Morgunblaðið - 11.04.2011, Side 28

Morgunblaðið - 11.04.2011, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 ✝ Finnbogi Guð-mundsson, fyrr- verandi lands- bókavörður, fæddist í Reykjavík 8. jan- úar 1924 og ólst þar upp. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ aðfaranótt 3. apríl 2011. Finnbogi var son- ur hjónanna Lauf- eyjar Vilhjálmsdóttur kennara og Guðmundar Finnbogasonar, prófessors og landsbókavarðar. Finnbogi kvæntist Kristjönu P. við MR, aðstoðarkennari við Manitoba-háskóla og sendikenn- ari við Óslóarháskóla og Björg- vinjarháskóla. Hann var einnig dósent við HÍ um tíma. Finnbogi var landsbókavörður 1964-1994. Eftir Finnboga liggur fjöldi ritverka, bæði frumsamins efnis og þýðinga. Hann annaðist einnig útgáfu fjölda bóka, m.a. fornrita og bóka eftir föður sinn. Finn- bogi tók mikinn þátt í fé- lagsmálum og var m.a. um tíma í stjórn Þjóðræknisfélags Íslend- inga í Vesturheimi og var gerður að heiðursfélaga þess, formaður Félags íslenskra fræða og forseti Hins íslenska þjóðvinafélags. Hann var formaður bygging- arnefndar Þjóðarbókhlöðunnar frá 1970. Útför hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 11. apríl 2011, kl. 15. Helgadóttur lækni, f. 1921, d. 1984. Barn þeirra er Helga Laufey og fósturdóttir Selma Jónsdóttir. Finnbogi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1943 og cand. mag.-prófi í ís- lenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1949. Hann lauk doktorsprófi frá HÍ 1961. Finnbogi stundaði kennslu um árabil og var m.a. stundakennari Það er með ólíkindum hve lífið tengdi feril okkar Finnboga saman. Frá barnæsku ólumst við upp í hlíðarslakkanum vestan Tjarnarinnar, – við Suðurgöt- una. Foreldrar okkar voru vinir og sama er að segja um börn þeirra. Það voru glaðar stundir í afmælisboðum hjá Finnboga, – þótt við brenndum okkur á tung- unni á sjóðheitu súkkulaðinu. Heimilisfaðirinn hermdi eftir fuglum og dýrum, hneggjaði, tísti og söng. Þetta var dýrðleg tónlist og ekki skemmdu svo sög- ur um gæðingana á Rauðará. Laufey var okkur öllum góð og gæf, – jafnvel þótt við brytum óvart glerin í vermireit hennar. Það fyrirgafst og hún tíndi gler- brotin úr smáskeinum og batt um sár á hendi. Svo liðu æskuárin. Á vetrum skautuðum við á Tjörninni. Renndum okkur niður brekk- urnar á milli húsa við Tjarnar- götu, beint út á Tjörnina. Þar bar Finnbogi af okkur hinum, því hann lék listir á skautum og gerði fram á fullorðinsár. Á vorin var svo farið í strákahóp niður á höfn að veiða kola og ufsa af Geirsbryggju. Oft urðum við Finnbogi sam- ferða í barnaskólann og þegar þeirri baráttu lauk hófst nám í menntaskólanum, sem þá var bara einn í bænum, ofan Lækj- argötu. Guðmundur heitinn, faðir Finnboga, réð ríkjum í safnahús- inu við Hverfisgötu. Þangað leyfði hann okkur að koma á sunnudögum. Þar var fornminja- safn og náttúrugripa, auk bók- anna. Gjarnan var þá rifist um það hvort öxin mikla á háaloftinu væri Rimmugýgur eða ekki. Vonbrigði voru mikil þegar Guð- mundur skar úr því og sagði að öxin væri aftökutól norðan úr landi. En sverð og skildir forn- manna bættu úr þessum missi. Stúdentsprófi lukum við vorið 1943. Finnbogi mótaði námsferil sinn af