Morgunblaðið - 11.04.2011, Page 31

Morgunblaðið - 11.04.2011, Page 31
DAGBÓK 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Sudoku Frumstig 7 5 6 4 8 1 1 3 7 9 9 4 3 1 5 8 1 7 9 4 8 1 5 6 7 8 9 6 7 5 8 7 6 4 5 3 4 1 6 8 9 5 3 7 7 5 4 3 1 4 4 8 8 1 3 6 6 9 2 7 3 9 3 1 4 8 7 1 4 6 2 7 9 3 4 3 6 4 6 1 8 5 9 3 2 7 3 8 5 7 2 4 9 1 6 2 9 7 3 1 6 8 5 4 1 7 8 9 3 2 6 4 5 9 2 6 5 4 8 7 3 1 5 4 3 1 6 7 2 9 8 6 5 9 4 7 3 1 8 2 8 1 2 6 9 5 4 7 3 7 3 4 2 8 1 5 6 9 5 2 7 8 4 9 3 6 1 9 4 8 3 6 1 7 2 5 6 1 3 5 2 7 8 4 9 2 3 6 9 5 4 1 7 8 4 8 9 1 7 3 2 5 6 7 5 1 6 8 2 4 9 3 3 6 4 7 9 8 5 1 2 8 7 5 2 1 6 9 3 4 1 9 2 4 3 5 6 8 7 5 4 3 9 1 6 2 8 7 9 1 6 8 2 7 4 3 5 7 8 2 4 3 5 1 6 9 2 9 5 3 6 8 7 1 4 1 3 8 7 9 4 6 5 2 6 7 4 2 5 1 3 9 8 4 6 1 5 7 9 8 2 3 3 5 7 1 8 2 9 4 6 8 2 9 6 4 3 5 7 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 11. apríl, 101. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.) Hún var einstök stemningin átónleikum Megasar, Gylfa Ægissonar og Rúnars Þórs á kránni Classic Rokk í Ármúlanum um helgina. Megas var í miklu stuði og minnist Víkverji þess ekki að hafa séð kappann jafn brattan í lengri tíma. Ber að þakka Guði fyrir það. Og fyrir hina öðlingana tvo. x x x Megas tók lagið Reykjavíkur-nætur og getur Víkverji ekki stillt sig um að vitna í eitt er- indið. Og við flugskýlin út í Skerjafirði eru sirkus-súlutjöldin. Þar má sjá bæði fíla, apa og ljón og jafnvel línudansara á kvöldin. x x x Víkverji er farinn að aðhyllastþá hugmynd að best sé að borða lítið. Sá áróður hefur dunið á almenningi linnulaust að borða þurfi tvær stórar máltíðir á dag og gott ef ekki vítamínrík viðbit á milli mála, helst sem allra oftast. Áróðurinn bar þann árangur að á hverjum degi sóar þjóðin þús- undum klukkustunda í hamst- urshlaup á hlaupabrettum. Gæti sú orka eflaust knúið nokkur ál- ver. Betra væri ef þeir hinir sömu endurskoðuðu lífsvenjur sínar. Sé dregið úr átinu um 30% eru hlaup- in orðin óþörf með öllu. Hyggilegt er að borða hollt en lítið. Nægju- semi er því ekki aðeins dyggð heldur einnig beinlínis holl. Seljendur fæðubótaefna þrífast á vítahring ofáts og ofþjálfunar. x x x Víkverji rekst á eitt og annað ánetinu. Eyðir samt litlum tíma í vafstur þar. Staldraði við þessi orð Styrmis Gunnarssonar: „Það er ástæða til að óska ís- lenzku þjóðinni til hamingju með þessa niðurstöðu. Afkomendur þeirra, sem fyrir ellefu hundruð árum vildu ekki láta kúga sig í Noregi hafa sýnt hverrar gerðar þeir eru.“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fæðir kópa, 4 verða færri, 7 vesöldin, 8 há- rug, 9 rödd, 11 líkamshluta, 13 at, 14 afkvæmum, 15 greinilegur, 17 afbragðsgóð, 20 mann, 22 hæð, 23 baun- um, 24 tappi, 25 mál. Lóðrétt | 1 kaunin, 2 krydd- tegund, 3 romsa, 4 ljósleitt, 5 veslast upp, 6 hinn, 10 kyrra, 12 leðja, 13 lítil, 15 sjófuglinn, 16 úði, 18 hrogn- in, 19 lengdareining, 20 doka, 21 halarófa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 seinförul, 8 linir, 9 dulur, 10 tíu, 11 torga, 13 rimma, 15 hatta, 18 snáða, 21 lóm, 22 grund, 23 árinn, 24 kinnungur. Lóðrétt: 2 efnir, 3 narta, 4 öldur, 5 uglum, 6 flot, 7 hráa, 12 gat, 14 inn, 15 hagi, 16 tauti, 17 aldin, 18 smáan, 19 álitu, 20 asni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Ba6 9. b3 g6 10. g3 Bg7 11. Bb2 0-0 12. Rd2 Rb4 13. Rf3 c5 14. a3 Rc6 15. 