Morgunblaðið - 30.07.2011, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Úlfur Kolka rappari með meiru var
að senda frá sér stuttskífuna Hum-
an Error sem er nokkurskonar
forréttur á undan fyrstu sólóplötu
hans sem kemur út fyrir jól. Úlfur
er að koma sterkur inn aftur í
tónlistarbransann eftir að hafa tekið
sér góða pásu en hann var áður for-
sprakki hljómsveitarinnar Kritikal
Mazz ásamt Ágústu Evu Erlends-
dóttur og fleiri. Þá var hann þekkt-
ur sem Ciphah en hefur látið það
nafn nú niður falla. „Ég bara missti
þörfina fyrir að þykjast vera eitt-
hvað annað en ég er,“ segir Úlfur.
Kemur sterkur inn
„Ég er að koma aftur inn núna en
á þeim tíma ákvað ég að fara í skóla
og svona,“ segir Úlfur.
Platan inniheldur 7 lög og fær
hann gesti til liðs við sig, meðal
annars Maximum sem er núna
þekktur undir nafninu Gnúsi Yones
en einnig Dizee D og Angel Childs
en rappið á plötunni er á ensku.
Plötuna er hægt að nálgast frítt á
ulfurkolka.bandcamp.com en einnig
er hún til sölu á gogoyoko.com og
kostar þá 5 evrur. Ágóðinn af plöt-
unni mun renna óskiptur til barna-
hjálparstarfs UNICEF.
Pólitísk plata um jólin
„Þörfin fyrir að semja kom bara
sterk aftur,“ segir Úlfur aðspurður
hvers vegna hann hafi ákveðið end-
urkomu núna. Hann stefnir á að
gefa út aðra plötu fyrir jólin, þá
með íslensku rappi. „Mest allt af
nýja dótinu mínu er á íslensku en
platan verður pólitísk,“ segir Úlfur
sem kemur til með að rappa um
ástandið hér á landi í dag, trúmál
og annað. „Ég er algjörlega trú-
laus,“ og varðandi pólitík telur Úlf-
ur sig vera anarkista en var þó ekki
viss. „Ég er bara búinn að fá mig
fullsaddan af öllu sem er í gangi
hér. Það skiptir í raun og veru engu
máli hver er við völd, eins og segir í
einu laginu mínu,“ segir hann og
hlær.
Breiðskífan í vinnslu fær nafnið
Borgaraleg óhlýðni og er mjög
langt komin að sögn Úlfars.
Kominn með nóg af ástandinu
Rapparinn Úlfur Kolka gefur út sína fyrstu sólóplötu Pólitísk rappplata á
leiðinni og kemur út fyrir jól Hann segir þörfina fyrir að semja vera mikla
Virkur Úlfur Kolka var að gefa út plötu en er með annað verk í bígerð, breiðskífuna Borgaraleg óhlýðni.
Þær Heiða Þórðardóttir og Stein-
unn Fjóla Jónsdóttir opna vefinn
Spegill.is á mánudaginn kemur.
Síðan mun endurspegla allt það
sem viðkemur konum, áhuga-
málum, afþreyingu, lífsstíl og
stundum losta, segja þær. Spegill.is
kemur til með að luma á ráðum og
hugmyndum og gera ritlist hátt
undir höfði.
Konuvefur Heiða og Steina koma til
með að sjá fyrir skemmtun á Spegill.is.
Nýr konuvefur
opnaður 1. ágúst
Miðasala er hafin á Jazzhátíð
Reykjavíkur sem verður sett á
Menningarnótt 20. ágúst. Fjöldi
viðburða verður í boði á hátíðinni
og dagskrá er að finna á reykjavik-
jazz.is. Upphafstónleikarnir fara
fram í Norðurljósasal í Hörpu og er
heimsókn Danilos Perez, heims-
þekkts píanista, meðal hápunkta
hátíðarinnar.
Djass Danilo Perez er djassisti af
guðs náð og leikur lipurlega á píanóið.
Miðasala hafin á
Jazzhátíðina
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
CAPTAIN AMERICA 3D kl. 6 - 9 12
HORRIBLE BOSSES kl. 6 - 8 - 10:20 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L
HARRYPOTTER7-PART23D kl. 3 12
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
KUNGFUPANDA2 Með ísl. tali kl. 3 L
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
CARS 2 3D Með ensku tali kl. 5:50 L
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:10 12
HARRYPOTTER7-PART2 LAUOGSUN kl.3-5:30-8-10:40 12
HARRYPOTTER7-PART2 MÁNUDAG kl.3:30-6-9 12
CAPTAIN AMERICA 3D kl. 8 - 10:40 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:10 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 1:30 - 10:10 L
CARS 2 3D Með ensku tali kl. 5:40 L
HARRYPOTTER7-PART2 kl. 2 - 5 12
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
CAPTAIN AMERICA kl. 8 - 10:30 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:15 12
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L
HARRYPOTTER7 kl. 2:40 - 5:20 12
/ SELFOSSI
H LAUGARDAG OG SUNNUDAG
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
BARÁTTAN
UM HOGWARTS
ER HAFIN
SJÁÐU
LOKAKAFLANN
Í 3D
HHHHH
- T.M - THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHHH
- L.S - ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH
- R.C - TIME
HHHH
- J.T - VARIETY
HHHH
"MÖGNUÐ ENDALOK"
- KA, FBL
“NÁNAST FULLKOMINN
LOKASPRETTUR„
- KVIKMYNDIR.IS
HHHH
SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
STÆRSTA
MYND
ÁRSINS!
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
H
á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 750 kr. GILDIR LAUGARDAG, SUNNUDAGOG MÁNUDAG