Morgunblaðið - 30.07.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er í raun engin áætlun komin
um uppbyggingu,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera-
gerði, aðspurð hvað tekur við eftir
stórbrunann í Eden 22. júlí síðast-
liðinn. Hún segir málið enn vera í
höndum tryggingafyrirtækis og að
eigandi lóðarinnar hafi ekki komið
fram með neina framtíðaráætlun
fyrir svæðið að svo stöddu.
Ekki verður byggt í sumar
Unnið hefur verið að niðurrifi
gamla Eden að undanförnu með
stórvirkum vinnuvélum og er sú
framkvæmd langt á veg komin. Seg-
ir Aldís það alveg ljóst að ekkert
verði byggt á lóðinni í sumar.
Eden stóð í miðbæ Hveragerðis
og því ljóst að um er að ræða svöðu-
sár í blómhnappi bæjarins. „Draum-
urinn er að eitthvað verði komið
þarna næsta sumar,“ segir Aldís og
bætir við að ekki liggi fyrir hvers-
konar rekstur taki við á lóðinni.
„Bærinn getur auðvitað ekki farið
og gripið fram fyrir hendurnar á
þeim sem þarna eiga lóðaréttindi og
voru með rekstur.“ Að sögn vonast
hún til að uppbygging geti hafist
sem fyrst.
Um fullnustueign að ræða
Eigandi lóðarinnar er Sparisjóður
Vestmannaeyja, sem einnig rekur
útibú á Suðurlandi. „Staðan er bara
sú að við sem eigendur að þessu
tjóni í sjálfu sér, erum að hefja við-
ræður við okkar tryggingafélag um
þessa stöðu sem upp er komin,“
segir Ólafur Elísson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja.
Hann segir sparisjóðinn hafa ver-
ið í ágætum samskiptum við bæj-
arskrifstofu Hveragerðis varðandi
stöðu mála og segir hann framvindu
máls verða áfram unna í góðri sátt.
„Lóðin og þessi eign er tilkomin í
grunninn sem fullnustueign,“ segir
Ólafur og bendir á að eignirnar hafi
verið til sölu í talsverðan tíma og
ekki hafi staðið til að sparisjóðurinn
yrði framtíðareigandi að þeim. Á
meðan eignin var til sölu var hún
jafnframt til útleigu hjá rekstrarað-
ilum sem önnuðust rekstur á eigin
vegum. „Í sjálfu sér hefur þessi
grundvallarmynd ekkert breyst.
Þessi verðmæti eru til sölu.“ Hann
segir ljóst að uppbygging gæti tekið
á sig breytta mynd frá fyrra hús-
næði. „Við munum leita eftir aðilum
til að annast þessa uppbyggingu.“
Að sögn mun sparisjóðurinn ekki
fara einn og sér í uppbyggingu og
rekstur á svæðinu.
Morgunblaðið/Ómar
Brunarúst Lítið sem ekkert stóð eftir stórbruna sem gjöreyðilagði Eden í Hveragerði. Sem stendur er engin áætlun komin um uppbyggingu.
Svöðusár í hjarta Hveragerðis
Morgunblaðið/Ómar
Auðn Dapurt er um að litast þar sem áður stóðu hýsakynni gamla Eden eftir að stórvirkar vinnuvélar hafa fjarlægt
nær allt brak eftir brunann fyrir rúmri viku. Vonir standa til uppbyggingar á lóðinni næsta sumar.
Ekki liggur enn
fyrir hvað reist
verður á lóðinni
SAFNIÐ Á HNJÓTI
Í ÖRLYGSHÖFN
Smíði árabáts
Verkefnið er fólgið í hefðbundnum vinnuaðferðum og
smíðað verður eftir gömlum trébát, sem var smíðaður
rétt eftir aldamótin 1900, á Bíldudal.
Hefst um miðjan maí 2012.
Áhugasömum er boðin þátttaka gegn hóflegu gjaldi.
Upplýsingar gefur Kristinn þór Egilsson í síma 456-1591.
Senda má fyrirspurn inn á www.hnjoturtravel.is
Í minningargrein um Svein R.
