Morgunblaðið - 22.08.2011, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þess eru ekkimörg dæmií sögunni að
tveir menn hafi
kúgað og kvalið
jafnmarga, jafn-
mikið og jafnlengi
og feðgarnir Kim
Il Sung og Kim Jong Il. Í
Norður-Kóreu búa á þriðja
tug milljóna sem í rúma sex
áratugi hafa af völdum þess-
ara manna mátt þola nær al-
gera einangrun frá umheim-
inum, algera skoðanakúgun
sem tæpast verður kölluð ann-
að en heilaþvottur heillar
þjóðar, viðvarandi matarskort
og stundum beinlínis hung-
ursneyð, verulegan skort á öll-
um öðrum neysluvarningi og
þægindum nútímans, auk
stöðugs ótta við refsingu yf-
irvalda verði þeim á að sýna
annað en fullkomna und-
irgefni og hollustu. Og þessa
stundina er Kim Jong Il í
Rússlandi á fundum með
æðstu mönnum, að því er virð-
ist meðal annars í þeim til-
gangi að afla syni sínum, Kim
Jong Un, stuðnings til að taka
við leiðtogahlutverkinu. Útlit-
ið er sannarlega ekki gott fyr-
ir ólánsama íbúa Norður-
Kóreu takist að framlengja
þetta ættarveldi.
Samkvæmt kenningum
Kim-feðganna og komm-
únistaflokksins eru íbúarnir
að vísu síður en svo ólánsamir.
Þessu er ágætlega lýst í bók-
inni Engan þarf að öfunda, en
titillinn vísar til áróðurs yf-
irvalda um að íbúar Norður-
Kóreu hafi það svo gott að þeir
þurfi ekki að öfunda íbúa ann-
arra ríkja. Þetta er hluti af
heilaþvottinum sem er eitt
mikilvægasta stjórntæki harð-
stjóranna. Landinu er lokað,
upplýsingum ekki hleypt inn
og svo er almenningi birt sú
mynd af ástandi eigin ríkis og
umheimsins sem hentar illum
tilgangi Kim-feðganna.
En þó að landið sé lokað hef-
ur nokkrum tekist að flýja og
bókin Engan þarf að öfunda,
sem kom út fyrr á þessu ári í
íslenskri þýðingu, er byggð á
viðtölum við þá sem sloppið
hafa úr harðræð-
inu. Lýsingarnar
eru með hreinum
ólíkindum og í
raun óskiljanlegt
að Kim Il Sung
skuli hafa tekist að
búa til þetta hrylli-
lega fangelsi úr norðurhluta
Kóreuskagans.
Vandamálin sem þessir
harðstjórar hafa skapað snúa
þó ekki aðeins að íbúum eigin
ríkis, því að Norður-Kórea
ógnar friði og öryggi í næstu
ríkjum, ekki síst í Suður-
Kóreu. Í landinu er einn
stærsti her heims með yfir
eina milljón manna undir
vopnum og Kim Jong Il hefur
af og til gefið nágrönnum sín-
um í suðri til kynna að hann
hiki ekki við að beita vopna-
valdi ef á þurfi að halda. Til-
raunir með langdrægar flaug-
ar og gereyðingarvopn sýna
raunar að ógnin gæti einnig
teygt sig enn lengra ef Norð-
ur-Kórea fær tíma og svigrúm
til að þróa vopnin áfram.
Talið er að á fundum Kim
Jong Il í Rússlandi verði
kjarnorkuáætlun Norður-
Kóreu rædd, auk orkumála og
matvælaskorts. Afar mik-
ilvægt er að þessar viðræður
skili árangri, en reynslan sýn-
ir að ástæða er til að stilla
væntingum í hóf þegar yf-
irvöld í Pyongyang eru annars
vegar. Þau eru bæði treg til að
semja og til að standa við það
sem þó er samið um.
Engu að síður kann að vera
að jafnvel í Norður-Kóreu
verði harðstjórar órólegir
þegar þeir sjá að ýmsir slíkir
hafa reynst fallvaltari en talið
var. Munurinn er hins vegar
sá að í engu öðru ríki hefur
tekist með sama hætti að
gegnsýra allt þjóðfélagið. Lík-
urnar á að almenningur rísi
upp á næstunni í Norður-
Kóreu eru því hverfandi og
þeim mun mikilvægara að
leiðtogar þeirra ríkja sem
helst hafa getað haft áhrif á
Kim-feðgana, sem eru Rúss-
land og Kína, þrýsti á um
breytingar í þessu risavaxna
fangelsi.
