Morgunblaðið - 11.04.2011, Page 40
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. „Þetta eru ekki góðar fréttir“
2. Banaslys á Möðrudalsöræfum
3. Afgerandi nei við Icesave
4. Treystu ekki fólkinu í landinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Mondial forlagið í New York hefur
gefið út esperantoþýðingu Baldurs
Ragnarssonar á Egils sögu. „Allar
mínar bækur hafa verið gefnar út er-
lendis,“ segir Baldur sem hefur unnið
í áratugi við að þýða íslensk verk á
esperanto. »34
Morgunblaðið/Ómar
Egils saga gefin
út á esperanto
Bob Dylan, sem
naut mikilla vin-
sælda meðal and-
stæðinga Víet-
namstríðsins, hélt
fyrstu tónleika
sína í landinu í
gær. Tónleikarnir
voru haldnir í Ho
Chi Minh-borg,
sem hét áður Saigon, og yfirvöld í
kommúnistaríkinu þurftu að sam-
þykkja lagaval hans fyrirfram. Dylan
er orðinn 69 ára.
Bob Dylan í fyrsta
skipti í Víetnam
Bandaríski leikstjórinn Sidney
Lumet lést úr eitilfrumukrabbameini
á heimili sínu í New York á laugardag.
Hann var 86 ára að aldri.
Sidney Lumet leikstýrði
fjölmörgum þekktum
kvikmyndum, þar á
meðal Serpico, Dog
Day Afternoon,
The Verdict, Net-
work og að
sjálfsögðu 12
Angry Men.
Leikstjórinn Sidney
Lumet látinn
Á þriðjudag Suðvestanátt, yfirleitt 8-15 m/s og skúrir eða él, en
þurrt og bjart veður á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig.
Á miðvikudag Sunnan 8-13 m/s og rigning, en úrkomulítið norð-
austantil á landinu. Hiti 3 til 9 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða slydduél,
en þurrt austanlands. Hiti 1 til 5 stig.
VEÐUR
Jakob Jóhann Sveinsson lét
ekki veikindi stöðva sig og
hirti alla bikara sem í boði
voru á Íslandsmeistara-
mótinu í sundi sem lauk í
gær. Hann og Erla Dögg
Haraldsdóttir fengu afreks-
verðlaun mótsins. „Ég er
alltaf að keppa við sjálfan
mig og stundum of mikið.
Þjálfarinn minn biður mig
oft að slaka á hvað það
varðar,“ sagði Jakob Jó-
hann. »4-5
Þjálfarinn biður
mig oft að slaka á
Valskonur eru komnar með undir-
tökin í einvíginu við Fram um Íslands-
meistaratitil kvenna í handbolta.
Staðan er 2:0 eftir sigur þeirra í
Safamýri í gær. Jenný Ásmundsdóttir
átti aftur stórleik í marki Vals. „Við
erum ekki í neitt betri stöðu þótt við
höfum unnið báða leikina því eins og
allir vita eru fjölmörg dæmi um að lið
vinni fyrstu tvo en tapi síðan þrem-
ur,“ sagði Jenný við Morgunblaðið en
Valur getur orðið meistari á mið-
vikudagskvöld. »2
Valur einum sigri frá Ís-
landsmeistaratitlinum
„Við gátum eiginlega ekki beðið um
þetta betra. Sérstaklega í ljósi þess að
við erum án fyrirliðans okkar og Guð-
nýjar Bjarkar. Þetta var frábær byrj-
un,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir
sem skoraði tvö mörk í 5:0 sigri Kristi-
anstad á Dalsjöfors í fyrstu umferð
sænsku úrvalsdeildarinnar. Fimm ís-
lenskar landsliðskonur þreyttu frum-
raun sína um helgina. »1
Við gátum ekki beðið
um þetta betra
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Dagur Sigurðsson, tvítugur nem-
andi Tækniskólans, fór með sigur
af hólmi í Söngkeppni framhalds-
skólanna í keppni 31 skóla sem
fram fór í Íþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardagskvöldið.
„Þetta var ólýsanleg upplifun. Ég
bjóst ekkert við þessu,“ segir Dag-
ur, sem söng lagið „Vitskert vera“,
íslenska útgáfu af Bítlalaginu
fræga „Helter Skelter“.
