Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 172. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Georg Guðni látinn 2. Fannst látinn 3. Reykvíkingur ársins 2011 4. Er komin í kynþokkafulla þyngd »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, Blóðdropinn, verða af- hent í dag, þriðjudag, í aðalsafni Borgarbókasafnsins í Grófinni. At- höfnin hefst klukkan 17 og verður boðið upp á léttar veitingar. Blóðdropinn og blóð- rauðar veitingar  Í tilefni af Jóns- messu 24. júní nk. verður efnt til Jónsmessuhátíðar hinn 25. júní og tónleikar haldnir í Merkigili á Eyrar- bakka en þar búa söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hafa undanfarna mánuði boðið upp á tónleika á heimili sínu í Merki- gili. Alþýðusveitin Ómar Diðriks og Sveitasynir kemur fram og heldur uppi fjörinu. Tónleikarnir hefjast kl. 16.30. Jónsmessu fagnað með söng í Merkigili  Í dag er al- þjóðlegur dag- ur hjólabrettisins. Skeitarar um allan heim fagna þessum degi og er Ísland ekki undan- skilið. Í hádeginu hittast hjólabretta- unnendur við Hall- grímskirkju og renna sér saman niður á Ingólfstorg þar sem þeir síðan leika listir sínar. Degi hjólabrettisins fagnað með listum Á miðvikudag N og NA 3-10 m/s, en hægari vindur sunnanlands. Skúrir á S- og SV-landi, annars skýjað með köflum. Hiti 4 til 14 stig. Líkur á vægu næturfrosti í innsveitum norðaustanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum og skúrir sunnantil, eink- um síðdegis. Hiti 4 til 13 stig, kaldast við norður- og austurströnd- ina. Hætt við vægu næturfrosti í innsveitum norðaustanlands. VEÐUR Eftir tuttugu daga bið eftir fótboltaleik voru Keflvík- ingar fljótir upp úr start- blokkunum gegn Haukum í gærkvöld og voru komnir í 2:0 eftir 20 mínútur af bik- arslag liðanna. Keflvík- ingar sigruðu að lokum, 3:1. Þór er einnig kominn í átta liða úrslit bikarkeppn- innar eftir sigur á Víkingi R. fyrir norðan, 3:1, sem og Fjölnir sem sigraði Hamar, 3:2. »3 Ferskir eftir 20 daga bið eftir leik Handknattleiksþjálfararnir Kristinn Guðmundsson og Óskar Bjarni Ósk- arsson stjórnuðu handboltaskóla á Ísafirði á dögunum og Sveinbjörn Pétursson landsliðsmarkvörður var með í för. „Það var ótrúlega skemmti- legt að sjá hve margir efnilegir hand- boltamenn eru á Ísafirði,“ sagði Kristinn við Morgunblaðið en þeir ætla að fara víðar um landið. »4 Efnilegir handbolta- menn á Ísafirði ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Á dögunum voru sex útskriftarnem- endur við Háskóla Íslands verðlaun- aðir með úthlutun úr verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar en mark- mið sjóðsins er að verðlauna afburða- nemendur í eðlis- og efnafræði. Nem- arnir útskrifuðust á árunum 2009-2011 en þar af voru fimm konur, sem þykir nokkuð merkilegt í ljósi þess að karlar hafa hingað til verið í meirihluta í eðlis- og efnafræðinámi við HÍ. Einn verðlaunahafanna er Katrín Lilja Sigurðardóttir en hún útskrif- aðist með BS-próf í efnafræði í vor, sat í ritnefnd Snefils, blaðs efna- og lífefnafræðinema, og kemur að því ásamt hópi fólks að þjálfa íslenska ól- ympíuliðið í efnafræði. Katrín er einnig meðlimur Sprengjugengisins svokallaða, sem í sumar mun ferðast um landið með Háskólalestinni og sýna listir sínar og efnafræðitöfra. Allt hægt með góðum stuðningi „Mér finnst vera alveg fullt af stelpum í raungreinadeildinni og tek ekki eftir því að strákarnir séu miklu fleiri,“ segir Katrín og gefur lítið fyrir meint karlaveldi í deildinni. „Ég hef sjálf mikinn áhuga á raunvísindum al- mennt og eftir menntaskólann átti ég í miklum vandræðum með að velja á milli efnafræðinnar, eðlisfræðinnar og stærðfræðinnar,“ segir hún. „Ég byrjaði í stærðfræðinni en svo eignaðist ég barn númer tvö og það varð einhvern veginn til þess að ég ákvað að skipta yfir í efnafræðina. Þar fann ég mig algjörlega.“ Katrín kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að dugnaði í námi en hún er 28 ára þriggja barna móðir og mun hefja framhaldsnám í efna- fræðinni í haust. Hún var aðeins 16 ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Ég fór í menntaskóla 18 ára, þeg- ar strákurinn minn var tveggja ára gamall og þessi ár voru mjög erfið, aðallega fjárhagslega, af því að ég var ein í þessu,“ segir Katrín. Mennta- skólanámið stundaði hún við Verzl- unarskóla Íslands og ber skólanum afar vel söguna. „Ég fékk mikinn stuðning og starfsfólkið sýndi mér mikinn velvilja og hlýju.“ Katrín segir ungar konur sannar- lega geta stundað háskólanám og eignast fjölskyldu á sama tíma. Hún hefði þó varla lokið náminu nema með góðum stuðningi. „Maðurinn minn, Kristján Páll Rafnsson, var mér stoð og stytta og fjölskyldan hjálpaði mik- ið til,“ segir hún. „Síðan lærir maður að bera virðingu fyrir tímanum sem maður hefur og ráðstafa honum bet- ur,“ bætir hún við að lokum. Ber virðingu fyrir tímanum  Konur sækja á í námi í raun- greinum við HÍ Morgunblaðið/Eggert Saman Sumarrós Lilja Kristjánsdóttir, Róbert Leó Jónsson, Hólmfríður Katla Kristjánsdóttir og Katrín Lilja. Sprengjugengið er hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands sem m.a. var stofn- aður með það í huga að kynna fagið fyrir almenn- ingi og uppræta þann mis- skilning að efnafræðingar geri lítið annað en að húka yfir stærðfræðiskruddum og efnafræðiformúlum alla daga. Sprengjugeng- ið hefur starfað frá því árið 2003 og hef- ur í gegnum árin staðið fyrir litrík- um og dulmögnuðum sýningum þar sem meðlimir hópsins hafa leikið sér að eiginleikum ýmissa efna og heillað jafnt unga sem aldna með sjónarspili sínu. „Und- irtektirnar hafa verið rosalega góðar og þetta er mjög vinsælt hjá yngri kynslóðinni,“ segir Katrín Lilja. Sprengjugengið verður á ferð- inni með Háskólalestinni í sumar en hægt er að nálgast áætlun lest- arinnar á slóðinni www.ung.hi.is/ haskolalestin. Efnabrellusýningar SPRENGJUGENGIÐ KR og FH fengu heldur betur ólík verkefni í Evrópumótum félagsliða í fótboltanum. KR fer í stutta heim- sókn til Færeyja og mætir liði Fuglafjarðar en FH fer til portú- gölsku eyjunnar Madeira og mætir uppeldisliði Cristianos Ronaldos. Breiðablik fer til Noregs og ÍBV til Írlands. »2 KR og FH gegn mis- sterkum eyjaskeggjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.