Morgunblaðið - 23.07.2011, Síða 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11 hefst
með biblíufræðslu fyrir alla. Einnig er
boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
Guðsþjónusta kl. 12. Eric Guðmunds-
son prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11.
Boðið upp á biblíufræðslu fyrir alla.
Guðþjónusta kl. 12. Bein útsending
frá kirkju aðventista í Reykjavík. Eric
Guðmundsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Sam-
koma á Selfossi í dag, laugardag, kl.
10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11.
Elías Theódórsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði |
Samkoma í Loftsalnum í dag, laug-
ardag, hefst með fjölskyldusamkomu
kl. 11. Björgvin Snorrason prédikar.
Biblíufræðsla fyrir börn, unglinga og
fullorðna kl. 11.50. Boðið upp á bibl-
íufræðslu á ensku.
Samfélag Aðventista Akureyri |
Samkoma í Gamla Lundi í dag, laug-
ardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu
fyrir alla. Messa kl. 12.
AKRANESKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 14.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messakl. 11.
Sr. Sigrún Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, organisti er Reynir
Jónasson og félagar úr kirkjukórnum
leiða söng. Kaffisopi á eftir.
BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11.
Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn
kantors Jónasar Þóris, prestur er sr.
Pálmi Matthíasson og messuþjónar
aðstoða. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Helgistund k.
11. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir, org-
anisti er Zbigniew Zuchowich og fé-
lagar úr kór Digraneskirkju leiða
söng. Sjá www.digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur, org-
anisti er Kári Þormar.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur sr. Jóhanna I. Sigmars-
dóttir, organisti er Kristján Gissurar-
son. Safnaðarheimilið Hörgsási 4.
EMMANÚELS BAPTISTAKIRKJAN
| Guðsþjónusta og sunnudagaskóli
(Mass & Sundayschool) kl. 12 í
Stærðfræðistofu 202 í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ á Skólabraut 6.
Á eftir er boðið upp á veitingar. Prest-
ur er sr. Robert Andrew Hansen.
Guðsþjónusta á ensku og íslensku
(in English & Icelandic). Skráning á
Biblíunámskeið er enn opin. Þurfi að
sækja er hægt að hringja í síma 847-
0081.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og
þjónar fyrir altari. Erlen Anna Stein-
arsdóttir verður fermd, en hún mun
jafnframt leika á selló. Bjartur Logi
Guðnason leikur á orgel og stýrir
safnaðarsöng. Sjá gardasokn.is
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. „Hattamessa“. Sr. Lena
Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari, organisti er Guðlaugur
Viktorsson og forsöngvari er Einar
Clausen. Kaffi á eftir.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng og
organisti er Árni Arinbjarnarson. Sam-
skot í líknarsjóð. Vegna sumarleyfa er
kirkjan lokuð alla vikuna.
GRUND dvalar- og hjúkrunar-
heimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Sveinbjörn Bjarnason messar og org-
anisti er Kristín Waage.
GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti |
Kvöldmessa kl. 20. Prestur sr. Sigríð-
ur Guðmarsdóttir, organisti er Hrönn
Helgadóttir, kór Guðríðarkirkju syngur,
meðhjálpari er Aðalsteinn Dalmann
Októsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sum-
arhátíðarmessa kl. 11. Ferming.Sr.
Þórhallur Heimisson, organisti er
Bjartur Logi Guðnason, Barbörukórinn
syngur. Kaffi á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt rev.
Leonard Ashford. Messuþjónar að-
stoða. Sögustund fyrir börnin. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja,
organisti Hörður Áskelsson. Alþjóð-
legt orgelsumar. Tónleikar laugard. kl.
12 og sunnudag kl. 17.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Organisti Douglas Brotchie og prestur
sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Samstarf Þjóðkirkjusafnað-
anna í Kópavogi. Sr. Magnús B.
Björnsson þjónar.
HJALTASTAÐARKIRKJA | Kvöld-
messa kl. 20.30. Prestur er sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir, organisti er
Suncana Slamning.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík |
Samkoma kl. 20. Mótorhjólaklúbbur-
inn Salvation Riders sér um samkom-
una.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Ólafur Hallgrímsson fyrrum prest-
ur á Mælifelli messar, organisti er Jó-
hann Bjarnason. Tónleikar kl. 14.
