Morgunblaðið - 30.07.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
HAUST 3
Í fögru umhverfi inn á milli fjalla í Þýskalandi, Sviss og hinu margrómaða Alsace héraði í
Frakklandi munum við dvelja í þessari rómantísku ferð. Flogið til München og þaðan
ekið til Füssen í Allgäu, líflegs bæjar á milli Ammergauer og Allgäuer Alpanna, þar sem
gist verður í 3 nætur. Við njótum tignar Alpanna, skoðum ævintýrahallirnar
Neuschwanstein og Hohenschwangau, sem hafa gert þetta að einu eftirsóttasta
ferðamannasvæði landsins. Þaðan verður ekið til Luzern við Luzernvatn í Sviss með
viðkomu í Lindau við Bodensee. Luzern er ein skemmtilegasta borg landsins og verður
gist þar í 5 nætur. Við förum í siglingu á Luzernvatni með viðkomu í litlum bæjum við
vatnið. Förum einnig með kláfi upp á fjallið Pilatus og komum til menningarborgarinnar
Zürich. Ljúkum ferðinni á að aka töfrandi leið um Alsace vínslóðina til Strasbourg, með
viðkomu í bænum Riquewihr, þar sem eru falleg bindingsverkshús. Gist í Strasbourg í 2
nætur og farið í skoðunarferð um borgina áður en flogið er heim á leið frá Frankfurt.
Fararstjóri: Jóhannes Örn Vigfússon
Verð: 235.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu,
sigling á Luzernvatni, Gullni hringurinn á Pilatus fjallinu og íslensk fararstjórn.
15. - 25. september
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Í hjarta Sviss
Fjármálaráðherrar Þýskalandsog Frakklands, þeir Wolfgang
Schäuble og François Baroin, rit-
uðu grein um vanda Grikklands og
evrusvæðisins í FT í fyrradag. Með
greininni reyna þeir að senda út
tvíþætt skilaboð.
Annars vegar aðaðgerðirnar til
bjargar Grikklandi
séu trúverðugar og
hafi traustan stuðn-
ing. Hins vegar að
Evrópusambandið
þurfi að halda
áfram að þróast í átt
að meiri samruna á
sviði ríkisfjármála.
Fjármálaráð-herrar
ríkjanna tveggja sem leiða Evrópu-
sambandið segja að aðgerðirnar
hafi forðað því að vandi Grikklands
skaðaði evrusvæðið og evruna, „en
við erum engir einfeldningar,“
segja þeir, og bæta við að til að end-
urvekja traust á evrusvæðinu þurfi
„þolinmæði, verulegt úthald og
framtíðarsýn“.
Og framtíðarsýnin er skýr: Evr-ópusambandið þarf á að halda
„stöðugt meiri samstillingu og sam-
vinnu á sviði opinberra fjármála að-
ildarríkjanna“. Aðeins með því að
skylda evruríkin til að taka þátt í
þessu sé hægt að takast á við verk-
efnin sem framundan eru.
Ráðherrar þessara ráðandi ríkjavilja ekki að neinn velkist í
vafa um hvert förinni er heitið:
„Við munum ekki setja efnahags-
legan og pólitískan samruna Evr-
ópu í hættu, því hann er grundvöll-
ur okkar eigin hagsældar.“
Þetta er framtíðarsýn þess Evr-ópusambands sem ríkisstjórn
Samfylkingar og VG reynir að
koma Íslandi inn í.
Wolfgang
Schäuble
Framtíðarsýn ESB
STAKSTEINAR
François Baroin
Veður víða um heim 29.7., kl. 18.00
Reykjavík 12 alskýjað
Bolungarvík 14 skýjað
Akureyri 17 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 14 rigning
Vestmannaeyjar 11 rigning
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 12 alskýjað
Ósló 23 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 skýjað
Lúxemborg 21 skúrir
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 20 léttskýjað
London 20 skýjað
París 22 skýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 15 skúrir
Vín 21 skýjað
Moskva 27 skýjað
Algarve 22 skýjað
Madríd 30 skúrir
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 25 alskýjað
New York 25 alskýjað
Chicago 26 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:28 22:41
ÍSAFJÖRÐUR 4:10 23:10
SIGLUFJÖRÐUR 3:52 22:53
DJÚPIVOGUR 3:52 22:16
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt Benedikt Pálmason í þriggja
ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefna-
brot. Þá voru gerð upptæk rúmlega
3,8 kílógrömm af amfetamíni. Einnig
þarf hann að borga rúmlega 650 þús-
und í sakarkostnað. Þar með talda
445 þúsund króna þóknun til skipaðs
verjanda síns, Leifs Runólfssonar
héraðsdómslögmanns.
