Morgunblaðið - 23.07.2011, Page 6
FRÉTTASKÝRING
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Velferðarráðuneytið tilkynnti á mið-
vikudag að til stæði að setja reglu-
gerð, sem tryggja ætti rétthöfum
hlutabóta samkvæmt bráðabirgða-
ákvæðum laga um atvinnuleysis-
tryggingar, fullar greiðslur þann 1.
ágúst næstkomandi. Bráðabirgða-
ákvæði í lögunum sem heimilaði
greiðslu hlutabóta rann út 30. júní síð-
astliðinn. Samstaða var á vorþingi um
að framlengja frestinn til áramóta.
Það var hins vegar ekki gert fyrir
þinglok.
Meginregla íslensks stjórnskipun-
arréttar er að fjárútlát ríkisvalds
verði að eiga sér skýra lagaheimild. Í
lögum um atvinnuleysistryggingar er
engin bein lagaheimild til að veita at-
vinnuleysisbætur með reglugerð en
þar er á hinn bóginn að finna í 64. gr.
svonefnda almenna reglugerðarheim-
ild, sem kveður á um að ráðherra
megi mæla fyrir í reglugerð um nán-
ari framkvæmd laganna. Í 63. gr. seg-
ir svo að ráðherra sé heimilt, að til-
lögu stjórnar Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, að veita styrki úr
sjóðnum „til einstakra verkefna sem
ætlað er að efla atvinnulíf einstakra
svæða, fjölga atvinnutækifærum ein-
stakra hópa fólks sem og til starfs-
menntunar.“
Reglugerðin mun hafa stoð í þess-
um tveimur greinum laganna. Hér er
því verið að fara nokkuð sérkennilega
lögfræðilega leið til að útdeila fjár-
munum ríkisins; þeir sem rétt eiga á
hlutabótum munu fá sömu upphæð og
þeir máttu búast við en í lögfræðileg-
um skilningi hljóta þeir ekki bætur
heldur styrk frá velferðarráðherra
sem hann veitir þeim með reglugerð.
Tekur til 2.000 einstaklinga
Um 2.000 einstaklingar eiga rétt á
hlutabótum. Runólfur Ágústsson, for-
maður stjórnar Atvinnutrygginga-
sjóðs, segir að nýja fyrirkomulagið
auki ekki útgjöld ríkisins. „Nærtæk-
ari kostur hefði verið að setja bráða-
birgðalög. Þessi mistök af hálfu lög-
gjafarvaldsins hafa mjög alvarleg
áhrif á okkar skjólstæðinga og því
lagði stjórnin til við ráðherra að þessi
leið yrði farin.“
„Þetta er Krísuvíkurleiðin eins og
stundum var sagt hérna áður fyrr!“
segir Sigurður Líndal, lagaprófessor.
Hann segir að þessi aðferð sé á gráu
svæði. „Öll útgjöld ríkisins verða að
eiga sér stoð í lögum eða fjárlögum og
sú stoð verður að vera skýr. Þetta er
skrýtin stjórnsýsla, að mér virðist, að
ætla sér að útdeila bótum með reglu-
gerð. Hver semur svona lög? Eflaust
sleppur þetta með herkjum og ein-
hverjum fyrirvörum en þessi aðferð
er ekki til fyrirmyndar. Hreinlegast í
þessu máli væri að setja bráðabirgða-
lög og styrkja lagaheimildina. Það er
alveg réttlætanlegt. Mistök eru gerð
– öll gerum við mistök – og við eigum
að hafa leyfi til að leiðrétta þau.“
Krísuvíkurleið
valin til að leið-
rétta mistökin
Bótaþegar fái styrk í stað bóta
Morgunblaðið/RAX
Vinna Frestur bráðabirgðaákvæðis
var ekki framlengdur á vorþingi.
Almenn heimild
» Svonefnd almenn reglugerð-
arheimild, sem kveður á um að
ráðherra sé heimilt að kveða
nánar á um framkvæmd laga,
er að finna í mörgum lagabálk-
um. Álitamál er hversu víðtækt
framsal lagasetningarvalds
felst í slíkum heimildum en al-
mennt er litið svo á að í þeim
felist ekki réttur til að setja
reglugerðir sem hafa bein áhrif
á réttindi borgara.
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Sum svæði eru algerlega dauð og
staðan þar er að versna,“ segir
Helgi S. Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Regins hf. dótturfélags
Landsbankans. Hann segir enga leið
að selja eða leigja atvinnuhúsnæði í
sumum úthverfum höfuðborgar-
svæðisins. Fyrirtæki séu að flýja
þessi svæði.
Í efnahagssveiflunni á síðasta ára-
tug þótti gróðavænlegt að byggja at-
vinnuhúsnæði. Fasteignaverð hækk-
aði stöðugt og eftirspurn eftir
húsnæði var mikil. Mikið var byggt,
en við hrunið haustið 2008 brustu
allar forsendur. Í ljós kom að fjár-
hagsgrundvöllur fasteignafélaganna
var veikur enda voru þau flest veð-
sett upp í rjáfur. Bankarnir neydd-
ust því til að yfirtaka stóran hluta af
öllu verslunar- og skrifstofuhúsnæði
á landinu. Gríðarlegt verðfall varð á
eignunum og markaðsleiga lækkaði.
Frá hruni hefur staðan á mark-
aðinum batnað, en Helgi segir að
hún sé mjög svæðisskipt. „Það sem
við erum að sjá núna er að sum
svæði eru bara algerlega dauð. Þar á
ég sérstaklega við jaðarsvæði kring-
um höfuðborgarsvæðið. Staðan þar
er að versna. Síðan eru sterkari
svæði eins og Borgartúnið, miðbær-
inn, Smára- og Lindasvæðið í Kópa-
vogi og Súðarvogur-Dugguvogur.
