Morgunblaðið - 30.07.2011, Síða 36
36 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSA Á EFTIR AÐ FÍLA
NÝJU PEYSUNA MÍNA
HVERNIG
LÍT ÉG ÚT?
ÞÚ ERT
RAFMAGNAÐUR
SVONA
NÚ, ÞÚ
GETUR EKKI
KENNT
SPAÐANUM
UM ALLT!
OFTAST
ER ÞAÐ SÁ
SEM HELDUR Á
SPAÐANUM
SEM BER
ÁBYRGÐINA!
HÆTTU
AÐ
AFSAKA
ÞIG!
ÉG HELD SAMT
AÐ ÞAÐ SÉ SPAÐINN
MANSTU ÞEGAR ÞÚ
SAGÐIR AÐ EF ÉG GIFTIST
ÞÉR...
...ÞÁ YRÐI LÍF
MITT EINS OG DANS
Á RÓSUM?
JÁ
ÉG
MYNDI SEGJA
AÐ Í STAÐ
RÓSA...
...ÞÁ SÉ ÉG BÚIN AÐ
VERA DANSANDI Á ARFA!!
HÉRNA STENDUR AÐ ÞAÐ EIGI AÐ
ENDURÚTGEFA ÖLL BESTU LÖG GÖMLU
HLJÓMSVEITARINNAR HANS BUBBA Í
TRIP HOP ÚTGÁFU??
ÉG BÝST
VIÐ AÐ ÞAÐ
VERÐI ÞÁ EGO
TRIP PLATA
FORELDRAR, ERUÐ ÞIÐ EKKI
ORÐIN ÞREYTT Á ÞVÍ AÐ BÖRNIN YKKAR
FÁI LÉLEGAN MAT Í HÁDEGINU!
Í NÚTÍMA
SAMFÉLAGI ER MEIRI
ÞÖRF Á HOLLUM MAT
EN ÁÐUR
VISSUÐ
ÞIÐ AÐ BÖRN SEM
BORÐA LÍFRÆNAN
MAT FÁ AÐ
MEÐALTALI HÆRRI
EINKUNNIR EN
ÖNNUR BÖRN!!?
SVONA,
HÆRRA!!
BETRA
MÖTUNEYTI STRAX!
HVAR ER
WOLVERINE?
HANN FÓR ÚT
ÚR BÆNUM LÍKT OG ÞÚ
ÆTTIR AÐ GERA
HVAÐ ER ÉG AÐ
SEGJA? EF HANN
FINNUR LOGAN...
ÞÁ
MUN
ANNAR
ÞEIRRA
DEYJA
Sylvía er týnd
Sylvía er lítil, grábröndótt
kisa með skekkju á skottinu
og var með rauða ól. Hún sást
síðast föstudaginn 22. júlí,
hún á heima á Bergstaða-
stræti 65, hún gæti hafa
lokast einhvers staðar inni.
Ef það er einhver staður í
hverfinu þar sem köttur gæti
hafa lokast inni, vinsamlegast
athugið fyrir okkur hvort hún leynist þar. Ef þið
sjáið hana á ferðinni, vinsamlegast hringið í síma
848-3190 eða 865-9018.
Oddur og Elísabet.
Týndur hundur í
Grímsnesi
Þessi sæti hundur hefur verið á vappi í sumarbústaða-
hverfi í Árskógum í Grímsnesi í nokkra daga, blíður og
góður íslenskur fjárhundur. Ómerktur, mögulega af ein-
hverjum bóndabæ í nágrenninu. Við höfum gefið honum
mat og vatn. Endilega ef þið þekkið til í sveitinni, eða
hundinn, látið eigendur hans vita um þessa ævintýraför
hans.
Sigrún Kristín, sími 698-7911.
