Morgunblaðið - 30.07.2011, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Fátt er hollara ungum mönn-um en að spila blús og þarftil hvorki mikla fimi nértækni, aðalatriðið er að
kunna að skrúfa frá treganum, að
geta miðlað mæðunni. Undanfarna
mánuði og ár hafa æ fleiri fengist við
blúsinn og nálgast hann úr ýmsum
áttum. Bergþór Smári, eða bara
Beggi Smári, sem hefur spilað blús
síðast áratuginn eða svo, sendi fyrir
stuttu frá sér skífu með rafmögn-
uðum og fáguðum blús.
Beggi Smári er þrælfínn gítarleik-
ari, heyr til að mynda spettina í
Moody Rudy, en full varfærinn á skíf-
unni, mér finnst eins og hann sé að
vanda sig of mikið, að reyna að spila
of hreint. Fyrir vikið er hann full fjar-
lægur og tilfinningin skilar sér ekki
fyllilega. Að því leyti er hann til að
mynda mun nær Eric Clapton, en
Byther Smith, svo dæmi séu tekin um
tvo góða gítarleikara, það vantar í
spilamennskuna smá hita og ekki síst
smá skammt af kæruleysi.
Beggi bregður aðeins útaf formúl-
unni í Hurts Me Too, sannarlega ný-
stárleg útsetning, en gengur ekki vel
upp – enginn tregi og engin sorg. Víst
fer enginn í spor Elmore James, sem
kallar fram tárin hjá hverjum sem er,
en Beggi virkar frekar leiður en
tregafullur. Ég kann betur að meta
fjörið í I Want You Back, sem hann
semur sjálfur, þar er meiri þungi í
flutningnum. Beggi Smári er og fínn
lagasmiður og mörg dæmi um það á
skífunni; Warm and Strong er þannig
fínt lag, þó ekki sé í því mikill blús.
No Sense er líka mjög flott lag með
skemmtilegri útsetningu og eins
finnst mér Wait for Me vel samið lag
sem fer óvæntar leiðir, en skalaæf-
ingin í lokin gerir ekki mikið fyrir lag-
ið, það verður mun skemmtilegra
þegar hann fer að teygja aðeins á
strengjunum.
Gítar Beggi Smári teygir á strengnum á sólóskífu sinni.
Meiri trega, takk
Beggi Smári - Mood bbmnn
Sólóskífa Bergþórs Smára sem hann
gefur sjálfur út. Bergþór spilar á gítar
og syngur, en með honum spila Ingi S.
Skúlason á bassa, Friðrik Geirdal Júl-
íusson á trommur og Tómas Jónsson á
hljómborð.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Binni Rögnvalds, eða Brynjar Páll
Rögnvaldsson, gaf nýverið út plötuna A little Trip, en
platan er EP-plata sem inniheldur sex lög eftir hann.
Platan er tekin upp að hluta til í Reykjavík og að hluta
til á Sauðárkróki, en Brynjar er fæddur og uppalinn í
Skagafirðinum. Aðaláhersla plötunnar er á fallegar
melódíur og einfalda textasmíði. Brynjar hóf tónlist-
arferil sinn sem trúbador á Sauðárkróki og eftir að
hann tók þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna
ákvað hann að einbeita sér að sinni eigin tónlist og nú
er þessi EP-plata komin út.
,,Tónlistin á plötunni er svona „folk, rock, easy lis-
tening“. Þetta er allt svona hugljúft og rólegt. Ég
myndi segja að Pink Floyd væri mesti áhrifavaldurinn
þó að það heyrist kannski ekki, og svo David Bowie.
Þetta er samsafn af lögum sem ég hef samið í gegnum
tíðina eða frá því ég var 18 ára gamall,“ segir Brynjar
Páll Rögnvaldsson tónlistarmaður. ,,Þetta er eitthvað
sem er búið að safnast saman hjá mér og ég þurfti að
koma frá mér. Efnið á plötunni er samið hér og þar,
meðal annars í Stokkhólmi, Sauðárkróki og í Kópavog-
inum. Þessi plata er það fyrsta sem kemur frá mér, en
ég hef hinsvegar verið að spila með öðrum á plötum.
