Morgunblaðið - 30.07.2011, Side 37
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Verksmiðjan á Hjalteyri í Eyjafirði fyllist af lífi
í dag, þegar sýningin Kveldúlfur – sjónsuða
veður opnuð. Hjalteyri er 20 kílómetra norðan
við Akureyri. Umrædd verksmiðja gengdi eitt
sinn hlutverki síldarverksmiðju sem Thórs-
ararnir reistu á mettíma á fjórða áratug síðustu
aldar og var um tíma stærsta síldarbræðsla í
Evrópu. Þetta er samsýning nokkurra ungra
listamanna og hönnuða sem flest eiga það sam-
eiginlegt að hafa tiltölulega nýlokið listnámi
sínu.
,,Flest verkanna eru unnin hérna á staðnum
og inn í þetta rými,“ segir Þórgunnur Odds-
dóttir, einn þeirra listamanna sem standa að
sýningunni. ,,Þetta er rosalega flott rými; þetta
er svona eldgömul hrá verksmiðja og hana
prýða kaldir, hráir steinveggir og rýmið býður
svo mikið upp á það að vinna með það. Þannig
að við erum eiginlega öll hérna núna og erum
að vinna á staðnum.“ segir Þórgunnur og bætir
við að listamennirnir vinni með fjölbreytilega
miðla s.s. skúlptúra, innsetningar, myndskeið,
teikningar o.s.frv.
Staðurinn veitir verkunum innblástur
,,Maður kemst eiginlega ekki hjá því þegar
maður vinnur á svona stað að hann hafi einhver
áhrif á verkin og að staðurinn og byggingin
verði hluti af verkunum. Þetta er allt öðruvísi
en að setja upp sýningu í einhverjum hvítum
kassa,“ segir Þórgunnur.
Sýningin verður opnuð klukkan 15:00 í dag,
en í kvöld kemur svo Kveldúlfur í mannskapinn.
,,Þar sem þetta er laugardagur um versl-
unarmannahelgi þá ætlum við að hafa gaman í
kvöld. Það verða tónlistarmenn að spila hérna
og svo verða einhverjir gjörningar í kvöld.
Skemmtunin byrjar klukkan 21:00. Það er
reyndar dagskrá um verslunarmannahelgina
hérna á Hjalteyri sem kallast Sæludagar í sveit-
inni þannig að við bætum þessu inn í þá dag-
skrá, höfum líf í verksmiðjunni. Við viljum endi-
lega fá fólk til að koma hingað á Hjalteyrina
þar sem þetta er rosalega skemmtilegur staður
og það gaman að vera hérna,“ segir Þórgunnur
að lokum. Sýningin stendur frá 30. júlí til 21.
ágúst.
Kveldúlfur – sjónsuða
Líf og fjör í gömlu síld-
arverksmiðjunni á Hjalt-
eyri í Eyjafirði
sdfasdf
Kveldúlfur Þarna sést gamla síldarverksmiðjan en hún var byggð á fjórða áratug síðustu aldar.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Á morgun, sunnudaginn 31. júlí, munu þau Melkorka
Ólafsdóttir flautuleikari, Grímur Helgason klarinett-
leikari og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari koma fram
á stofutónleikum í húsi skáldsins Halldórs Laxness,
Gljúfrasteini. Yfirskrift tónleikanna er Franskt með
Leifi, en franskir tónar verða í hávegum hafðir þó svo
að nokkrar íslenskar tónmyndir fái að fljóta með í tríói
eftir Leif Þórarinsson. Á efnisskránni eru Pagodes úr
Estampes fyrir píanó eftir Claude Debussy, Sonatine
fyrir flautu og klarinett eftir André Jolivet, Sonate eft-
ir Maurice Emmanuel og Largo Y Largo eftir Leif Þór-
arinsson.
„Þegar við byrjuðum að æfa þetta sáum við að verkin
eru uppfull af ljóðrænum myndum og skemmtileg sam-
suða sem varð að skemmtilegu frönsku prógrammi.
Grím langaði til þess að spila Largo Y Largo eftir Leif
Þórarinsson og þannig kom til titillinn Franskt með
Leifi,“ segir Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.
,,Við höfum þekkst síðan við störfuðum saman í
kammersveitinni Ísafold og við höfum alltaf talað um
að gera eitthvað saman og létum af því verða núna.
Þetta er eiginlega síðasta tækifærið til þess þar sem
Melkorka fékk stöðu í hljómsveit í Japan og er því á
leiðinni þangað í haust, Grímur býr í Hollandi og ég bý
hérna heima,“ segir Hrönn.
Gljúfrasteinn
Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs
Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Ís-
lenska ríkið keypti húsið árið 2002 þegar öld var liðin
frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það
opnað almenningi.
Frá því að safnið var opnað hefur Gljúfrasteinn stað-
ið fyrir ýmsum menningaratburðum. Vikulegir stofu-
tónleikar hafa verið haldnir á Gljúfrasteini á hverju
sumri frá 2006. Á veturna er boðið upp á fyrirlestra og
upplestra í stofunni.
