Morgunblaðið - 30.07.2011, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 211. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Andlát: Óskar Ágústsson
2. Fréttatíminn: Vínbirgðir kyrr…
3. Myrti næstum unnustu leigu…
4. Fyrir og eftir myndirnar af…
Hljómsveitin Góðir landsmenn leik-
ur fyrir dansi á balli í Réttinni í Úthlíð
í Biskupstungum í kvöld. Hljóm-
sveitin spilar þar annað árið í röð en í
fyrra skapaðist mikil og góð stemn-
ing. Um klukkan 16 verður boðið upp
á barnaskemmtun en á staðnum er
sundlaug, leiktæki o.fl. Fjörinu verður
þá haldið áfram kl. 22 með brekku-
söng og taka svo við Góðir lands-
menn. 2.000 krónur kostar á ballið
og er 20 ára aldurstakmark. Nánari
upplýsingar má finna á uthlid.is.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sveitaball og barna-
skemmtun í Úthlíð
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt og væta af og til, eink-
um sunnanlands. Hiti víða 11 til 18 stig.
Á sunnudag Austlæg átt 5-13 m/s. Skýjað með köflum og þurrt að kalla á N- og V-landi,
annars dálítil súld eða rigning. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á V-landi.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna) Austan og norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 á
SA-til og NV-lands. Rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið um landið vestanvert.
Fimmtíu ungir og efnilegir fim-
leikastrákar frá Íslandi, Danmörku og
Noregi hafa í vikunni verið í æf-
ingabúðum í glæsilegum sal fim-
leikadeildar Ármanns í Laugar-
dalnum. Markmiðið með
æfingabúðunum er að búa til ólymp-
íufara framtíðarinnar að sögn Axels
Bragasonar þjálfara og er um sam-
norrænt verkefni að ræða. »4
Fimmtíu norrænir fim-
leikastrákar við æfingar
Unglingalandsmót Ung-
mennafélags Íslands er haf-
ið á Egilsstöðum og þar
verður margt um manninn
um helgina en í gær var
áætlað að um tíu þúsund
manns væru þegar komin á
staðinn. Krakkar og ung-
lingar reyna með sér í hin-
um ýmsu íþróttagreinum.
Knattspyrna er fjölmenn-
asta greinin á mótinu með
um 660 keppendur. »3
Ungviðið keppir á
Egilsstöðum
„Mér finnst það vera mikill heiður að
fá að taka við landsliðinu og ég hef
mikla trú á því að hægt sé að gera
góða hluti með þetta lið,“ sagði
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik kvenna, í
samtali við Morg-
unblaðið í gær en
hann mun stýra
landsliðinu út ár- ið
2013. »1
Ágúst heldur áfram
með kvennalandsliðið
Morgunblaðið kemur næst út þriðju-
daginn 2. ágúst. Fréttaþjónusta
verður á fréttavef Morgunblaðsins
mbl.is alla verslunarmannahelgina.
Hægt er að koma ábendingum um
fréttir á netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftar er opið í
dag, laugardaginn 30. júlí, frá kl. 8-
13. Lokað er sunnudaginn 31. júlí og
mánudaginn 1. ágúst. Þjónustuverið
verður aftur opnað þriðjudaginn 2.
ágúst kl. 7.00. Netfang áskriftadeild-
ar er askrift@mbl.is og síminn er
569-1122.
Blaðberaþjónusta Morgunblaðs-
ins er opin í dag, laugardag, frá kl. 5-
11. Lokað er sunnudaginn 31. júlí og
mánudaginn 1. ágúst. Blaðberaþjón-
ustan verður aftur opnuð þriðjudag-
inn 2. ágúst kl. 5.00. Netfangið er
bladberi@mbl.is og síminn er 569-
1440. Hægt er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is.
Fréttaþjónusta á
mbl.is um helgina
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Þjóðhátíð í Eyjum fékk heldur
blauta byrjun í gær á meðan veð-
urblíðan lék við hátíðargesti Einn-
ar með öllu á Akureyri og Ung-
lingalandsmóts UMFÍ á
Egilsstöðum.
„Hér er yfir 20 stiga hiti og dag-
skrá í fullun gangi. Allt hefur stað-
ist áætlun og einu kvartanirnar
sem ég hef fengið er að hér sé of
heitt. Ég hef ákveðið að bregðast
ekki við þeim!“ sagði Heiður Vig-
fúsdóttir, verkefnastjóri Unglinga-
landsmótsins, í gærkvöldi.
Í kringum 1.200 ungmenni eru
skráð til leiks á mótinu og segist
Heiður gera ráð fyrir að alls muni
í kringum 8-10 þúsund manns
sækja Egilsstaði heim um helgina
enda komi jafnan foreldrar, systk-
ini og jafnvel afar og ömmur með
til að hvetja unlingana til dáða.
Á Akureyri stefnir í nýtt fjölda-
met Einnar með öllu en að sögn
Skúla Gautasonar, framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar, er áætlað að
yfir átta þúsund manns séu komin
í bæinn og eru það fleiri en
áður hefur verið á sama
tíma.
„Það er stanslaus
umferð í bæinn og
vel tekið á móti fólki,
það fær dagskrá hátíð-
arinnar og drykk í bíl-
inn og kemst strax í
hátíðarskap,“ sagði
hann í gær. 18
stiga hiti væri í
bænum, logn, ekki glampandi sól
en þurrt; yndislegt veður.
Rigningin ekki svo slæm
Í Vestmannaeyjum gera menn
ráð fyrir að Þjóðhátíð verði heldur
fámennari en í fyrra, þá sóttu 17
þúsund manns Eyjar heim en í ár
er gert ráð fyrir 14 þúsund gest-
um. Páll Scheving, formaður
Þjóðhátíðarnefndar, segir veðrið
augljóslega setja strik í reikning-
inn en engu að síður verði dúndr-
andi stemning í dalnum.
„Já, heldur betur. Rigningin er
ekki svo slæm, meðan ekki er mik-
ill vindur með,“ segir Páll. Vanir
hátíðargestir viti að um þá verði
séð. „Ef í harðbakkan slær getum
við opnað húsnæði í eigu bæjarins,
t.d. íþróttamannvirki, og hleypt
fólki inn í þurrt skjól. Fólk treyst-
ir okkur til þess að taka á móti
sér.“
Veðrið spilar með fjöldann
Hlýindi lokka norður og austur en
regnhlífar risu á loft í Herjólfsdal í gær
Morgunblaðið/Ómar
Herjólfur Farþegar á leið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum biðu spenntir eftir að komast um borð í Herjólf áður en hann lagði af stað frá Landeyjahöfn í gær.
„Þetta hefur gengið mjög vel
og farþegarnir eru flestir al-
veg til fyrirmyndar,“ sagði
hafnarstjórinn Sigmar Jóns-
son um verslunarmannahelg-
ina í ár. Herjólfur siglir fleiri
ferðir en venjulega milli Eyja
og Landeyjahafnar fyrir og
eftir helgi. Síðustu daga hef-
ur skipið farið átta ferðir á
sólarhring en á laugardag og
sunnudag verður siglt eftir
venjulegri áætlun. Á
mánudag mun ferð-
um skipsins fjölga
á ný.
Farþegar til
fyrirmyndar
HERJÓLFUR
MMeiri stemning í pollagalla »18