Morgunblaðið - 25.06.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Nýnemar í framhaldsskólum fengu
langþráð svör við umsóknum sínum
í gær. Alls sóttu 4.205 nemendur,
víðsvegar að um landið, um skóla-
vist í ár. Nær allir, eða rúmlega 96
prósent þeirra, er luku 10. bekk
grunnskóla sóttu um áframhald-
andi nám við framhaldsskóla og var
öllum tryggð skólavist.
Umsækjendum var gert að velja
tvo skóla, þar sem annar var hafður
í forgangi yfir hinn og fengu rúm-
lega 98 prósent umsækjenda inn í
öðrum þeirra skóla er þeir sóttu
um. Er það aukning frá því í fyrra,
en þá var um að ræða tæplega 97
prósent.
Mikill fjöldi umsókna
Framhaldsskólum var jafnframt
gert að líta sérstaklega til og veita
forgang þeim umsækjendum er
komu frá grunnskólum í þeirra ná-
grenni. Lagt var til að áðurnefndur
forgangur að skólavist væri að lág-
marki 40 prósent lausra nýnema-
plássa. Vert er að geta að slíkt hlut-
fall var 45 prósent árið 2010.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
fékk í ár alls 892 umsóknir og þar
af fengu 286 nemendur skólavist að
þessu sinni. Þeir nemendur er ekki
nutu forgangs við inngöngu þurftu
að vera með um 8,50 í meðal-
einkunn á þeim fjórum náms-
greinum er horft er til við af-
greiðslu umsókna.
Alls sóttu yfir 750 nemendur um
skólavist við Verzlunarskóla Ís-
lands í ár. Þar af fengu 336 nem-
endur inngöngu í skólann. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skrifstofu
Verzlunarskóla Íslands eru flestir
þeirra nýnema, er hefja nám næsta
vetur, með 8,70 í meðaleinkunn eða
yfir.
Öllum umsækj-
endum tryggð
skólavist í ár
Mikil ásókn var meðal nýútskrifaðra
tíundu bekkinga í lausar stöður
Morgunblaðið/Kristinn
Framtíð Ljóst er að mikill áhugi er
á námi meðal ungra Íslendinga.
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Engir gildandi samningar eru á milli
Sjúkratrygginga Íslands og sér-
fræðilækna. Samningar runnu út 1.
apríl síðastliðinn og ekki hefur tekist
að semja upp á nýtt. Það hefur eink-
um áhrif á tvo þætti: Í fyrsta lagi er
greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga
nú miðuð við úreltar kostnaðartölur
en þjónusta sérfræðilækna hefur
hækkað sem nemur 4-6% að meðal-
tali frá því í apríl. Mismunurinn lend-
ir alfarið á sjúklingunum. Í öðru lagi
ber læknunum nú engin skylda til að
senda reikningana til Sjúkratrygg-
inga heldur þurfa sjúklingarnir oft
og tíðum að leggja út fyrir öllum
kostnaði. Dæmi er um að sjúklingar
hafi þurft að borga tugi þúsunda fyr-
ir læknisverk og bíða svo í sex vikur
eftir að fá hluta kostnaðarins end-
urgreiddan. Þetta er þó ekki algilt
því sumir læknar hafa haldið áfram
samstarfi við Sjúkratryggingar um
að senda reikningana beint.
Sjúkratryggingar taka til nauð-
synlegra rannsókna og meðferðar
hjá sérgreinalæknum. Þótt samning-
ar við sérfræðilækna séu ekki lengur
í gildi eiga sjúklingar þó áfram rétt á
tryggingavernd í samræmi við lög.
Fyrirkomulaginu er best lýst með
dæmi: Ef Sjúkratryggingar meta
samkvæmt gjaldskrá að kostnaður
við tiltekið læknisverk sé til dæmis
10 þúsund krónur þyrfti sjúklingur-
inn e.t.v. að borga um 3.000 krónur
og Sjúkratryggingar 7.000 krónur.
Ákveði læknirinn hins vegar að
rukka 12.000 krónur þarf sjúkling-
urinn að borga 5000 krónur en hlutur
Sjúkratrygginga er þó áfram 7000.
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, segir
ástæðu samningsleysisins vera þá að
Sjúkratryggingar geti ekki boðið
betur miðað við núverandi fjárlög.
