Morgunblaðið - 30.07.2011, Síða 38
AF MÚFFUM
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Við lifum á tímum kreppu,skuldavanda og skattahækk-ana. Hins vegar hefur fólk
fengið sig fullsatt af endalausri nei-
kvæðri umræðu hér á landi og til að
sökkva ekki í myrkraholu djúpa
finnur fólk sér flest eitthvað upp-
byggilegt að gera í staðinn. Sjálfs-
bjargarviðleitnin, sjáið til.
Nú er helgi verslunarmannaskollin á og eflaust bróð-
urpartur okkar landsmanna þotinn
út á land upp í bústað, í tjaldútilegu
eða til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð.
Ein af ótal hátíðum sem haldnar eru
um helgina er „Ein með öllu“ á Ak-
ureyri. Akureyringar efna þar til
mikillar fjölskylduhátíðar og til að
mynda var þemað í fyrra hjarta, sem
mér fannst alveg einstaklega krútt-
legt. En það var annar viðburður
sem mér persónulega fannst vera
hápunktur hátíðarinnar, múffubas-
arinn „Mömmur og muffins“. Bas-
arinn fór fram í Lystigarðinum þar í
bæ og vakti gríðarmikla lukku.
Margar konur tóku sig til og bökuðu
birgðir af múffum í öllum stærðum,
gerðum, og regnbogans litum. Á
basarnum seldust um 1.000 kökur og
ar það er gert í góðgerðartilgangi á
meðan orðin sparnaður og nið-
urskurður er eitthvað sem maður
fær að heyra nánast daglega. Það
kom einnig fram í umræddri grein
að fulltrúar heilbrigðisyfirvalda
reyni að beina matvælaframleiðslu
inn í viðurkennd eldhús. En hefur
heimabakstur í fjáröflunarskyni fyr-
ir t.d. íþróttafélög, skólaferðalög og
fleira ekki tíðkast í gegnum tíðina?
Þetta er sum sé tæknilega allt bann-
að.
Ekki nóg með að veðrið sé grá-myglulegt yfir helgina heldur
er samfélagið okkar á góðri leið með
að verða grámyglusamfélag með
þessu áframhaldi. Eftir að háværar
og reiðar raddir hafa tjáð sig um
þetta mál á Fésbókinni vona ég fyrir
hönd einlægra múffuelskenda og
duglegra múffubakara að þetta
verði afturkallað og leyft. Það eru
þó sáralitlar líkur á því.
Múffurnar sem koma og éta þig
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Nammi Múffurnar í fyrra voru heldur betur girnilegar og leiðinlegt að tekið hafi verið fyrir slíkan basar í ár.
rann ágóðinn óskiptur til fæðing-
ardeildar Sjúkrahússins á Akureyri
en þá söfnuðust 400.000 krónur. Því-
líkur dugnaður í kökumömmunum!
Það vakti furðu mína við lesturMorgunblaðsins í fyrradag að
múffubasarinn verður ekki haldinn í
ár. Það er ekki vegna þess að
„mömmurnar“ nenni ekki að baka í
ár eða af því að basarinn gengi
hörmulega í fyrra, þvert á móti.
Ástæðan er sú að aðstandendum
„Mömmur og muffins“ var tilkynnt
af heilbrigðisyfirvöldum að þeim
væri ekki heimilt að selja heimabak-
aðar kökur á slíkum basar. Ég
staldraði við um stund og vissi ekki
hvort ég ætti að hlæja eða gráta.
Hreinlætissjónarmið ráða og því var
ákveðið að banna þessa gleðilegu
samkomu.
Hvað er eiginlega að gerast? Er
forræðishyggjan að taka öll völd? Af
hverju þarf að banna það sem
skemmtilegt er? og sérstaklega þeg-
»Ekki nóg með aðveðrið sé grámyglu-
legt yfir helgina heldur
er samfélagið okkar á
góðri leið með að verða
grámyglusamfélag með
þessu áframhaldi
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Þetta er ekkert ósvipað því að kasta
sér fyrir björg, að láta sér detta það í
hug að bjóða áhorfendum upp á einn
leikara uppi á sviði í klukkutíma eða
svo,“ segir Elfar Logi Hannesson,
stjórnandi einleikjahátíðarinnar Act
Alone, eða Leikur einn. Einleikurinn
heillar engu að síður þótt hann sé
sjaldan leikur einn og aðeins einn
leikari á sviðinu, segir Elfar. Þetta
leiklistarform býður að sögn Elfars
upp á óteljandi möguleika og það
kemur fram á einleikjahátíðinni Act
Alone, sem er haldin í áttunda skipti
á Ísafirði í ár, dagana 12. til 14.
