Morgunblaðið - 29.08.2011, Qupperneq 12
Á heimasíðunni www.byggi.is er hægt að senda inn tillögur um
hvernig best er að borða morgunkornið eða útbúa úr því rétti. Frið-
rik segir íþróttafólk m.a. hafa tekið ástfóstri við Bygga og nota í
heilsusamlegan „boost“-drykk eins og þennan hér:
Bygga Boost
30 g Bygga morgunkorn
1 lítil dós hreint skyr
½ banani
slatti af frosnum jarðarberjum
Aðferð: Sett í blandara og blandað eftir smekk.
Hentar líka í blandarann
ÓSKA EFTIR UPPSKRIFTUM
Aðstandendur Árla eiga örugg-
lega ærinn starfa fyrir höndum.
Eftir miklu er að slægjast á
morgunkornsmarkaðinum og
þannig sýndi ein bandarísk
könnun fram á að um 30% íbúa
þar í landi hefja daginn á skál af
morgunkorni, mun fleiri en fá
sér nokkurn annan rétt. (Næst
kom egg og beikon sem 11% fá
sér í morgunverð).
Stórir aðilar eins og Kellogg‘s
og General Mills ráða hins vegar
markaðinum og hafa efni á
kröftugum auglýsinga-
herferðum. Við bætist að morg-
unverðurinn er oft talinn vera
sú máltíð dagsins sem
fólk á erfiðast með að
breyta. Þó auðvelt sé að
prófa nýjan hádegis-
verð eða kvöldverð er
vaninn oft mjög sterk-
ur þegar kemur að
fyrstu máltíðinni.
Á móti kemur að markaðurinn
fyrir morgunkorn virðist fara ört
stækkandi. Síðustu ár hafa
veltu- og sölutölur á lykilmörk-
uðum hækkað nokkuð vel ár
fram af ári hjá helstu framleið-
endum. Eins eru stóru framleið-
endurnir að ryðja veginn inn á
fjarlægari markaði. Morgunkorn
eru t.d. orðin nokkuð algeng á
morgunverðarborðum Róm-
önsku-Ameríku og æ fleiri As-
íubúar kippa með kassa af
Cheerios eða Corn Flakes þegar
keypt er inn fyrir vikuna.
Morgunkorns-markaðurinn
stækkar hratt milli ára
HARÐUR MATARSLAGUR MORGUNKORNA
Reuters
Matur Baráttan um hilluplássið og hylli neytenda er hörð úti í heimi.
Íslenskir neytendur hafa tekið
Bygga vel. Salan hefur farið
ágætlega af stað og hægt er að
kaupa morgunkornið í flestum
matvöruverslunum. „Það stend-
ur okkur örugglega fyrir þrifum
að Byggi á erfitt með að keppa
við ódýrustu morgunkornin.
Pakkinn af Bygga lendir í dýrari
verðflokki morgunkorna, m.a.
vegna þess að við notum íslenskt
hráefni. Það er enginn vafi að ef
við myndum nota erlent bygg og
umbúðir væri hægt að lækka
verðið. Hins vegar fleytir það
okkur eflaust að sama skapi
langt að varan er bráðholl og
mikil vakning í samfélaginu um
gildi þess að bæði borða hollan
mat og styðja innlenda fram-
leiðslu.“
Friðrik er stórhuga og vonast
til að byrjað verði að selja Bygga
á erlendum mörkuðum í lok
næsta árs. „Við höfum verið að
skoða markaðinn t.d. í Bretlandi
og á Norðurlöndum og erum í
sambandi við áhugasama ein-
staklinga þar. Við gerum okkur
um leið grein fyrir að sam-
keppnin á morgunkornamark-
aðinum er gríðarlega sterk,“
segir hann. „Við hugsum okkur
ekki að fara þar inn með stórum
auglýsingaherferðum heldur
frekar að leggja áherslu á kynn-
ingar í verslunum eins og við höf-
um gert á Íslandi. Við sjáum að
það kemur vel út í sölu hjá okkur
að leyfa viðskiptavininum að
prófa vöruna og smakka.“
Hollustan og Skráargats-
vottunin vonar Friðrik að hjálpi
til við sókn inn á erlenda mark-
aði. Þannig er Skráargatið vel
þekkt meðal skandinavískra
neytenda og greiðir leiðina að
morgunverðarborði þeirra sem
hugsa um heilsuna. „En við
myndum líka reyna að gera
meira úr því að framleiðslan
kemur frá Íslandi. Þar sem við
höfum svipast um virðist velvild
ríkja í garð Íslands og frekar
styrkleiki en nokkuð annað að
vara sé framleidd hér á landi.“
Kynningar í versl-
unum koma vel út
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í verslunum hér á landi má finna gómsætar ís-
lenskar steikur í kvöldmatinn, innlendar sam-
lokur og salatbakka til að snæða í hádeginu, ís-
lenskt kex með kaffinu eða íslenskt
súkkulaðigott til að narta í yfir daginn. En ís-
lenskir matvælaframleiðendur hafa hingað til
að stóru leyti vanrækt mikilvægustu máltíð
dagsins: morgunverðinn.
