Morgunblaðið - 23.07.2011, Page 32

Morgunblaðið - 23.07.2011, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011 ✝ SigurðurSveinsson fæddist á Góustöð- um 11. nóvember 1921. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 14. júlí 2011. Foreldrar hans voru Guðríður Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík, f. 12. ágúst 1891, d. 15. mars 1975 og Sveinn Guð- mundsson frá Hafrafelli í Skut- ulsfirði, f. 27. apríl 1887, d. 4. febrúar 1960. Bræður Sigurðar eru: Guðmundur, f. 9. apríl 1913, d. 9. apríl 1987, Magnús f. 19. desember 1917, d. 29. janúar 1938, Vilhjálmur, f. 17. desember 1919, d. 23. ágúst 2000, Gunnar, f. 10. mars 1923, Þorsteinn, f. 2. maí 1924 og Ólafur, f. 3. sept- ember 1927. Hinn 25. desember 1949 kvæntist Sigurður eftirlifandi eiginkonu sinni, Gerði Péturs- dóttur, f. 19. mars 1927 frá Hafn- ardal. Börn þeirra eru: 1. Guð- ríður, f. 22. febrúar 1951, m. Samúel Einarsson, börn þeirra eru: a) Sigurður, f. 11. janúar 1973, m. Guðný Jóna Þórsdóttir, eiga þau þrjár dæt- ur. b) Elísabet, f. 25. október 1979, m. Atli Freyr Rún- arsson, eiga þau tvær dætur. 2. Sig- rún, f. 12. janúar 1954, m. Kristinn Halldórsson, börn þeirra eru: a) Hall- dór, f. 26. október 1977, á hann tvö börn. b) Viðar, f. 22. júlí 1982. c) Kristrún, f. 11. októ- ber 1988. 3. Geir, f. 1. desember 1956, m. Edda Björg Krist- mundsdóttir, börn þeirra eru: a) Gerður, f. 1. júlí 1986, m. Karl Bjelkesjö. b) Nína Guðrún, f. 10. desember 1990. c) Gauti, f. 29. apríl 1993. Áður átti Sigurður með Guðnýju Hammer dótturina Kristjönu, f. 10. febrúar 1947, m. Gunnlaugur Gunnlaugsson, börn hennar með fyrri maka, Jóni Ólafi Sigurðssyni eru: a) Sig- urður, f. 20. mars 1965, m. Sól- veig Sigurðardóttir, eiga þau fjögur börn. b) Herdís, f. 6. júlí 1966, m. Jón Sigurðsson, eiga þau fjögur börn. c) Anna Mál- fríður, f. 13. apríl 1970, á hún tvær dætur. Sigurður átti alla sína tíð heima á Ísafirði. Hann hóf ungur rekstur vörubifreiða en eign- aðist sína fyrstu jarðýtu á sjötta áratug síðustu aldar og varð það hans aðalstarf. Sigurður vann við gerð margra af fyrstu akveg- um á norðanverðum Vest- fjörðum. Þar má nefna m.a. vegi í Skutulsfirði, Álftafirði og Seyð- isfirði, yfir Breiðadals- og Botns- heiði, í Önundar- og Súg- andafirði og svo hinar erfiðu vegalagnir um Óshlíð og Súða- víkurhlíð þar sem eru fyrstu jarðgöng á Íslandi í gegnum Arnarneshamar. Sigurður vann við byggingu Ísafjarð- arflugvallar og sá um snjómokst- ur á vellinum í mörg ár. Þá vann hann við hleðslu sjóvarnargarða við Skutulsfjarðareyri og Ísa- fjarðarflugvöll. Árið 1961 stofn- aði hann ásamt fleirum útgerð- arfélagið Búðarnes sem gerði út línubátinn Guðnýju ÍS 266 og var hann útgerðarstjóri bátsins í samfellt 30 ár. Sigurður var einn af stofnendum og hluthöfum Netagerðar Vestfjarða ásamt Guðmundi bróður sínum og fleir- um. Sigurður var virkur félagi í Framsóknarflokknum og dygg- ur stuðningsmaður hans alla tíð. Hann hóf á barnsaldri vinnu við búskap foreldra sinna á Góustöð- um og eftir fráfall þeirra hélt hann áfram búskap þar nánast til dauðadags. Útför Sigurðar fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 23. júlí 2011, kl. 14. Dráttarvélarnar standa í röð við túnjaðarinn á Góustöðum, en ábúandinn hefur lagt frá sér am- boðin, lokið sínu dagsverki á jörðinni sem hefur fóstrað hann frá fæðingu. Í skemmunni grænu handan árinnar má sjá ýmsa hluti sem hafa varðað leið hans í gegnum lífið. Verkfærin öll, hlutir úr ávinnsluvélum og dráttarvélun- um sem flestar eru af Massey Ferguson gerð, topplyklasett af öllum stærðum og gerðum, skrúfur og boltar í þúsundatali. Gamlar spyrnur og ýmislegt frá jarðýtuútgerðinni, tóg og taum- ar úr lóðabölum frá Guðnýjunni og