Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
9 6 7 5
8 1 9
8 3 9
1 2 9 5
5 3
2 1 6 8
2 7
3 8 7 1
8 1 5 7
3
4 9 1 8
8
1 4 3
1 9 5 4
9 8 7
2 7
7 1 2
6
8 9 2 6 5 1
5 9 7
1 6 5
5 6
1 9 8 2
2 9 8
1
7 4 1
1 9 2 6 3 5 4 7 8
8 5 4 9 1 7 2 6 3
6 7 3 4 2 8 5 1 9
7 2 1 8 6 3 9 4 5
3 4 5 2 9 1 7 8 6
9 6 8 5 7 4 3 2 1
5 1 6 7 4 9 8 3 2
2 8 7 3 5 6 1 9 4
4 3 9 1 8 2 6 5 7
4 7 8 5 3 2 9 1 6
5 9 3 6 1 4 7 2 8
1 6 2 8 9 7 5 4 3
6 4 1 9 8 3 2 7 5
8 2 5 7 6 1 4 3 9
7 3 9 4 2 5 6 8 1
2 8 4 3 5 6 1 9 7
3 5 7 1 4 9 8 6 2
9 1 6 2 7 8 3 5 4
8 4 5 6 7 3 2 9 1
9 3 7 2 5 1 8 6 4
2 6 1 9 8 4 5 3 7
7 2 4 8 1 6 3 5 9
3 1 6 5 4 9 7 2 8
5 9 8 3 2 7 1 4 6
4 5 2 7 6 8 9 1 3
1 8 9 4 3 2 6 7 5
6 7 3 1 9 5 4 8 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 21. júní, 172. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)
Jack Wilshere er merkilegasta fyr-irbæri sem fram hefur komið í
enskri knattspyrnu um langt árabil.
Enn jók þessi 19 ára miðvellingur á
hróður sinn á Evrópumeistaramóti
leikmanna landsliða skipaðra leik-
mönnum 21 árs og yngri (í reynd 23
ára og yngri) sem stendur nú yfir í
Danmörku. Kunna menn nú að hvá
yfir þessari fullyrðingu í ljósi þess að
Wilshere var alls ekki í leik-
mannahópi Englands á mótinu. Ein-
mitt þess vegna – fjarvera hans var
æpandi.
Svo hugmyndasnautt og óspenn-
andi var enska liðið, sem féll úr
keppni eftir tap gegn Tékkum á
riðlastiginu á sunnudag, að fjarvera
Wilsheres varð ósjálfrátt heitasta
umræðuefnið. Hvað ef hann hefði
verið með? spyrja menn sig nú. Mich-
ael Mancienne, fyrirliði liðsins, tók að
sér að svara þeirri spurningu í gær
með þeim orðum að enska liðið væri
nú að búa sig undir undanúrslitavið-
ureign gegn Sviss hefði Wilshere ver-
ið með í för. Auðvitað er útilokað að
fullyrða með þessum hætti en það
breytir ekki því að Wilshere var akk-
úrat týpan sem Englendinga vantaði
á mótinu, útsjónarsamur miðvell-
ingur með burði til að splundra vörn-
um andstæðinganna.
x x x
Víkverji sá alla leiki enska liðsins ámótinu og er eiginlega agndofa
yfir hugmynda- og ráðleysinu á miðj-
unni. Það gerðist eiginlega ekki neitt.
Það var helst þegar framherjinn
Daniel Sturridge dró sig til baka að
örlaði á vandræðum í vörn mótherj-
anna eða þegar bakvörðurinn Kyle
Walker geystist fram. Með-
almennskan lak af miðvellingunum,
Tom Cleverley, Danny Rose, Jordan
Henderson, Michael Mancienne, Fa-
brice Muamba, Jordan Henderson
og hvað þeir nú allir heita.
Eftir að hafa séð þessa menn engj-
ast í eymd sinni kemst maður ekki
hjá því að bera enn meiri virðingu
fyrir hæfileikum Wilsheres. Eng-
lendingar ætla honum stórt hlutverk
í framtíðinni. Ljóst er að það hlut-
verk hefur ekki minnkað eftir EM í
Danmörku. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 horskur, 4 fámál,
7 lengjan, 8 hyggur, 9
skyggni, 11 vætlar, 13
fræull, 14 klukkunni, 15
konum, 17 sitjandi, 20 rösk,
22 slétta, 23 gerir hrokkið,
24 veðurfarið, 25 daufa ljós-
ið.
Lóðrétt | 1 heiðra, 2 lengd-
areining, 3 brún, 4 hreinsar,
5 lögmæta, 6 nemur, 10 vaf-
inn, 12 rekkja, 13 sonur, 15
á, 16 fjandskapur, 18 fjár-
munir, 19 undirnar, 20 veit,
21 svanur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 göfuglynd, 8 suddi, 9 kopar, 10 nóa, 11 rúman, 13
norna, 15 hrygg, 18 smala, 21 rok, 22 fagni, 23 aurum, 24 valda-
fíkn.
