Morgunblaðið - 30.07.2011, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Andlit Þjóðhátíðar Árni Johnsen er fyrsti maðurinn sem flestum dettur í hug þegar þeir heyra minnst á Þjóðhátíð í Eyjum. Farþegar með Herjólfi á leið til Vestmannaeyja geta keypt forláta
grímur með andliti Eyjamannsins þjóðkunna og eiga eflaust margir Árnar Johnsenar eftir að sjást í Dalnum um helgina, sérstaklega þegar hinn eini sanni Árni stýrir brekkusöngnum.
Ómar
Miklar umræður
eru um byggingu nýs
fangelsis og í
tengslum við það
stendur til að loka
fangelsunum í Kópa-
vogi og í Reykjavík og
flytja gæsluvarðhald í
nýja byggingu.
Fjármögnun fang-
elsis hefur verið mikið
í umræðunni, en þörf
fyrir fangelsispláss hefur aukist
verulega og öllum orðið ljóst að ekki
verður við núverandi ástand búið.
Brýn úrlausnarefni í fangelsismálum
eru annars vegar að ná niður þeim
kúf sem bíður afplánunar og hins
vegar að bæta fangelsisaðstöðu til
frambúðar. Í þeirri umræðu viljum
við vekja athygli á þeim góða grunni
sem býr í innviðunum á Eyrarbakka
þar sem Litla-Hraun er. Þekking og
aðstaða er þar til staðar og nálægð
við nauðsynlegar stofnanir. Sveitar-
félagið Árborg vill stuðla að því að
áfram verði byggt upp á Litla-
Hrauni. Til að auðvelda slíka upp-
byggingu hefur verið boðið að fella
niður gatnagerðargjöld þar.
Litla-Hraun býr að miklum mann-
auði og áratugalangri reynslu í
rekstri fangelsis. Ennfremur ríkir
góð sátt í samfélaginu um starfsem-
ina. Unnið hefur verið að því að bæta
meðferðarúrræði fyrir fanga og hef-
ur fangelsið notið þar góðs samstarfs
við Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Heilbrigðisstofnunina á Selfossi. Á
Litla-Hrauni er enn þörf á úrbótum
bæði í aðstöðu fyrir starfsmenn og
fanga. Þessar úrbætur mega ekki
sitja á hakanum þótt frekara fang-
elsisrými verði byggt, heldur þarf
þetta tvennt að haldast í hendur.
Vaxandi þörf er á fangelsi sem
annast afplánun meginþorra fanga í
landinu, Litla-Hraun er best til þess
fallið enda byggt á traustum grunni
þekkingar og aðstöðu. Lóð og að-
koma eru til staðar og velvilji íbúa og
sveitarfélagsins.
Fyrir sveitarfélagið Árborg er
Litla-Hraun stór vinnustaður enda
beitir bæjarstjórn sér fyrir upp-
byggingu og eflingu þess. Þetta er
mál sem við stöndum saman um óháð
stjórnmálaskoðunum og flokkum.
Við óskum eftir góðu samstarfi við
ríkið um framtíðaruppbyggingu
Litla-Hrauns og viljum þannig
leggja okkar lóð á vogarskálarnar
með hagkvæmar lausnir í fangels-
ismálum.
Eftir Andrés
Rúnar Ingason og
Eyþór Arnalds
» Við óskum eftir góðu
samstarfi við ríkið
um uppbyggingu Litla-
Hrauns og viljum leggja
lóð á vogarskálarnar
með hagkvæmar lausnir
í fangelsismálum.
Eyþór
Arnalds
Andrés Rúnar er formaður VG í Ár-
borg. Eyþór Arnalds formaður bæj-
arráðs Árborgar.
Litla-Hraun
er góður kostur
Andrés Rúnar
Ingason
Þegar ríkisstjórn
Íslands sótti um aðild
að Evrópusamband-
inu var því haldið að
þjóðinni að draum-
urinn um sameinað
ríki Evrópusam-
bandsins, eins konar
Sambandsríki Evr-
ópu, tilheyrði fortíð-
inni. Var þessi full-
yrðing meðal annars
byggð á því að áform-
in um að koma á stjórnarskrá fyr-
ir Evrópusambandið höfðu runnið
út í sandinn, þegar Frakkar og
Hollendingar höfnuðu henni í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Upp úr drögunum að stjórn-
arskrá Evrópu var samið plagg,
sem hlaut nafnið Endurskoð-
unarsamningur (Reform Treaty).
Sá samningur var samþykktur af
aðildarríkjunum ESB í Lissabon
og ber síðan nafn borgarinnar.
Ekki þótti þó ráðlegt að leggja
Lissabon-samninginn undir þjóð-
aratkvæði meðal aðildarþjóðanna,
sem á annað borð áttu þess kost
að koma sér undan því. Var Írland
því eina þjóðin sem lét fara fram
þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissa-
bon-samninginn, þar sem stjórn-
arskrá landsins mælir svo fyrir
um.
