Morgunblaðið - 29.08.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
FRÉTTASKÝRING
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Við blasir að stofnaður verði Hofs-
jökulsþjóðgarður með Þjórsárver í
suðri, Kerlingafjöll í vestri. Guð-
laugsstungur norðan Hofsjökuls hafa
þegar verið friðlýstar. Samkvæmt
tillögunni [að rammaáætlun að vernd
og nýtingu náttúrusvæða] verða öll
þessi svæði vernduð. Næsta skref er
að bæta við Jökulsám Skagafjarðar
og Hveravallasvæði, sem voru sett í
biðflokk.“
Þetta var fullyrt í tilkynningu frá
Náttúruverndarsamtökum Íslands
þegar samtökin fögnuðu því að með
þingályktunartillögunni hefði unnist
mikilvægur sigur.
Fullyrðingin um að Hofsjökuls-
þjóðgarður sé hið rökrétta næsta
skref vakti ekki ýkja mikla athygli og
það er helst að félagsmenn í Ferða-
klúbbnum 4x4 hafi tekið eftir henni
og er nokkur titringur í klúbbnum
vegna hennar. Á spjallsvæði klúbbs-
ins kemur skýrt fram að félags-
mönnum 4x4 líst illa á hugmyndina
og vísa þeir ekki síst til þess að fé-
lagsmenn hafi orðið illa úti þegar
vegum og slóðum var lokað í Vatna-
jökulsþjóðgarði.
Kynning og meiri verndun
Árni Finnsson, framkvæmdastjóri
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
bendir á að hugmyndin að Hofsjök-
ulsþjóðgarði sé ekki ný af nálinni
heldur hafi Hjörleifur Guttormsson
lagt til á sínum tíma að þjóðgarðar
yrðu stofnaðir út frá helstu jöklum á
hálendinu.
Vatnajökulsþjóðgarður var fyrst
lítið annað en jökulhettan en hefur
síðan breiðst út.
– En hvers vegna dugar ekki að
friðlýsa þau svæði sem að ofan eru
nefnd? Þarf líka þjóðgarð?
„Ég held að þjóðgarður, eins og á
við um Vatnajökulsþjóðgarð, sé stór-
kostlegt markaðstæki, ef svo má
segja. Þjóðgarður er góð auglýsing
og kynning fyrir svæðið. Stofnun
þjóðgarðs felur einnig í sér ákveðna
löggjöf, eftirlit og vinnu við verndun
svæðisins,“ segir Árni.
Hann telur öll rök hníga að því að
þau svæði í grennd við Hofsjökul
sem lenda í biðflokki verði færð í
verndarflokk. Þá sé það forsenda fyr-
ir stofnun þjóðgarðs að Norðlinga-
ölduveita verði slegin út af borðinu
og friðland Þjórsárvera stækkað.
Árni segir svæðið henta afar vel til
að gera úr því þjóðgarð. Það sé afar
fjölbreytt, náttúruverndargildi mjög
mikið og mörg svæði henti vel til úti-
vistar, s.s. Kerlingafjöll, Hveravellir
og Jökulsárnar í Skagafirði sem þeg-
ar séu nýttar til flúðasiglinga. Hann
bendir einnig á að innan þjóðgarðs
geti verið mismunandi strangar regl-
ur um umgengni, t.d. séu strangar
reglur um vernd Þjórsárvera en ann-
ars staðar, innan þjóðgarðsins, gæti
verndunin verið minni.
Fáránleg hugmynd
Sveinbirni Halldórssyni, fyrrum
formanni Ferðaklúbbsins 4x4 og nýj-
um formanni ferðafrelsisnefndar
klúbbsins, líst á hinn bóginn vægast
sagt illa á hugmyndina um stofnun
Hofsjökulsþjóðgarðs. Hann segir fé-
lagsmenn hrædda um að undirbún-
ingur að stofnun þjóðgarðs sé kom-
inn lengra en látið sé uppi opin-
berlega.
Sveinbjörn segir að klúbburinn
hafi alltaf litið svo á að hálendið væri
fyrir alla landsmenn en nú virtist
sem hið opinbera og ákveðnir aðilar í
ferðaþjónustu ætli að breyta því.
Þessi öfl vilji með stofnun þjóðgarða
stórfjölga erlendum ferðamönnum á
hálendinu en um leið loka aksturs-
leiðum sem eknar hafi verið um ára-
tugaskeið og takmarka þannig
möguleika Íslendinga á að ferðast
um landið sitt. „Það er verið að búa
til ferðamannarekstur uppi á hálend-
inu sem við ráðum ekkert við. Um
leið er verið að koma í veg fyrir að
landsmenn geti sjálfir komist upp á
hálendið,“ segir hann. Víða á hálend-
inu séu staðir sem séu að spillast
vegna þess að engin aðstaða, s.s. sal-
erni, sé fyrir göngufólk og aðra. Nær
væri að huga að slíkri uppbyggingu.
Vatnajökull situr
í mönnum
Í vetur urðu harðar deilur um
verndaráætlun fyrir Vatnajökuls-
þjóðgarð, einkum um samgöngur
innan þjóðgarðins. Ferðaklúbburinn
4x4 gagnrýndi vinnubrögð við gerð
verndaráætlunarinnar harðlega.