,,Það er alveg yndislegt að vera á þessum stað og í
þessu húsi. Laxness spilaði náttúrlega mikið á píanó
sjálfur þannig að maður er innan um bækur og nótur
sem hann spilaði,“ segir Hrönn. Hún hvetur fólk til þess
að koma og slaka á í stofunni á Gljúfrasteini og hlýða á
fagra franska tóna. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00
á sunnudaginn og aðgangseyrir er 1.000 kr.
Franskt með Leifi
Franskir tónar í hávegum hafðir í bland við íslenskar tón-
myndir á hinum sögufræga tónleikastað Gljúfrasteini
Tónleikar Melkorka Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir og Grímur Helgason
koma fram á tónleikum sem haldnir verða á Gljúfrasteini á morgun kl. 16.
Í kvöld leika hjónin Sigurður
Ingvi Snorrason klarinettleik-
ari og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari á tónleikum
í Reykjahlíðarkirkju.
Á efnisskrá verða m.a.
dansprelúdíur eftir Lutos-
lawski, tilbrigði eftir Carl
Maria von Weber ásamt ís-
lenskum þjóðlagaútsetningum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og
aðgangur er ókeypis.
Á morgun verður helgistund í kirkjunni í
Dimmuborgum kl. 14. Um tónlistarflutning sjá
Helgi James Þórarinsson saxófónleikari og Sig-
urður Ingvi Snorrason, klarinettuleikari í Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Tónleikar
Sumartónleikum
við Mývatn lýkur
Guðsþjónusta í
Dimmuborgum
Jón Þ. Þór gaf nýverið út bók-
ina Sá er maðurinn. Bókin hef-
ur að geyma æviágrip 380
karla og kvenna sem áttu þátt í
því að móta mannkynssöguna á
tímabilinu 1750-2000. Hér er
að finna mikinn og aðgengileg-
an fróðleik um sögu síðustu 250
ára og fólkið sem setti svip á
hana. Framsetning höfundar
er skilmerkileg og greinargóð
og auðvelt er að finna upplýs-
ingar um þá sem um er fjallað. Höfundur bók-
arinnar, Jón Þ. Þór, er rannsóknarprófessor við
Háskólann á Akureyri. Hann er í hópi afkasta-
mestu sagnfræðinga á Íslandi og hefur samið hátt
í 40 bækur.
Bókmenntir
Nýjasta bók Jóns
Þ. Þór komin út
Jón Þ.
Þór
Á þriðjudaginn leikur Tríó Blik
á tónleikum í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar. Þar verða
leiknir söngvar Ása í Bæ og
Oddgeirs Kristjánssonar.
Tríóið skipa þær Hanna
Dóra Sturludóttir söngkona,
Freyja Gunnlaugsdóttir klarin-
ettuleikari og Daniela Hlin-
kova píanóleikari.
Á tónleikunum munu heyr-
ast lög eins og Ég veit þú kem-
ur, Maja litla, Sólbrúnir vangar og Síldarstúlk-
urnar auk laga sem eru minna þekkt.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og aðgangseyrir
er 2000 kr. Nánari upplýsingar er að finna á tón-
leikavef safnsins lso.is/tonl_i.htm.
Tónleikar
Óður til Vest-
mannaeyja
Tríó Blik flytur m.a
lög eftir Ása í Bæ
Þetta er ekkert
ósvipað því að kasta
sér fyrir björg. 38
»
Hamrahlíðarkórinn er fulltrúi Ís-
lands á Aberdeen International Yo-
uth Festival sem hófst 27. júlí og
stendur yfir til 6. ágúst í Aberdeen á
Skotlandi. Er þetta eina alþjóðlega
listahátíðin í Evrópu þar sem allir
flytjendur eru ungt fólk. Fulltrúar
frá 21 þjóð taka þátt í hátíðinni í ár
en þetta er í 39. sinn sem hún er
haldin. Þátttakendur verða 1.300
talsins.
Að sögn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
stjórnanda kórsins, er hátíðin afar
fjölbreytt. Þetta er í þriðja sinn sem
Hamrahlíðarkórinn tekur þátt í
listahátíðinni, áður 1986 og 2002, og
segir Þorgerður það hafa mikið gildi
fyrir kórinn. Hún segist vanda valið
mikið þegar kemur að því að ákveða
hvert kórinn fari í tónleikaferðir og
hvernig sé að því staðið. „Þessi ferð
út er ekkert sumarfrí í venjulegri
hvíldarmerkingu. Þarna erum við að
kynna land og þjóð, tónlist okkar og
menningu. Við höldum sjö tónleika
og eitt námskeið á átta dögum með
ólikum efnisskrám eftir því hvort um
er að ræða kirkjutónleika eða tón-
leika í tónlistarhúsi,“ segir Þorgerð-
ur.
Hún segir unga fólkið keppast við
að gera vel og æfa stíft. „Þetta er
ótrúlega spennandi prógramm en
það er kröfuhart og strembið.“
Nánari upplýsingar um listahátíð-
ina má finna á aiyf.org. diana@mbl.is
Skemmti-
legt en
strembið
Hamrahlíðarkór-
inn á alþjóðlegri
listahátíð
Kór Hamrahlíðarkórinn er staddur
á alþjóðlegri listahátíð í Skotlandi.