Morgunblaðið - 30.07.2011, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag,
laugardag, kl. 11 hefst með biblíufræðslu fyrir
börn, unglinga og fullorðna. Einnig er boðið upp
á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12.
Vigdís Jack og Adrian Lopez prédika.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Samkoma
í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíu-
fræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl.
12. Halldór Magnússon prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Sel-
fossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl.
11. Jóhann Þorvaldsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Samkoma í
Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjöl-
skyldusamkomu kl. 11. Eric Guðmundsson pré-
dikar. Biblíufræðsla fyrir alla kl. 11.50. Boðið
upp á biblíufræðslu á ensku.
Samfélag aðventista á Akureyri | Samkoma
í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11 með
biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Barn
borið til skírnar. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar
fyrir altari, félagar úr kirkjukórnum leiða safn-
aðarsöng undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenárné
organista. Kaffisopi á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sameiginleg helgi-
stund helgarinnar er kl. 20 í Garðakirkju. Sr. Frið-
rik J. Hjartar stýrir stundinni. Beðið fyrir ferða-
löngum og hátíðum helgarinnar. Organisti Bjartur
Logi Guðnason.
BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma í dag, laug-
ardag, kl. 11.
BORGARPRESTAKALL | Messa í Borgarkirkju
kl. 14. Organisti er Bjarni Valtýr Guðjónsson og
prestur er Þorbjörn Hlynur Árnason.
BÚSTAÐAKIRKJA | Bent er á messur í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Ferming.
Prestur sr. Íris Kristjánsdóttir, organisti er Teresa
Zuchowich og félagar úr kór Digraneskirkju leiða
söng. Sjá www.digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, söng-
hópur úr Dómkórnum syngur, organisti er Gróa
Hreinsdóttir.
EFRA-Núpskirkja Miðfirði | Messa í dag, laug-
ardag kl. 14. Þess verður minnst að í ár eru 50
ár síðan kirkjan var vígð og undanfarin misseri
hafa hollvinir endurbætt hana og lagfært. Hr.
Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar, prestar hér-
aðsins þjóna fyrir altari. Eftir messu eru veitingar
við kirkjuvegg og dagskrá með frásögn af end-
urbótum, söng, minningu Skáld-Rósu og fleiru.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Prestur er sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir,
Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar
Fljótsdalshéraðs, flytur hugvekju. Um tónlist sjá
Torvald Gjerde og Hjalti Jón Sveinsson. Lands-
mótsgestir boðnir velkomnir.
EMMANÚELS BAPTISTAKIRKJAN | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli (Mass & Sunday
school) kl. 12 í stærðfræðistofu 202 í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ á Skólabraut 6. Á
eftir er boðið upp á veitingar. Prestur sr. Robert
Andrew Hansen. Guðsþjónusta á ensku og ís-
lensku (in English & Icelandic). Þurfi að sækja
má hringja í síma 847-0081.
GARÐAKIRKJA | Helgistund kl. 20. Sr. Friðrik
J. Hjartar stýrir stundinni. Beðið fyrir ferðalöng-
um og hátíðum helgarinnar. Organisti er Bjartur
Logi Guðnason.
GLERÁRKIRKJA | Gönguguðsþjónusta verður
mánudaginn 1. ágúst kl. 20. Prestur er sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir. Gengið verður frá Gler-
árkirkju, um Glerárhverfi, staldrað við á ýmsum
stöðum, íhugun og bænagjörð. Molasopi í lokin
í Glerárkirkju.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir
altari, forsöngvari er Einar Clausen og organisti
er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Kirkjan er lokuð alla vik-
una vegna sumarleyfa.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Birgir
Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari,
messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja, organisti er Hörður Ás-
kelsson. Sögustund er fyrir börnin. Ensk messa
kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. For-
söngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir og org-
anisti Hörður Áskelsson. Alþjóðlegt orgelsumar:
Tónleikar kl. 17. Christoph Schoener frá Þýska-
landi leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er
Douglas Brotchie, prestur er sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Samstarf þjóð-
kirkjusafnaðanna í Kópavogi. Bent er á helgi-
hald í Digraneskirkju kl. 11 og í Kópavogskirkju
kl. 14. Sjá einnig á www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón Paul William Marti.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11, sr. Gunnar
Jóhannesson messar og organisti er Jóhann
Bjarnason. Tónleikar kl. 14. Ave Maríur og
Händel-aríur fluttar af Helenu Guðlaugu Bjarna-
dóttur sópran, Margréti Sigurðardóttur flautu-
leikara og Sigrúnu Magneu Þórsteinsdóttur á
orgel.