Kostnaður sjúklinga eykst
„Það er stórt bil á milli fjárlagatöl-
unnar og rauntölunnar. Við erum í
þeirri stöðu að þurfa að greiða þeim
sem eiga rétt og ef menn skerða ekki
réttindin eða eru ekki reiðubúnir til
að auka með beinum hætti kostnað-
arhlutfall sjúkratryggðra þá fara
gjöldin fram úr fjárlagatölunum,“
segir Steingrímur Ari. Hann segir
samningaviðræður við sérfræði-
lækna árangurslausar. „Gjaldskráin
sem tók gildi 1. apríl miðaðist við þá
taxta sem voru í gildi áður en samn-
ingarnir runnu út. Í fyrstu inn-
heimtu sérfræðilæknarnir sam-
kvæmt gamla taxtanum en svo nú
þegar samið hefur verið á vinnu-
markaði hafa læknarnir verið að
hækka taxtann.“
Samkvæmt minnisblaði fjármála-
ráðuneytisins um stöðu ríkissjóðs,
sem Morgunblaðið hefur sagt frá, er
gert ráð fyrir að útgjöld vegna
sjúkratrygginga fari tæpa tvo millj-
arða fram úr fjárlögum á þessu ári.
Geta ekki boðið betur
Samningar Sjúkratrygginga við sérfræðilækna hafa verið lausir síðan 1. apríl
Endurgreiðslur Sjúkratrygginga eru því miðaðar við úrelta gjaldskrá
Aukinn kostnaður
» Þjónusta sérfræðilækna
hefur hækkað sem nemur 4 til
6% að meðaltali síðan í apríl.
» Sjúklingar eiga rétt á endur-
greiðslu frá Sjúkratryggingum
Íslands.
» Sjúkratryggingar geta ekki
boðið læknum betri samning
miðað við núverandi gjaldskrá.
Andri Karl
andri@mbl.is
Kaþólska kirkjan á Íslandi á undir
högg að sækja eftir að fjórir ein-
staklingar, tveir karlar og tvær kon-
ur, hafa stigið fram og greint frá kyn-
ferðislegu og andlegu ofbeldi af
hendi tiltekinna starfsmanna kaþ-
ólsku kirkjunnar sem störfuðu við
Landakotsskóla. Brotin áttu sér stað
á löngum tíma og ekki er hægt að úti-
loka að fleiri fórnarlömb stígi fram.
Ásakanirnar eru mjög alvarlegar en
þar sem gerendurnir eru látnir er
erfitt að sækja einhvern til saka.
Tvær konur lýsa kynferðislegri
misnotkun og áreitni sem þær urðu
fyrir af hálfu A. George, hollensks
kaþólsks prests og þáverandi skóla-
stjóra Landakotsskóla, í Fréttatím-
anum í gær. Önnur þeirra lýsir því að
frá því hún var tíu ára, árið 1961, til
þrettán ára hafi presturinn í fleiri
tugi skipta beitt hana kynferðislegu
ofbeldi. Hafi það oftar en ekki gerst
þannig að hún var kölluð úr kennslu-
stund og á aðsetur prestsins, þar sem
ofbeldið fór fram.
Hin konan var nemandi við skól-
ann frá 1982 til 1989 og lýsing hennar
er í fullu samræmi við lýsingu hinn-
ar.
Umræðan um brot innan kaþólsku
kirkjunnar vekur mikla reiði.
Aðfaranótt föstudags var karl-
maður handtekinn við bústað
kaþólska biskupsins í Landa-
koti en þá hafði hann brotið í bú-
staðnum fimmtán rúður. Tengist
rúðubrotið umfjöllun um kynferðis-
brotin.
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, sagði í sam-
tali við fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, að tvær kærur hefðu borist
lögreglu í lok síðasta árs. Annars
vegar á hendur A. George og Mar-
géti Müller, sem var þýsk og kennari
við Landakotsskóla, og hins vegar á
hendur öðrum kaþólskum presti. Þau
eru öll látin.
Rannsókn lögreglu beinist að
Landakotsskóla og kaþólsku kirkj-
unni því brotin gerðust innan veggja
stofnananna. „Það er ekkert útilokað
að skoða það nánar,“ segir Björgvin
en bætir við að engin ákvörðun hafi
verið tekin hvað það varðar.
