar grín- og kvikmyndastjörnur koma við sögu í stiklunni, m.a. Seth Rogen, Will Ferrell, Jack Black og Will Arnett. Myndbandið ber titilinn Fight For Your Right Revisited en það verður sýnt í heild sinni upp úr 2. maí en þann dag kemur út ný plata með Beastie Boys. Skífan væntanlega heitir Hot Sauce Committee Pt. 2. Grínistar í mynd- bandi Beastie Boys Rapp Will Ferrell dansar stirðbusa- lega í stiklu Beastie Boys. SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS YOUR HIGHNESS KL. 8 - 10.20 16 KURTEIST FÓLK KL. 5.45 - 8 L HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 5.45 L LIMITLESS KL. 10.10 14 OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 5.45 - 8 - 10.10 L BIUTIFUL KL. 6 - 9 12 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI YOUR HIGHNESS KL. 8 - 10 16 HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 6 L KURTEIST FÓLK KL. 6 - 8 L LIMITLESS KL. 10 14 -H.S., MBL -Þ.Þ., FT YOUR HIGHNESS KL. 5.45 - 8 - 10.20 16 YOUR HIGHNESS LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.20 16 KURTEIST FÓLK KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 - 5.45 L LIMITLESS KL. 8 - 10.20 14 OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 3.30 - 5.45 L NO STRINGS ATTACHED KL. 8 - 10.20 12 RANGO ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L -T.V. - KVIKMYNDIR.IS MEÐ ÍSLENSKU TALI -H.S., MBL -Þ.Þ., FT -R.E., FBL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar  - H.J. - menn.is  - Þ.Þ. - FT  - R.E. - Fréttablaðið  - H.S. - MBL  - Ó.H.T. - Rás 2 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Drepfyndið ævintýri ólíkt öllum öðrum ævintýrum 5% endurgreitt ef þúgreiðir með kreditkortitengdu Aukakrónum YOUR HIGHNESS Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 HOPP ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 6 HOPP ENSKT TAL Sýnd kl. 8 KURTEIST FÓLK Sýnd kl. 6, 8 og 10 NO STRINGS ATTACHED Sýnd kl. 10 -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.