Björg Þórhallsdóttir sópran og Elísa-
bet Waage hörpuleikari.
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl.
18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa
kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30
(nema föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa
kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka
daga er messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk |
Messa kl. 11 og virka daga kl.
18.30. Laugardaga er messa á
ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og
virka daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Eiríksreið,
hjólað á milli kirkna á Suðurnesjum:
Keflavíkur-, Útskála-, Hvalsnes- og
Kirkjuvogskirkja heimsóttar. Einn liður
guðsþjónustunnar lesinn á hverjum
stað. Ferðin er farin til minningar um
sr. Eirík Brynjólfsson sem þjónaði
þessu svæði á fyrri hluta 20. aldar
og notaðist við hjólhest í embættis-
erindum sínum. Lagt er af stað frá
Keflavíkurkirkju kl. 10 og Komið er
aftur til Keflavíkur um kl. 16. Prestur
er sr. Skúli S. Ólafsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14.
Sr. Yrsa Þórðardóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari, organisti er Lenka Má-
téová kantor kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Lokað er í júlí
vegna sumarleyfa sóknarprests og
starfsfólks. Bent er á prestsþjónustu
og messur í Bústaðakirkju. Nánar á
langholtskirkja.is
LAUGARNESKIRKJA | Kvöldmessa
kl. 20. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir
segir frá lífi sínu og trú í tilefni af ný-
unninni sáttargerð Þjóðkirkjunnar
gagnvart henni. Erna Blöndal og Örn
Arnarson syngja og leika. Sr. Bjarni
Karlsson þjónar ásamt Vigdísi Mar-
teinsdóttur. Kaffi á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kyrrðar- og
bænastund kl. 20.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Ferm-
ing. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng, organisti Kári Allanson
og sr. Sigurvin Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kaffi á eftir.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í safnaðarheimili Grensás-
kirkju. Ræðumaður Daniel Taras-
senko.
SELJAKIRKJA | Messa í Skógarbæ
kl. 16. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórs-
son prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Aase Gunn Guttormsen
djákna. Félagar úr Kór Seljakirkju
leiða söng, organisti er Tómas Guðni
Eggertsson. Kvöldmessa í Seljakirkju
kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórs-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, org-
anisti er Tómas Guðni Eggertsson.
Altarisganga.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Sálmasöngur, hugvekja
og bæn. Prestur er sr. Frank M. Hall-
dórsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 17. Sr. Kristinn Ólason annast
prestsþjónustuna, organisti er Stein-
grímur Þórhallsson. Flutt verður tón-
list frá sumartónleikum helgarinnar.
Sóknarprestur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir
altari og prédikar, Ester Ólafsdóttir
organisti leiðir almennan safnaðar-
söng. Meðhjálparar eru Ólöf E. Guð-
mundsdóttir og Erla Thomsen.
ÞINGEYRAKLAUSTURSKIRKJA |
Guðsþjónusta fyrir heimamenn og
ferðamenn kl. 20. Sr. Sveinbjörn Ein-
arsson sóknarprestur, organisti er
Sigrún Grímsdóttir. Kaffi á eftir.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14.
Sr. Gunnar Björnsson predikar og
þjónar fyrir altari, organisti er Guð-
mundur Vilhjálmsson.
ÞÖNGLABAKKI í Fjörðum | Hin ár-
lega messa hefst kl. 14. Ekið er í
Fjörður jeppaveg F 839 í Hvalvatns-
fjörð (um klukkustund) og gengið það-
an í Þorgeirsfjörð (um klukkustund).
Bátsferð verður frá Grenivík. Þor-
steinn Eyfjörð Friðriksson stýrir bátn-
um. Sr. Bolli Pétur Bollason í Laufási
messar en Kristján Valur Ingólfsson
predikar. Kvennakórinn Fjörðurnar
syngur undir stjórn Arnhildar Val-
garðsdóttur. Lummukaffi eftir messu.
ORÐ DAGSINS:
Jesús kennir af skipi.