0-0-0 Hab8 16. Kc2 Hfe8 17. Bh3 d6 18. Hhe1 Ra5 19. Rd2 dxe5 20. f4 Rc6 21. fxe5 Rd4+ 22. Bxd4 cxd4 23. Dd3 Bb7 24. e6 f5 25. g4 fxg4 26. Bxg4 Dxa3 27. Ha1 Dc5 28. h4 He7 29. h5 Hf8 30. hxg6 hxg6 31. Hf1 Hxf1 32. Hxf1 Dg5 33. Bh3 De3 34. Ha1 c5 35. Ha5 Hc7 36. Bg4 Dg5 37. Bh3 De3 38. Bg4 Dg5 39. Bh3 Bh6 40. Ha1 He7 41. Ha5 Staðan kom upp í A-flokki Norð- urlandamóts einstaklinga í skólaskák sem fór fram fyrr á þessu ári í Osló í Noregi. Daninn Mads Hansen (2194) hafði svart gegn Norðmanninum Jon Kristian Haarr (2.215). 41. … Be4! 42. Dxe4 Dxd2+ 43. Kb1 Dxa5 44. Dxg6+ Bg7 45. De4 Dd2 46. Bg4 d3 47. Da8+ Bf8 48. De4 Dc2+ 49. Ka1 Bg7+ og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Engin ágiskun. Norður ♠D6 ♥ÁDG95 ♦G94 ♣D74 Vestur Austur ♠105 ♠G94 ♥862 ♥73 ♦Á52 ♦KD107 ♣K10653 ♣Á982 Suður ♠ÁK8732 ♥K104 ♦863 ♣G Suður spilar 4♠. Í sögnum hefur suður sýnt sexlit í spaða og stuðning við hjartalitinn. Vestur spilar út litlu laufi, austur drep- ur á ásinn og skiptir yfir í tígul, spilar fyrst ♦K (vestur kallar), svo ♦7. Sagn- hafi er háll sem áll og fylgir lit með sexu og áttu. Felur sem sagt ♦3. Vestur fær á ♦Á og íhugar fram- haldið. Hann veit að suður á fjögur spil í hálitunum, en ekki hvernig þau skiptast. Tígulsjöa makkers (þriðja hæsta) útilokar ekki þristinn í stöðunni og ♣G suðurs í fyrsta slag gæti hæg- lega verið blekkispil frá ♣Gx. Vestur veðjar á þann möguleika og leggur nið- ur ♣K. „Fyrirgefðu makker,“ segir vestur, „en þetta var ágiskun.“ Því harðneitar Terence Reese: „Með fimmlit í tígli hefði vestur spilað ♦D næst til að geta skipt yfir í lauf sjálfur.“ 11. apríl 1700 „Norðankafald var svo strítt páskadaginn að hvergi voru sóttar tíðir eður kirkjur upp loknar til tíðahalds,“ sagði í Hestsannál. Veturinn var þess vegna kallaður páskavetur. 11. apríl 1912 Konur sem unnu við fisk- verkun í Hafnarfirði sömdu eftir meira en mánaðar verk- fall. Þetta var fyrsta verkfall íslenskra kvenna og jafnvel talið fyrsta skipulega verk- fallið á Íslandi. 11. apríl 1946 Djasstónleikar, þeir fyrstu á Íslandi, voru haldnir í Gamla bíói í Reykjavík og „vöktu feikna hrifningu,“ að sögn Morgunblaðsins Meðal tónlist- armannanna var Björn R. Ein- arsson, sem lék einnig með þegar tónleikanna var minnst fimmtíu árum síðar. 11. apríl 1959 Rannveig Þorsteinsdóttir, 54 ára lögfræðingur, öðlaðist rétt til að flytja mál fyrir hæsta- rétti, fyrst íslenskra kvenna. 11. apríl 1963 Vatnsrennsli Þjórsár mældist 20 rúmmetrar á sekúndu en hafði áður verið minnst um 80 rúmmetrar árið 1929. Ástæð- an var snöggt kuldakast eftir mildan vetur. „Þjórsá var væð við brúna,“ sagði Morgun- blaðið. 11. apríl 1970 Minkarækt hófst að nýju hér á landi þegar níu hundruð læður komu með flugvél frá Noregi og fóru í minkabú á Kjalar- nesi. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Það var annaðhvort að fara niður til Key West í Flórída eða Hríseyjar. Það var erfitt val á milli eyjanna,“ segir Elín Árnadóttir, framkvæmda- stjóri fjármála hjá Isavia, sem fagnar fertugs- afmæli sínu í dag ásamt eiginmanninum, Árna Ólafssyni, á Key West sem er sunnan við Flór- ídaskagann. Elín hefur venjulega haldið upp á afmælisdag- ana með fjölskyldu sinni. Að þessu sinni var ákveð- ið að fara til útlanda. Elín er viðskiptafræðingur og hefur starfað á