Varðandi lagavalið segist hann
löngum hafa hlustað mikið á lagið.
„Mig langaði að syngja það og
ákvað að láta slag standa,“ segir
Dagur sem sjálfur íslenskaði text-
ann. „Þannig hefur maður betri til-
finningu fyrir textanum og veit ná-
kvæmlega hvað maður er að segja.“
Stuðningur úr salnum
Hann er ánægður með alla um-
gjörð í kringum keppnina. „Þetta
var frábært og vel að þessu staðið,“
segir hann og vill líka hrósa hús-
bandinu sem spilaði undir í keppn-
inni. „Það voru svo margir frábærir
keppendur og magnaðir áhorf-
endur. Keppnin er búin að stækka
með árunum og umgjörðin í kring-
um þetta er til fyrirmyndar.“
Honum fannst hvetjandi að finna
fyrir stuðningi úr salnum. „Ég fann
svo mikinn stuðning úr salnum. Það
var mjög gaman því það voru mjög
fáir úr mínum skóla á staðnum.“
Dagur er nemandi á upplýsinga-
og fjölmiðlabraut í Tækniskólanum
og fer síðan næsta haust í nám í
grafískri miðlun við sama skóla.
Hann kann vel við námið. „Það er
rosalega fínt. Maður er þarna til
þess að læra.“
Þó að Dagur sé iðinn við námið á
söngurinn stóran hluta hjarta hans.
„Ef ég er ekki í skólanum þá er ég
að syngja.“
Hann hefur alla tíð verið mikið
fyrir rokkið, allt frá því hann byrj-
aði að syngja. „Ég byrjaði í aðeins
harðara rokki en róaði mig svo nið-
ur. Ég hef verið í mörgum bílskúrs-
böndum. Röddin er komin þaðan,
þetta eru öskur úr bílskúr. Ég reyni
að syngja eins mikið og ég get, það
er það skemmtilegasta sem ég
geri.“
Fann sína leið
En skyldi Dagur vera tónlistar-
menntaður? „Ég reyndi að læra á
einhver hljóðfæri, eins og trompet
og trommur en það gekk
ekki. Svo lærði ég á
gítar, fór að syngja
með og fann mína
leið.“
Dagur ætlar ekki
að hætta hér. „Mark-
miðið er að stofna
band og taka jafnvel
upp plötu, það er draumurinn.
Núna er allavega búið að starta
þessu aðeins,“ segir hann með
sanni en fyrir utan athyglina sem
sigurinn færir honum er hljóðvers-
tími á meðal fjölmargra veglegra
verðlauna sem hann hlýtur. Vinn-
ingshafinn fær nefnilega tvo daga í
Stúdíó Sýrlandi, eða þann tíma sem
það tekur að fullklára lag.
Dagur var enn staddur á Akur-
eyri þegar Morgunblaðið ræddi við
hann og er að vonum ánægður með
ferðina. „Það er búið að vera stapp-
að í bænum,“ segir hann en til við-
bótar við Söngkeppnina fór fram
tónlistar- og snjóbrettahátíðin AK
Extreme í bænum um helgina.
Fleiri myndir frá Söngkeppni
framhaldsskólanna eru inni í
blaðinu í dag. »36
Ljósmynd/Stefán Erlingsson
Kraftmikill „Þetta var ólýsanleg upplifun. Ég bjóst ekkert við þessu,“ segir hinn rokkaði söngvari Dagur.
Þetta eru öskur úr bílskúr
Tækniskólinn vann Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór á Akureyri
Dagur Sigurðsson söng til sigurs með íslenskri útgáfu af Helter Skelter
Dagur hefur sérstaklega kraft-
mikla rödd og því ætti ekki að
koma á óvart að ein helsta fyrir-
mynd hans sé Robert Plant.
Plant gerði garðinn frægan með
Led Zeppelin seint á sjöunda
áratugnum og þeim áttunda
og hefur líka átt farsælan
sólóferil. Í myndbandi Moni-
tors á Sjónvarpi Mbl.is heyr-
ist að Degi tekst vel upp í að
herma eftir goðinu sjálfu.
Plantaður
söngvari
FYRIRMYND ÚR FORTÍÐ
Robert Plant árið 2002.