Kim-feðgarnir
eru ekki aðeins
hættulegir eigin
fólki heldur einnig
umheiminum}
Risavaxið fangelsi
Upplýst hefurverið að á
sama tíma og nið-
urskurður heldur
áfram í heilbrigð-
iskerfinu mun ríkið borga
þremur milljónum króna
meira á mánuði í húsaleigu
fyrir sameinað Landlækn-
isembætti og Lýðheilsustöð
en greitt var fyrir húsnæði
beggja áður. Og
það sem meira er,
ríkið þarf að
greiða tvær millj-
ónir á mánuði til
ársins 2027 fyrir húsnæði
Landlæknis sem nú stendur
autt.
Þetta er látið gerast í
miðjum niðurskurðinum á
sjúkrahúsum landsins.
Ekki er alltaf hag-
ræði af sameiningu}Milljónir í súginn
Þ
að hefur verið mögnuð stund í lítilli
sveitakirkju sumarið 1996, Skarðs-
kirkju í Landsveit, þegar lög Atla
Heimis Sveinssonar við ljóð Jón-
asar Hallgrímssonar voru frum-
flutt. Síðar voru þau flutt í sveitakirkjum
norðanlands, meðal annars í Bakkakirkju í
Öxnadal, en Jónas var sem kunnugt er fæddur
að Hrauni.
„Sveitakirkjur á Íslandi voru allt fram á
mína daga einu tónleikahús landsins og í þeim
var fumflutt mikið af tónlist okkar fyrr á þess-
ari öld,“ skrifar Atli Heimir í inngangsorðum á
geisladisknum Íslands minni með lagasafninu
við ljóð Jónasar. Það þarf ekki alltaf mikla yf-
irbyggingu, þó að tilhneigingin sé í þá átt hér á
landi!
Mikil tíðindi eru að þjóðin eigi nú svona fal-
leg lög við ljóðin, sem hver Íslendingur geymir í hjarta
sínu frá barnsaldri. Dalvísa er í sérstöku uppáhaldi hjá
mér, en fyrsta erindið er svohljóðandi eins og allir vita:
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Í ævisögu Jónasar Hallgrímssonar, sem Páll
Valsson færði í letur, segir frá því er Jónas
sendi Dalvísu til félaga sinna í Fjölni í janúar
1844 „með þeirri nótu að „það er best að hrein-
skrifa þetta fyrr en maður les það sér til upp-
byggingar“, og ýtir þar með undir þá túlkun að
Dalvísa sé eins konar litúrgískur lofsöngur til
landsins, kannski ekki síst Öxnadals, þar sem
hrynjandi og tónlist bragsins er einn sterkasti
þátturinn.“
Og hún er athyglisverð önnur nóta Jónasar,
sem líka á við um Sláttuvísu: „Það er annars
ógjörningur að eiga sér ekki lög til að kveða
þess konar vísur undir; svona komast þær
aldrei inn hjá alþýðu.“
Sjálfur var Jónas ágætur söngmaður „á
góðra vina fundi“.
Brynjólfur Pétursson svaraði Jónasi 12.
febrúar eftir að hafa lesið Dalvísu upp á Fjölnisfundi: „Ég
skrifaði upp dalvísuna þína, eins og þú baðst mig um. Ekki
hef ég látið búa til lag við hana. Ég er hræddur um það sé
ekki hægt að leggja hana út, af því hún er nokkuð „ej-
endommelig og original“. Ég las hana upp á fundi og fund-
armenn sögðu hún væri falleg og skrítin og báðu mig að
biðja þig að gefa Fjölni hana. Þú gerir það! nicht wahr? Þú
verður blessaður að senda okkur eitthvað meira.“
En nú hefur ósk Jónasar ræst. Mikið er lagið fallegt og
meira að segja til í léttum útsetningum fyrir píanó, sem
blaðamenn geta tileinkað sér, þó að rúm rúm tuttugu ár
séu síðan þeir lærðu á það hljóðfæri.
Pétur
Blöndal
Pistill
Fífilbrekka Jónasar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
A
nna Hazare er orðinn að
tákni fyrir andóf á Ind-
landi. Hazare hefur leitt
baráttu gegn spillingu í
landinu og þegar hann
var handtekinn vegna mótmæla gegn
nýjum lögum gegn spillingu, sem
hann telur að gangi allt of skammt,
fylltust götur landsins af mótmæl-
endum.
Margir af stuðningsmönnum Haz-
are líkja honum við Mahatma Gandhi,
sjálfstæðishetju Indverja. Hazare
sækir einnig í smiðju hans. Hazare
hóf á föstudag 15 daga hungurverk-
fall eftir að hundruð þúsunda stuðn-
ingsmanna fylgdu honum í göngu um
Nýju Delí þrátt fyrir úrhellisrign-
ingu. Gangan var sýnd beint um allt
landið.
