Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011
Leiðtogar Vesturlanda völdu séreinn einræðisskúrk þegar þeir
töldu komið vor í arabaheiminum.
Þeir ráða ekki við meira og héldu
að Trípólimaðurinn væri þegar
kominn á knén.
Múbarak í Kaíróvar besti vin-
ur þeirra í áratugi
svo það tók þá tæpa
viku að gleyma hon-
um.
Assad augnlæknir fékk að vita aðhorft yrði í gegnum fingur við
hann. Hann yrði þó beittur efna-
hagslegum refsiaðgerðum.
Í fyrstunni verður komið í vegfyrir að Assad nái að flytja inn
sand frá útlöndum. Dugi það ekki
verður komið í veg fyrir vatns-
útflutning frá Sýrlandi.
Það hlýtur að duga.
Assad tilkynnti í útvarpsávarpiað þjóðin elskaði sig. Tíðindin
glöddu þjóðina. Bróðir forsetans,
sem erfði leyniþjónustu landsins,
þegar gamli Assad dó, er einnig
elskaður og dáður, mest sjálfsagt af
ættingjum þess fólks sem þeir
bræður hafa látið skyttur sínar
skjóta á að undanförnu.
Össur, kunnur andófsmaður úrÍraksstríðinu, ber ábyrgð á að-
ild Íslands að árásunum á Trípólí.
Vinstri grænir hafa lagt blessunsína yfir þær í ríkisstjórninni.
Um það allt má lesa í bókinni„Strákar fara í stríð.“
Kvikmynd upp úr sögunni varsýnd í Trípólíbíói.
Össur
Skarphéðinsson
Arabískt vor
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 9 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 8 súld
Vestmannaeyjar 10 alskýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 12 þrumuveður
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 16 skúrir
Dublin 12 skúrir
Glasgow 16 léttskýjað
London 20 léttskýjað
París 21 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 15 léttskýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 20 léttskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 35 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 28 léttskýjað
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 17 alskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:55 24:05
ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35
SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18
DJÚPIVOGUR 2:10 23:49
Verulegar breytingar hafa orðið á
mataræði íslenskra þorska síðustu
þrjátíu árin. Hafrannsóknastofnunin
hefur rannsakað fæðu þorsks á Ís-
landsmiðum frá árinu 1985. Svo lítur
út sem þorskurinn hafi haft minna
að éta frá 1995 en áður og með-
alþyngd hans líklega minnkað þess
vegna.
„Þessar rannsóknir hafa einkum
farið fram í mars, í árlegu togara-
ralli síðan 1985, og að haustlagi í
haustralli síðan 1996. Á þessum tíma
hefur fæðuval þorsks verið rannsak-
að í um 74 þúsund fiskum í mars og
um 61 þúsund fiskum að haustlagi,“
segir í frétt á vef Hafrannsókna-
stofnunarinnar. Ólafur K. Pálsson
og Höskuldur Björnsson, sérfræð-
ingar á Hafrannsóknastofnuninni,
birtu nýlega niðurstöður rannsókna
á mataræði þorska í vefútgáfu tíma-
rits Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES Journal of Marine Science).
Þar kemur m.a. fram að loðna,
rækja og ljósáta hafi verið megin-
fæða þorsksins öll árin og því rétt-
nefnd undirstöðufæða hans hér við
land. Loðnan var þó langmikilvæg-
ust. Önnur mikilvæg bráð var síld,
kolmunni, sandsíli og þorskur.
„Verulegar breytingar hafa verið í
áti þorsks á umræddu tímabili.
Einna mestar breytingar hafa verið
í áti á loðnu og rækju, og hefur át á
þeim minnkað síðustu 10-15 árin eða
svo. Einnig hefur át á ýmsum öðrum
fæðutegundum sveiflast talsvert og
var át á sandsíli í hámarki um 1995
en át á kolmunna um miðjan síðasta
áratug. Breytingar af þessu tagi
takmarkast oft við ákveðinn árstíma
(mars eða haust) eða stærð þorsks,“
segir m.a. í fréttinni.
Þá kemur þar fram að heildarát
þorsks hafi minnkað frá því um 1995
vegna þess að stofnar sem hann hef-
ur sótt í, einkum loðna og rækja,
hafa minnkað. Uppbótarfæða á borð
við kolmunna og sandsíli hefur líka
minnkað. „Þessar aðstæður skýra
líklega minnkandi meðalþyngd
þorsks eftir aldri undanfarin ár
(2003-2009),“ segir í fréttinni.
Breyttur matseðill hjá þorskinum
Virðist hafa haft minna að éta en áður frá 1995 Meðalþyngdin orðin minni
Morgunblaðið/RAX
„Það er ekki hægt að ná árangri
í fiskveiðum með því að friða
fisk,“ segir Jón Kristjánsson
fiskifræðingur. „Þetta er stór-
merkilegt. Þeir eru að viður-
kenna það sem þeir hafa alltaf
neitað,“ sagði Jón í samtali við
mbl.is. Hann sagði að nú kæmi
það fram svart á hvítu að fæðu-
skortur hafi staðið þorskstofn-
inum fyrir þrifum allt frá árinu
1995. Þetta samræmdist ekki
fullyrðingum um stöðuga of-
veiði og að það verði að draga
úr þorskveiðum til að stækka
stofninn.
Ekki árangur
með friðun
JÓN KRISTJÁNSSON
Sólskálar
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Toyota RAV4
árg. 2006, ekinn 89 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.090.000
Opið virka daga
frá kl. 9-18
Hyundai Santa Fe
árg. 2007, ekinn 40 þús. km
2700cc, bensín, sjálfsk.
Verð: kr. 3.290.000
notaðra bíla
ÚRVAL
Allt að 70%
fjármögnun
Góð
kaup
!
Tilbo
ðsbíl
l!
Áður
kr. 2.
390.0
00!