Velvakandi
Ást er…
… þegar þér finnst alltaf
vera vor í hjarta þínu.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Haustið 1977 sýndi Þjóðleikhúsiðleikritið „Stalín er ekki hér“
eftir Véstein Lúðvíksson. Sögusviðið
var heimili Þórðar járnsmiðs árið
1957. Hann er í Sósíalistaflokknum
og vill ekki viðurkenna, að sósíalism-
inn hafi orðið fyrir áföllum við af-
hjúpun Stalíns og innrásina í Ung-
verjaland. En kona hans heimtar,
þegar þau flytjast í nýja íbúð, að
hann selji rit sín um marxisma: „Við
verðum að fara að gera hreint.“
Sömu dagana og leikritið var fært
upp í Þjóðleikhúsinu, hélt Alþýðu-
bandalagið landsfund, og sögðu gár-
ungarnir, að sama leikritið væri leik-
ið samtímis á tveimur stöðum í
Reykjavík. Alþýðubandalagið var þá
að sverja af sér forvera sína, Sósíal-
istaflokkinn og kommúnistaflokkinn,
þótt enn laumuðust einstakir for-
ystumenn flokksins öðru hverju til
Ráðstjórnarríkjanna í boði Kreml-
verja.
Forystumenn Sósíalistaflokksins
voru ekki einir um stalínisma. Ræst-
ingakona Þjóðviljans, Elín Ólafs-
dóttir, hafði þetta viðkvæði: „Þá
minnist ég Bjarna frá Vogi og Josífs
Stalíns, er ég heyri góðs manns get-
ið.“ Kunningi minn sagði við annan
sannfærðan stalínista, Bóas Em-
ilsson, trésmið á Selfossi, að hann
gæti nú ekki neitað því, að Stalín
hefði látið drepa milljónir manna á
valdatíma sínum. Bóas var snöggur
til svars: „Ja, hvað drepur Guð
marga á hverjum degi?“
Jens Figved, sem var í þjálf-
unarbúðum fyrir byltingarmenn í
Moskvu, var líklega eini Íslending-
urinn, sem talaði við Stalín. Var það
símleiðis, og leyfði Stalín þýðingu á
einu verki sínu, væntanlega „Nokk-
ur atriði úr sögu bolsévismans“, sem
birst hafði haustið 1931 í Rússlandi
(en hér í Bolsjevikkanum 1934).
Nokkrir Íslendingar sáu Stalín þó
álengdar, oftast á hersýningum á
Rauða torginu. Halldór Kiljan Lax-
ness virti hann fyrir sér á sviði í
Bolshoj-leikhúsinu 11. desember
1937. Í Gerska æfintýrinu skrifaði
Laxness síðan, að Stalín væri í
hærra meðallagi á vöxt, grannur og
vel limaður. Þetta var fráleitt. Stalín
var mjög stuttur, nánast dvergur,
þrekinn og bólugrafinn. Raunar
breytti Laxness þessu í annarri út-
gáfu 1983, og var Stalín þá „í með-
allagi á vöxt“. Hér gerði aldrei þessu
vant fjarlægðin manninn minni.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Stalín var hér
Karlinn á Laugaveginum komgangandi niður Vegamóta-
stíginn. Hann fór strax að tala um
Sigga tukt og Skildinganesættina
og það góða fólk og gamla tukt-
húsið, sem væri með fallegustu hús-
um í Reykjavík, en nú væru breyttir
tímar:
Dýrtíð skæð oss yfir æðir
eftir fræðum græningjanna,
í austan næðing Ögmund mæðir
einkavæðing fangelsanna.
Og tautaði ofan í barminn „Tukt
hf, Tukt hf.“ um leið og hann hvarf
inn í Laugavegsapótek.
Mikið er rætt um afkomu rík-
issjóðs um þessar mundir og er í því
sambandi hyggilegt að hafa jafnan í
huga:
Ef ætlar þú að reikna rétt
reyndu þetta að muna:
tölur geta tekið sprett,
torkennt útkomuna.
Ég fann þessa vísu á miða hjá
mér og læt hana fljóta með vegna
helgarinnar:
Alla vega, ástin mín,
ævinlega svona fer’ða
geturðu ekki, góða mín,
gert svo vel og lofað mér’ða.
Það er hollt að rifja upp limrur
Kristjáns Karlssonar stöku sinnum:
Stór og sterkur er Binni
og stendur á virðing sinni.
Hún óhreinkast mikið
og oft fyrir vikið
og eins sér talsvert á þinni.
Þessi vísa er frá 1980 og „Hallur
undan Fæti“ höfundurinn:
Gvendi jaka gremst af því
og grætur tárum stokkinn –
að geta ekki gengið í
gáfumannaflokkinn.
Og má vera að margur vinstri
sinnaður verkalýðsforingi í dag
finni til skyldleikans.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Einkavæðing
fangelsanna