Þessi svæði halda sér vel og leigu-
verðið er að hækka.“
Hátt eldsneytisverð hefur áhrif
Helgi segir að hátt eldsneytisverð
hafi áhrif á þessa þróun og eins vilji
fyrirtækin komast nær kúnnanum.
„Fyrirtæki vilja oft komast í minna
húsnæði og þannig húsnæði er þá oft
nær sterkum kjörnum. Það var svo
gríðarleg offjárfesting á húsnæðis-
markaði. Ætli við verðum ekki ein-
hver ár að vinna okkur út úr þessu.“
Nýlega ákvað Byko að loka versl-
uninni Kauptúni í Garðabæ, en húsið
er stórt og glæsilegt, byggt árið
2007. Verslunin hefur verið rekin
með tapi frá opnun. Ljóst er að mjög
erfitt verður að finna nýja leigjend-
ur í þetta stóra húsnæði.
Dæmi um stórar eignir sem ekki
hefur tekist að leigja er
6.000 fm skrifstofu-
húsnæði við Dals-
hraun í Hafnar-
firði sem Reitir
eiga. Það hús er
ekki fullbyggt
og verður ekki
lokið við það
fyrr en búið er
að tryggja leigu í
a.m.k. 4.000 fm.
„Sum svæði eru
algerlega dauð“
Fyrirtækin flýja sum úthverfi höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/RAX
Loka Skellt verður í lás hjá Byko í Garðabæ í haust, en verslun í þessu glæsilega húsnæði hefur ekki borið sig.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Stefnt er að því að leiguíbúðir verði
orðnar fjórðungur alls húsnæðis-
framboðs í Reykjavík árið 2020,
skv. nýrri húsnæðisstefnu borg-
arinnar sem kynnt var í vikunni.
Er horft til þess að í nýjum hverf-
um sem eru á teikniborðinu verði
sérstaklega gert ráð fyrir leigu-
íbúðum, þá jafnhliða öðrum bú-
setukostum.
Starfshópur á vegum borgarráðs,
skipaður Björk Vilhelmsdóttur, Páli
Hjaltasyni, Geir Sveinssyni og El-
ínu Sigurðardóttur mótaði húsnæð-
isstefnuna sem nú hefur verið send
til umsagnar og kynningar.
Björk Vilhelmsdóttir segir að
mörgu að hyggja í málinu, en dag-
ljóst sé að leigumarkaðinn verði að
efla m.a. sakir breyttra aðstæðna á
vinnumarkaði sem krefjist þess að
fólk sé hreyfanlegra. Þá standi sér-
eignastefna Íslendinga í húsnæðis-
málum ekki jafn föstum fótum og
áður; fólk hafi í mörgum tilvikum
minna eigið fé handa á millum og
lánamöguleikar séu þrengri en var.
„Því þarf að bregðast við með efld-
um leigumarkaði,“ segir Björk sem
vill að sérstök hlutdeild borg-
arinnar í leigu- og húsnæðis-
samvinnufélögum verði könnuð.
Aðild borgarinnar þar geti verið
með ýmsu móti; svo sem með lóð-
um, eignum eða beinum fram-
lögum. Hefur raunar verið tekin sú
ákvörðun að ráða starfsmann til
borgarinnar til að kanna hvernig
borgaryfirvöld geti með sem af-
farasælustum hætti komið að þess-
um málum.
„Við þurfum að horfa á þessi mál
í víðu samhengi og horfa til langs
tíma,“ segir Björk.
sbs@mbl.is
Vilja húsnæðisfélög og
aukið framboð leiguíbúða
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgin mótar
húsnæðisstefnu
Stærsta fasteignafélag á Íslandi
er Reitir, en það á um 130 eignir,
samtals um 410 þúsund fer-
metra af atvinnuhúsnæði. Guð-
jón Auðunsson, forstjóri Reita,
segir að um 94% af eignum fé-
lagsins sé í útleigu sem sé ótrú-
lega hátt hlutfall. Hann tekur
undir með Helga og segir að
áhugi leigutaka sé meiri í grón-
um hverfum.
„Það er erfiðara að leigja út
húsnæði sem losnar í út-
hverfum Reykjavíkur. Það er al-
veg ljóst. Eins tekur tíma að
finna leigjendur fyrir sumar
eignir á landsbyggðinni. Ég
get svo tekið Kringluna sem
dæmi, sem við eigum. Þar
er biðlisti áhugaverðra
rekstraraðila sem vilja
komast inn. Það er ekkert
mál að leigja út góðar
staðsetningar á Laugaveg-
inum.“
Biðlisti í
Kringlunni
UM 94% EIGNA FASTEIGNA-
FÉLAGSINS REITA Í ÚTLEIGU
Lopapeysu-
rómantík á
Laugavegi
20
07
ISUZU D-MAX LS 05/2007 - 3.0L Dísel
Ekinn. 91 þús., 5 dyra, beinskiptur, álfelgur, heilsársdekk,
pallhús með læsingu, dráttarbeisli. Verð 2.890.000
Tilboðsverð 2.390 þús.
Sérfræðingar í bílum
Opið alla virka daga frá kl. 10-18. Lokað um helgar í sumar.
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3330
Bílabúð Benna - Notaðir bílar - Bíldshöfða 10 - 587 1000 - benni.is
Bíll til sýnis hjá Bílabúð Benna, Reykjanesbæ