Írska þjóðin hafnaði Lissabon-
samningnum 2008. Ári síðar var
samningurinn aftur borinn undir
þjóðaratkvæði á Írlandi, og þá
samþykktur. Írland var þá komið í
miklar efnahagskröggur.
Í ljósi þess sem hér hefur verið
sagt er þeim mun fróðlegra að
fylgjast með umræðum innan Evr-
ópusambandsins um helstu leiðir
til að sambandið geti unnið sig út
úr skuldastöðu veikustu aðild-
arlandanna og þar með end-
urheimt trúverðugleika evrunnar.
Er flestum orðið ljóst að hug-
myndin um nánari samruna
ríkjanna lifir enn
góðu lífi. Í raun er
hún forsenda þess að
ESB komi fram sem
bjargvættur þeirra
ríkja, sem við verstu
skuldastöðuna glíma.
Fyrirmæli berast
frá höfuðstöðvum
Evrópusambandsins
um að hin skuldugu
ríki skeri niður rík-
isútgjöld sín. Gegn
slíkum ráðstöfunum
fæst lenging lána og
væntanlega greiðari
aðgangur að lánsfé, þar sem
stöndug ríki sambandsins virðast
vera að ganga í ábyrgð fyrir þau
skuldugu.
Með sameiginlegan gjaldmiðil
að vopni, sem ekki verður geng-
isfelldur vegna slæmrar stöðu
nokkurra aðildarþjóða, hafa skuld-
um vafðar þjóðir evrusvæðisins
engu að síður nokkra kosti. Þær
geta stundað það, sem bandaríski
hagfræðingurinn Barry Eichen-
green kallar „innri gengisfell-
ingu“. Felst sú ráðstöfun í því að
laun, eftirlaunagreiðslur og aðrir
kostnaðarliðir eru lækkaðir. Að-
gerðir af þessu tagi eru okkur Ís-
lendingum kunnar. Um 1989
gengu þær hér á landi undir heit-
inu „niðurfærsluleið“. Heitið var
gagnsærra en „innri gengisfell-
ing“. Hins vegar er leiðin jafn
torrsótt í dag og hún var í lok ní-
unda áratugarins.
Í síðustu ráðstöfunum forystu-
manna ESB er gert ráð fyrir að
fjármálastofnanir og eigendur
fjármagns taki þátt í fórnunum.
Ekki er ljóst hve mikil sú þátttaka
verður. Evrópusambandið, eftir
áralangt japl, jaml og fuður, virð-
ist komið skemmra en þeir voru í
októberbyrjun 2008, Hank Paul-
son, Ben Bernanke og Timothy
Geitner. Um hálfum mánuði áður
en TARP-samkomulagið fór í
gegnum bandaríska þingið, höfðu
bandarísk stjórnvöld tryggt þátt-
töku allra stærstu bandarísku
einkabankanna við lausn Lehman-
vandans. Átti fórnarkostnaður
einkageirans að nema um 10 millj-
örðum Bandaríkjadala. Til þeirrar
björgunar kom þó ekki, eins og
kunnugt er, vegna afstöðu Breta.
Svarið við vanda evrusvæðisins
blasir við flestum þeim sem sann-
færingu hafa fyrir því að Evrópu-
sambandið eigi að þróast í átt til
sambandsríkis: það verður að
auka samrunaferlið. Hinir, sem
ekki eru sannfærðir um hugsjón-
ina um Sambandsríki Evrópu, en
vilja varðveita Evrópusamstarfið,
eru hljóðari um úrlausn vandans.
Hagfræðingurinn Nouriel Roub-
ini telst hafa mikla hlaupvídd, ekki
síst eftir að hann reyndist sann-
spár um lánsfjárkreppuna 2008. Í
nýlegri grein í Financial Times
fannst honum líklegt að evrusam-
starfið mundi leysast upp að öllu
óbreyttu. Nú er það svo að hag-
fræðingum er almennt sýnna um
að lýsa liðnu ástandi en að spá í
framtíðina.
Sú fullyrðing að hugmyndir um
samruna aðildarríkja ESB í eitt
evrópskt sambandsríki tilheyri
fortíðinni, hefur ekki reynst rétt.
Hún er enn við lýði. Hún er í raun
eina svarið sem forystumenn Evr-
ópusambandsins virðast hafa við
þeim erfiðleikum sem nú steðja að
sambandinu og evrunni sér-
staklega.
Eftir Tómas Inga
Olrich » Sú fullyrðing að hug-
myndir um samruna
aðildarríkja ESB í eitt
evrópskt sambandsríki
tilheyri fortíðinni hefur
ekki reynst rétt. Hún er
enn við lýði.
Tómas Ingi
Olrich
Höfundur er fv. alþingismaður
og ráðherra.
Draumalandið