festu, rétt eins og hann gerði um störf sín að námi loknu. Báðir fórum við svo í háskólann hér heima og lukum þar prófi um svipað leyti. Og enn lágu leiðir okkar sam- an. Hann fór að kenna í MR en ég starfaði í ráðuneyti mennta- mála. Svo lágu leiðir hans áfram inn í menningarheim okkar. Þar leysti hann af hendi þrekvirki með rannsóknum sínum, skrifum og ræðum. Eiginleikar hans og víðfeðmar gáfur þroskuðust með aukinni reynslu. Svo margþætt urðu menntastörf hans að rita þyrfti heila bók til að greina frá þeim. Hann kynnti íslensk fræði og menningu víðar en hér heima. Sem prófessor við háskólann í Winnipeg kynntist hann lífi og starfi fólks af íslensku bergi. Leiðir okkar lágu fyrir tilviljun saman á Íslendingamóti í Seattle. Þar fluttum við báðir ávörp um íslensk málefni. Að því loknu gengum við út á grasflöt sem var þar nærri. Við settumst niður i grasið og röbbuðum. Þeg- ar við stóðum upp sá ég að stór- eflis lirfa hafði klesst á föt hans. Ég þreif upp vasaklút og skóf þetta af honum. Hann horfði undrandi á og sagði: „Já, það er ekki saman yndið í náttúrunni hér og heima“. Finnbogi var gæfumaður, hreinlyndur og hrekklaus. Svip- ur hans var góðmannlegur og bar vott um þrek hans og dugn- að. Hann kvæntist góðri og göf- ugri konu, Kristjönu P. Helga- dóttur. Þau eignuðust dótturina Helgu Laufeyju, sem nú er þekktur tónlistarmaður. Svo haustaði að í lífi okkar. Orðnir ekkjumenn fluttum við í sama hús í Kópavogi, þar sem við gátum rifjað upp liti vors og hausts í lífi okkar. Ég kveð þennan vin minn með þökkum og sendi dóttur hans hjartans samúðarkveðjur. Ásgeir Pétursson. Ég kynntist Finnboga fyrst í Winnipeg árið 1952, stuttu eftir að hann hóf þar störf sem fyrsti prófessor í íslenskum fræðum við háskólann í Manitoba. Það haust hóf ég nám við skólann og konan mín, Helga Pálsdóttir, reyndi strax að leita sér vinnu svo að við kæmumst af í aura- leysinu. Finnbogi kom okkur til bjargar og fékk Helgu til að koma á fót safni íslenskra bóka og blaða við bókasafn skólans í samstarfi við Finnboga. Þá hófst náin vinátta okkar við hann sem hélst til alla tíð. Finnbogi vann merkilegt frumkvöðlastarf í Winnipeg við að skapa íslenskri tungu og menningu fastan sess við Manitoba-háskóla. Það var gaman að fylgjast með því hve fljótt og vel Finnboga tókst að skipuleggja námið og laða að því stóran hóp ungra Vestur-Íslend- inga og raunar margra annarra Kanadamanna. Finnbogi tók líka mikinn þátt í félagslífi Vestur- Íslendinga í Manitoba og í byggðum Vestur-Íslendinga í öðrum fylkjum Kanada. Hann gat sér góðan orðstír í þessu starfi. Mér er sérstaklega minn- isstætt þegar Finnbogi stóð fyrir því að setja upp sýningar á Gullna hliðinu bæði í Winnipeg og á Gimli. Finnbogi lék Lykla- Pétur og ég skrattann, en Finn- bogi leikstýrði þessum framúr- skarandi sýningum. Það var allt- af gaman að vera með Finnboga og síðar með honum og hinni góðu konu hans, Kristjönu, sem var samtíma okkur í Manitoba. Finnbogi var óhemju fróður maður og fús að miðla af fróðleik sínum. Honum var tamt að sjá skoplegar hliðar málefna og manna svo að frásagnir hans og samtöl við hann voru alltaf skemmtilegar upplifanir. Við sr. Bragi Friðriksson, sem var sam- tíða okkur vestra, heimsóttum Finnboga ekki alls fyrir löngu og ekki hafði húmorinn dalað. Nú eru þessir heiðursmenn báðir farnir. Ég geymi minninguna um góðan og tryggan vin og við Anna sendum Helgu Laufeyju og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Björn Sigurbjörnsson. