Morgunblaðið - 22.08.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
www.noatun.is
Nóatúni
Nýttu þér nóttina í
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn
Dregið hefur úr misnotkun
Auðveldara fyrir yfirvöld að uppgötva misferli með notkun á litaðri olíu
Heildarsektir vegna ársins 2011 vegna misnotkunar námu 18 milljónum króna
Andri Karl
andri@mbl.is
Töluvert hefur dregið úr misnotkun
á litaðri olíu frá því að lagabreyting
var gerð í október síðastliðnum en
með þeim var gjaldskyldum aðilum
gert óheimilt að selja litaða olíu í
sjálfsafgreiðsludælum nema slík við-
skipti ættu sér stað með sérstöku
viðskiptakorti. Hjá ríkisskattstjóra
telja menn að breytingarnar hafi
greinilega haft þau fyrirbyggjandi
áhrif sem að var stefnt.
Einungis liggja fyrir upplýsingar
um fimm fyrstu mánuði ársins 2011
og skv. þeim er heildarsala á litaðri
olíu um 37.687.345 lítrar. Fyrir sama
tímabil ársins 2010 var salan um
45.427.714 lítrar. Heildarsala fyrstu
sex mánuði ársins 2009 var þá
64.748.971 lítri.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni hafa verið gerðar 609
athuganir, þ.e. bifreiðar stöðvaðar
og sýni tekin úr eldsneytistanki, það
sem af er ári. Í 28 tilvikum hefur
skýrsla verið send ríkisskattstjóra.
Til samanburðar voru gerðar 1.764
athuganir á síðasta ári og í 70 til-
vikum var send skýrsla til skatt-
stjóra.
Samkvæmt sömu upplýsingum
hefur dregið úr misnotkun á litaðri
olíu frá því að framangreind laga-
breyting var gerð og Vegagerðinni
gert kleift að draga úr eftirliti á veg-
um úti. Vegagerðin telur að bifreiða-
eigendur hafi áttað sig á því að rekj-
anleikinn með notkun á litaðri olíu sé
orðinn mun meiri en áður var, þ.e.
yfirvöld eiga mun hægara um vik en
áður að uppgötva misferli með notk-
un á litaðri olíu.
Hjá Ríkisskattstjóra fengust þær
upplýsingar að sektir vegna mis-
notkunar á litaðri olíu hefðu hækkað
um 50% með lagabreytingunni. Ekki
liggja fyrir upplýsingar um heildar-
sektir fyrir árið í ár en í fyrra námu
heildarsektir 18 milljónum króna.
Árið 2009 var fjárhæðin hins vegar
um 10 milljónir króna.
Morgunblaðið/Ómar
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Það er ekki áformuð nein hraðsala
á eignum bankans,“ segir Páll Bene-
diktsson, upplýsingafulltrúi skila-
nefndar Landsbankans, en í sunnu-
dagsútgáfu breska dagblaðsins
Daily Mail segir að skilanefndin
áformi gríðarmikla sölu á eignum
þrotabúsins á næstunni, í þeim til-
gangi að hraða endurgreiðslu Ice-
save-skuldarinnar svo að skuldina
megi gera upp á allra næstu mán-
uðum.
Nefna blaðamenn breska dag-
blaðsins matvöruverslanakeðjuna
Iceland, leikfangabúðina Hamleys,
skartgripafyrirtækið Aurum, móð-
urfélag Goldsmiths og Mappin &
Webb, og verslanirnar House of
Fraser. Þá hefur blaðið eftir heim-
ildarmönnum sínum að á næstu vik-
um hefjist átakið
og að afla eigi „að
minnsta kosti
hluta fjárins fyrir
jól“. Aðeins er
vitnað í ónafn-
greinda heimild-
armenn.
Páll segir ná-
kvæmlega ekkert
til í fréttinni.
Þetta sé ekki
stefnan „heldur þvert á móti að
halda þeirri stefnu sem verið hefur
að bíða eftir góðum tækifærum á
sölu, vera ekki að flýta sér í því,
heldur ná sem mestu fyrir eignirn-
ar“. Hann ítrekar að þrotabúið sé
því sem næst komið með eignir til
þess að borga allan höfuðstól Ice-
save-skuldarinnar, einmitt vegna
þessarar stefnu. Hún hafi því
margsannað sig.
