Morgunblaðið - 30.07.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Þjóðhátíðargestir mættu margir
vopnaðir regnfötum í Landeyjahöfn í
gær vegna veðurspár um vætu í
Vestmannaeyjum um helgina. Allir
virtust farþegar þó spenntir fyrir
helginni.
„Þetta er einu sinni á ári, þúsundir
manna á okkar aldri að skemmta sér
og allir á einum stað í góðri stemn-
ingu,“ sögðu strákarnir Andri Már
Sigurðsson, Jón Atli Hermannsson,
Tryggvi Þór Jóhannsson og Arnór
Gunnar Ingvarsson er þeir biðu eftir
Herjólfi. Allir höfðu farið á Þjóðhátíð
áður og líktu helginni við stutta utan-
landsferð.
Í Landeyjahöfn var einnig mættur
hópur ungra stúlkna sem voru allar
klæddar í eins peysur, alls ellefu vin-
konur. „Það er bara meiri stemning
að vera í pollagalla,“ sagði ein þeirra
um veðrið. „Þegar maður er búinn að
fara einu sinni verður maður að fara
aftur,“ sagði vinkona hennar.
Kristbjörn Hilmir Kjartansson sat
með gítar í hendi í biðsalnum og var á
leið til Eyja með vinum sínum Grét-
ari Jónssyni, Mikael Dubik og Gunn-
ari Baldurssyni. „Það er ekki spurn-
ing að við hlökkum til,“ sögðu
strákarnir um ferðina.
Eru alltaf í Skvísusundi
Dagný Loftsdóttir er enginn ný-
græðingur þegar kemur að Þjóðhátíð
en hún hefur farið alls tíu sinnum.
„Við erum í hvítu tjaldi og erum alltaf
í Skvísusundi. Þetta er mikill und-
irbúningur, við þurfum til dæmis að
innrétta tjaldið og baka nóg af kök-
um,“ segir Dagný og hvatti bæði
blaðamann og ljósmyndara að drífa
sig til Eyja í heimsókn.
Skipstjórinn Guðlaugur Ólafsson
sagði siglingar hafa gengið vel. „Fólk
er rólegra en oft áður en farþegar
eru færri en undanfarin ár. Þetta
stefnir þó í góða hátíð, prýðiskrakkar
og ekkert vesen,“ sagði skipstjórinn.
Hann er úr Eyjum en mun ekki kom-
ast í Herjólfsdal í ár. „Ég fæ smjör-
þefinn af stemningunni hér,“ sagði
Guðlaugur hress í bragði áður en lagt
var af stað. kristel@mbl.is
Reynslubolti Dagný Loftsdóttir, fyrir miðju, beið í Landeyjahöfn ásamt vinkonum sínum í gær. Hún hefur farið alls
tíu sinnum á Þjóðhátíð, verður í hvítu tjaldi í Skvísusundi í Herjólfsdal um helgina og hlakkar mikið til.
Morgunblaðið/Ómar
Vinkonur Þessi stúlknahópur beið eftir Herjólfi í Landeyjahöfn í gær en þær ætla að endurtaka leikinn frá því í fyrra og mæta í eins peysum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Alls verða þær ellefu
talsins sem skarta bleiku peysunum í Herjólfsdal um helgina. Þær sögðu peysurnar hafa vakið lukku um helgina og að vinsælt væri að vinahópar væru í merktum fatnaði eða jafnvel búningum.
Gítarstemning Gunnarr, Mikael, Kristbjörn og Grétar biðu eftir skipinu og styttu sér stundir með
gítar sér við hönd. Tveir þeirra höfðu farið áður á Þjóðhátíð og tveir voru að fara í fyrsta sinn.
Undirbúnir Andri, Arnór, Tryggvi og Jón Atli biðu þolinmóðir en spenntir eftir að Herjólfur
ferjaði þá yfir til Vestmannaeyja. Þeir líktu Þjóðhátíð við utanlandsferð.
Meiri stemning í pollagalla
Þjóðhátíðargestir flykktust til Land-
eyjahafnar fyrir helgina langþráðu