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld … Þegar ævivinirnir falla frá verður manni tregt tungu að hræra, en þó hlýt ég að kveðja Finnboga fornvin minn með fá- einum fátæklegum orðum. Við kynntumst í Menntaskólanum á æskuárum fyrir meir en sjö tug- um ára, og síðan hefur ekki borið skugga á vináttu okkar, enda var hann gæflyndur maður og óáleit- inn. En hann var kappsfullur við námið og metnaðargjarn og vildi gjarna fá háar einkunnir – enda fékk hann þær. Hann var dúx bekkjarins á stúdentsprófinu með ágætiseinkunn vorið 1943. Nánir vinir urðum við á há- skólaárunum þegar við lögðum báðir stund á norræn fræði sem svo voru nefnd, hjá þeim Nordal og Alexander, og þá lásum við saman undir hvert prófið af öðru. Margan kaffibollann tæmdi ég á þeim árum hjá Lauf- eyju móður hans á Suðurgöt- unni, og margt brölluðum við annað en grúfa okkur yfir náms- bækurnar. Enn sem fyrr reynd- ist Finnbogi mikill „examens- maður“, tók eitt hið hæsta kandídatspróf sem tekið hefur verið frá Háskóla Íslands meðan sú prófgráða tíðkaðist þar. Jafn- framt háskólanáminu vann hann þó stórvirki í útgáfu Flateyjar- bókar í fjórum stórum bindum, og hann lærði á einu missiri grísku með guðfræðinemum, en það kom honum síðar í góðar þarfir þegar hann samdi sitt mikla doktorsrit um Hómers- þýðingar Sveinbjarnar Egilsson- ar. Að loknu háskólanáminu skildu okkur höfin breið um hríð. Finnbogi hélt vestur um haf til að kenna íslensku við háskólann í Winnipeg, en ég hélt í austur til að læra að lesa gömul handrit í Árnasafni í Kaupmannahöfn. En heim snerum við báðir eftir nokkur ár, og kölluðumst löngum á líkt og skessurnar forðum, þegar við stýrðum um árabil tveimur systurstofnunum hér í Reykjavík – hann Lands- bókasafninu og ég Árnastofnun. Hann stjórnaði bókasafninu með gætni, – „ég vil nú fara með lönd- um,“ sagði hann þegar einhverjir vildu gera djarflegar breytingar í safninu. En þó kom þar að hann var knúinn út á hafið djúpa, þegar húsið sem Hannes Hafstein lét reisa yfir safnið á morgni nýrrar aldar var orðið of þröngt, og ákveðið var að reisa handa Landsbókasafninu og Háskóla- bókasafninu nýtt stórhýsi. Þá hlaut Finnbogi að standa fyrir miklum framkvæmdum og taka stórar ákvarðanir, sem sumar voru umdeildar í fyrstu. En hann gekk sína beinu braut eins og Sveinn dúfa og stóð með hægð- inni fast á sínu. Og þótt verkið þætti stundum sækjast seint, þá er nú langt liðið síðan Finnboga auðnaðist að horfa á eftir bók- unum sínum inn í höllina nýju. Nú eru öll ágreiningsmál og allar tafir gleymdar, og ótaldir njóta nýja hússins til fróðleiks og fagnaðar. Í hvert sinn sem ég stíg fæti inn í Þjóðarbókhlöðuna á Melunum, þá þykir mér sem ég gangi inn í heilagt musteri. Þessum kveðjuorðum fylgja innilegar samúðarkveðjur frá okkur Sigríði til Helgu Laufeyj- ar og dóttur hennar. Jónas Kristjánsson. Fallinn er frá eldhugi, sem stjórnaði Landsbókasafninu