Morgunblaðið - 11.04.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.04.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Heimsferðir bjóða frábæra 9 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í boði er frábært sértilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu með hálfu fæði, sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði á þessum kjörum. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is - með hálfu fæði - 6. maí í 9 nætur frá kr. 99.900 Verð kr. 99.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 9 nætur í studio íbúð með hálfu fæði á Aguamarina ***. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is 27 Íslendingar skelltu sér í helgar- ferð til Rotterdam til þess að taka þátt í maraþoni sem fór þar fram í gær. Fyrstur í mark af Íslending- unum var Ragnar Bjarni Egilsson, en hann hljóp á rúmlega tveimur tímum og 46 mínútum. Hann var að hlaupa sitt annað maraþon. „Þetta gekk vel. Veðrið var fínt þegar við fórum af stað, en það fór reyndar upp í svona 15 gráður og glamp- andi sól þarna seinni partinn, sem er ekkert voðalega gott fyrir Ís- lendinga,“ sagði Ragnar hress og bætti við að Íslendingar væru nú ekki vanir glampandi sól enda búið að vera frekar leiðinlegt veður í marsmánuði. „Æfingaprógrammið er búið að standa yfir síðan um áramótin, en ég hef verið að undirbúa mig aðeins lengur,“ sagði Ragnar. Um 22.000 manns tóku þátt í maraþoninu og um 900.000 áhorf- endur stóðu meðfram hlaupabraut- inni í Rotterdam sem lá frá stærstu götu borgarinnar, Coolsingel, það- an yfir brúna Eramus og yfir á vinstri árbakka Nieuwe Mass. Í fyrra hlupu sex af tíu bestu mara- þonhlaupurum heims í sama mara- þoni en hlaupabrautin er á algjöru flatlendi og því gott að ná góðum tíma. Morgunblaðið náði tali af Ragn- ari þegar Íslendingarnir sátu sam- an við kvöldverðinn og voru allir ánægðir með hlaupið. Íslendingar ekki vanir glampandi sól í maraþoni  Stór hópur Íslendinga tók þátt í maraþoni í Rotterdam um helgina Vaskur Hér hleypur Ragnar Bjarni í miðnæturmaraþoninu 2008. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Án efa verða margir námsmenn at- vinnulausir í sumar. Ef námsmenn ná ekki að finna sér vinnu eiga þeir ekki rétt á atvinnuleysisbótum. „Það er náttúrlega bara eins og atvinnu- ástandið er,“ segir Lilja Dögg Jóns- dóttir, formaður stúdentaráðs Há- skóla Íslands. Í byrjun mars samþykkti ríkis- stjórnin frumvarp velferðarráðherra um fjölgun sumarstarfa fyrir náms- menn og aðra atvinnuleitendur. Verkefninu er stjórnað af Vinnu- málastofnun og er samvinnuverkefni stofnana ríkisins og sveitarfélaga. Með átakinu skapast um 900 sumar- störf. Fyrirtæki á vegum ríkisins geta sótt um að bjóða upp á störf en búist er við því að í seinni hluta apríl liggi fyrir fjöldi starfa og frá hvaða stofnunum. „Í fyrra var þetta fjölbreytt vinna hjá ýmsum ríkisstofnunum,“ segir Lilja. Aftur á móti náðist ekki að fylla í öll störfin þá. „Þetta er kjörið fyrir þá sem fá ekki vinnu annarsstaðar“. Þrýsta á Vinnumálastofnun Að sögn Lilju hefur stúdentaráð hvatt Vinnumálastofnun til að af- greiða þessi mál skjótt. „Við höfum verið í sambandi við Vinnumálastofn- un, sem stjórnar þessu verkefni og hvatt til þess að hafðar séu hraðar hendur svo hægt sé að auglýsa þetta tímanlega,“ segir hún. „Við höfum einnig hvatt til þess að búið sé svo um hnútana að fólk hafi færi á að sækja um í annað sinn fái það ekki þau störf sem það upphaflega óskaði eftir“. Með þessu móti geta því vonandi sem flestir fengið störf í gegnum velferð- arráðuneytið, þar sem ekki náðist að fylla í öll störfin síðasta sumar. Sumarprófin ákveðin úrræði Stúdentaráð hefur undanfarin ár barist fyrir því að Háskóli Íslands bjóði upp á sumarannir. Hins vegar er nú búið að loka fyrir þann valkost og segir Lilja það svekkjandi. „Þó það hafi verið stigin góð skref fyrir nemendur er það svekkjandi að sumarannir séu ekki í boði