ágúst.
„Þessi hátíð hefur eiginlega
stjórnað sér sjálf, og hefur stöðugt
verið að vaxa og dafna með hverju
ári,“ en í ár verða átta einleikir settir
á svið auk samsafns stuttra einleikja
sem Leiklistarhópur Flensborg-
arskóla hefur unnið að og sýnir nú
afreksturinn.
Dans, hjátrú og þroskasaga
Fjölbreytilegir möguleikar ein-
leiksins enduspeglast í dagskrá Act
Alone þetta ár. Til að mynda er þar
danssýningin Kyrja sem Ragnheið-
ur Bjarnarson leikur, einleikur leik-
konunnar Söru M. Oskal, sem er
Sami, sem nefnist The Whole Ca-
boddle þar sem Sara vinnur úr
sagnaarfi Sama og hjátrú og þjóð-
sögur eru meðal þema sem skoðuð
eru í verkinu. Að lokum má svo
nefna sýninguna Jón Sigurðsson
sem var frumsýnd á söguslóðum
frelsishetjunnar á Hrafnseyri á 200
ára afmælisdegi hans en Elfar er
leikari í henni undir leikstjórn Ár-
sæls Níelssonar. „Þessi sýning er
einmitt eitthvað sem flestir gestir
búast alls ekki við því í henni er
hvorki fjallað um vér mótmælum öll
né fjárkláðamálið sem flestir kann-
ast við, heldur fjallar sýningin um
mótunarár Jóns sem gerðu hann að
þeim mikla baráttumanni sem hann
varð.“ Því má segja að hér sé eins-
konar þroskasaga Jóns á ferð sem
Elfar segir einstaka skemmtun fyrir
alla aldurshópa.
Augnasamband „gefur kikkið“
Að vera einleikari er síður en svo
leikur einn. „Ég held það sé alveg
öruggt og óhætt að segja það að ein-
leikur er eitt það erfiðasta sem þú
getur nokkurn tímann fengist við í
leiklistinni.“ Þú kemur þér einn í
klípu og einn verður þú að koma þér
úr henni. Hver er þá kúnstin við að
vera góður einleikari? „Að vera
sannur og einlægur auk þess að eiga
í nánu sambandi við áhorfendur,“
ályktar Elfar að sé með því mik-
ilvægasta. Oftar en ekki verða áhorf-
endur mótleikarar þótt þeir fari
hvorki með texta né stigi á svið.
Bara það að ná augnasambandi „gef-
ur eitthvert auka-kikk“.
Heillandi leiklistarform
Aðgangur á hátíðina er frír og
sem stendur eru flest gistipláss á
Ísafirði uppbókuð að sögn Elfars þó
enn sé laust víðsvegar í nágrenninu.
Elfar segir það stefnu hátíðarinnar
að aðgangur sé ávallt frír til þess að
allir fái tækifæri til að kynnast
heillandi leiklistarformi einleiksins.
Heillandi
einleikur á
Ísafirði
Samar, frelsishetjur og dans á Act
Alone 12. til 14. ágúst „Ekkert ósvip-
að því að kasta sér fyrir björg“
Samar Sara M. Oskal er Sami og flytur einleikinn The Whole Caboddle þar sem hjátrú, þjóðsögur og sagnaarfur
Sama er meðal þema verksins.
Einleikur Hér steig á svið rússneska leikkonan Oxana Svojskaja og túlkaði
Völuspá en Act Alone berast ávallt fjöldamargar umsóknir erlendis frá og
þegar hafa borist fjölmargar umsóknir fyrir komandi hátíð á næsta ári.
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Í kjölfar gríðarlegra vinsælda
Hellisbúans sem settur var á
svið árið 1999 hefur leiklist-
arform einleiksins notið vax-
andi vinsælda hérlendis.
„Þokkaleg blanda af gamanleik
og alvöru“ einkennir einleik á
Íslandi að sögn Elfars en einnig
hefur verið mikið um að sögu-
arfur Íslands sé efniviður ein-
leikja. Mr. Skallagrímsson um
hinn litríka Egil Skallagrímsson,
Brák um fóstru Egils, Gísli Súrs-
son um eina mestu hetju Íslend-
ingasagna og Jón Sigurðsson,
sem verður sýndur á komandi
Act Alone, eru dæmi um slíka
sögulega einleiki.
Sögulegir
einleikir
FERÐAST UM TÍMANN