Lóðrétt: 2 öldum, 3 urinn, 4 lúkan, 5 napur, 6 Æsir, 7 þráa, 12
arg, 14 orm, 15 hafi, 16 yngra, 17 grind, 18 skarf, 19 afrek, 20
aumt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Mismunandi bragðtegundir.
Norður
♠G6
♥ÁG1083
♦D62
♣KG8
Vestur Austur
♠5432 ♠KD1087
♥D5 ♥K962
♦G ♦K97
♣1097532 ♣Á
Suður
♠Á9
♥74
♦Á108543
♣D64
Suður spilar 4♦.
Bragði Deschappelles er oft ruglað
saman við Merrimac. Í báðum tilvikum
er óstuddu mannspili kastað út í óviss-
una, en í misjöfnum tilgangi þó. Til-
gangurinn með bragði Deschappelles
er að skapa innkomu á hendi makkers,
en hugmyndin með Merrimac-bragð-
inu er að ráðast á lykilinnkomu sagn-
hafa. Descheppelles eða Merrimac?
Geir Helgemo var nokk sama. Hann
var í austur með það verkefni að verj-
ast í 4♦. Út kom spaði, sem suður drap
og sendi Helgemo inn á spaða í öðrum
slag. Helgemo lagði niður ♣Á og gluð-
aði svo út ♥K! Sagnhafi tók strax á ás-
inn, spilaði ♦D og veiddi bæði kóng og
gosa. Nú þurfi sagnhafi að komast inn í
borð til að svína ♦8. Hann reyndi lauf,
en Helgemo trompaði, spilaði makker
sínum inn á ♥D og fékk aðra stungu.
Tveir niður.
21. júní 1856
Dufferin lávarður kom til
landsins og ferðaðist víða.
Þjóðólfur sagði að hann væri
„kurteis, ljúfur öðlingur og
hinn ríklundaðasti höfðingi“.
Tveimur áratugum síðar
reyndist hann Vestur-
Íslendingum vel, en þá var
hann orðinn landstjóri í Kan-
ada.
21. júní 1991
Perlan, útsýnishús Hitaveitu
Reykjavíkur á Öskjuhlíð, var
formlega tekin í notkun. Húsið
er 24 þúsund rúmmetrar.
Byggingarkostnaður var 1,3
milljarðar króna.
21. júní 2000
Síðari Suðurlandsskjálftinn
reið yfir kl. 0,51. Hann mæld-
ist 6,6 stig og átti upptök við
Hestfjall í Árnessýslu. „Skelf-
ing greip um sig,“ sagði DV.
Tjón í þessum skjálfta og þeim
fyrri, sem varð 17. júní, er tal-
ið hafa numið á annan milljarð
króna. Meðal annars eyðilögð-
ust 34 hús.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Nú er tíðin,“ segir Heimir Hafsteinsson trésmiður,
sem í dag fagnar sextugsafmæli sínu en hann er
haldinn hinni háalvarlegu golfdellu sem grípur
marga Íslendinga yfir sumartímann og vinnur um
þessar mundir að því hörðum höndum að lækka for-
gjöfina. „Þegar vel gengur flæðir adrenalínið og
maður fær heilmikið út úr þessu, fyrir utan að þessu
fylgir mikil útivera og labb,“ segir hann um sportið
en viðurkennir þó að þegar illa hittist á gangi menn í
misgóðu skapi af velli.
Heimir er ekki við eina fjölina felldur því hann
stundar auk golfsins veiði og þenur raddböndin í kirkjukór Odda- og
Þykkvabæjarsókna. Hann er fimm barna faðir og á stóran frændgarð en
hyggur ekki á stór veisluhöld að þessu sinni.
„Ég hélt flott upp á bæði fertugs- og fimmtugsafmælin, það dugir al-
veg,“ segir Heimir en hann á þó von á því að bregða sér af bæ með frúnni,
Særúnu Sæmundsdóttur, í tilefni dagsins. Aldrinum tekur hann með stó-
ískri ró. „Þegar ég óskaði vini mínum til hamingju með sextugsafmælið í
fyrra svaraði hann að þetta væri nú meiri hamingjan. En ég sagði að það
væru bara tveir kostir í stöðunni: annaðhvort væri maður á sex fetunum
eða sextugur, og þá varð hann nú að viðurkenna að þetta væri skárra.“
Heimir Hafsteinsson trésmiður 60 ára
Ekki við eina fjölina felldur
Flóðogfjara
21. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.05 0,7 10.10 3,3 16.10 0,9 22.31 3,4 2.55 24.05
Ísafjörður 6.08 0,5 12.00 1,7 18.06 0,7 1.35 25.35
Siglufjörður 2.06 1,2 8.23 0,2 14.39 1,1 20.26 0,4 1.18 25.18
Djúpivogur 1.06 0,7 6.56 1,9 13.11 0,6 19.27 1,9 2.10 23.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur lagt mikið á þig í vinnu og
skemmtunum upp á síðkastið. Veldu þá leið
frekar að sjá galla þína en reyna stöðugt að
skella skuldinni á aðra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sumir hlutir virðast of góðir til þess að
vera sannir. Lífið hefur verið rússibanareið
undanfarið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú skalt forðast að lenda í deilum í
dag. Ferill þinn fær byr undir báða vængi.
Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að
flest er í lagi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Lausn þín á íþyngjandi stöðu veitir
þér mikla fróun. Leyfðu öðrum að njóta sín
og sinn þú þínum verkefnum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú mátt ekki láta nokkurn mann not-
færa sér greiðvikni þína. Greiddu úr flækjum
ef þörf krefur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Enginn er eyland, því ræður sam-
skiptahæfni miklu um hvernig gengur í lífinu.
Settu þér það að markmið að sýna þolin-
mæði og kurteisi í dag.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Slakaðu vel á með fjölskyldunni því
næstu vikur verða þéttbókaðar. Ef eitthvað
veldur óánægju skaltu segja frá því.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Niðurbæld reiði getur leitt til til-
litslausra ummæla og jafnvel vinslita ef ekki
er varlega farið. Öll þín markmið geta náðst
ef þú ert við stjórnvölinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Álit þitt á ástinni er að breytast.
Félagsstarf mun gera þér gott. Veltu því fyrir
þér hvernig þú getur verið börnum og gömlu
fólki innan handar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú verður fyrir óvæntri heppni, og
það er í þínum höndum að spila sem best úr
henni. Aflaðu þér upplýsinga og myndaðu þér
skoðanir á grundvelli þeirra.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er ekki um annað að ræða en
setja undir sig hausinn og berjast gegn
óveðrinu. Margir eru afbrýðisamir út í þig
vegna stöðu þinnar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú finnur fyrir spenningi og jafnvel
taugaveiklun í dag. Þótt draumar séu góðir,
verða takmörkin að vera raunhæf.
Stjörnuspá
Ásta Eyjólfs-
dóttir, fyrrum
aðalgjaldkeri
Sjúkrasamlags
Reykjavíkur, er
100 ára í dag, 21.
júní. Af því til-
efni tekur hún á
móti gestum í
hjúkrunarheimilinu Skjóli, Klepps-
vegi 64, kl. 15-18, og vonast til að
sjá sem flesta af vinum sínum og
vandamönnum.
100 ára
Guðrún L. Ein-
arsdóttir, til heim-
ilis á Droplaug-
arstöðum í
Reykjavík, er
hundrað ára í
dag, 21. júní. Guð-
rún fæddist að
Litlu-Gröf í Borg-
arhreppi, en fluttist til Reykjavíkur
um tvítugt og hefur búið þar síðan.
Lengst af starfaði Guðrún sem
saumakona, þar á meðal á sauma-
stofu Þjóðleikhússins í mörg ár.
100 ára
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. f3 d5 5.
a3 Be7 6. e4 dxe4 7. fxe4 e5 8. d5 Bc5 9.
Rf3 Bg4 10. h3 Bxf3 11. Dxf3 Rbd7 12.
Bd3 a5 13. Bc2 O-O 14. Bg5 Dc8 15. Hd1
Re8 16. Hf1 Rd6 17. b3 Bxa3 18. Be7
Bc5 19. Bxf8 Dxf8 20. Dg4 De7 21. Hd3
Rf6 22. Dh4 Bb4 23. Hg3
Staðan kom upp á Meistaramóti
Fjónar sem lauk fyrir skömmu í Óðins-
véum í Danmörku. Íslenski stórmeist-
arinn Henrik Danielsen (2545) hafði
svart gegn heimamanninum Mads
Svendsen (2163). 23… Rxd5! 24. Dh6
Bxc3+ 25. Kd1 Re3+ 26. Dxe3 Bd4,
svartur stendur nú til vinnings þótt tíma
taki að innbyrða vinninginn. 27. Dh6
Re8 28. Dh5 Hd8 29. Bd3 f6 30. Dg4 c6
31. Ke2 Bc5 32. h4 Rc7 33. h5 Re6 34.
Dh4 Rf4+ 35. Kd2 Rxd3 36. Hxd3 Bb4+
37. Kc2 Hxd3 38. Kxd3 Dd6+ 39. Ke2
Dd2+ 40. Kf3 Dd3+ og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik
Árnaðheilla Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is