Morgunblaðið - 22.08.2011, Síða 12
Morgunblaðið/Ingveldur
Fagnað Ólafur Ragnar Grímsson setti Íslendingadaginn formlega.
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Íslendingadagurinn var haldinn há-
tíðlegur í höfuðborg Eistlands, Tall-
inn, í gær. Ástæðan: Ísland var fyrst
þjóða til að lýsa yfir stuðningi við
Eistland þegar það barðist fyrir að
endurheimta sjálfstæði sitt fyrir tutt-
ugu árum síðan. Á laugardaginn
héldu Eistar upp á tuttugu ára sjálf-
stæðisafmæli. Í gær þökkuðu þeir Ís-
lendingum fyrir stuðninginn með því
að halda Íslendingadag í Tallinn.
Mér var það strax ljóst við morg-
unverðarhlaðborðið á hótelinu að
dagurinn var stærri en ég hafði gert
mér í hugarlund. Fólk sem talaði
óskiljanlegt mál í mínum eyrum hafði
dagskrárbækling Íslendingadagsins
hjá sér við morgunverðinn og velti
fyrir sér hvaða listamenn þau ættu að
sjá; Það voru nöfn íslensku lista-
mannanna sem komu fram í tali
þeirra sem ég skildi; Snorri Helga-
son, Hjaltalín, Lay Low, Retro Stef-
son og Ólafur Arnalds. Þetta var stór
dagur í Tallinn og langt frá því að það
hafi bara verið nokkrir vinir Íslands
sem nutu þess sem dagurinn hafði
upp á að bjóða. Fjölmenni var á
hverjum viðburði. Á sumum stöðum
komust ekki allir að sem vildu, Lay
Low spilaði í porti við Sögusafn Eista
og þar var troðningur langt út á götu.
Sömu sögu var að segja hjá Snorra
Helgasyni.
Vinsæll dagur
Hjaltalín kom fram í háskólagarði í
gamla bænum enda mikið fjölmenni
sem ákvað að hlýða á þessa íslensku
sveit. Þar á meðal var utanríkisráð-
herra Eistlands, Urmas Paet. Hann
var ánægður með daginn þegar ég
náði tali af honum eftir tónleikana.
„Þetta hefur verið mjög góður dagur
og ég hef skemmt mér vel. Það eru
mikil gæði í öllu sem kemur frá Ís-
landi og fagmennska. Það var leiðin-
legt hvað það var lítið pláss fyrir gesti
á sumum viðburðunum, eins og á tón-
leikunum hjá Lay Low, sá staður var
of lítill og margir sem komust ekki
að,“ sagði Paet. „Ég var viss um að
dagurinn yrði vinsæll. Þegar ég sá
dagskrána vissi ég að þetta yrði vel
sótt af öllum kynslóðum og stéttum
eins og hefur sýnt sig.“ Ráðherrann
var viss um að Íslendingadagur yrði
haldinn aftur. „Þegar skoðað er
hversu vel þetta heppnaðist í dag sé
ég ekki annað en að þetta verði end-
urtekið, en ég get ekki lofað að það
verði á hverju ári,“ sagði Paet sem
var stórhrifinn af Hjaltalín. Ráð-
herrann er líka bráðungur, fæddur
1974 en hefur verið utanríkisráð-
herra Eistlands í sex ár, eða síðan
2005.
Forsetanum vel tekið
Það var Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands sem setti Íslendinga-
daginn formlega á miðnætti á laug-
ardagskvöldið að loknum flutningi Si-
nead O‘Connor á laginu „Nothing
Comepares 2 U“. Hann sló loka-
punktinn á stórum sjálfstæðistónleik-
um sem voru haldnir á laugardags-
kvöldið á flottu útitónleikasvæði í
Tallinn. Ólafi Ragnari var fagnað eins
og poppstjörnu og kölluðu áhorfend-
ur þakkir til hans, þakkir til íslensku
þjóðarinnar fyrir hugrekkið að
standa með þeim fyrst allra. Íslend-
ingadagurinn hófst svo formlega á
hádegi í gær með útitónleikum Ólafs
Arnalds á þaki verslunarmiðstöðvar
þar sem er rekið kvikmyndahús und-
ir berum himni. Utanríkisráðherrar
Íslands og Eistlands voru viðstaddir
tónleikana og virtust kunna vel að
meta tónlistina. Össur Skarphéðins-
son setti svo matarmarkað „Inspired
by Iceland“ á Íslandstorgi. Þar var
boðið upp á rétti úr íslensku hráefni
og virtust Eistar kunna vel að meta
það því torgið var fullt af fólki allan
eftirmiðdaginn. Ekki skemmdi fyrir
að Karlakór Kjalnesinga og Retro
Stefson spiluðu og sungu fyrir gesti.