KAÞÓLSKA kirkjan: |
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og
19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30
og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30
og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og
á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk | Messa kl.
11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er
messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga
kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
LANGHOLTSKIRKJA | Bent er á messur í Há-
teigskirkju og fleiri kirkjum í nágrenninu. Sjá
www.langholtskirkja.is.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sumarsamstarf
safnaða Þjóðkirkjunnar í Kópavogi. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Kyrrðar- og bænastund
kl. 20.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti er Kári
Allanson og sr. Sigurvin Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kaffi á eftir.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Fermingarguðs-
þjónusta kl. 11 í dag, laugardag. Guðsþjónusta
kl. 14 er tileinkuð útvist og hestamennsku.
Kaffi á eftir. Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur.
SALT kristið samfélag | Samvera kl. 17 í
safnaðarheimili Grensáskirkju.
SELTJARNARNESKIRKJA | Sameiginleg
guðsþjónusta kl. 11 í Neskirkju. Prestur er Sig-
urvin Jónsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 17. Sr.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prests-
þjónustuna, organisti er Glúmur Gylfason, flutt
verður tónlist frá sumartónleikum helgarinnar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Helgistund kl. 20 í Garða-
kirkju. Sr. Friðrik J. Hjartar stýrir stundinni. Beð-
ið fyrir ferðalöngum og hátíðum helgarinnar.
Organisti Bjartur Logi Guðnason.
ÞINGVALLAKIRKJA | Útimessa í Skógarkoti
kl. 14, ef veður leyfir. Gengið er frá Efrivöllum
um merktan stíg í Skógarkot um hálfa klukku-
stund. Guðmundur Vilhjálmsson organisti leikur
á básúnu og Bragi Vilhjálmsson á saxófón. Sr.
Gunnþór Ingason prédikar og prestur er Kristján
Valur Ingólfsson. Ef rignir ótæpilega verður
messan flutt í Þingvallakirkju.
ORÐ DAGSINS:
Sjá ég er með yður.
(Matt. 28)
Morgunblaðið/Ómar
Kirkja Samúels Jónssonar í Selárdal.
✝ Þuríður Krist-ín Ragn-
arsdóttir fæddist
10. maí 1934 í
Reykjavík. Hún
andaðist á dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 8. júlí
2011.
Foreldrar henn-
ar voru Ruth Frið-
finnsdóttir, hús-
freyja, f. 16.2. 1909,
d. 18.1.1937 og Ragnar H. B.
Kristinsson, kaupsýslumaður og
iðnrekandi, f. 17.2. 1906, d. 16.3.
1983, var kvæntur Sigríði Ingv-
arsdóttur. Síðari kona Ragnars
var Matthildur Edwaldína Jóns-
dóttir, blaðamaður, f. 16.3.
1909, d. 22.8. 1975, sem ætt-
leiddi Þuríði og Ruth.
Sambýlismaður Þuríðar var
Guðbjörn Snæbjörnsson, f. 15.5.
1927, d. 27.9. 1999. Sonur þeirra
er Ragnar, f. 18.4. 1956.
Þuríður ólst upp á Frakkastíg
12 í Reykjavík. Hún gekk í Aust-
urbæjarskólann. Hún bjó alla tíð
í Reykjavík. Þuríður var að
mestu heimavinnandi en vann í
nokkur ár ásamt Guðbirni hjá
Kjötvinnslunni Búrfelli. Þuríður
gekk í Hjálpræðisherinn og tók
virkan þátt í störfum hans á
meðan heilsa hennar endist.
Útför Þuríðar fór fram í
kyrrþey frá Fossvogskapellu 22.
júlí 2011.
1963. Systkini Þur-
íðar eru: 1) Ruth
Ragnarsdóttir, f.
28.11. 1936, maki
Sigurþór Tóm-
asson. Systkini
samfeðra eru: 2)
Ragna Lára Ragn-
arsdóttir, f. 16.10.
1942, maki Brynj-
ólfur Björnsson. 3)
Kristinn Ragn-
arsson, f. 12.9.
1944, maki Hulda Ólafsdóttir.
Fósturbróðir: 4) Jón E. Ragn-
arsson, f. 24.12. 1936, d. 10.6.
Hinn 8. júlí sl. fengum við hjón-
in símhringingu þar sem okkur
voru færðar þær fréttir að Þur-
íður, elsta systir mín, væri látin.
Undanfarna mánuði dvaldi hún á
hjúkrunarheimilinu Grund. Okk-
ur var það öllum ljóst í hvaða átt
stefndi og að nú væri að hefjast
lokakafli í hennar jarðvistarlífi.
