Morgunblaðið - 23.07.2011, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.07.2011, Qupperneq 11
að vera hér í fjórar vikur. Við höfum fengið mjög góðar viðtökur, sem er mjög hvetjandi,“ segir Guðmundur sem leggur áherslu á hollan mat og býður í vagninum upp á grænmet- isrétti sem eru lausir við hvítt hveiti, hvítan sykur og ger. „Ég kynntist grænum og hollum mat þegar ég vann á Grænum kosti hjá Hjördísi og ég er stoltur af þess- um mat. Ég er mikið með grillað grænmeti, speltpasta, spínatlasagna, kjúklingarétti og heilsudrykki (bo- ost). Þetta er léttur og góður sumar- matur,“ segir Guðmundur og tekur fram að allt sé þetta heimalagað. Mataræði skiptir máli „Sem betur fer er það vaxandi að fólk hugsi um hvað það borðar og tengi það við líðan sína. Það skiptir miklu máli, sérstaklega þegar maður eldist. Áður fyrr gat maður étið hvað sem var og sofið þegar manni sýndist, en núna þarf maður að hugsa vel um fæðuna og passa að sofa reglulega, svo maður eigi gott líf áfram,“ segir Guðmundur og hlær og lætur eins og hann sé orðinn rígfullorðinn. „Maður getur gert ýmislegt til að forðast sjúkdóma, þetta snýst um að vera meðvitaður um hvað maður lætur of- an í sig.“ Besta viðurkenningin „Við sem erum foreldrar berum líka mikla ábyrgð gagnvart börn- unum okkar, að vera þeim góð fyrir- mynd í mataræði og elda handa þeim hollan mat. Ég vinn sem kokkur í skólamötuneyti á Stokkseyri og Eyr- arbakka og þar legg ég áherslu á holl- ustu. Foreldrar gera þá kröfu að mat- urinn sé eldaður á staðnum og lagður sé metnaður í alla meðhöndlun. Krakkarnir í skólanum eru rosalega ánægð með matinn minn og mér finnst ég hafa fengið þá bestu við- urkenningu sem ég hef fengið á starfsferli mínum frá börnunum. Einn nemandinn sagði við mömmu sína: „Nýi kokkurinn er rosa góður, en ekki segja frá, því þá verður hon- um stolið frá okkur,“ segir Guð- mundur kátur en í honum var þó- nokkur tilhlökkun því hann ætlaði að reyna að komast í hestaferð í Döl- unum um helgina. En það er mikið að gera því þau hjónin reka líka veislu- þjónustu. Facebook: Grænt og grillað Hollt Sýnishorn af tveimur réttum sem boðið er upp á, baka og kjúklingur. Notalegt Umhverfið í Mæðragarðinum er grænt og vænt rétt eins og maturinn sem Guðmundur töfrar fram í vagninum góða. Þar er hægt að setjast niður og borða við fuglasöng. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 Þórunn Árnadóttir lauk nýverið meistaranámi í vöru- hönnun í Royal College of Art í London og hluti af loka- verkefni hennar, sem kallast QR U?, var kjóll með QR- kóðum sem hún hannaði fyrir söngkonuna Svölu Björg- vinsdóttur í rafhljómsveitinni Steed Lord. „Þórunn hafði samband við mig fyr- ir þremur mánuðum þegar hún var að vinna að útskriftarverkefninu sínu. Hana langaði að gera gagnvirkan kjól með QR-kóðum því í dag fer allt fram á netinu. Hún vildi gera tæknilegan kjól í takt við tímann,“ segir Svala en á kjólnum eru 10 QR-kóðar og þegar þeir eru skannaðir með snjallsíma opnast mismunandi efni á símanum; tónlistarmyndbönd, hreyfimynd úr perlunum og jafnvel sjálfkrafa Twit- ter færsla sem þjónar þeim tilgangi að nýta aðdáendurna til að dreifa upplýsingum um hljómsveitina til sem flestra. „Þórunn er aðdáandi Steed Lord og langaði að hafa mig sem innblástur fyrir kjólinn. Hún spurði hvort það væri í lagi að nota listamannsnafnið mitt Kali og tón- listina okkar á sýningunni þegar hún væri að sýna kjól- inn og ég samþykkti það. Ég sá teikningarnar og fannst þetta rosalega flott hjá henni.“ Perlur verða að pixlum Að sögn Þórunnar hófst verkefnið QR U? þannig að hún var að skoða hvernig perluverk, t.d. í Afríku, hefur verið notað sem samskiptatæki í gegnum tíðina og til að túlka persónueinkenni. „Ég komst að því að við notum ennþá perlur til persónulegrar túlkunar og samskipta, en við köllum þær pixla og við vefum okkar sam- skiptasíður og prófíla úr þeim, t.d. Facebook, YouTube og blogg á netinu, og svo auðvitað QR kóða,“ segir Þór- unn.„Ég vildi sýna fram á líkindin með nýjum og göml- um samskiptamátum og hvernig við getum nýtt gamlar hefðir og handverk í nútímalegu samhengi, í stað þess að einangra það sem minjagripi um gamla tíma eða hverf- andi menningu.“ Þórunn segir kjólinn og annað perluverk sem hún gerði í þessu verkefni þjóna sama tilgangi og perluverk hefur gert í gegnum aldirnar í mismunandi menningar- samfélögum, að miðla upplýsingum til annarra um manneskjuna sem ber það. „Þennan kjól gæti Svala nýtt til að „prómótera“ sjálfa sig og Steed Lord þegar hún er á tónleikum eða mætir á viðburði og auk þess er hægt að skanna kóðana af myndum, svo fólk getur t.d. fengið að heyra og sjá hljómsveitina þótt það sé bara með mynd af henni í kjólnum fyrir framan sig.“ Boðið á sýningu í Victoria & Albert Museum Svala mun þó ekki geta klæðst kjólnum alveg strax því Þórunni hefur verið boðið að taka þátt í sýningunni Po- wer of Making í Victoria & Albert Museum í London í september. Þar verður kjóllinn til sýnis fram í janúar. Þórunn Árnadóttir hannaði QR-kóða kjól á Svölu Björgvinsdóttur QR-kjóllinn Svala í kjólnum. Sóley Ástudóttir sá um förðun og Rebekka Jónsdóttir um hár. Allt um Steed Lord í kjólnum Þórunn Árnadóttir Ljósmynd/Einar Egilsson Vinsælt Harmonikuhátíð á Árbæjarsafni hefur verið vel sótt síðastliðin ár. Borgartúni 26 · Ármúla 13a sími 540 3200 · www.mp.is Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu fyrir fólk og fyrirtæki og skjóta afgreiðslu mála í síma- og þjónustuveri. Þannig á banki að vera og þess vegna eru meira en 90% viðskiptavina ánægð með þjónustuna hjá okkur. Við tökum vel á móti þér! Debetkort Launareikningar Sparnaðarreikningar Kreditkort Netbanki Erlend viðskipti Útlán Það er auðvelt að skipta um banka. En það er mikilvægt að vanda valið! Bárður Helgason, viðskiptastjóri F í t o n / S Í A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.