í 30 ár, 1964-1994 og stóð í farar- broddi fyrir byggingu Þjóðar- bókhlöðunnar, sem varð til við sameiningu Landsbókasafns og Háskólabókasafns 1. des. 1994 eftir 20 ára baráttu. Ég þakka eftirminnilegt samstarf og kynni, sem aldrei bar skugga á og votta fólkinu hans dýpstu samúð mína. Ég kynntist Finnboga Guð- mundssyni landsbókaverði, þeg- ar undirbúið var niðjamót á Keldum og í Gunnarsholti sum- arið 1979 í tilefni af því að 300 ár voru liðin frá fæðingu Bjarna á Víkingslæk. Finnbogi var drif- krafturinn í þeim undirbúningi og síðan fylgdi hann því eftir, að árið 1983 var farið af stað með nýja útgáfu á niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur (1688-1756) og Bjarna Halldórssonar (1679- 1757), Víkingslækjarætt svoköll- uð. Pétur Zophoníasson ætt- fræðingur hafði um langt árabil unnið að samningu þessa niðja- tals fyrir tilmæli Jóns Ólafsson- ar alþingismanns frá Sumarliða- bæ í Holtum. Fjögur hefti komu út á árunum 1939-1943 og löngu síðar, eða 1972, var gefið út eitt hefti en látið staðar numið við það. Í framhaldi af því voru gefin út átta bindi á árunum 1983- 2003. Það var endurútgáfa á verki Péturs með viðbótum fram til 1980 í fyrstu en síðast fram til 2000. Verkinu var ekki þar með lokið. Eftir er óútgefið efni, sem safnað hefur verið. Níunda bindi er að heita má tilbúið til prent- unar. Þar er niðjatal Guðmundar Brynjólfssonar á Keldum og þriðju konu hans, Þuríðar Jóns- dóttur frá Skarðshlíð, en allt hef- ur strandað af ýmsum orsökum, því miður. Ég vann við söfnun upplýsinga í stopulum stundum frá starfi mínu með leiðbeining- um og naut aðstoðar Finnboga og leiðbeininga hans við gagna- öflun. Ljósmyndir eru allar vísar og verður skilað fljótlega, ef ekk- ert verður af útgáfu, en það er ekki enn fullreynt. Ég hef því miður ekkert fengið við þetta ráðið. Útgáfufyrirtækin, sem að þessu stóðu eru ýmist í dauða- teygjunum eða hafa þegar lagt upp laupana. Árið 1983 kom Finnbogi Guð- mundsson í heimsókn til okkar Halldóru í Grafarholti til að hitta móður mína, Kristínu Skúladótt- ur frá Keldum á Rangárvöllum. Hún átti merkilegt biskupa- sagnahandrit með hendi Þor- steins fræðimanns Halldórsson- ar í Skarfanesi á Landi (1739-1818), sem hún gaf Lands- bókasafninu í minningu um afa sína, Lýð Guðmundsson í Hlíð í Gnúpverjahreppi og Guðmund Brynjólfsson á Keldum. Sú eft- irminnilega saga fylgdi handrit- inu, skráð af Skúla föður Krist- ínar: „Það er með sannindum sagt, að hann hafi setið á smiðju- þröskuldi sínum við skrifstörf sín og haft blekbyttuna í barm- inum, svo að ekki frysi í henni, en var inni í smiðjunni, þegar kald- ast var og næði og húsrúm vant- aði í baðstofunni og ljós þraut.“ Finnbogi skrifaði ítarlega grein um skrifarann mikla í Skarfanesi í Árbók Landsbóka- safnsins 1983 og stóð fyrir sýn- ingu á handritum hans sama ár. Blessuð sé minning Finnboga Guðmundssonar. