Morgunblaðið - 29.08.2011, Page 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
7
9 4
9 5
8 1 2
7 6 1 2
2 4 9 5 6
8 4 6 9
9 1 4 7
8
6
1 5 9
7 9 5
8 9 3
8 1 9
1 2
6 7 2 9 1
2 3 6 8
4 3
9 2 5 8
6 7
1 7 9 5
8 5 1 4
8 9
5 6
3 9 8 6
2 8 9 5 4 3 6 1 7
5 6 3 9 7 1 8 2 4
1 7 4 6 2 8 3 5 9
3 1 7 8 9 6 5 4 2
8 9 6 4 5 2 1 7 3
4 5 2 1 3 7 9 8 6
6 3 5 2 8 4 7 9 1
9 2 1 7 6 5 4 3 8
7 4 8 3 1 9 2 6 5
7 9 5 4 2 6 8 1 3
3 4 2 1 8 9 6 5 7
8 1 6 3 5 7 9 4 2
4 7 1 6 3 5 2 9 8
2 5 8 7 9 1 3 6 4
6 3 9 2 4 8 1 7 5
1 2 7 8 6 4 5 3 9
9 8 4 5 1 3 7 2 6
5 6 3 9 7 2 4 8 1
8 5 4 7 2 3 9 6 1
7 2 9 1 4 6 3 5 8
3 6 1 5 8 9 2 7 4
6 4 2 9 7 8 1 3 5
1 8 3 6 5 4 7 2 9
9 7 5 3 1 2 4 8 6
2 3 8 4 6 1 5 9 7
5 1 6 2 9 7 8 4 3
4 9 7 8 3 5 6 1 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 29. ágúst,
241. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Því að augu Drottins eru
yfir hinum réttlátu og eyru hans
hneigjast að bænum þeirra. En auglit
Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra.
(1Pt. 3, 12.)
Víkverji furðar sig oft á umferð-armenningu landsmanna. Af
hverju kvarta mótorhjólamenn t.d.
undan því að ekki sé tekið tillit til
þeirra í umferðinni en sikksakka
síðan sumir hverjir á milli akgreina
og keyra alveg upp að hliðinni á
manni? Já eða prjóna á miklum
hraða í Ártúnsbrekkunni í sunnu-
dagshádegi? Hvernig stendur líka á
því að „enginn“ hér virðist kunna
að nota vinstri akreinina? Hún er
ekki til að keyra á í rólegheitum
frá Háskóla Íslands ef þú ætlar að
beygja til vinstri á Lönguhlíðinni.
Þessi akrein er ætluð til þess að
taka fram úr þannig að umferðin
gangi greiðlega. Já, og svo virðast
sumir bílar nú til dags einfaldlega
ekki vera framleiddir með stefnu-
ljósum. Ja, nema fólk nenni einfald-
lega ekki að nota þau. Það er nátt-
úrlega alveg ferlegt.
x x x
Víkverja finnst bara svo undar-legt hvað Íslendingar geta oft
verið ótillitssamir í umferðinni. Við
erum svo sem ekkert ein um það.
Sjáið bara Ítalina og Frakkana sem
steyta hnefann og æpa ókvæðisorð
hver að öðrum. En þeir keyra líka í
hringtorgum með sex akreinum svo
það er ekkert skrýtið að bílstjórar-
nir séu stressaðir og æstir. Við Ís-
lendingar ættum hins vegar að
geta verið svo rólegir þar sem við
keyrum um og þurfum bara að
muna að vinstri akreinin er ekki til
að drolla á. Það er raunverulega
allt og sumt sem við þurfum að
muna, fyrir utan auðvitað að setja
á okkur bílbeltið, gefa stefnuljós í
tæka tíð og aka ekki of hratt. Smá-
tillitssemi og kurteisi kostar líka
ekkert og það er t.d. allt í lagi að
hleypa bíl inn á akreinina sem þú
ert að keyra á. Þú ert nefnilega
ekki ein/n í heiminum og þetta er
ekki keppni um að komast fyrstur í
mark. Umferðin er miklu frekar
samvinna þar sem við eigum öll að
vinna saman að því að komast
örugg á áfangastað án þess að vera
orðin eldrauð í framan og reyta hár
okkar af pirringi og stressi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lak, 8 dugnaður-
inn, 9 vel látinn, 10 ferskur,
11 móka, 13 sár, 15 málms,
18 skýla, 21 kjökur, 22 upp-
lýsa, 23 hæðin, 24 óhemja.
