Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 16

Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, talaði í fyrirsögnum þegar hann ræddi Icesave-deiluna og þá ákvörðun sína að fela þjóðinni að segja hug sinn um málið í þjóðar- atkvæðagreiðslu á blaðamannafundi á Bessastöðum síðdegis í gær. Forsetinn fór yfir víðan völl og skaut föstum skotum í margar áttir í málsvörn fyrir synjununum tveimur. Hann kveðst ekki hafa tekið möguleg pólitísk áhrif með í reikn- inginn þegar hann ákvað að vísa nýja samningnum til þjóðarinnar. „Nei. Þetta mál er eins og það lá fyrir,“ sagði forsetinn við Morgun- blaðið að fundinum loknum. Óbreytt kerfi ekki valkostur Hann svaraði því síðan aðspurður til að hann hefði endurmetið afstöðu sína til fjármálalífsins í ljósi efna- hagshrunsins og Icesave-deilunnar. „Ég hef auðvitað eins og fjölmarg- ir aðrir á undanförnum misserum verið að endurskoða afstöðu mína til fjármálalífsins, bæði á alþjóðavett- vangi og hér heima … Ég er ekki að segja að ég sé kominn að niðurstöðu um hvernig hlutirnir eiga að vera en það er alveg ljóst að það er hvergi ríkjandi sú skoðun að það þurfi ekki að endurskoða í veigamiklum atrið- um, bæði fjármálakerfið í einstökum löndum og ekki síður alþjóðlegt sam- spil fjármálastofnana í einstökum löndum,“ sagði forsetinn. Spurt var um áhrif Icesave-kosn- inganna á ESB-umsóknina og svar- aði forsetinn því þá til að ESB „verði að horfast í augu við“ að hafa „farið í þann leiðangur“ að hafa stutt samn- inginn sem var felldur í þjóðarat- kvæðagreiðslu 6. mars í fyrra. Bret- ar og Hollendinga hefðu stillt Íslandi upp við vegg og ESB-ríkin stutt „ósanngjarnar kröfur“ sem myndu með tíð og tíma fá „harðan dóm“. Forsetinn vék einnig að umræðu um neikvæð áhrif fyrri synjunarinn- ar á aðgang Íslendinga að lánsfé er- lendis og vísaði þeim málflutningi al- farið á bug, meðal annars með vísan til 60 milljarða króna láns til álvers- uppbyggingar Rio Tinto í fyrra. Þá átaldi hann forystufólk í þjóðlífinu fyrir að „tala atvinnulífið niður“. Umræða um að lokað væri fyrir er- lent lánsfé væri „alröng“ og „stór- hættuleg“ fyrir þjóðina. Ekki samviskulaust fólk Ólafur Ragnar vísaði einnig alfar- ið á bug að útkoma þjóðaratkvæða- greiðslunnar sýndi að Íslendingar væru „samviskulaust fólk“, enda ættu Bretar og Hollendingar „örugga í sinni hendi“ um 7 til 9 milljarða bandaríkjadala úr þrotabúi Landsbankans sem gengju upp í Ice- save-kröfuna, eða sem svarar 788 til 1.013 milljörðum króna. „Þá lítur málstaður Íslands hvað fjármál snertir töluvert öðruvísi út heldur en reynt hefur verið að setja fram, bæði hérlendis og erlendis.“ Ólafur Ragnar varði þá synjanirn- ar tvær og sagði þjóðaratkvæða- greiðslurnar hafa gert þjóðinni kleift að „endurheimta lýðræðislegt sjálfs- traust“. Þá lýsti hann því yfir að nú þyrfti að halda vel á málstað Íslands erlendis, án þess að nefna nein nöfn. Forsetinn íhugaði ekki pólitísk áhrif synjunar  Gagnrýnir ESB harðlega fyrir stuðning við fyrri Icesave-samninginn  Fordæmir svartagallsraus Morgunblaðið/Árni Sæberg Vígfimur Forsetinn fór yfir ýmsar hliðar málsins. Hann upplýsti ekki hvernig hann kaus á laugardaginn var. kvæðagreiðslunnar ekki hafa nein áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar. Kosningin hafi ekki snúist um stjórnina, hún hafi þingmeirihluta og ekkert bendi til þess að hún sé að tapa honum. Er líklegt að fram komi vantrauststillaga? Engar kröfur um afsögn ,,Innan stjórnarandstöðunnar hafa ekki komið fram kröfur um að ríkisstjórnin fari frá og boðað verði til kosninga,“ segir Össur. ,,Hreyf- ingin hefur ítrekað sagt að það sé ekki tímabært. Formaður Fram- sóknarflokksins hefur sagt að það fari eftir viðbrögðum ríkisstjórnar- innar og hvernig hún nái að tala fyrir hagsmunum þjóðarinnar. En ekki út af Icesave, það sagði hann skýrt. Meðan ríkisstjórn hefur meiri- hluta til að koma fram málum sínum er heilbrigðisástand hennar gott. Það er bara einn maður sem hefur sett fram kröfur um kosningar og það er formaður Sjálfstæðisflokks- ins og ég held að það tengist hans eigin pólitíska heilbrigði. Enginn hefur jafn mikla þörf fyrir að komast í kosningar til að breiða yfir innan- flokksátök eins og formaður Sjálf- stæðisflokksins. Ég vildi óska að Sjálfstæðisflokkurinn hefði kjark til að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. En hann þorir það ekki.“ Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra segist ekki geta metið það hver áhrif úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar um Icesave verði á kjarasamningana, það verði fulltrú- ar Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins að gera. „Ríkisstjórnin hefur komið að þessum málum með eins konar lof- orðalista í sambandi við aðgerðir samhliða kjarasamningunum,“ sagði ráðherra. „Markmiðið verður eftir sem áður að leitast við að ná þriggja ára samningi. En það eru auðvitað þeir aðilar vinnumarkaðarins sem hafa verið við borðið sem ráða því hvort það tekst.