Morgunblaðið - 30.07.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 177. tölublað 99. árgangur
FRUMLEGT OG
FORNESKJULEGT
Í KÓLUMBÍU
MILLJÓNIR Í
SKUGGA ÁTAKA
OG ÞURRKA
LISTMUNIR, TÍSKA
OG ÍSLENSKT
GÓÐGÆTI
SUNNUDAGSMOGGINN HANDVERKSHÁTÍÐ 10TÍSKUSÝNING 39
Umferð var þétt frá Reykjavík í gær eins og við mátti búast
um verslunarmannahelgi. Flestir virtust leggja leið sína vest-
ur og norður en töluvert minni umferð var um Suðurland.
Lögreglan í Borgarnesi segir að umferðin hafi að mestu leyti
gengið vel fyrir utan árekstur sem varð á Vesturlandsvegi við
Leirá. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl til Akraness. Þeir voru
þó ekki alvarlega slasaðir en bílarnir voru töluvert skemmdir.
Þéttur straumur lá til Akureyrar en samkvæmt upplýsingum
lögreglu þar gekk umferð ljómandi vel. Að sögn lögreglunnar
á Selfossi og á Hellu var umferðin um Suðurland svipuð og
aðrar helgar í júlí. Umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík
sagði umferðina hafa gengið vonum framar.
Þétt setnir bílar þeysa úr bænum um verslunarmannahelgi
Morgunblaðið/Ernir
Júlímánuður,
sem rennur sitt
skeið á morgun,
er yfir meðal-
lagi hvað varð-
ar fjölda sól-
skinsdaga, lítið
hefur rignt og
því eru kvart-
anir með öllu ástæðulausar. Þetta
segir Sigurður Þór Guðjónsson
veðursérfræðingur sem fylgst hef-
ur með veðrinu í 45 ár. Meðalhitinn
í Reykjavík er 1,8 gráðum yfir
meðallagi og úrkoma er helmingi
minni en í meðalári. » 12
Hitinn í júlí 1,8 gráð-
um yfir meðallagi
og úrkoma lítil
Kostnaður við nýju skurðstof-
urnar í Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja, sem hafa staðið ónotaðar í
eitt ár, nam um 170 milljónum
króna. Skurðstofurnar voru teknar
í notkun árið 2008 og hafa því ekki
verið mikið notaðar.
Hugmyndir voru uppi um að nýta
skurðstofurnar til að taka á móti
sjúklingum frá útlöndum, sem
kæmu hingað til lands í sérhæfðar
aðgerðir. Ríkiskaup efndu til út-
boðs og rann frestur til að taka til-
boðum út 9. mars. Velferðar-
ráðherra veitti leyfi til útleigu 11.
júlí sl. en það var of seint og tæki-
færið gekk ríkinu úr greipum. »6
Sjúkrastofur kost-
uðu 170 milljónir
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Dæmi er um að höfuðstóll íbúð-
arlána hafi á skömmum tíma
hækkað um hærri upphæð en sem
nemur skuldalækkun sem fólk fær
í gegnum svokallaða 110% leið.
Ástæðan fyrir þessu er verðbólga í
vexti, en hún mælist nú 5% og sér-
fræðingar spá enn meiri verðbólgu
síðar á þessu ári. Íslensk heimili
eru í hópi skuldsettustu heimila í
heimi.
Verðbólga mældist 1,8% í jan-
úar, en er komin upp í 5% og stefn-
ir hærra. Aukin verðbólga þýðir að
kaupmáttaraukningin sem kjara-
samningarnir áttu að færa launa-
fólki skilar sér ekki. Áhrif verð-
bólgunnar á lán heimilanna eru
ekki síður slæm vegna þess að lán-
in eru verðtryggð.
Íslensk heimili eru í öðru sæti á
lista Seðlabanka Íslands yfir skuld-
settustu heimili í heimi. Aðeins írsk
heimili eru með meiri skuldir. Ís-
lensk heimili skulda 110% af lands-
framleiðslu, en hlutfallið er um
90% í Bandaríkjunum og um 70% í
Grikklandi. Seðlabankinn bendir á
að miklar skuldir íslenskra heimila
skýrist að hluta til af því að hlutfall
heimila í eigin húsnæði er með því
hæsta sem gerist í heiminum.
„Skuldir heimila sem hlutfall af
ráðstöfunartekjum á árunum 2000-
2010 hafa aldrei verið hærri, en lík-
legt er að hlutfallið lækki örlítið á
árinu 2011,“ segir í Fjármálastöð-
ugleika Seðlabanka Íslands. »6
Verðbólgan étur
skuldalækkunina
Íslensk heimili hársbreidd frá heimsmeti í skuldsetningu
Morgunblaðið/RAX
Eignasafn Seðlabanka Íslands var
ekki stofnað á grundvelli neinna
ákvæða í lögum um Seðlabanka Ís-
lands. Hinsvegar kemur fram í svari
bankans við spurningum Morg-
unblaðsins að lögin um Seðlabanka
hafi ekki útilokað stofnun félagsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Umboðsmaður Al-
þingis leitað svara við spurningum
um lagalegar heimildir að baki
stofnun Eignasafnsins.
Eignasafn Seðlabanka Íslands var
stofnað í árslok 2009 og er það í fullri
eigu Seðlabankans. Tilgangur fé-
lagsins er eignarhald á kröfum og
fullnustueignum bankans í kjölfar
bankahrunsins og fellur ekki undir
reglubundna starfsemi hans. Í svari
bankans er stofnun félagsins rök-
studd með vísun í fræðigrein sem
varar við að seðlabankar reki slík fé-
lög. »16
Morgunblaðið/Ómar
Félag án
heimildar
Umboðsmaður
spyr um Eignasafn SÍ
1.700
Íslensk heimili skulduðu um 1.700
milljarða um síðustu áramót. Þetta
er um 110% af landsframleiðslu.
70%
Grísk heimili skulda 70% af vergri
landsframleiðslu.
5%
Verðbólgan mælist núna 5%.
‹ MIKLAR SKULDIR ›
»