Lóðrétt | 2 skærur, 3
þekkja, 4 furða, 5 heið-
ursmerkjum, 6 álít, 7 tölu-
stafur, 12 tunga, 14 muldur,
15 ávaxtasafi, 16 þor, 17
slark, 18 herðaskjólið, 19
eðlinu, 20 fífl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 bílar, 4 förla, 7 vélar, 8 öngul, 9 tál, 11 lóan, 13 grær, 14
álaga, 15 hörð, 17 treg, 20 bik, 22 molla, 23 nútíð, 24 rugla, 25
rúðan.
Lóðrétt 1 búvél, 2 lalla, 3 rýrt, 4 fjöl, 5 rígur, 6 aular, 10 ábati,
12 náð, 13 gat, 15 hímir, 16 róleg, 18 ritað, 19 gæðin, 20 baga, 21
knár.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tölvan segir JÁ.
Norður
♠1093
♥K106
♦G96
♣D1085
Vestur Austur
♠ÁD842 ♠K765
♥DG85 ♥97
♦K872 ♦10543
♣-- ♣763
Suður
♠G
♥Á432
♦ÁD
♣ÁKG942
Suður spilar 5♣.
Sumarbrids, mánudagskvöldið 22.
ágúst: Andstæðingarnir höfðu kvittað
fyrir einn niður og voru farnir fram á
kaffistofu. Norður var staðinn upp og
ferðbúinn, en suður sat hugsandi í sæti
sínu og fór yfir spilamennskuna. Var
virkilega ekki til nein vinningsleið?
Í sögnum hafði vestur sýnt nokkurt
veldi, fyrst doblað laufopnun suðurs og
meldað svo spaða á síðari stigum. Út
kom ♠Á og meiri spaði. Suður tromp-
aði, hugsaði lengi, en sá ekki annan
möguleika en að svína fyrir ♦K. Gaf
því þrjá slagi: einn á spaða, annan á
♦K og loks þann þriðja á hjarta.
Af gömlum vana var tölvuútskriftin
gripin með í lok kvöldsins. Þar fullyrti
reikniforritið að 11 slagir væru til taks
í laufum með SUÐUR sem sagnhafa.
Getur það verið?
29. ágúst 1862
Akureyri fékk kaupstaðar-
réttindi. Þá bjuggu þar 286
manns en nú á átjánda þús-
und.
29. ágúst 1914
Ráðherra gaf út fyrirskipanir
til tryggingar hlutleysi lands-
ins „í ófriði milli erlendra
ríkja“. Landsmönnum var
meðal annars bannað að
styðja ófriðarríkin, ganga í
heri þeirra eða veita skipum
þeirra leiðsögn.
29. ágúst 1948
Baldur Möller, 34 ára lög-
fræðingur, varð skákmeistari
Norðurlanda, fyrstur Íslend-
inga, á móti í Örebro í Svíþjóð
„og hlaut að verðlaunum for-
kunnar fagran silfurbikar,“
að sögn Morgunblaðsins.
Baldur varði titilinn til 1953.
Áður hafði hann verið skák-
meistari Íslands fimm sinnum.
29. ágúst 1959
Hafmeyjan eftir Nínu Sæ-
mundsson var afhjúpuð í
Tjörninni, suðvestanverðri.
Styttan var eyðilögð á nýjárs-
nótt 1960.
29. ágúst 1971
Kirkjan að Breiðabólstað á
Skógarströnd brann til kaldra
kola. Eldsupptök voru rakin
til gastækja. Á sama tíma
kom upp eldur í bíl sóknar-
prestsins.
29. ágúst 2000
Fyrsta sólarhringsverslun 10–
11 var opnuð í Lágmúla í
Reykjavík, en þetta var nýj-
ung á íslenskum matvöru-
markaði. Fyrsta verslun keðj-
unnar hafði verið opnuð í
Kópavogi 10. 11. 1991.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það verður eitthvað rólegt. Ætli ég verði ekki
með fjölskyldunni,“ segir Eðvarð Örn Kristinsson,
stýrimaður í Súðavík, sem fagnar þrítugsafmæli
sínu í dag. Það vill svo vel til að hann er í fríi um
þessar mundir.
Eðvarð Örn var skipstjóri á línuskipi sem gert
er út frá Flateyri síðastliðinn vetur en eftir að
kvótinn kláraðist hefur hann verið á frystitogar-
anum Kleifabergi. Hann segir óráðið um framtíð-
ina. Margt sé í boði.
Hann er ekki vanur að gera mikið úr afmælum.
„Konan hélt upp á síðasta stórafmæli. Hún bauð
vinum og ættingjum í veislu. Ég mætti því beint í veislu þegar ég kom
í land,“ segir hann. Kona Eðvarðs er Elma Dögg Frostadóttir. Þau
eiga sex ára dóttur og von er á öðru barni í janúar.
Helstu áhugamál Eðvarðs tengjast sjónum. Hann fer gjarnan út á
smábát til að veiða sér í soðið og skýtur sjófugl á haustin.
