Morgunblaðið - 23.07.2011, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Þá er komið að því. Druslugangan
verður farin í dag og safnast verður
saman fyrir framan Hallgrímskirkju
kl. 14. Þaðan verður þrammað niður
Skólavörðustíg, Bankastræti og
Austurstræti og endar gangan með
veglegri dagskrá á Ingólfstorgi.
Þær María Lilja Þrastardóttir,
Anna Jóna Heimisdóttir, Ósk Gunn-
laugsdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir,
Ester Ásgeirsdóttir og Kamilla Ein-
arsdóttir standa fyrir framtakinu.
Hugmyndin kemur frá Toronto þeg-
ar Slut Walk var þar gengin í kjölfar
blöskrandi ummæla lögreglumanns-
ins Constable Michael Sanguinetti
en hann sagði að til þess að koma í
veg fyrir nauðgun ættu konur ekki
að klæða sig eins og druslur.
Þessum fordómum í garð fórn-
arlamba þarf án efa að breyta ekki
síðar en strax og er það einmitt til-
gangur göngunnar.
Ábyrgðin ekki fórnarlambsins
„Við viljum færa ábyrgð á kyn-
ferðisafbrotum úr höndum þolenda
yfir á hendur gerenda. Þó að maður
beri ábyrgð á sjálfum sér er það
aldrei á manns eigin ábyrgð ef mað-
ur verður fyrir ofbeldi,“ segir María
Lilja.
Aðspurð hvort hún verði mikið vör
við það að stúlkur sem eru létt-
klæddari en aðrar séu litnar horn-
auga svarar María Lilja því játandi.
Síðan stöllurnar hófu verkefnið hafi
þær fengið að heyra ýmsar ógeð-
felldar og leiðinlegar sögur frá fjölda
fólks sem gefi neikvæða sýn á fórn-
arlambið. „Ég held að flestir geti
tengt við það að hafa einhvern tím-
ann hugsað, sama hvort þeir séu
fórnarlömb eða þekki til fórn-
arlambs, að viðkomandi hefði nú
kannski átt að klæða sig öðruvísi,
hefði ekki átt að vera svona drukkin
eða hefði nú ekki átt að fara heim
með þessum manni. Það er kannski
það sem við viljum uppræta líka,
uppræta fordóma í sjálfum okkur.
Því um leið og við erum búin að
breyta okkur getum við farið að
breyta einhverju í kringum okkur“.
Brúðarslör og náttkjól
María Lilja segist eiga von á tals-
verðum fjölda í gönguna. Hún talaði
um að gjaldkerar í bönkum og fólk á
stöðum þar sem tilkynningum var
dreift sé spennt fyrir viðburðinum.
Allur gangur virðist vera á því
hvernig fólk ætli að mæta til fara.
„Ég veit að einhver ætlar að vera
með brúðarslör, önnur í náttkjól og
einhver ætlar að mæta í búrku. Svo
ætla sumar að vera hálf berar og
aðrar í venjulegum fötum. Þú mátt
klæða þig hvernig sem er, en það má
aldrei nauðga þér,“ segir María Lilja
að lokum.
Á Ingólfstorgi mun María Lilja
halda ræðu en einnig fulltrúar frá
Nei!-samtökunum og Stígamótum.
Þá verður atriði úr leikritinu Hárinu
og indí-hopp dansarar sýna hæfi-
leika sína.
Mikilvægt að breyta eigin hugsun fyrst
„Þú mátt klæðast hverju sem er, en það má aldrei nauðga þér,“ segir María Lilja Þrastardóttir
Léttklæddum stúlkum gefið hornauga fyrir klæðaburð sinn og kennt um nauðgun
Morgunblaðið/Eggert
Chicago Konurnar í druslugöngunni í Chicago senda skýr skilaboð: Það
býður enginn upp á það að vera nauðgað, gerandinn er aðeins sekur.
Ákveðin Unga konan klæddist þess-
um fötum þegar henni var nauðgað.Drusluganga Anna Jóna Heimisdóttir, María Lilja Þrastardóttir og Sara María fatahönnuður undirbúa gönguna.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 3 - 5:30 - 8 - 9:15 - 10:45 12
TRANSFORMERS 3D kl. 3 - 6 - 8 - 10:30 12
SUPER 8 kl. 11 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 12
CARS 2 3D Enskt tal kl. 8 12
KUNG FU PANDA 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 12:30 - 3 - 5:30 L TRANSFORMERS 3 3D kl.10:30 12
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 1:45 - 4:15 L TRANSFORMERS 3 kl. 8 12
CARS 2 3D Án texta kl. 8 L SUPER 8 kl. 10:20 12
HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:40 12 THE HANGOVER 2 kl. 8 12
HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 6:45 - 9:30 12 KUNG FU PANDA 2 Með ísl. tali kl. 1 - 3 - 5:30 L
HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 VIP PIRATES OF THE CARIBBEAN kl. 2 - 5:10 10
SÝND Í ÁLFABAKKA
á allar sýningar merktar með grænu1.000 kr.SPARBÍÓ 3D
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
"SVALARI BÍLAR
OG MEIRI HASAR"
- T.D. -HOLLYWOOD REPORT-
HHHH
-J.C. -VARIETY
HHHH
-P.T. -ROLLING STONES
FRÁ HÖFUNDUM
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, OG KRINGLUNNI
ATHUGIÐ GLÆNÝ STUTTMYND SÝND Á UNDAN CARS 2
LEIFTUR MCQUEEN OG KRÓKUR ERU AFTUR MÆTTIR,
BETRI EN NOKKURN TÍMANN