Keflavíkurflugvelli í tíu ár. Hún byrjaði sem fjár- málastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og var síðan forstjóri þang- að til öll þjónusta við flugið var sameinuð undir merkjum Keflavíkur- flugvallar sem síðan rann inn í Isavia. Þá tók hún við starfi framkvæmdastjóra fjármála hins sameinaða félags. „Þetta er spenn- andi og áhugavert starf,“ segir hún. Elín á tvö börn, Ólaf Þorstein sem er sex ára og Unni Kristínu sem ekki er orðinn tveggja ára. Þau fengu hins vegar að fara til afa og ömmu í „Perlu Eyjafjarðar“, Hrísey, en þar er Elín fædd og alin upp. „Þeim finnst það ekki leiðinlegt,“ bætir hún við. helgi@mbl.is Elín Árnadóttir fagnar fertugsafmæli í dag Val á milli tveggja eyja Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 11. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.30 1,3 11.43 2,8 17.51 1,3 6.11 20.48 Ísafjörður 1.12 1,6 7.50 0,6 13.55 1,3 20.10 0,6 6.08 21.00 Siglufjörður 3.17 1,1 9.54 0,4 16.31 1,0 22.12 0,6 5.51 20.44 Djúpivogur 2.37 0,8 8.25 1,4 14.48 0,7 21.29 1,6 5.39 20.19 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er mikilvægt að finna sköp- unarþránni útrás. Þú situr með sveittan skall- ann við að klára verkefnin. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú kemur ekki miklu í verk, ef þú lætur stjórnast af dagdraumum daginn út og inn. Haltu þínu striki þrátt fyrir óþægindi, efa- semdir og eigin takmarkanir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þetta er alls ekki góður dagur til þess að eiga í viðræðum við yfirmanninn. Það má með sanni segja að þú sért klár í koll- inum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Merktu við daginn í dag í dagbókinni þinni. Hristu af þér slenið, brettu upp erm- arnar og gakktu á vit nýrra ævintýra. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Áætlanir um veislu gætu farið algerlega úr böndunum í dag. Reyndu að sætta þig við það sem þú færð ekki breytt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þetta er góður tími til að gera líf þitt meira skapandi. Fólk leitar til þín með áhuga- verðar hugmyndir. Sem betur fer hefur þú fullt af góðum hugmyndum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú átt vísan stuðning vinnufélaga þinna, ef þú leitar eftir honum. Vertu bara róleg/ur og sannaðu til að þú munt komast að hinu sanna fyrr en seinna. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru ýmsar spurningar á sveimi í kollinum á þér. Ekki gefast upp. Gerðu varúðarráðstafanir heima, er reyk- skynjarinn í lagi? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Í dag er ekki rétti tíminn til þess að skrifa undir pappíra, gera samninga eða eiga mikilvæg viðskipti í vinnunni. Sýndu til- litssemi og leggðu áherslu á samvinnu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur verið að prófa þig áfram með ýmsa hluti. Sköpunarkrafturinn flæðir í gegnum þig. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Gamalkunnar aðferðir virðast koma að mestu gagni í dag. Allir hafa gott af því að víkka út sjóndeildarhring sinn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Á þessu tímabili í lífi þínu færðu tæki- færi til að gera hluti sem þig hefur lengi lang- að til að gera. Leiðinlegt að ekki skuli vera hægt að stöðva hjól tímans. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.