(Lúk. 5)
Morgunblaðið/ Einar Falur Ingólfsson
Kirkja á Sjávarborg í Skagafirði.
bara og að sjálfsögðu heilsaði
löggan til baka og hélt áfram
sína leið.
Kæri afi. Hin eilífa glettni en
þó ákveðni og útsjónarsemi ein-
kenndu þig betur en nokkuð
annað og það er með gífurlegum
trega sem ég kveð þig. Allt
stússið okkar saman, bragginn,
hafnarrúnturinn, heyskapur,
brennumál, Framsóknarmál og
síðast en ekki síst kleinuumræð-
ur eru hlutir sem verður sárt
saknað. Það voru forréttindi að
fá að umgangast þig og læra af
þér, afi. Takk fyrir allt saman.
Gauti Geirsson.
Okkur langar að minnast afa,
sem var stór hluti af lífi okkar
frá unga aldri til fullorðinsára.
Við eigum frábærar minning-
ar frá heimsóknum okkar til afa
og ömmu á Ísafirði. Alltaf var
tekið vel á móti okkur og alltaf
var nóg að gera. Ef við vorum
ekki á skíðum þá var ekkert
skemmtilegra en að fylgja afa í
hans daglega amstri. Þá var
rúntað og heilsað uppá kallana á
bryggjunni, setið í jarðýtunni og
mokað til á ruslahaugunum,
hænunum gefnir matarafgang-
ar, köttunum hafragrautur og
rollunum hey eða jafnvel ein-
staka sinnum gamlir súkkulaði-
snúðar úr Gamla bakaríinu, unn-
ið í bragganum eða í ýmsum
reddingum fyrir vini og vanda-
menn. Heyskapurinn á Góustöð-
um, smalamennskan og réttirn-
ar eru svo eitthvað sem við
munum aldrei gleyma.
Alltaf var gaman að fá afa og
ömmu í heimsókn til okkar í
Engjaselið og það lífgaði uppá
heimilið. Afi sýndi alltaf mikinn
áhuga á því sem við vorum að
gera á hverjum tíma og spurði
mikið og var mjög hreinskilinn
ef honum líkaði ekki eitthvað
sem hann heyrði. Ekki fannst
okkur heldur leiðinlegt þegar
hann dró uppúr veskinu einn
rauðan eða fjólubláan og sendi
okkur krakkana út í búð að
kaupa gotterí.
Það eru til mikið af góðum
sögum af afa okkar, enda átti
hann langa og viðburðaríka ævi.
Við minnumst hans fyrst og
fremst sem lifandi og gefandi
einstaklings sem var frábær afi
að eiga.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Halldór, Viðar og Kristrún.
Það var erfitt að setjast niður
til að skrifa minningarorð um
ástkæran afa sinn. Einhvern
veginn hefur maður alltaf búist
við því að hann væri alltaf til
staðar. Hann hafði alltaf verið
svo tengdur inn í okkar líf. Fjöl-
skyldan var honum svo mikil-
væg. Hann var afar félagslyndur
og honum fannst fátt skemmti-
legra en að fá alla fjölskylduna í
sunnudagskaffi á Hlíðarveginn.
Þar komu börn, barnabörn og
barnabarnabörn saman og áttu
skemmtilega stund. Þetta er bú-
ið að vera fastur punktur allt
okkar líf, þó svo við höfum ekki
alltaf búið fyrir vestan. Afi okk-
ar og „nafni minn“ var einstakur
maður. Hann var svo hreinn og
beinn og leyndi aldrei sínum
skoðunum. Sama gilti hvort
hann væri að tala um pólitík,
gaularana í söngnum, puðarana í
fótboltanum eða snjóþvegnu
gallabuxurnar sem hann sá
mann í í sjónvarpinu. Maður
fékk alveg að heyra það, að bux-
urnar hefðu alls ekki verið við-
eigandi fyrir sjónvarp.