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Það er með ólíkindum hve lífið tengdi feril okkar Finnboga saman. Frá barnæsku ólumst við upp í hlíðarslakkanum vestan Tjarnarinnar við Suðurgötuna. Foreldrar okkar voru vinir og sama er að segja um börn þeirra. Það voru glaðar stundir í afmæl- isboðum hjá Finnboga. Heimilis- faðirinn hermdi eftir fuglum og dýrum, hneggjaði, tísti og söng. Þetta var dýrðleg tónlist og ekki skemmdu svo sögur um gæð- ingana á Rauðará. Á vetrum skautuðum við á Tjörninni. Renndum okkur niður brekk- urnar á milli húsa við Tjarnar- götu, beint út á Tjörnina. Þar bar Finnbogi af okkur hinum, því hann lék listir á skautum og gerði fram á fullorðinsár. Á vorin var svo farið niður á höfn að veiða. Guðmundur heitinn, faðir Finnboga, réð ríkjum í safnahús- inu við Hverfisgötu. Þangað leyfði hann okkur að koma á sunnudögum. Þar var fornminja- safn og náttúrugripa, auk bók- anna. Gjarnan var þá rifist um það hvort öxin mikla á háaloftinu væri Rimmugýgur eða ekki. Stúdentsprófi lukum við vorið 1943. Finnbogi mótaði námsferil sinn af festu, rétt eins og hann gerði um störf sín að námi loknu. Báðir fórum við svo í háskólann hér heima og lukum þar prófi um svipað leyti. Og enn lágu leiðir okkar saman. Hann fór að kenna í MR en ég starfaði í ráðuneyti menntamála. Svo lágu leiðir hans áfram inn í menningarheim okkar. Þar leysti hann af hendi þrekvirki með rannsóknum sín- um, skrifum og ræðum. Eigin- leikar hans og víðfeðmar gáfur þroskuðust með aukinni reynslu. Svo margþætt urðu menntastörf hans að rita þyrfti heila bók til að greina frá þeim. Finnbogi var gæfumaður, hreinlyndur og hrekklaus. Svipur hans var góð- mannlegur og bar vott um þrek hans og dugnað. Hann kvæntist góðri og göfugri konu, Kristjönu P. Helgadóttur. Þau eignuðust dótturina Helgu Laufeyju, sem nú er þekktur tónlistarmaður. Svo haustaði að í lífi okkar. Orðnir ekkjumenn fluttum við í sama hús í Kópavogi, þar sem við gátum rifjað upp liti vors og hausts í lífi okkar. Ég kveð þennan vin minn með þökkum og sendi dóttur hans hjartans samúðarkveðjur. Ásgeir Pétursson. Ég man fyrst eftir Finnboga þegar hann setti mig smástelpu á bónkústinn og sveiflaði mér fram og aftur um ganginn á heimili móður sinnar að Suður- götu 22 í Reykjavík. Ég fluttist ásamt foreldrum mínum heim frá Kaupmannahöfn í stríðslok 1945 og settumst við að í kjall- aranum. Heimili ömmu minnar er mér mjög minnisstætt. Risa- skjaldbaka hékk á veggnum við símann í ganginum þegar inn var komið; til vinstri var skrifstofa afa Guðmundar máluð í sægræn- um lit sem sást aðeins efst því að veggirnir voru þaktir bókum. Ljóst eldhúsið, hvítt flísalagt baðherbergi, svefnherbergi með fallegum frönskum innlögðum húsgögnum. Dagstofan lá að Suðurgötunni með stórum frönskum gluggum og útsýni yfir tjörnina að Fríkirkjunni, píanó og málverk á veggjum, sum eftir ömmu mína. Innar á ganginum var lítið herbergi Finnboga og við endann viðuð baðstofa; amma hafði málað fyrir ofan viðinn blá- grænan kant sem á stóð „Vertu í tungunni trúr og tryggur og hýr í lund“. Amma ræktaði mjög fal- legan garð í kringum húsið, þar var skjól og drukkið kaffi þegar vel viðraði og margir vegfarend- ur um Suðurgötuna komu í heim- sókn í hvamminn. Í þessu umhverfi ólust Finn- bogi og systkini hans upp og amma var ánægðust þegar hún hafði öll börnin undir sama þaki. Ég kynntist því föðurfólki mínu náið á þessum árum. Ég man að þeir bræður keyptu saman gulan jeppa og þegar Hekla gaus 1947 var þeyst af stað