Þá sendi stjórn Landakotsskóla
frá sér yfirlýsingunni í gær, en skól-
inn er ekki kaþólskur í dag. Í yfirlýs-
ingunni segir að stjórn og starfsfólk
Landakotsskóla harmi að starfsemi
skólans nú skuli þurfa að bíða hnekki
fyrir misindisverk einstaklinga við
skólann á fyrri tíð. „Það veldur óhug
meðal skjólstæðinga skólans, for-
eldra og nemenda. Við vonum að
fórnalömbin fái að upplifa eitthvert
réttlæti af hendi þeirra sem teljast
ábyrgir að lokinni rannsókn op-
inberra aðila.“
Ásakanir um fleiri
brot kaþólsks prests
Fimmtán rúður brotnar í bústað kaþólska biskupsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brotið Nágrannar vöknuðu við brothljóðin og kölluðu til lögreglu. Maðurinn var enn að þegar hana bar að garði.
„Við getum í sjálfu sér ekkert gert. Þetta er alfarið á hendi biskups og
lögmannsins. Ég veit að þeir eru á kafi í þessu máli. Það var fundur
hjá þeim í [gær]morgun,“ segir Gunnar Örn Ólafsson, formað-
ur Félags kaþólskra leikmanna í Landakotssókn. Hann segir
fólk almennt í miklu sjokki og þetta hafi gífurleg áhrif á alla.
Gunnar segist vona að kirkjan standi þetta af sér: „Kenn-
ing kirkjunnar eru sú sama samt sem áður. Þetta eru starfs-
menn kirkjunnar. En það er ægilegt þegar svona kemur upp
og að þetta hafi legið niðri svona lengi,“ segir Gunn-
ar sem á allt eins von á fjölgun úrsagna úr kaþ-
ólsku kirkjunni.
„Alfarið á hendi biskups“
FORMAÐUR FÉLAGS KAÞÓLSKRA LEIKMANNA
Gunnar Örn
Ólafsson
Einn viðmælenda Morgunblaðs-
ins þurfti að leita til meltingar-
læknis. Að læknisheimsókn lok-
inni þurfti viðkomandi að greiða
66 þúsund krónur og var sagt
að hann gæti sjálfur beðið um
endurgreiðslu frá Sjúkratrygg-
ingum Íslands. Endurgreiðsla
hafi svo ekki borist fyrr en sex
vikum síðar. Reikningurinn kom
flatt upp á viðkomandi sem var
ekki vanur að hafa svo háa fjár-
hæð á reiðum höndum. Af
þessu er ljóst að óhagræði
samningsleysisins er mikið.
Þegar samningar voru í gildi
greiddu sjúklingar aðeins sinn
hluta beint, en þar sem samn-
ingar eru lausir milli Sjúkra-
trygginga Íslands og sérfræði-
lækna kann það að lenda á
sjúklingunum sjálfum að krefj-
ast réttmætrar endurgreiðslu.
Fékk 66.000
kr. reikning
MIKIÐ ÓHAGRÆÐI
„[Það]sætir […] furðu í ljósi þess hve
alvarlega atburði er hér um að ræða
að kaþólska kirkjan skuli ekki hafa
gengið fast eftir því að fá öll gögn í
hendur til skoðunar þegar í stað og
hefja sjálfstæða rannsókn á málinu,
með það að leiðarljósi að upplýsa
málið eftir fremsta megni og mæta
þeim einstaklingum sem hafa verið
beittir órétti af hálfu kirkjunnar
þjóna,“ segir í svarbréfi Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra til
lögmanns sem ritaði ráðuneytinu
fyrir hönd biskups kaþólsku kirkj-
unnar á Íslandi.
Í bréfinu er leiðréttur misskiln-
ingur í bréfi kaþólsku kirkjunnar
þess efnis að dregist hafi að senda
kirkjunni gögn
frá ráðuneytinu
sem vörðuðu
meint gróf lög-
brot af hálfu
þjóna kirkjunnar
og stofnana henn-
ar á skjólstæðing-
um sínum.
Ögmundur
segir að hann hafi
gert biskupi ljóst
á fundi fyrir tveimur mánuði að
kirkjan gæti óskað formlega eftir af-
ritum af lögregluskýrslunum frá
kynferðisbrotadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Slík ósk var
hins vegar aldrei sett fram.
Kaþólska kirkjan bað
ráðherra ekki um gögn
Ögmundur
Jónasson