Í frétt Daily Mail segir sömuleiðis
að ríkisstjórn Íslands þrýsti mjög á
skilanefndina um að selja eignir
fljótt og vel svo klára megi að gera
upp Icesave sem fyrst, vegna þess
að ríkisstjórnin vilji losna við þá
bresku og hollensku „af bakinu“.
Páll hafnar þessu alfarið og segir
aðspurður engan pólitískan þrýsting
frá ríkisstjórn Íslands á hraðari sölu
eigna. Allir séu sammála um að
stefna slitastjórnarinnar hingað til
hafi virkað vel og margborgað sig.
Í fréttinni segir að eina stóra
breska smásölufyrirtækið í búinu
sem ekki sé komið í formlegt sölu-
ferli sé House of Fraser. Þetta segir
Páll ekki rétt, þar sem Hamleys sé
það ekki heldur. Hann staðfestir það
þó að kaupum á þessum fyrirtækj-
um hafi verið sýndur áhugi, enda
banni slitastjórnin mönnum ekki að
sýna eignum þrotabúsins áhuga.
Engin hraðsala eigna
Landsbankans fyrirhuguð
Daily Mail segir sölu verða hraðað til að greiða Icesave
Páll
Benediktsson
Kvikmyndaskóli
Íslands var af
mennta- og menn-
ingarmálaráðu-
neytinu metinn
órekstrarhæfur á
fimmtudaginn og
mun Ríkisendur-
skoðun gera út-
tekt á honum. Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra sagði aftur á
móti á föstudag að skólanum yrði
tryggt fjármagn til þess að geta hald-
ið áfram rekstri, en í kvöldfréttum
RÚV sama dag var birt athugasemd
frá aðstoðarmanni hennar, þess efnis
að ekkert slíkt hefði verið samþykkt í
ríkisstjórn. Jóhanna hefur þó ekki
dregið orð sín til baka.
„Við teljum okkur hafa ærna
ástæðu til bjartsýni. Hún gaf okkur
vonarneista með þessum orðum sín-
um, þegar öll sund virtust lokuð. Og
sá vonarneisti hefur ekki verið
slökktur,“ segir Hilmar Oddsson,
skólastjóri Kvikmyndaskóla Íslands.
Á bíósíðu Morgunblaðsins í dag er
farið yfir málið og því velt upp hvort
ríkið ætli að byggja nýjan skóla á
rústum þess gamla. Hilmar Oddsson
segir þar að hann sé ekki enn búinn
að gefa upp vonina. Þá er viðtal við
Skúla Helgason, formann mennta-
málanefndar Alþingis, en hann við-
urkennir að ríkisstyrkurinn til Kvik-
myndaskóla Íslands hafi verið
afskaplega lágur í gegnum árin.
Sækja um atvinnuleysisbætur
Nemendur, sem hugðu á nám í
Kvikmyndaskóla Íslands í vetur,
sækja um atvinnuleysisbætur á
morgun. Þeim reiknast svo til að
bæturnar muni nema um 256 millj-
ónum á ári fyrir þá 140 nemendur,
sem skráðir voru í skólann. Áætlað
hefur verið að skólann vanti um 70
milljónir til að geta haldið áfram
starfsemi.
„Þetta er það eina sem við getum
gert í stöðunni,“ segir Ari Birgir
Ágústsson, nemandi við skólann, og
bætir við að nemendurna hafi ekki
órað fyrir því að þeir myndu eiga eft-
ir að standa í þessum sporum.
„Við erum í algjörri óvissu. Við er-
um ekki bara að berjast fyrir náminu
okkar, heldur berjumst við fyrir skól-
anum.“ »28
Enn ríkir
bjartsýni
Hilmar Oddsson
Nemendur sækja um
atvinnuleysisbætur
Mikil fagnaðarlæti brutust út á meðal gesta Menningarnætur Reykjavík-
urborgar þegar lokahnykkurinn á vígslu tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu fór fram á laugardagskvöld. Þá voru ljós í einstökum glerhjúp Ólafs
Elíassonar tendruð og listaverkið um leið fullskapað í fyrsta skipti.
Uppljómuð Harpa á Menningarnótt
Morgunblaðið/Kristinn