Ég spilaði til dæmis á gítar og söng á plötunni Óska-
barn þjóðarinnar sem rapparinn Ramses gaf út. Platan
er tekin upp í stúdíóinu hjá föður mínum, honum Rögn-
valdi Valbergssyni, organista og tónlistarkennara á
Sauðárkróki, og hjá Helga Sæmundi, meðlimi hljóm-
sveitarinnar Bróður Svartúlfs,“ segir Brynjar.
Melodica
Brynjar og trúbadorinn Svavar Knútur eru upphafs-
menn Melodica-festivalsins á Íslandi, en í ár er hátíðin
haldin síðustu helgina í ágúst. ,,Á hátíðinni koma inn-
lendir sem erlendir trúbadorar og spila, en hátíðin er í
rauninni trúbadora-festival. Að vísu koma hljómsveitir
stundum og spila, en þá er það órafmagnað. Staðirnir
sem spilað verður á eru Café Rosenberg, Kaffi Hljóma-
lind og hjá Hemma og Valda.“
Brynjar spilar á tónlistarhátíðinni Gærunni, sem
haldin verður um miðjan ágúst á Sauðárkróki, og á
Melodica-festival í lok ágúst, en þeir síðarnefndu verða
hinir eiginlegu útgáfutónleikar.
Brynjar selur diskinn sjálfur í gegnum Facebook,
þar sem hægt er að finna hann undir ,,Binni Rögnvalds-
Music“. Annars er hægt er að nálgast diskinn á Tattoo-
stofunni í Hafnargötunni í Keflavík og í Kaupfélagi
Skagfirðinga.
Pink Floyd og David
Bowie áhrifavaldarnir
Fyrsta plata tónlistar-
mannsins Binna Rögnvalds
Trúbador Brynjar Rögnvaldsson eða Binni Rögnvalds
gaf nýverið út sína fyrstu plötu, A little trip.
JENNFIER
ANNISTON
CHARLIE
DAY
COLIN
FARRELL
JASON
SUDEIKIS
CAPTAIN AMERICA 3D kl. 5:30 - 8 - 10:45 12
HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 - 8 - 9 - 10:20 - 11 12
HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 2:30 - 8 - 10:45 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 L
TRANSFORMERS 3D kl. 6 12
KUNG FU PANDA 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 L
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
HORRIBLE BOSSES kl. 5:45 - 8 - 10:15 12 HARRYPOTTER7-PART23D kl.2:45-5:20-8-10:40 12
HORRIBLE BOSSES kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:15 VIP HARRYPOTTER7-PART2 kl.2:45-5:20-8-10:40 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L TRANSFORMERS 3 kl. 8 12
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 3:15 - 5:30 L THE HANGOVER 2 kl. 5:30 12
CARS 2 Með ensku tali kl. 8 - 10:30 L KUNG FU PANDA 2 Með ísl. tali kl. 3 L
SÝND Í KRINGLUNNI
„THE BEST 3D
SINCE AVATAR“
- SCOTT MANTZ,
ACCESS HOLLYWOOD
H H H
-T.V. KVIKMYNDIR.IS/
- SÉÐ OG HEYRT
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
FRÁÁ
ÁBÆ
R
GAM
ANM
YND
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ LOSA SIG VIÐ LEIÐINLEGAN YFIRMANN EN ÞEIR ÆTLA AÐ REYNA...
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
ATHUGIÐ GLÆNÝ STUTTMYND SÝND Á UNDAN CARS 2
FRÁ HÖFUNDUM
"SVALARI BÍLAR
OG MEIRI HASAR"
- T.D. -HOLLYWOOD
REPORTER
H H H H
- J.C. -VARIETY
H H H H
- P.T. -ROLLING STONES
H H H H
LEIFTUR MCQUEEN OG KRÓKUR ERU AFTUR MÆTTIR,
BETRI EN NOKKURN TÍMANN
KEVIN
SPACEY
JASON
BATEMAN
100/100
- ST.PETERSBURG
TIMES
91/100
- ENTERTAINMENT
WEEKLY
88/100
- CHICAGO
SUN-TIMES
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. GILDIR LAUGARDAG, SUNNUDAGOG MÁNUDAG