Hann gerir kröfu um að nýju lög-
unum verði breytt, í núverandi mynd
muni þau engu breyta um spillingu í
landinu. „Nú er að duga eða drepast,
rétt eins og í sjálfstæðisbaráttunni,“
sagði hann í liðinni viku. „Annaðhvort
tekst okkur fyrirætlan okkar eða við
færum hina endanlegu fórn. Rík-
isstjórnin er að reyna að blekkja íbúa
þessa lands – við munum ekki láta
það gerast.“
Manmohan Singh forsætisráð-
herra segir að herferð Hazare sé á
misskilningi byggð, en honum hefur
ekki tekist að slá á reiði almennings.
Stjórn Singhs er með afgerandi
meirihluta á þingi, en hvert spilling-
armálið hefur rekið annað og nú
hriktir í stoðum hennar.
Í mars varð mikið uppnám á ind-
verska þinginu þegar Wikileaks birti
bandarískan sendiráðspóst þar sem
því var lýst að háttsettur aðstoð-
armaður Congress-flokksins sýndi
bandarískum sendierindreka „kassa
með reiðufé“ sem sagt var að hefði
verið notað til að múta þingmönnum
til að verja stjórnina vantrausti 2008.
Lekinn birtist aðeins nokkrum dög-
um eftir að ráðgjafafyrirtækið
KPMG birti skýrslu þar sem sagði að
spilling væri að verða svo mikil að það
gæti staðið hagvexti í landinu fyrir
þrifum. Ekki væri aðeins um það að
ræða að hinn daglegi veruleiki þar
sem greiða þyrfti mútur fyrir hvert
viðvik, allt frá fæðingarvottorðum til
viðskiptaleyfa, væri dragbítur á efna-
hagslífið, heldur umfangsmiklar
svikamyllur þar sem stjórnvöld og
viðskiptalífið kæmu milljörðum doll-
ara undan.
Í febrúar var samgönguráðherra
landsins, Andimuthu Raja, handtek-
inn og sakaður um að hafa selt aðgang
að farsímatíðni fyrir brot af andvirð-
inu. Sumir fréttaskýrendur segja að
þetta sé mesta hneyksli í sögu Ind-
lands og endurskoðendur telja að rík-
issjóður landsins hafi orðið af næstum
40 milljarða dollara tekjum með því
að halda ekki uppboð á tíðnisviðinu.
Og ekki er ein báran stök. Herfor-
ingjar á eftirlaunum og ættingjar
háttsettra stjórnmálamanna eru sak-
aðir um að hafa nælt sér í íbúðir í
Mumbai, sem reistar voru fyrir
stríðsekkjur. Spilling og fúsk ein-
kenndi framkvæmd samveldisleik-
anna í Delí í fyrra og kostuðu þeir 4,1
milljarð dollara í stað 270 milljóna
eins og í upphafi var ætlað og reynd-
ust tekjurnar aðeins 38 milljónir doll-
ara.
Hin daglega spilling hefur ásamt
þessum stóru málum valdið vaxandi
óánægju í landinu, sérstaklega hjá
millistéttarfólki og hún fær nú útrás í
stuðningi við herferð Hazares.
Þegar Hazare var handtekinn
ásamt þúsundum mótmælenda jókst
reiðin. Á miðvikudag flutti Singh
ræðu í þinginu gegn Hazare og sagði
að lögin gegn spillingu væru eina for-
gangsmál þingsins. Sama dag gengu
tugir þúsunda manna um götur Nýju
Delí og sögðu að vandinn, sem Singh
þyrfti að taka á, væri ekki Hazare
heldur spilling.
Herför gegn spillingu
kveikir í fjöldanum
Reuters
Gegn spillingu Anna Hazare var á föstudag sleppt úr fangelsi og fylgdi
honum mikill mannfjöldi í Nýju Delí er hann fór til að hefja hungurverkfall.
Anna Hazare er lágvaxinn, 74
ára gamall fyrrverandi bílstjóri
úr indverska hernum. Hann dáir
Mahatma Gandhi og klæðist líkt
og hann. Hugmyndum hans um
að byggja Indland upp í kringum
sjálfbær þorp svipar til hug-
mynda Gandhis.
Hazare hóf fyrir helgi hung-
urverkfall gegn spillingu, en því
vopni beitti Gandhi til að þrýsta
á bresku nýlenduherrana á sín-
um tíma. Hazare barðist í stríði
Indverja og Pakistana um
Kasmír 1965. Eitt sinn slapp
hann naumlega undan loftárás
og kveðst þá hafa ákveðið að
helga líf sitt velferð mannkyns.
Í anda
Gandhis
FASTAR GEGN SPILLINGU
Fastar Hazare fyrir framan Gandhi.