Hún mundi ekki hverfa aftur til
síns heimilis í Blikahólum.
Þegar ég hugsa aftur til upp-
vaxtarára minna á Frakkastíg 12,
fyrir rúmum 60 árum þar sem ég
var einn af stórum systkinahópi,
þá koma hugljúfar minningar
fram um elstu systur mína, Þurí,
eins og hún var ávallt kölluð. Milli
okkar var 10 ára aldursmunur
sem orsakaði viss skil. Við vorum
aldrei neinir leikfélagar. Þurí var
ein af þeim fullorðnu og við Ragna
Lára vorum börnin.
Í endurminningunni frá þess-
um uppvaxtarárum var Þurí í
mínum huga þessi góða og hjarta-
hlýja stóra systir sem vildi minn
hag ávallt bestan.
Þegar ég skrifa þessa minning-
argrein birtast ýmsar myndir frá
þessum árum mínum þar sem
Þurí kom við sögu. Án þess að fara
út í einstök atriði þá eru þessar
myndir allar bjartar og fallegar
hvort sem sviðið var á Frakka-
stígnum eða uppi í sumarbústað
sem fjölskyldan á við Reykjalund í
Mosfellssveit.
Ég hef verið eitthvað 10 eða 11
ára gamall þegar Guðbjörn Snæ-
björnsson, ungur maður ættaður
frá Vestannaeyjum, kom til sög-
unar. Þurí og Guðbjörn felldu
hugi saman og fóru að búa. Þau
eignuðust einkasoninn Ragnar.
Litla fjölskyldan eignaðist sitt
fyrsta heimili í Samtúni. Með því
var Þurí orðin ráðsett húsmóðir,
sem annaðist heimilið af kost-
gæfni. Frá þessum árum man ég
eftir heimsóknum mínum þar sem
Guðbjörn bauð mér oft upp í skák.
Þurí bar þá ávallt fram kaffi með
góðu meðlæti. Ég held að henni
hafi hugnast vel að veita, því þeg-
ar ein sneiðin var búin þá átti önn-
ur að taka við.
Frá Samtúni fluttist fjölskyld-
an að Vesturgötu og bjó þar í ára-
tug. Þaðan lá leiðin síðan í Fann-
arfell. Guðbjörn andaðist árið
1999 og skömmu síðar fluttu þau
Ragnar í íbúð að Blikahólum. Við
andlát Guðbjörns tók Ragnar við
hlutverki föður síns að annast
móður sína. Það sem einkenndi
fjölskylduna var viss samheldni,
snyrtimennska og manngæska.
Þurí hallaði sér á síðari árum æ
meira að trúmálum. Hún sótti
samkomur Hjálpræðishersins
heim.
Í trúnni fann hún frið. Með ár-
unum urðu okkar samverustundir
sjaldgæfari. Við hittumst í kring-
um fjölskylduhátíðir á jólum svo
og í kringum stóratburði í fjöl-
skyldunni. Önnur tjáskipti voru í
gegnum síma. Heyrn Þuríar hrak-
aði mjög og var oft erfitt að tjá sig
í gegnum þetta tæki. Innihald
samræðna okkar síðustu árin voru
aðallega trúarlegs eðlis.
Þegar ég kveð þig elsku systir
mín þá er ég þess fullviss að þú
býrð nú við betri kjör en þér buð-
ust hér á þessari jörð og bið ég al-
góðan guð að vera með þér á þinni
braut. Ég bið góðan guð að veita
Ragnari styrk í sinni sorg.
Starfsfólki Heimahjúkrunar í
Breiðholti og Hjúkrunarheimilis-
ins Grundar eru færðar sérstakar
þakkir fyrir einstaka aðstoð og að-
hlynningu.
Kristinn Ragnarsson.
Þuríður Kristín
Ragnarsdóttir
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Ása Líney
Sigurðardóttir
✝ Ása Líney Sig-urðardóttir
fæddist í Kópavogi
1. júní 1959. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 20. júlí
2011.
Útför Ásu Lín-
eyjar fór fram frá
Selfosskirkju 28.
júlí 2011.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið
svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að
geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir
streyma.
Þér munum við ei
gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Með þessum orðum kveðjum
við Ásu Líneyju samstarfskonu
okkar og biðjum góðan Guð að
styrkja Þorgrím Óla, börnin og
fjölskyldu í þeirra miklu sorg.
Fyrir hönd stelpnanna á sýsló,
Magnea Magnúsdóttir.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein",
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein-
in að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist.
Minningargreinar