Efnin ætluð til sölu
Benedikt var háseti á flutninga-
skipinu Goðafossi og notfærði sér að-
stöðu sína til að flytja inn amfeta-
mínið. Efnin voru ætluð til
söludreifingar í ágóðaskyni. Hann
tók á móti efnunum af óþekktum að-
ila í Rotterdam í Hollandi mánudag-
inn 6. júní síðastliðinn.
Benedikt faldi efnin í Goðafossi og
þegar skipið lagði að höfn í Reykja-
vík hinn 13. júní síðastliðinn flutti
hann efnin yfir í bifreið. Lögregla
stöðvaði bifreiðina skömmu síðar og
fann efnin í bílnum.
Benedikt gerðist einnig sekur um
umferðarlagabrot þar sem hann
hafði ekki gilt ökuleyfi.
Benedikt játaði brot sitt skýlaust
og var það metið honum til hagsbóta.
Játningin og önnur gögn málsins
þóttu sanna að hann hefði gerst sek-
ur um þá refsiverðu háttsemi sem
honum hafði verið gefin að sök.
Mjög hreint efni
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að um var að ræða mikið magn
hættulegra fíkniefna af miklum
styrkleika. Samkvæmt matsgerðum
rannsóknarstofu Háskóla Íslands í
lyfja- og eiturefnafræði var styrkur
amfetamínbasa í efnasýnum á bilinu
68 til 70% sem samsvarar 92-98% af
amfetamínsúlfati.
Þá leit dómurinn til þess að ekki
hefði komið fram í málinu að Bene-
dikt væri svokallað burðardýr og að
hann hefði áður gerst sekur um
refsiverða háttsemi. Benedikt krafð-
ist vægustu refsingar sem lög leyfa
og að hún yrði skilorðsbundin að öllu
leyti eða að hluta.
Í dómi héraðsdóms segir að vegna
alvarleika brotsins sé ekki hægt að
fallast á kröfu Benedikts og því var
hann dæmdur í óskilorðsbundið
fangelsi til þriggja ára. Til frádráttar
kom þó gæsluvarðhald sem hann
þurfti að sæta frá handtöku 13. júní
síðastliðinn.
Háseti nýtti að-
stöðu sína til
fíkniefnasmygls
Dæmdur í þriggja ára fangelsi
Morgunblaðið/Ómar
Amfetamínsmygl
» Benedikt Pálmason fékk
þriggja ára dóm fyrir stór-
felldan fíkniefnainnflutning.
» Flutti rúmlega 3,8 kg af am-
fetamíni til landsins með
Goðafossi þar sem hann var
háseti.
» Efnin voru af mjög miklum
styrkleika.
» Hefur áður gerst sekur um
refsiverða háttsemi.
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stef-
ánsson gerði jafntefli við rússneska
stórmeistarann Alexandre Danin í
áttundu og næstsíðustu umferð
Opna tékkneska sem fram fór í
Pardubice í Tékklandi í gær.
Fyrir lokaumferðina er Hannes
efstur með 7 vinninga. Fjórir stór-
meistarar koma humátt á eftir
Hannesi með 6,5 vinning.
Í lokaumferðinni, sem fram fer í
dag, teflir Hannes við úkraínska
stórmeistarann Dmitry Kononenko,
sem er með 2593
Elo-stig. Hannes
er með 2546 stig.
Skákin, sem
hefst kl. 13, verð-
ur sýnd beint á
heimasíðu móts-
ins. Hægt er að
komast á heima-
síðuna með því
að fara inn á
skák.is, sem er jafnframt að finna á
Moggablogginu.
Hannes Hlífar er í efsta
sæti fyrir lokaumferðina
Hannes Hlífar
Stefánsson