Morgunblaðið - 02.08.2011, Page 36
Ljósmynd/Fannar Sveinsson
Crossfit Annie hlaut titilinn „hraustasta kona í heimi“ í Los Angeles um helgina og fékk í verðlaun tæpar 30 milljónir króna.
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Mér líður ótrúlega vel, er enn að
átta mig á þessu. Það er ótrúlega
skrítið að ná svona stórum áfanga
sem maður hefur stefnt að,“ segir
Annie Mist Þórisdóttir sem stóð
uppi sem sigurvegari í kvennaflokki
á heimsleikum í crossfit í Home De-
pot Center í Los Angeles um
helgina. Annie lenti í 2. sæti keppn-
innar í fyrra, 11. sæti árið 2009 og er
yngsti keppandinn til að vinna
keppnina.
Stuðningshópurinn mikilvægur
„Ef ég væri spurð núna hvort ég
myndi taka þátt á næsta ári myndi
ég segja já, það er svo ofboðslega
gaman að þessu. Eftir velgengnina í
fyrra vissi ég að ég ætti góðan séns
og byrjaði að æfa viku seinna fyrir
næsta mót,“ segir Annie. Segir hún
að mörg tækifæri eigi eftir að bjóð-
ast þannig að hún muni ekki taka
ákvörðun strax. „Ég var búin að æfa
betur núna og var öruggari í því sem
ég var að gera. Þjálfararnir og
stuðningshópurinn sem ég hafði
hjálpuðu mér mjög mikið,“ segir An-
nie.
„Andlega er maður orðinn sterk-
ari og vanari,“ segir Annie en hún
hefur ekki ákveðið hvað tekur við.
Hún er með samning við Reebok og
hefur verið beðin um að koma fram í
morgunþáttum og spjallþáttum í
New York í kjölfar sigursins.
Fleiri tækifæri opnast
„Nú eru fleiri tækifæri sem opn-
ast og ég þarf að hugsa um,“ segir
Ann-ie.
Hún hefur stundað nám í efna-
fræði við Háskóla Íslands og stefnir
á læknisfræði. „Ég ætlaði að sjá
hvort ég gæti gert þetta, ætla að
vinna við að æfa eins og stendur en
langar líka að læra seinna, ég hef
líka mjög gaman af því að læra.“
Mikill fjöldi manna var á lokadegi
mótsins eða 8 þúsund manns en
fleiri fylgdust með á netinu. 50 bestu
konur heims kepptu til úrslita á
mótinu. Kristan Clever sem sigraði í
fyrra lenti nú í öðru sæti og voru
þær Ann-ie í toppbaráttunni fram á
lokadaginn. Annie fékk tæplega 30
milljónir króna í verðlaun og titilinn
„hraustasta kona í heimi.“
Annie yngsti keppandinn sem
vinnur heimsleika crossfit
„Búið að vera
tilfinningalegur
rússíbani“
Sigur Annie byrjaði að æfa fyrir keppnina viku eftir að heimsleikunum lauk í fyrra.
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 214. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ég gæti ekki verið ánægðari
2. „Þú skalt vita að þér mistókst“
3. Hágrét eftir sigurinn
4. Annie Mist sigraði
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vilmundur Kip Hansen garðyrkju-
fræðingur hefur gefið út bók um
garðyrkju með þjóðfræðiívafi. Hann
segir það hafa margsýnt sig að fal-
legir garðar færi fólki hamingju og
sálarró. »29
Fallegir garðar
færa fólki sálarró
Rafmagnaður gjörningur fer fram á
skemmtistaðnum Bakkusi við
Tryggvagötu kl. 22 í
kvöld. Listamennirnir
sem koma fram eru:
Jóhann Eiríksson,
Snorri Ásmundsson,
Arnljótur, Inside Bil-
derberg, Plasma-
bell og er sér-
stakur gestur
hljómsveitin
Epic Rain.
Aðgangur er
ókeypis.
Rafmagnaður
gjörningur á Bakkusi
Listamannsspjall í
Flóru í Listagilinu
Á fimmtudag-
inn lýkur sýningu
Örnu G. Vals-
dóttur myndlist-
arkonu í Flóru í
Listagilinu á Ak-
ureyri með lista-
mannsspjalli.
Spjallið hefst
klukkan 20, að-
gangur er ókeypis og allir velkomnir.
Kvöldið er gott tækifæri fyrir þau
sem eiga eftir að sjá sýninguna og
einnig þau sem langar að upplifa og
vita meira um verk Örnu.
Á miðvikudag og fimmtudag Austan 5-13 m/s og rigning sunn-
anlands, annars úrkomulítið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast inn til lands-
ins á Norðurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 5-15 m/s, hvassast syðst og á annesjum
NV-til. Rigning með köflum um mestallt land en dregur úr úrkomu
eftir hádegi, einkum S-til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast V-lands.
VEÐUR
KR-ingar eru í
skýjunum
Ásdís Hjálmsdóttir fær langþráð
tækifæri til að spreyta sig á ný meðal
þeirra bestu þegar hún verður með-
al keppenda á Dem-
antamótinu í London
sem fram fer á
föstudaginn. Allar
bestu spjótkasts-
konur heimsins
verða þar. Ás-
dís er að
falla á
tíma fyrir
HM. »1
Ásdís meðal keppenda á
demantamóti í London
Knattspyrnumaðurinn Eiður Aron
Sigurbjörnsson hefur skrifað undir
samning til fjögurra ára við sænska
úrvalsdeildarfélagið Örebro. Hann
mun leika með ÍBV gegn Fylki á mið-
vikudaginn en heldur í kjölfarið út. Í
samtali við Morgunblaðið kvaðst Eið-
ur vonast til að fá strax sæti í byrj-
unarliði Örebro sem er á ágætu róli
um miðja deild í Svíþjóð. »1
Eiður Aron samdi til
fjögurra ára við Örebro
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skannaðu kóðann
til að sjá myndskeið
frá keppninni.
„Þessi leikur var mjög erf-
iður og við erum í skýjunum
með að hafa klárað dæmið.
Það var mikill léttir þegar ís-
inn var brotinn í seinni hálf-
leik. Við mættum baráttu-
glöðu, vel skipulögðu og
góðu liði sem gerði okkur
erfitt fyrir,“ sagði Hannes
Þór Halldórsson markvörður
KR eftir að félagið tryggði
sér sæti í bikarúrslitum
KSÍ í þriðja sinn á fjór-
um árum. »4