Þá var íslensk samtímahönnun til
sýnis og ljósmyndasýning Páls Stef-
ánssonar var opnuð á veitingastaðn-
um SFÄÄR. Gærdagurinn endaði svo
á Íslendingapartíi þar sem listamenn-
irnir sem komu fram yfir daginn
tróðu líka upp við góðar undirtektir.
Íslendingadagur var haldinn í Tallinn í Eistlandi í gær Fjöldi íslenskra listamanna kom fram við
góðar undirtektir heimamanna Eistar héldu upp á tuttugu ára sjálfstæðisafmæli um helgina
Þökkuðu stuðning Íslendinga
Sigur Rós Garell hugðist kíkja á
heimildarmyndina Heima.
Það eru ekki aðeins þeir sem voru
orðnir fullorðnir þegar Eistland
endurheimti sjálfstæði sitt fyrir 20
árum sem voru með á hreinu hvern-
ig Ísland kom við sögu í þeirri bar-
áttu. Blaðamaður tók nokkur eist-
nesk ungmenni tali og spurði hvað
þau vissu um Ísland.
Vinkonurnar Lis, Lísa og Anna
voru á tónleikum Snorra Helgason-
ar. Þær vissu svolítið um Ísland.
„Höfuðborgin er Reykjavík. Nátt-
úran er fjölbreytt, það eru eldfjöll
og ís. Ísland var líka fyrsta landið
sem lýsti stuðningi við sjálfstæði
Eistlands fyrir tuttugu árum,“
sögðu stelpurnar. Ein þeirra hafði
átt íslenskan bekkjarfélaga og var
því betur að sér í Íslandsfræðunum
en hinar tvær. Þær ætluðu í Íslend-
ingapartíið í gærkvöldi til að sjá
hljómsveitina Sykur spila. Þær
vissu lítið um sveitina en höfðu hitt
bandmeðlimi á laugardagskvöldinu
og langaði að heyra í þeim. „Við
þekkjum bara Sigur Rós frá Íslandi.
En við ætlum samt að sjá nokkra ís-
lenska tónlistarmenn í dag og erum
spenntar fyrir því.“
Garell var með hjólið sitt við opn-
un hönnunarsýningarinnar. Honum
fannst ekkert undarlegt við það að
halda Íslendingadag í Tallinn. „Nei
mér finnst það ekki þegar horft er
til þess sem Ísland gerði fyrir Eist-
land fyrir 20 árum.“
Hvað veistu um Ísland? „Það er
eyja með ævintýralegu landslagi og
eldfjallavirkni.“
Garell ætlaði að sjá Sigur Rósar-
kvikmyndina Heima á dagskrá Ís-
lendingadagsins. „Tónlist Sigur
Rósar er eina íslenska tónlistin sem
ég þekki.“
Fjör Vinkonurnar Lis, Lísa og Anna voru á tónleikum Snorra Helgasonar.
Ísland hjá ungum Eistum
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
fyrst og fremst ódýr
Heils
a &
Holl
usta
25 g p
rótein
engin
n hvít
ur syk
ur
Hámark
próteind
rykkur,
jarðarbe
rja-, van
illu- og
skúkkula
ðibragðkr.
stk.168
Geymi
ð
blaðið
Heilsublaði
ð
er komið út
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón
Gnarr, útnefndi um helgina 80 ára
gamalt Evrópulerki í Hólavallagarði
Borgartréð 2011.
Tréð var valið af Skógræktarfélagi
Reykjavíkur í samstarfi við Reykja-
víkurborg og garðyrkjustjóra Kirkju-
garða Reykjavíkur. Tilgangurinn
með útnefningu Borgartrésins er að
vekja athygli á sérstökum gömlum
trjám sem vert er að hlúa að og varð-
veita til langrar framtíðar.
Í umsögn segir að Evrópulerkið,
Larix decidua, sem fyrir valinu varð í
ár sé það fegursta sinnar tegundar í
Reykjavík. Er hæð þess rúmir tíu
metrar. Það hefur gríðarstóra krónu
sem hvílir á tveimur íturvöxnum
stofnum.
Evrópulerkið var meðal fyrstu
trjátegunda sem reynt var að gróð-
ursetja hér á landi í upphafi 20. aldar.
Finna má aldargömul tré á nokkrum
stöðum.
Evrópulerki
borgartré
ársins 2011
Við tréð Jón Gnarr við Borgartréð.