Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011 Það er svo spennandi að vera með tónleika í þessum fallega garðskála seint um kvöld. 32 » Þórður Hjartarson hefur gefið út skáldsöguna Konungur fjalls og heiða og segir sjálfur að þetta sé skáldsaga með heillandi persónu- og samfélagslýsingum um þann tíma þegar byrjað var að við- urkenna hrossarækt sem alvöru bú- rækt. Þórður segist hafa ætlað að gefa út 400 blaðsíðna sögu en útgef- endur viljað að hann stytti bókin um nær helming. „Þá stóð ég frammi fyrir því að þurfa að henda þessari bók og ég bara gat það ekki. Ég ákvað að kljúfa söguna í að minnsta kosti tvö bindi og gefa út sjálfur“ segir hann Leggur mikið í mannlýsingar Þórður segir persónur bók- arinnar hafa orðið til fyrst og hann síðan spunnið sögu í kringum þá. „ Mér fannst einhvern veginn vanta ákveðna karaktera. Sveitamenn eru svo ólíkir eftir því hvort þeir eru í kindum og hrossum eða einvörð- ungu í beljunum. Þess vegna bjó ég til hinn dæmigerða kúabónda og hinn dæmigerða hrossa- og fjár- bónda. Bókin gengur út á mannlýs- ingar og ég þurfti að leyfa þessum karakterum að tala,“ segir Þórður. Í öðru bindi er það söguþráð- urinn sem skapar söguna en ekki karakterarnir eins og í fyrsta bindinu svo það verða einhver stíl- skil milli binda að sögn Þórðar. Hann stefnir á að gefa annað bindið út næsta sumar en útgáfa og sala fyrsta bindisins hefur ekki verið þrautalaus. „Þetta hefur verið ægi- lega mikill táradalur en nú fer land- ið að rísa,“ segir Þórður og hlær. diana@mbl.is Þurfti að leyfa þessum karakterum að tala Ljósmynd/Sigmundur Sigurgeirsson Táradalur Þórður Hjartarson hefur gefið út Konung fjalls og heiða. Nú stendur yfir sýning á högg- myndum eftir Steinunni Þórarins- dóttur á Dag Hammarskjöld-torginu, en höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna eru við enda torgsins. Sýningin, sem heitir Borders, stendur til 30. sept- ember. Steinunn segir að á sýningunni séu 26 höggmyndir eftir hana, þrettán úr járni og þrettán úr áli, en verkið var sérstaklega gert fyrir torgið. „Það er langt og mjótt og gefur tilefni til einskonar „landamæra“, og einnig skiptir nærvera Sameinuðu þjóðanna máli, þetta rímar allt saman.“ Sýningunni hefur verið vel tekið og samkvæmt upplýsingur frá New York borg er Borders vinsælasta sýning sem verið hefur á torginu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Steinunn sýnir vestan hafs, það hefur hún gert margoft og til að mynda er nú á ferð- inni um landið farandsýning hennar, Horizons, sem lagði upp fyrir fjórum árum. „Það var til dæmis verið að setja Horizons upp í skúlptúrgarði Georgia Museum of Art sem er helg- aður kvenmyndhöggvurum en Hori- zons er fyrsta sýningin í garðinum. Ég hef því oft þurft að fara til Banda- ríkjanna á síðustu árum og gaman að fá tækifæri til þess að kynnast land- inu á þennan hátt.“ Á landamærum í New York Þeir sem lesið hafa einhverja af bók- um René Goscinny og Alberts Uderzo um Gaulverjann Asterix, sem heitir Ástríkur upp á íslensku, vita að það sem helst fer fram í þeim ágætu bókum er að menn rómverskir eru beittir harðræði, þeim reknar eyrna- fíkjur og höfuðhögg. Nú hafa fræði- menn lagst yfir bækurnar og flokkað þau höfuðmeiðsl sem þar er greint frá auk annars miska er menn verða fyr- ir. Í bókunum, sem eru orðnar á fjórða tuginn, fá menn 704 höfuðhögg alls. Af þeim eru 698 karlar og 63,9% þeirra Rómverjar. 120 Gaulverjar fá höfuðhögg, 59 stigamenn eða sjóræn- ingjar, 20 Gotar, 14 Normanar, átta víkingar, fimm Bretar og fjórar geim- verur. Þetta kemur fram í fagriti evr- ópskra taugaskurðlækna. Þar kemur einnig fram að flesta áverka veittu Gaulverjar, 87,1% og Ástríkur og Steinríkur meira en helming áverk- anna, 57,6%. Einnig er þess getið að í langflestum tilfellum, 83%, séu þeir sem veita áverkana undir áhrifum heimabruggaðs lyfs. Meiðsl voru mis- mikil, 390 flokkast sem alvarleg meiðsl, 89 miðlungs og 225 lítil meiðsl. Fantur Gaulverjanum galvaska, Ástríki, er laus höndin. Hættuleg glíma við Gaulverja  Tíð höfuðmeiðsl í bókunum um Ástrík Aðrir tónleikar í