Árla ehf. heitir ungt fyrirtæki í Borgarnesi
sem ætlar að taka slaginn við Kelloggs-hanann
og Cocoa Puffs-gaukinn með
alíslenska morgunkorninu
Bygga. „Að koma fram-
leiðslunni af stað hefur verið
þriggja ára ferli hjá okkur
og mikil vinna farið bæði í að
finna réttu tækin og þróa
réttu tæknina,“ segir Frið-
rik Arilíusson, fram-
kvæmdastjóri og einn eig-
enda Árla.
Morgunkornið er fram-
leitt úr íslensku byggi sem ræktað er á Þor-
valdseyri en Friðrik segir það hafa verið hálf-
gerða tilviljun að sá ræktandi varð fyrir valinu.
„Við sem stöndum að rekstrinum erum ekki
bændur og höfum engin tengsl við byggrækt-
endur. Við erum einfaldlega frumkvöðlar og
áhugamenn um matvælaframleiðslu. Þegar við
fórum að leita að hráefni reyndist Þorvaldseyri
vera hentugasti staðurinn.“
Leggst vel í magann
Morgunkornið Byggi kom í verslanir í maí en
von er á allt að fjórum nýjum bragðtegundum.
„Við seljum núna hreinan Bygga en í lok sept-
ember vonumst við til að hefja sölu á Kanil-
Bygga og svo í framhaldinu Sætum-Bygga,“
segir Friðrik en morgunkornið er í laginu eins
og nokkurs konar bjarnarloppa og á stærð við
hefðbundna morgunkorns-hringi. „Þetta er
vara sem er ekki lík neinu öðru sem fyrir er á
markaðinum. Bæði er bragðið einstakt og svo er
innihald pakkans mjög heilsusamlegt. Á meðan
það er allt að 44% sykurmagn í sumum teg-
undum morgunkorns þá er 0% viðbættur sykur
í Bygga. Þá býr byggið yfir þeim eiginleika að
vera mjög próteinríkt, trefjaríkt og auðugt að
flóknum kolvetnum sem veita jafna og góða
orku í langan tíma eftir máltíðina. Sjálfur hef ég
fundið hvað ég verð mun orkumeiri og seinna
svangur á daginn þegar ég fæ mér Bygga í
morgunverð. Eldra fólk segir Bygga fara vel í
maga og vera góðan fyrir meltinguna og einnig
sýnir líkamsræktarfólk þessu morgunkorni
mikinn áhuga vegna hollustuþátta.“
Bygga segir Friðrik að hægt sé að borða eins
og venjulegt morgunkorn með gusu af mjólk.
„Svo má líka prófa súrmjólk eða ab-mjólk og
„dass“ af ávöxtum eins og bönunum og rús-
ínum. Ég hef heyrt af fólki sem finnst gott að
bæta heitu kakó út á Bygga. Aðrir nota Bygga í
„boostið“ sitt á morgnana og fá sér morgun-
kornið þurrt á milli mála sem snarl, eins og t.d.
litli guttinn minn sem er þriggja ára, og fær sér
Bygga sem kvöldnasl.“
Umhugað um hollustuna
Friðrik segir Bygga vera fyrstu íslensku mat-
vöruna sem tekur í notkun Skráargats-merkið.
Skráargatið er norrænt gæðamerki sem vottar
að varan er hollur valkostur. „Miðað er við
staðla um að ekki sé farið yfir ákveðið hámarks-
magn sykurs, fitu og annarra efna og varan
innihaldi lágmarksmagn trefja og próteins.
Markmiðið er að auðvelda viðskiptavinum að
finna hollari matvæli í hillum verslananna.“
Hollustan segir Friðrik að sé höfð að leiðar-
ljósi í framleiðslunni. Hann reiknar þó með að
setja á markaðinn sykraða útgáfu til að mæta
þeim hópi neytenda sem hafa vanist dísætum
morgunkornum og eiga erfitt með að kveðja
sykurinn með öllu. „En við reynum að hjálpa
fólki að breyta matarvenjum heimilismeðlima
t.d. með því að vera með pakkningar sem höfða
til barna. Pakkningarnar eru skemmtilegar og
litríkar með viðkunnanlegum fígúrum eins og
Bygga ísbirni. Með haustinu setjum við endur-
skinslímmiða með ofan í boxið og vonum að allt
þetta hjálpi foreldrum að gera börnin sín
áhugasamari um að borða hollari morgunverð.“
Ætla að taka slaginn
við Kelloggs-hanann
Hófu sölu í vor á morgunkorni úr íslensku byggi Í líflegum umbúðum sem eiga að hjálpa for-
eldrum að vekja áhuga barna á hollara mataræði Vonast til að selja til útlanda í lok næsta árs
Friðrik Arilíusson
Galsi Pakkningarnar utan um Bygga eru litríkar og líflegar. Friðrik segir hönnunina til þess gerða að auðveldara verði fyirr foreldra að fá börn-
in til að prófa heilsusamlegt morgunkornið. Einkennisdýr framleiðslunnar er Byggi ísbjörn sem alla jafna býr á Vatnajökli í góðu yfirlæti.
12 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011