Klúbburinn hefði nánast ekkert
fengið að koma sínum sjónarmiðum
að og taldi freklega á rétt sinn geng-
ið, ekki síst þegar lokað var fyrir um-
ferð um Vonarskarð og um Vikra-
fellsleið auk annarra leiða. „Við
teljum að við höfum verið hlunn-
farnir í Vatnajökulsþjóðgarði og við
óttumst að hið sama gerist við Hofs-
jökul,“ segir Sveinbjörn. Viðbrögðin
við Hofsjökulshugmyndinni litist af
reynslunni við Vatnajökul. Reyndar
sé nú að störfum samgöngunefnd
Vatnajökulsþjóðgarðs sem sé að fara
yfir samgöngumál í garðinum og
hvort einhverjar tilslakanir verði
gerðar. Sveinbjörn bendir á að
klúbburinn sé aðeins að fara fram á
tímabundna opnun á leiðunum innan
þjóðgarðsins, þ.e. að þær séu opnar
frá ágústmánuði, þannig að ferðir
göngufólks og jeppamanna skarist
ekki.
Skáli innan friðlands
Ferðaklúbburinn 4x4 á skálann
Setrið sem mun lenda innan Þjórs-
árverafriðlandsins, verði það stækk-
að. Verið er að ræða um áhrif stækk-
unarinnar á akstursleiðir en
Sveinbjörn bendir á að 4x4 hafi stuðl-
að að betri umgengni við landið í ná-
grenni Þjórsárvera sem annars stað-
ar. Náttúruvernd og ferðamennska á
vélknúnum tækjum geti vel farið
saman.
Lífi blásið í Hofsjökulshugmynd
Fjölbreytt svæði með hátt verndargildi Margar útivistarperlur Góð kynning fyrir ferðamenn
Mikil tortryggni innan Ferðaklúbbsins 4x4 Sagan frá Vatnajökli muni endurtaka sig
Hugmynd um Hofsjökulsþjóðgarð
Illugaver
Arnarfellsver
Geirafell
Blautukvíslareyrar
Eyvafen
Þjórsárver
Vatnajökuls-
þjóðgarður
Vatnajökuls-
þjóðgarður
Blöndulón
Guðlaugstungur
Setrið – skáli Ferða-
klúbbsins 4x4
Hofsjökull
Langjökull
Austurdalur
Vesturdalur
Rústamýrarvist
– verndunartillaga
Austari- og Vestari jökulsár
– hugmyndir um verndun (mörk
svæðis hafa ekki verið kynnt)
Hveravellir
– hugmyndir um verndun (mörk
svæðis hafa ekki verið kynnt)
Kerlingarfjöll
– hugmyndir um verndun (mörk
svæðis hafa ekki verið kynnt)
Kjölur
Sp
re
ng
is
an
du
r
Ingólfsskáli
Laugafell
Hveravellir
Kerlingarfjöll
Hvítárnes
Árbúðir
Friðlýst svæði
Tillögur/hugmyndir að
verndarsvæðum
Skáli
Svartárbotnar
Þverbrekknamúli
Þjófadalir
Arnarbæli
Ströngukvíslarskáli
Áfangaflá
Orravatnsbúðir
Grani
Gásagustur
Þúfuvatnaskáli
Sóleyjarhöfði
Tjarnarver
Nautalda
Klakkur
Leppistungur
Grunnkort: Landmælingar Íslands
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
26.900,-
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
SÍÐASTI DAGUR
ÚTSÖLUNNAR
Alls söfnuðust rúmlega 40 milljónir króna í átakinu „Á allra vörum“
2011. Söfnunarféð verður notað til að kaupa nýtt hjartaómskoðunar-
tæki fyrir börn, sem staðsett verður á Barnaspítala Hringsins. Tækið
hefur verið nefnt „Hjörtur“, en sú tillaga kom fram með þessum orð-
um: „Megi Hjörtur bjarga mörgum litlum hjörtum“ - í beinni útsend-
ingu á Skjá einum og mbl.is á föstudagskvöldið. Átakið hófst formlega
12. ágúst með sölu á hinum landsþekktu „Á allra vörum“-glossum frá
Dior og lauk með söfnunarþættinum á Skjá einum. Enn er hægt að
leggja átakinu lið með því að hringja í símanúmerin 903 1000, 903
3000 og 903 5000.
Ríflega 40 milljónir söfnuðust
Davíð Þorláks-
son, héraðsdóms-
lögmaður, var í
gær kjörinn for-
maður Sambands
ungra sjálfstæð-
ismanna. Alls
greiddu 220 at-
kvæði og komu
127 atkvæði í
hlut Davíðs. Mót-
frambjóðandi hans Björn Jón
Bragason, sagnfræðingur og laga-
nemi, hlaut hins vegar 77 atkvæði.
Auðir og ógildir atkvæðaseðlar
voru 16.
Fimmtán seðlar voru ógildir og
einn auður. Hlaut Davíð því 62%
gildra atkvæða en Björn Jón 38%.
Sambandsþing SUS var að þessu
sinni haldið í Hveragerði. Ólafur
Örn Nielsen, núverandi formaður,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Davíð Þorláksson
kjörinn formaður á
sambandsþingi SUS
Davíð Þorláksson