austur þar sem egg og kartöflur voru soðin í hrauninu. Finnbogi lauk magistersprófi í íslenskum fræðum og síðar hlaut hann doktorsgráðu frá Há- skóla Íslands. Að loknu námi fór hann að kenna við Manitobahá- skóla í Winnepeg og dvaldi þar í nokkur ár. Þar kynnist hann konu sinni Kristjönu Helgadótt- ur barnalækni og þau giftu sig vestra. Kristjana kom heim frá Kanada á undan Finnboga og amma bauð henni, Guðrúnu (Unnu) frænku og manni hennar Birni, foreldrum mínum, og mér í Þjóðleikhúsið að sjá La Bo- heme. Það var í fyrsta sinn sem ég sá óperu og var mér ógleym- anlegt, ekki síst því önnur að- alsöngkonan var Þuríður, eigin- kona Arnar. Á meðan Finnbogi dvaldi í Vesturheimi útbjó hann myndband um Íslendingabyggð- ir sem hann fór síðar með um Ís- land og sýndi almenningi. Við vorum þá flutt til Siglufjarðar og við pabbi fórum með Finnboga til að vera viðstödd vígslu styttu Stefáns G. Stefánssonar skálds á Stóra-Vatnsskarði þar sem Finnbogi hélt ræðu um Stefán. Þessar bernskuminningar um góðan frænda spruttu fram þeg- ar ég frétti um lát Finnboga. Aðrir kunna betur að segja frá ferli hans sem fræðimanns. Við höfum ávallt hist þegar tækifæri gafst og ég hlakkaði til fundanna því hann var svo fróður um svo margt og aldrei kvaddi hann mig án þess að gefa mér góða bók eða mynd í veganesti. Hann var mjög ættrækinn og kær þeim sem kynntust honum; ég sakna hans og Kristjönu enda voru þau bæði fyrirmynd og vinir minnar kynslóðar. Blessuð sé minning þeirra. Við Samir og Kristín sendum Helgu Laufeyju og Rósu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Laufey Vilhjálmsdóttir, Morristown, New Jersey. Með örfáum orðum viljum við undirrituð minnast fyrrum sam- starfsmanns og vinar, dr. Finn- boga Guðmundssonar. Finnbogi tók við stöðu landsbókavarðar af Finni Sigmundssyni árið 1964 og gegndi þeirri stöðu í rétt 30 ár eða til ársins 1994 er flutt var í Þjóðarbókhlöðuna. Finnbogi var ógleymanlegur öllum þeim er honum kynntust. Hann var góð- menni, ástsæll yfirmaður, sann- gjarn og bar hag safnsins ávallt fyrir brjósti. Hann sýndi sam- starfsmönnum sínum traust í orði og verki og hélt sér í hæv- ersklegri fjarlægð. Á safninu var engu stjórnað í þeirri merkingu að verið væri að skipta sér af því hvað starfs- menn væru að gera dagsdaglega. Á einhvern sérstakan hátt var samt ævinlega regla á öllu og verkin voru unnin. Finnbogi var einstaklega nægjusamur og nýt- inn, strangheiðarlegur, allt bruðl var honum víðs fjarri. Finnbogi gjörþekkti Íslend- ingasögurnar og margvísleg þjóðfræði og vitnaði gjarnan til þeirra í samtölum. Framandi gat sumum þótt orðræða hans á köfl- um en fyrir samstarfsfólk og gesti opnuðu þær oft og tíðum dyr inn í undralönd íslenskrar menningar. Kom jafnvel fyrir að fólk yrði að fletta upp í orðabók til að skilja hvað hann átti við. Skemmtileg og ódauðleg tilsvör hans munu lengi í minnum höfð. Við sendum ástvinum einlæg- ar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hins góða drengs, Finn- boga Guðmundssonar. Eiríkur Þormóðsson, Kári Bjarnason og Svanfríður S. Óskarsdóttir. Finnbogi Guðmundsson  Fleiri minningargreinar um Finnboga Guðmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.