“ Guðbjartur er spurður hvort hann viti hvort Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason hafi greitt atkvæði með samningnum en fullyrt var sjón- varpsumræðum að þeir hefðu ekki gert það. „Ég hef ekkert verið að velta mér upp úr þessu,“ svarar hann. „Þeir greiddu atkvæði með málinu og komu því með okkur í ákveðinn farveg, hafa stutt málið. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að þeir hafi gert það til enda.“ Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra segir að kosningin á laug- ardag hafi í reynd snúist um prin- sippið ríkisábyrgð á greiðslunum, ábyrgð skattborgara. Aldrei hefði verið vefengt af okkar hálfu að greiða ætti eftir íslenskum lögum og reglum bæði úr þrotabúinu og fé úr tryggingasjóðnum. En greiddi hann sjálfur þá atkvæði með samningnum á laugardag? „Ég hef allan tímann unnið að því að gera stöðu Íslands eins hagfellda og nokkur kostur væri og tekið þátt í ýmsum tilraunum til þess að stuðla að þverpólitískri nálgun. Það hefur verið mín afstaða og afstaða Íslands í reynd að við vildum láta á það reyna frammi fyrir dómstólum hvort um væri að ræða einhverjar umfram- kvaðir, aðrar en þær sem tækju til þrotabúsins og tryggingasjóðsins. Íslendingar nánast allan tím- ann „með hnífinn á barkanum“ Ég tók þátt í atkvæðagreiðslu á Alþingi og studdi málið þar. En síðan „Öll rök nýtt til þrautar“  Össur álítur ekki að Icesave-atkvæðagreiðslan hafi áhrif á ESB-umsóknina  Ögmundur segist hafa átt að gæta hlutleysis gagnvart atkvæðagreiðslunni sem innanríkisráðherra og hann hafi gert það Ríkisstjórnin sendi í gær frá sér tilkynningu vegna Icesave- atkvæðagreiðslunnar og þar seg- ir m.a.: „Að fenginni þessari niðurstöðu munu stjórnvöld svara áminningarbréfi frá Eft- irlitsstofnun EFTA frá 26. maí sl., að höfðu samráði við utan- ríkismálanefnd Alþingis. Af hálfu íslenskra stjórnvalda verður lögð áhersla á að meðferð málsins verði hraðað eins og kostur er þar sem óvissa um lyktir máls- ins er engum í hag.“ Góðar líkur væru á því að eignir þrotabús Landsbanka Ís- lands hf. myndu að langmestu eða öllu leyti duga fyrir for- gangskröfum vegna Icesave. „Engu að síður er ljóst að nið- urstaða þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar kallar á visst endurmat á forsendum ríkisfjármála og efna- hagsmála. Það endurmat mun liggja fyrir í fyrri hluta maímán- aðar.“ Endurmat liggur fyrir í maí TILKYNNING RÍKISSTJÓRNARINNAR Ummæli fulltrúa ESA, eftirlits- stofnunar EFTA, um Icesave- deiluna voru hans „einkaskoð- anir“, að mati Ólafs Ragnars en þetta verður ekki skilið á annan veg en að rætt sé um Per Sand- erud, forseta ESA. „Svo liggur heldur ekkert fyrir að málið fari endilega fyrir dómstól … Það á eftir að koma í ljós.“ Spurður hvort hann teldi að ESB myndi grípa til refsiað- gerða gagnvart Íslandi vegna hnútsins í Icesave-deilunni taldi forsetinn það ekki inni í mynd- inni. Sagði forsetinn málstað Ís- lands njóta „víðtæks stuðn- ings“ og vísaði þar með á bug fullyrðingum um neikvæð áhrif deilunnar á ímynd Íslands.Vel þyrfti að halda á lofti málstað þjóðarinnar og „flytja sterk rök einum rómi“. Þá benti hann á að stjórnlagaráð leggi til að undir- skriftir 15% kjósenda dugi til að kalla fram þjóðaratkvæða- greiðslu, þ.e. færri en í Icesave. Á undanhaldi SNEIÐ TIL FORSETA ESA Þjóðaratkvæði Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeiðin. FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Össur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra segir að tíminn verði að leiða í ljós hvort niðurstaðan í þjóðarat- kvæðagreiðslunni hafi einhver áhrif á umsóknina um aðild að Evrópu- sambandinu. Málið fari nú í hefð- bundið ferli ágreiningsmála af þessu tagi sem notuð séu til að leiða mál til lykta, jafnan séu mörg slík mál í gangi hjá sambandinu. Hann telji því ekki að niðurstaðan eigi að hafa áhrif á umsóknarferlið enda hafi bæði talsmenn Evrópusambandsins og Breta tekið fram að um tvö aðskilin mál væri að ræða. En nú þurfi Íslendingar að setja saman „harðsnúið lögfræðinga- teymi“ og það verði að vera gert þannig að allir séu sáttir. Einnig þurfi að fá aðstoð erlendra lögfræð- inga með reynslu af málarekstri fyr- ir EFTA-dómstólnum. „Þar verða að vera menn með öll möguleg rök í málinu, það er komið fram mikið vopnabúr raka í málinu á síðustu vikum,“ segir utanríkisráð- herra. „Það verða öll þessi rök nýtt til þrautar.“ Hann segir niðurstöðu Icesave-at-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.