Jónsson sem birt var í Morg-
unblaðinu 27. júlí 2011 féll niður í
handriti höfundar nafn eins barna-
barna hans sem er Eiríkur Ari Pét-
ursson, sonur Péturs R. Sveins-
sonar.
Þeir feðgar eru beðnir velvirðingar
á þeim mistökum höfundar.
LEIÐRÉTT
Nafn eins barna-
barns vantaði
Vikan fyrir verslunarmannahelgi
hjá ÁTVR/Vínbúðum er ein anna-
samasta vika ársins í sölu á
áfengi. Heldur færri viðskiptavin-
ir munu versla við ÁTVR í ár ef
marka má sölutölur og tölur um
fjölda viðskiptavina síðustu daga.
Salan á áfengi hefur dregist
saman um 15% nú í vikunni fyrir
verslunarmannahelgi, miðað við á
sama tíma í fyrra og viðskiptavin-
um hefur fækkað.
„Samanborið við í fyrra erum
við með um 7,4% færri við-
skiptavini frá mánudegi til
fimmtudags,“segir Sigrún Ósk
Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri
ÁTVR í samtali við mbl.is í gær.
Um 60.440 viðskiptavinir höfðu
komið í verslanir ÁTVR á sama
tíma í fyrra, en um 56.260 í ár,
þar munar um 4.118 viðskiptavin-
um. Ekki lágu fyrir tölur um
fjölda viðskiptavina í gær, föstu-
dag, sem jafnan er annasamasti
dagur í vikunni fyrir versl-
unarmannahelgi. Í fyrra komu um
43 þúsund viðskiptavinir í vínbúð-
irnar þann dag.
Í fyrra seldust um 359.000 lítrar
á fyrstu fjórum dögunum sam-
anborið við 312.000 lítra í ár.
Sigrún segist gera ráð fyrir því
að áfengissalan í heildina verði
heldur minni en á sama tíma í
fyrra.
Rólegt hefur verið í Ríkinu
Morgunblaðið/Heiddi
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþing-
ismaður, gagnrýnir söluna á Sjóvá
og segir að hægt hefði verið að fá
hærra verð fyrir hlut ríkisins í
Sjóvá. Hann hefur óskað eftir því
að viðskiptanefnd Alþingis verði
kölluð saman til að fjalla um málið.
„Ekki var farið eftir verklags-
reglum sem lagt var upp með í
byrjun. Aldrei
hafa fengist nein
svör við neinum
spurningum sem
upp komu á með-
an unnið var að
málinu,“ segir
Guðlaugur.
Guðlaugur seg-
ist furða sig á því
að ríkisstjórnin
fari ekki eftir
verklagi sem hún hafi lýst marg-
sinnis yfir í stefnu sinni. „Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem hafa
komið fram er tilboðið ekki jafn
gott og hæsta tilboðið sem af ein-
hverjum óskilgreindum ástæðum
var ekki tekið.“
Fyrir tveimur árum kom ríkið
Sjóvá til bjargar og lagði fram tólf
milljarða króna inn í félagið. Í
fyrradag seldi Seðlabankinn svo
helmings hlut ríkisins í Sjóvá fyrir
tæpa fimm milljarða króna til líf-
eyrissjóða og fjárfesta.
Ríkið tapar 4,3 milljörðum
„Þeir sem keyptu hlutina nú,
hafa nú forkaupsrétt á þeim tutt-
ugu prósenta hlut sem Seðlabank-
inn sér um að selja. Seðlabankinn
verður því áfram virkur þátttakandi
á samkeppnismarkaði,“ segir Guð-
laugur.
Hann segir að ef þetta gangi eftir
fái ríkið 7,3 milljarða króna í rík-
iskassann og tapið muni nema um
4,3 milljörðum króna.
Guðlaugur Þór segir að miðað við
þær upplýsingar sem komið hefðu
fram hefðu skattgreiðendur komist
mun betur frá þessu ef hæsta til-
boðinu hefði verið tekið.
„Nú liggur það fyrir að hæsta til-
boðinu hafi ekki verið tekið í Sjóvá
og engar skýringar hafa fengist á
því af hverju svo er,“ segir Guð-
laugur.
Hægt var
að fá
hærra verð
fyrir Sjóvá
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Hefur óskað eftir
fundi í viðskiptanefnd