ýmislegt fleira frá útgerðar- árunum. Gamlan númeraplatan Í 267 er þarna uppi á vegg, SÍS merkið, kaupfélagsmerkið og Framsóknarmerkið, ekki má gleyma því, allir þessir hlutir minna á lífshlaup mikils vinnu- þjarks. Hann tók þátt í mörgum helstu stórvirkjum í vegagerð á Vestfjörðum á fyrri hluta síð- ustu aldar og vann við gerð flug- vallarins á Skipeyri. Þá rak hann myndarlega útgerð í þrjá áratugi auk búskaparins á Góu- stöðum. Hann hafði sterkar skoðanir á flestu, var hreinskipt- inn án þess að særa. Þá var hann mjög stjórnsamur, stjórn- aði ávallt með vísifingri hægri handar. Það sem einkenndi hann þó mest var þessi eðlislæga for- vitni og áhugi á fólki og öllu því sem það tók sér fyrir hendur, skipti þá engu hver átti í hlut. Við tengdasynir hans höfum ætíð notið góðs atlætis og örlæt- is hjá þeim Sigga og Deddu sem við viljum þakka hér við leið- arlok Hans verður sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Kristinn og Samúel. Það eru margar minningar sem koma í hugann nú að leið- arlokum þegar við kveðjum Sigga eins og hann var alltaf kallaður. Það var gaman og lær- dómsríkt að alast upp í stórum bræðrahóp þar sem sjö strákar voru saman og oft bættust við nokkrir strákar af næstu bæj- um. Þá var oft glatt á hjalla í fót- bolta, slábolta og öðrum leikjum. Þá reyndi oft á þolinmæði mömmu. Eftir að pabbi dó var Siggi að mestu aðalbóndinn á Góustöðum. Síðan gerðist hann útgerðarmaður þegar hann keypti vertíðarbátinn Guðnýju af frystihúsinu á Djúpavogi. Það var eins og hann væri kominn í uppáhaldsstarfið þegar hann fór að fást við útgerðina. Tekið var til þess hvað hann sinnti þessu stafi vel. Alltaf mættur niðrá bryggju þegar báturinn kom að til að kanna hvort eitthvað vant- aði, taka þátt í uppskipun á afl- anum og ræða við menn um út- gerðina. Þó var hugurinn mikið við bú- skapinn sem hann sinnti alla sína tíð ásamt rekstri á ýtum, oftast í verktöku hjá Vegagerð- inni. Það eru ekki stórir kaflar á vegunum kringum Skutulsfjörð sem Siggi hefur ekki komið ná- lægt. Ég minnist hans í Súðavík- urhlíðinni þar hátt uppi í fjalli við að móta veginn inn í Súðavík, og ekki má heldur gleyma veg- inum út í Bolungarvík sem hann var oft viðriðinn. Eftir að ég flutti frá Ísafirði urðu samverstundirnar færri. Samt var ávallt farið einu sinni á sumri vestur. Siggi hélt oft myndarlega upp á afmælið sitt og þá var sjálfsagt að fara og kynnast hinum stóra hópi vina og kunningja Sigga sem heimsóttu hann. Ég minnist sérstaklega sjötugsafmælisins sem haldið var á Grænagarði þar sem hátt á annað hundað manns mættu í mikinn gleðskap. Ég og sonur minn fórum vestur nú í byrjun júlí. Siggi var þá orð- inn mikið veikur svo við sáum að hverju stefndi. Við skruppum í sund á Súgandafirði. Þar hitti ég gamlan verkstjóra í heita pott- inum sem spurði: „Ert þú ekki bróðir Sigga Sveins?“ Að sjálf- sögðu játti ég því, og spurði á móti: „Þekkirðu Sigga?“ og svarið var: „Já, það þekkja allir Sigga Sveins.“ Þannig var Siggi, maður sem allir þekktu að góðu einu. Siggi var hamingjumaður í sínu einkalífi. Hann giftist Gerði Pétursdóttur frá Hafnardal. Þau eignuðust 3 börn en eitt barn átti Siggi áður en þau giftust. Það var alltaf jafn ánægulegt að heimsækja þau hjón á Ísafirði er við komum vestur og áttu Gerð- ur og börnin sinn stóra þátt í því. Siggi var ákveðinn í skoðun- um og mikill framsóknarmaður og fór ekkert leynt með það. Hafði gaman af kosningum og vann þá ötullega fyrir flokkinn. Hann var mikill stuðningsmaður Guðmundar Steingrímssonar og hafði áhuga á að hann mætti ávallt með bindi í ræðustól Al- þingis. Við söknum góðs bróður sem þoldi með okkur súrt og sætt og minnumst hans vegna léttleika og lífsgleði sem ávallt geislaði frá honum. Því skal þér bróðir þessi kveðja allshugar send þó orðfá sé því skulu þér þökkuð bróðir, öll hin liðnu ár. (Guðmundur Böðvarsson) Fjölskyldunni allri og vinum Sigga sendum við innilegar sam- úðarkveðjur og biðum góðan Guð að blessa minningu hans. Gunnar Sveinsson. Nú er Siggi Sveins mágur minn látinn. Hann var góður vinur sem mér þótti vænt um. Siggi var sérstakur karakter og gleðigjafi þó að hann væri ekki alltaf með blíðmæli á vörum. Hann var vinamargur og vinsæll og þekktur í sínum heimabæ og víðar. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Sigga. Hann var alltaf á spani. Hann kastaði sér, eins og hann sagði, niður í stól eða sófa, eftir matinn og svaf í nokkrar mínútur, svo spratt hann á fætur. Það var alltaf eitt- hvað sem lá á. Þegar Siggi var yngri var hann með ýtufyrirtæki og sjálfur ruddi hann marga fjallvegi í kringum Ísafjörð eins og hina illræmdu Óshlíð. Siggi var líka í útgerð en ég hugsa um Sigga sem bóndann á Góustöð- um. Þar rak hann lítið fjárbú. En þó búið væri ekki stórt var í ýmsu að snúast. Það þurfti að slá og heyja túnið. Seinni árin komu börn hans og afastrákur- inn Gauti þar mjög við sögu. Þegar ég hugsa um ótal ferðir okkar Gunnars til Ísafjarðar kemur upp í hugann logn í Djúp- inu og tilhlökkun að hitta fólkið á Ísafirði. Siggi var alltaf að bjóða í mat, en auðvitað var það Dedda konan hans sem bar hit- ann og þungann af öllu þessu matarstússi. Siggi var mikill gæfumaður í sínu einkalífi. Hann átti góða og sterka konu og börnin hans eru frábær. Það sama má segja um tengdabörnin og barnabörnin og litlu langafa- börnin skutu upp kollinum í kring um hann eins og lítrík blóm. Engin stóráföll dundu yfir fyrr en ellisjúkdómar fóru að láta á sér kræla. Þegar ég hugsa um tengda- fólk mitt á Ísafirði minnist ég Guðmundar elsta bróður Sigga og Eyju konu hans sem bjuggu þar með börnum sínum en nú eru þessi góðu hjón löngu horfin inn í annan heim. Þau hafa áreiðanlega verið í móttöku- nefndinni sem tók á móti Sigga þegar hann steig inn í sumar- landið á sama tíma og slátturinn hófst á Góustöðum. Elsku Dedda og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur sendi ég ykkur með þakklæti fyrir alla ykkar gestrisni og elskusemi við mig og mína gegnum árin. Fjóla Sigurbjörnsdóttir. Þegar ég var lítill átti ég það til að grúfa mig niður í sætið á rauðum Toyota Hilux í einstaka tilfellum. Það gerðist til dæmis þegar afi stoppaði á Hraðbraut- inni fyrir framan Seljaland til að henda grasi í Tunguána og stöðvaði umferð en mér alltaf til mikillar furðu var fólk aldrei reitt eða pirrað, þetta var bara Siggi Sveins að sinna sínum verkum og það beið ef þurfti. Einnig varð ég stundum smeyk- ur þegar hann keyrði á 90 án beltis á leiðinni í heyskap og mætti löggunni, þá var ég viss um að hann yrði tekinn en allt kom fyrir ekki, hann heilsaði Sigurður Sveinsson HINSTA KVEÐJA Í dag kveðjum við með söknuði kæran föðurbróður okkar Sigurð Sveinsson frá Góustöðum eða Sigga Sveins eins og hann var jafnan kallaður. Jafnframt minnumst við hans með þakklæti fyrir allar skemmtilegu stundirnar, ekki síst á ættarmótum okkar Góustaðafólks. Sög- ur af Sigga og hans hnyttnu tilsvörum munu gleðja alla um ókomna tíð. Kæri frændi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Kæra Dedda, Kiddý, Guðríður, Sigrún, Geir og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ragnheiður, Sigurbjörn og Gísli Gunnarsbörn og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, stjúpföður, tengdaföður, afa, langafa og bróður, SVEINS SÆMUNDSSONAR, Sóltúni 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem aðstoðuðu hann í veikindum hans. Sigríður H. Jóhannsdóttir, Gyða Þorgeirsdóttir, Hallur Karlsson, Ragnheiður Hallsdóttir, Jóhann Karl Hallsson, Hafdís Svava Ragnheiðardóttir og systkini hins látna. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, fósturföður, tengdaföður, bróður, afa og lang- afa SNORRA KRISTJÁNSSONAR bakarameistara, Dvergagili 9, Akureyri, Heba Bjarg Helgadóttir, Kristján Snorrason, Anna Lísa Óskarsdóttir, Júlíus Snorrason, Linda Ragnarsdóttir, Birgir Snorrason, Petra Guðmundsdóttir, Kjartan Snorrason, Sveindís I. Almarsdóttir, Anna Lára Finnsdóttir, Davíð Valsson, Kristín Sveinsdóttir, Einar Viðarsson, Matthea Kristjánsdóttir, Þórunn Kristjánsdóttir, afa og langafabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, ömmu, systur og frænku, RAGNHEIÐAR BRYNJÚLFSDÓTTUR viðskiptafræðings, Bleikargróf 11, Reykjavík. Smári Grímsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Vilhjálmur Goði Friðriksson, Sigríður Bríet Smáradóttir, Sigurður Sigurðsson, Steinunn Lilja Smáradóttir, Kristinn Már Matthíasson, Brynjúlfur Jónatansson, Smári Rúnar Róbertsson, Ragnheiður Anna Róbertsdóttir, Guðrún Gígja Vilhjálmsdóttir, Steinunn Erla Sigurðardóttir, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug í veikindum og við andlát og útför ástkærs eiginmanns og bróður, ÁGÚSTS BJÖRNSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar E-6 á Landspítalanum í Fossvogi. Þrúður Márusdóttir, Margrét Björnsdóttir, Björn Olsen. ✝ Jón Sæmunds-son fæddist á Lómatjörn í Höfð- ahverfi, Grýtu- bakkahreppi, S- Þing. 3. mars 1934. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 16. júlí 2011. Foreldrar Jóns voru Sæmundur Reykjalín Guð- mundsson, bóndi í Fagrabæ, f. 27. nóv. 1899, d. 2. apríl 1974, og kona hans Guðrún Jóns- dóttir, húsfreyja, f. 18. ágúst 1902, d. 27. ágúst 1993. Systk- ini Jóns eru: Guðbjörg, f. 1929, d. 1986, Valgerður, f. 1931, d. 2000, Guðmundur, f. 1932, d. 2005, Hallur Steingrímur, f. 1935, d. 1984, Anna, f. 1937, d. 1979, Sveinn, f. 1939, d. 2011, Tómas, f. 1943, Sigrún, f. 1944, og Baldur, f. 1946. Jón ólst upp frá fjögurra ára aldri í Fagrabæ í Grýtu- bakkahreppi. Eftir að barna- skólagöngu lauk gekk hann í Laugaskóla í Reykjadal í tvo vetur. Hann fór í nokkur ár til sjós og á vertíð til Vestmannaeyja og Grinda- víkur. Jón og Hallur bróðir hans tóku við búi foreldra sinna. Eftir að Hallur lést hélt Jón áfram búskap til æviloka. Útför Jóns verður gerð frá Laufáskirkju í dag, 23. júlí 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Jón frændi í Fagrabæ er dáinn. Hann var búinn að vera fastur punktur í lífi okkar systranna þegar við vorum að fara norður í land sem litlar stelpur með for- eldrum okkar. Þá var farið á tveggja ára fresti í heimsókn til ömmu og afa, þá voru Jón og Hall- ur bróðir hans þar líka. Eftir að afi dó þá bjuggu amma, Jón og Hallur í Fagrabæ og núna síðustu árin Jón einn. Það var alltaf gott að koma í Fagrabæ Einu sinni komum við í Fag- rabæ að sumri og þeir bræður voru á fullu að heyja og fylla í hlöðuna og þá tók ég eftir að hurð- irnar opnuðust allar inn í hlöðuna, svo ég spurði þá frændur mína hvernig þeir færu að því að opna inn í hlöðuna þegar allt væri orðið fullt, þeir urðu hálf skrítnir á svip- inn og áttuðu sig á því að þeir höfðu gleymt að breyta opnun- inni, þannig að þeir voru alla vega ánægðir með forvitnina í okkur. Jón talaði alltaf við okkur eins og jafningja og hlustaði alveg á það sem við höfðum til málana að leggja, hann var líka svolítið stríð- inn, en bara gaman að því. Börn okkar systra eru búin að vera að spyrja á hverju ári: För- um við til Jóns frænda í sumar? eða Verður ættarmót í Fagrabæ í sumar? Það hefur alltaf verið mik- il tilhlökkun hjá þeim að koma í Fagrabæ og þau vissu að við vær- Jón Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.