Afi var mjög skemmtilegur
maður. Hann var iðulega glaður
í bragði og áhugasamur um það
sem við vorum að gera hverju
sinni. Það verða mikil viðbrigði
að hafa afa ekki með okkur í öll-
um fjölskylduboðunum, hvort
sem um er að ræða sunnudags-
kaffi eða stórhátíðir. Þar lék
hann á als oddi og var hrókur
alls fagnaðar. Á Góustöðum undi
afi sér best. Þar var hann í ára-
tugi með búskap og þar ólumst
við að miklu leyti upp, enda
bjuggum við stutt frá. Fastir
punktar í tilveru okkar á yngri
árum var heyskapurinn sem var
alltaf skemmtilegur og göngurn-
ar á haustin. Afi var ekkert að
flýta sér að tileinka sér tæknina
í búskapnum sem þýddi að við
krakkarnir fengum að taka
meiri þátt en ella. Gaman hefði
verið að börnin okkar hefðu líka
notið þeirra forréttinda að alast
upp við heyskapinn eins og við
gerðum, en ekki verður á allt
kosið í þessu lífi. Afi var alltaf í
einhverju stússi og var hann
duglegur að taka okkur með og
leyfa okkur að taka þátt. Mér
eru sérstaklega minnistæð öll
vorin sem maður fór niður í
slipp til að mála Guðnýjuna en
hana gerði hann út í tugi ára,
ásamt því að sinna búskapnum. Í
nokkur ár var hann einnig með
æðarvarp í Álftafirði og þar var
maður oft á tíðum að aðstoða.
Alltaf var maður eitthvað að
brasa með afa sínum, þvílík for-
réttindi. Hann fór með mann um
allar trissur, hvort sem það var
að fara á kaffistofuna hjá Braga
Magg í vélsmiðjunni, græja eitt-
hvað fyrir Guðnýjuna eða sækja
kindur. Þess á milli var farið í
kaffi á Hlíðarveginn eða í mat.
Þar beið okkar alltaf hún amma,
sem var afa stoð og stytta. Hún
var honum gríðarlega mikilvæg
og það sá maður sérstaklega síð-
ustu dagana sem afi lifði. Amma
tókst á við veikindi afa með
miklu æðruleysi og veitti honum
mikinn stuðning sem maður sá
að skipti hann öllu máli. En nú
er komið að kveðjustund.
Elsku afi, við munum sakna
þín sárt og ekki síður stelpurnar
okkar. Við þökkum þér af öllu
hjarta fyrir allan tíma sem við
höfum átt með þér og vonum að
þér líði vel á nýjum stað. Við
biðjum guð að veita ömmu styrk
í þessari miklu sorg. Hvíl í friði,
elsku afi okkar.
Sigurður og Elísabet.
Elsku langamma Kolla, takk
fyrir tíma okkar saman. Vonandi
líður þér vel þar sem þú ert.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín
Arnór Blær og Helena.
Fleiri minningargreinar
um Sigurð Sveinsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
um velkominn og vel tekið á móti
okkur, Jón gaf sér alltaf tíma til að
tala við krakkana. Við munum
heldur ekki eftir því að hann Jón
frændi hafi skipt skapi og aldrei
höfum við séð hann reiðan, en trú-
lega var hann þrjóskur eins og hin
systkinin, þetta með Fagrabæjar-
þrjóskuna.
Það verður skrítið að hugsa til
þess að þessi fasti punktur í ferða-
lögum okkar norður í land sé ekki
lengur til staðar og við eigum eftir
að sakna hans mikið.
Elsku frændi, við þökkum þér
fyrir allar góðu stundirnar sem
við höfum átt með þér í þessum
heimsóknum okkar í Fagrabæ og
þær hefðu alveg mátt verða fleiri.
Það er leiðinlegt að við systurn-
ar og fjölskyldur okkar getum
ekki komið og fylgt þér þennan
síðasta spöl. Hafðu þökk fyrir allt,
það verður tekið á móti þér hinum
megin af ömmu, afa og þessum
sex systkinum þínum sem fóru á
undan þér.
Hugprúð gleðjast hjörtu mædd,
herskrúðanum Drottins klædd.
Berjumst hart, ei hríð er löng,
hún mun enda í gleðisöng.
(Stefán Thorarensen)
Hvíl í friði, elsku frændi,
Guðrún og Sólveig.