tónleikaröð- inni Þriðjudagskvöld í Þing- vallakirkju verða haldnir í kvöld kl. 20:00. Þær Pálína Árnadóttir fiðlu- leikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari flytja verk eftir m.a. Haydn og Beethoven. Síð- asta verkið á efnisskrá þeirra systra er Passacaglia Händels í umritun Halvorsen. Aðgangur er ókeypis en tek- ið er við framlögum í tónlistarsjóð kirkjunnar við kirkjudyr. Tónleikagestir eru vinsamlega beðnir að leggja bílum sínum við Flosagjá og ganga síð- asta spölinn. Tónlist Klassík í Þing- vallakirkju Georg Friedrich Händel Arnór Bieltvedt, sem búsettur er í Kaliforníu, tekur um þess- ar mundir þátt í 15 ára afmæl- issýningu Galerie Beeldkracht í Groeningen í Hollandi, sem er umboðsaðili fyrir Arnór í Evr- ópu. Sýningin hófst 1. júní og stendur til 31. júlí. Auk mál- verka Arnórs verða til sýnis verk eftir bandaríska lista- manninn Michael Parks, Lurie Matei fra Moldavíu, Lyvie de Sutter frá Belgíu, Natalya Stadnyk frá Úkraniu, Alfred Gockel frá Þýskalandi, Lukas Kandl frá Frakklandi og hollensku listamennina Nico Vriel- ink, Ad Arma, Noud Adams, Sjer Jacobs og fleiri. Myndlist Arnór Bieltvedt sýnir í Hollandi Arnór Bieltvedt Forlagið hefur gefið út bókina Óskabarn eftir Brynhildi Þór- arinsdóttur, sem segir frá ævi og störfum Jóns Sigurðssonar. Bókin er ætluð börnum til skemmtunar og fróðleiks og samhliða því að segja frá Jóni fjallar bókin um kosningarétt, lýðræði og byltingar í Evrópu á 19. öld. Bókin er myndskreytt með vatnslitamyndum eftir Sigur- jón Jóhannsson auk annarra teikninga og ljós- mynda. Brynhildur Þórarinsdóttir hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir bækur sínar, meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin. Sögubækur Óskabarnið Jón Sigurðsson Kápa Óskabarns Díana Rós A. Rivera diana @mbl.is Útvarpsleikhúsið á RÚV hlaut Norrænu útvarpsleikhús- verðlaunin í ár. Tilkynnt var á ár- legum fundi norrænna útvarps- leikhúsa 17. júní síðastliðinn að einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónsson hefði verið valið besta út- varpsleikhúsverkið á Norð- urlöndum árið 2011. Viðar Egg- ertsson, stjórnandi útvarpsleikhússins tók við verð- laununm. Í tilkynningu kemur fram að höfundur hafi sótt innblástur sinn til þrekraunar Guðlaugs Friðþórs- sonar sem synti í land eftir að skip hans fórst við Vestmanna- eyjar árið 1984 og var sex tíma í köldum sjónum. Ingvar E. Sig- urðsson lék í Djúpinu, um tónlist sá Hilmar Örn Hilmarsson og hljóðvinnslu Einar Sigurðsson en Jón Atli leikstýrði verkinu. Viðar Eggertsson segir útvarps- leikhúsin á hinum Norðurlöndum hafa skipað sér í röð þeirra bestu í Evrópu og viðurkenning af þessu tagi því styrkja sjálfsmynd út- varpsleikhússins á Íslandi. Hann segir þetta jafnframt skemmtilega afmælisgjöf en 80 ár eru síðan byrjað var að leika í útvarpinu. Djúpið hefur átt mikill vel- gengni að fagna og meðal annars verið flutt víða í Skotlandi auk þess að vera valið sem eitt verka í jaðarhluta leiklistarhátíðarinnar í Edinborg, Edinburgh Fringe, sem haldin verður í byrjun ágúst. „Þetta er kannski eðli einlægn- innar,“ segir Viðar spurður að því af hverju verkið sé eins vinsælt og raun ber vitni. „Jón Atli ræðst í þetta verk á eigin spýtur, hann er einherji og var ekki með mikinn stuðning á bak við sig. Þegar menn vita hvert þeir stefna, eru einlægir í verkum sínum og hafa auk þess til að bera mikla hæfi- leika eru þeir stundum að upp- skera eins og þeim ber eins og í tilviki Jóns Atla.“ Hann segir Jón Atla jafnframt nálgast söguna á bak við verkið á einstakan hátt. „Fólk úr dóm- nefndinni tjáði sig um hversu mik- il áhrif verkið hafði á það og hvað þetta leikrit er magnað,“ segir Viðar að lokum. Hreyft við fólki í Djúpinu  Útvarpsleik- húsið verðlaunað Morgunblaðið/Ómar Djúpið Ingvar E. Sigurðsson leikari og Jón Atli Jónasson, höfundur verksins og leikstjóri. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Húsmóðirin (Nýja sviðið) Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega Húsmóðirin - HHHH E.B. Fbl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.