Mikið líf er í Súðavík á sumrin en þá býr fólk í flestöllum húsunum í
gömlu byggðinni. „Það er mikið um að vera um þessa helgi, að
minnsta kosti,“ segir Eðvarð Örn.
helgi@mbl.is
Eðvarð Örn Kristinsson stýrimaður þrítugur
Veiðir í vinnu og fríi
Nýirborgarar
Reykjavík. Áróra
Rós Gissurar-
dóttir fæddist 18.
maí sl. kl. 13.36.
Hún vó 3.515 g og
var 51 cm löng.
Foreldrar hennar
eru Sigríður Arna
Júlíusdóttir og
Gissur Már Jóns-
son.
Flóðogfjara
29. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.15 0,2 6.19 4,0 12.28 0,1 18.33 4,4 6.01 20.57
Ísafjörður 2.24 0,1 8.20 2,2 14.34 0,1 20.28 2,6 5.58 21.11
Siglufjörður 4.40 0,1 10.55 1,4 16.41 0,2 22.59 1,5 5.40 20.54
Djúpivogur 3.28 2,2 9.37 0,2 15.52 2,4 22.02 0,3 5.29 20.29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dagurinn hentar vel til skemmtunar.
En best er náttúrlega að gefa sér tíma til þess
að semja áætlun sem eitthvert hald er í.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarf að eiga við fólk með harða skel,
en þú getur vel náð til þess ef þú reynir. Gald-
urinn er að hafa frumkvæðið en ekki bara
bíða byrsins.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er margt að gerast í kringum
þig og þú mátt hafa þig alla/n við að straum-
urinn hrífi þig ekki með sér. Varaðu þig á fólki
sem vill stjórna samræðunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að hjálpa náunganum í dag.
Slepptu hendinni af kvíðanum og taktu skref
inn í óvissuna miklu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gefur fólki það sem það vill, og það
er þér þakklátt. Sýndu þolinmæði og um-
burðarlyndi gagnvart sjónarmiðum sem eru
önnur en þín eigin.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú vilt velta öllum möguleikum fyrir
sér og spyrð þig því hvort þú ert í réttri
vinnu/hjónabandi/félagsskap. Álit annarra
skiptir þig allt of miklu máli.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Stundum skjóta gamlir draugar upp koll-
inum og hafa áhrif á okkur. Láttu aðra um að
leysa sín mál og sinnt þú þínum eigin.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að komast í smáfrí til að
endurnýja sjálfa/n þig til sálar og líkama. Ekki
slaka of mikið á.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er mikill kraftur í þér en það
skiptir öllu máli að beina honum í rétta átt
svo þú fáir það áorkað sem þú óskar. Haltu
áfram á sömu braut.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þótt þú viljir gjarnan hjálpa ein-
hverjum úr fjölskyldunni í dag gætu þau góðu
áform leitt til vandræða. Fylgdu sannfæringu
þinni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Mikill atburður mun hafa djúp
áhrif á þig og gera þér ókleift um skeið að sjá
hlutina í réttu ljósi. Vertu með opinn huga,
hugsanlega uppgötvar þú eitthvað nýtt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki er ósennilegt að þú lendir í úti-
stöðum við einhvern í dag. Að gera sitt besta
er allt sem beðið er um.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. De2 b5 6. Bb3 Be7 7. c3 O-O 8. O-O d6
9. d3 Bg4 10. h3 Be6 11. Bc2 Rd7 12.
Hd1 He8 13. Rbd2 g6 14. Rf1 Bf6 15.
Re3 Bg7 16. g4 f6 17. Df1 Re7 18. d4
Kh8 19. d5 Bg8 20. h4 h5 21. Dh3 Hf8
22. gxh5 gxh5 23. Rf5 Rxf5 24. exf5 Rb6
25. Be4 Dd7 26. Kg2 Bf7 27. Hd3 Hg8
28. Kh2 Bf8
Staðan kom upp í landskeppni Ís-
lands og Færeyja sem lauk fyrir
skömmu á Akureyri. Rúnar Sig-
urpálsson (2229) hafði hvítt gegn Her-
luf Hansen (2049). 29. Rg5! fxg5 30.
hxg5 Bg6? betra var að leika 30…Bg7
þótt hvítur stæði þá einnig vel að vígi.
31. fxg6 Dxh3+ 32. Hxh3 Kg7 33. Hxh5
Hh8 34. Hh7+ Kg8 35. Kg3 Bg7 36. b3
Hf8 37. Be3 Rc8 38. a4 Re7 39. axb5
axb5 40. Hxh8+ Kxh8 41. Ha7 og hvítur
innbyrti vinninginn skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is