Okkur langar að minnast vinar
og frænda Jóns í Fagrabæ með
nokkrum orðum. Leiðir okkar
hafa legið saman allar götur frá
unga aldri og samvistir verið
miklar. Um langan tíma höfum við
átt samleið við bústörfin, í kart-
öflurækt en þó einkum við sauð-
fjárrækt. Við deildum ófáum
stundunum í eftirminnilegum
ferðum okkar í fjárrekstrum og
göngum bæði á Flateyjardal og í
Fjörðum þar sem Jón naut sín
sem aldrei fyrr. Jón var búsmali
mikill, afar fjárglöggur maður og
var fljótur að sjá hvaðan féð var
þegar hann var til fjalla og heima
við þekkti hann sínar ær með
nöfnum og gat rakið ættir þeirra.
Oft á tíðum var Jón á rúntinum á
þeim „rauða“, ekki alltaf á réttum
kanti því hann var að horfa á eftir
fé, hann renndi í hlaðið í Áshóli,
spurði frétta og sagði fréttir, þá
helst af veðri og sauðfé. Jón var
einkar stundvís maður, það þurfti
aldrei að bíða eftir honum, hann
var manna fyrstur á staðinn.
Jón bjó einn í seinni tíð og leit-
aði sér oft aðstoðar hjá okkur,
einnig var hann greiðvikinn ef til
hans var leitað. Framan af var
Jón harður karl en með árunum
varð hann hinn mesti ljúflingur.
Stelpunum okkar þótti gott að
koma með okkur í Fagrabæ, setj-
ast við eldhúsborðið hjá Jóni
frænda, þiggja kexköku og ræða
málin.
Hann var fyrst og fremst sauð-
fjárbóndi og um það snerist líf
hans í einu og öllu. Hann starfaði í
nánum tengslum við umhverfi sitt
þar sem náttúran og dýraríkið
skipti hann miklu máli. Hann
starfaði við bú sitt fram á síðasta
dag og vorum við að smala fé í
Fagrabæ til að koma því á fjall,
þegar kallið kom, það gerðist
snöggt, hann fór á sjúkrahús og
átti ekki afturkvæmt heim.
„Bóndi er bústólpi, bú er lands-
stólpi“ eru þekkt orð skáldsins
Jónasar Hallgrímssonar. Þau eiga
vel við Jón og því skal hann virtur
vel. Seint verður þeim sem gera
landið byggilegra fullþakkað, en
þeir leggja rækt við framtíðina.
Líf Jóns mun lifa í minningu okk-
ar. Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í
friði.
Sveinn og Anna Bára
í Áshóli.
Mig langar til að minnast gam-
als sveitunga míns í nokkrum orð-
um, Jóns frá Fagrabæ. Þó ekki
væri langt á milli okkar í aldri þá
kynntumst við Jón ekki almenni-
lega fyrr en við vorum komnir af
unglingsárum og fórum að fara
saman í göngur. Jón var manna
harðastur á því sviði og var hann
iðulega settur í verstu verkefnin
enda þekkti hann öll örnefni og
kennileiti bæði á Flateyjardal og í
Fjörðum.
Sauðkindin átti Jón algjörlega
og það er vægt til orða tekið þegar
sagt er að hann hafi lifað fyrir
sauðfjárbúskapinn. Hann var allt-
af með hugann við kindurnar og
oft fórum við Jón saman út í
Fjörður á vorin til að athuga með
gróður áður en fé var rekið á fjall.
Jón var ótrúlega hjálpsamur mað-
ur og var alltaf boðinn og búinn til
þess að hjálpa mér og öðrum. Oft
kom ég við í Fagrabæ, bæði að
nóttu sem degi, þegar ég var í
snjómokstri og þáði þar góðgerðir
og alltaf var tekið jafn vel á móti
mér.
Síðustu árin lánaði Jón mér
líka pláss fyrir bátinn minn og var
hann alltaf tilbúinn að laga lend-
inguna ef á þurfti að halda. Eina
skilyrðið fyrir því að fá að hafa
bátinn í Fagrabæ var það að ég
byði honum ekki fisk í soðið.
Ég kveð góðan vin með sökn-
uði. Minning hans mun lifa.
Ingi Ragnar.