lengur. Það er eflaust eitthvað sem margir nemendur hefðu hugsað sér sem ein- hversskonar úrræði ef enga vinnu væri að fá. En ég held að fagna megi því sem vel er gert og bæði störfin frá velferðarráðuneytinu og viðbótar- framlagið í nýsköpunarsjóð er mjög flott“. Segir það sárt að missa sumarannir  Allt að 900 störf skapast fyrir námsmenn með samvinnuverkefni stofnana ríkisins og sveitarfélaga  Sumarannir hefðu getað verið ákveðin úrræði fyrir þá nemendur sem ekki fá vinnu yfir sumarið Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evr- ópusambandsins. Svo segir í ályktun sem samþykkt var með miklum meirihluta á flokksþingi Framsóknar- flokksins, sem fram fór um helgina. Er þetta áherslubreyting frá þinginu 2009 þegar flokkurinn studdi aðildar- viðræður við ESB, þó með skilyrðum. Hins vegar var tillaga um að aðild- arviðræðum við Evrópusambandið og aðlögunarferli yrði hætt nú þegar felld með 169 atkvæðum gegn 164. Önnur breytingartillaga, um að þjóð- in eigi að taka upplýsta ákvörðun um stöðu Íslands í Evrópu, að undan- gengnum aðildarviðræðum var einnig felld með 213 atkvæðum gegn 112. „Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evr- ópusambandsins. Nú sem fyrr standa auðlindir þjóðarinnar undir velferð hennar og fullt og óskorað forræði á þeim er forsenda farsældar til fram- tíðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjóðin skuli ætíð eiga beina aðkomu með þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvörðunum um stórmál eins og aðild að Evrópusambandinu og mun berj- ast fyrir þeim rétti.“ Framsóknarflokkurinn hafnar fyrningarleiðinni sem fiskveiðistjórn- unartæki og segir í endanlegri álykt- un þingsins að tryggja verði sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindinni. Í ályktun þingsins um innanríkis- mál segir að Framsóknarflokkurinn vilji „raunverulegan aðskilnað fram- kvæmdavalds og löggjafarvalds. Styrkja þarf stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu þannig að sjálf- stæði Alþingis sé raunverulegt.“ Styður kirkju og kristni Framsóknarflokkurinn vill styðja við kirkju og kristni. „Við viljum að áfram verði stutt við öflugt starf þjóð- kirkjunnar og annarra trúfélaga,“ segir í ályktun. Framsóknarflokkurinn telur að all- ir íbúar landsins eigi að hafa aðgang að fullkomnasta heilbrigðiskerfi sem völ er á. Þá vill flokkurinn að tann- vernd barna verði hluti af almenna heilbrigðiskerfinu. Þetta kemur fram í ályktun flokksins um heilbrigðismál. Jafnframt segir í ályktuninni að samvera fjölskyldunnar sé mikilvæg og tryggja þurfi „betra jafnvægi milli atvinnu og fjölskyldulífs svo foreldrar og börn verji meiri tíma saman, t.d. með því að stytta vinnuvikuna í 35 stundir“. ingarun@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Endurkjörnir Sigmundur Davíð og Birkir Jón voru endurkjörnir á þinginu sem formaður og varaformaður. Best borgið utan Evrópusambandsins  Hafna fyrningarleiðinni í stjórnkerfi fiskveiða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Framsókn- arflokksins á flokksþinginu sl. laugardag með 355 atkvæðum, sem jafn- gildir 92,2% fylgi. Alls greiddu 385 atkvæði í kjörinu. Guðmundur Stein- grímsson fékk sjö atkvæði, Siv Friðleifsdóttir sex atkvæði og fimm aðrir fengu eitt til tvö atkvæði hver. Birkir Jón Jónsson var sömuleiðis endur- kjörinn varaformaður með 303 atkvæðum eða 77,3% greiddra atkvæða. Vigdís Hauksdóttir fékk 47 atkvæði en hún hafði lýst yfir að hún sæktist ekki eftir embættinu. Sturla Jónsson, sem lýsti því yfir um hádegisbil á laugardag að hann sæktist eftir embættinu, fékk níu atkvæði og Sigur- geir Sindri Sigurgeirsson sex. Jafnframt var Eygló Harðardóttir endur- kjörin ritari flokksins. Hún fékk 329 atkvæði eða 89%. Vigdís Hauks- dóttir fékk tuttugu atkvæði og tíu aðrir fengu einnig atkvæði. Sigmundur Davíð með 92,2% FORYSTA FRAMSÓKNAR ENDURKJÖRIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.