Morgunblaðið - 29.08.2011, Page 26
ENN MEIRI m.mbl.is
- V I L T U V I T A M E I R A ?
Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland
og margt fleira er meðal nýjunga sem þú
getur nálgast í símanum þínum.
Fáðu fréttirnar þegar þú vilt.
www.m.mbl.is
m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010.
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Katrín Hall, listrænn stjórnandi Ís-
lenska dansflokksins, hefur góða til-
finningu fyrir vetrinum. „Við erum
óskaplega spennt að byrja á nýjum
vetri og tilfinningin fyrir komandi
leikári er góð en það verður mjög
veglegt.“
Verkefnin voru mörg og fjölbreytt
síðasta vetur en ekki síður nú. „Það
var ótrúlega mikið annríki á síðasta
leikári og ég held við höfum öll verið
fegin að fá smásumarfrí og hlaða
batteríin. Það var mikið að gera og
verkefnin mörg.“
Það sem ber hvað hæst næsta vet-
ur er frumsýning verksins Minus 16
eftir „rokkstjörnu dansheimsins“
Ohad Naharin. „Rúsínan í pylsuend-
anum er að fá verk eftir þennan
þekkta ísraelska danshöfund,“ segir
Katrín. „Ég var búin að reyna að fá
hann til starfa í nokkuð mörg ár og
loksins varð mér ágengt. Við fögnum
því mjög hér hjá Íslenska dans-
flokknum að geta kynnt hann og hans
verk fyrir íslenskum áhorfendum því
hann er lifandi goðsögn í dansheim-
inum.“
Katrín lýsir Naharin sem „flottum
listamanni“ og útskýrir nánar: „Hann
hefur skapað sér sinn sérstaka stíl og
tækni, sem heitir gaga-tækni en það
eru einungis örfáir sem hafa náð út-
breiðslu á sinni eigin tækni.“
Verk sem brýtur múra
Minus 16 er ekki samið fyrir Ís-
lenska dansflokkinn en Katrín var
alltaf viss um að þetta verk myndi
henta flokknum og sömuleiðis ís-
lenskum áhorfendum. „Ég vissi ná-
kvæmlega hvaða verk ég vildi fá eftir
hann. Hann lagar síðan verkið að
flokknum. Mér fannst þetta verk líka
hæfa íslenskum áhorfendum. Það
brýtur múra milli áhorfenda og dans-
ara. Það er aðgengilegt án þess að
vera með listrænar málamiðlanir og
það er mikill kraftur, orka og snerpa í
því. Dansgleðin er í fyrrirúmi. Þú sit-
ur bara og brosir þegar þú horfir á
þetta verk,“ segir hún.
Minus 16 verður frumsýnt 4. febr-
úar en það verður sýnt með Groß-
stadtsafari eftir Jo Strömgren, sem
verður nú sýnt á stóra sviði Borg-
arleikhússins. „Það kemur annar
vinkill á það verk að fara með það á
stóra sviðið. Það þrengdi svolítið að
því síðasta vetur. Það verður gaman
fyrir dansarana að fá að flytja það
verk aftur. Þá sýningu förum við
einnig með á Akureyri og sýnum
hana í Hofi í mars.“
Fyrsta sýning leikársins er hins
vegar Fullkominn dagur til drauma,
nýtt verk eftir Anton Lackhy úr hin-
um þekkta danshóp Les Slovaks sem
sýndi hér á Listahátíð 2011. „Þetta
nýja verk hans er óður til dansins og
fegurðar hins dansandi líkama undir
klassískum tónum Verdis,“ segir í til-
kynningu en verkið verður frumsýnt
30. september á stóra sviðinu.
Blöðrur á iljum og brös á vör
„Við erum þegar byrjuð að æfa
þetta verk. Dansararnir eru með
blöðrur á iljunum en bros á vör því
það er svo gefandi að vinna með hon-
um. Þeir fá að vera svo virkir þátttak-
endur í ferlinu. Það er mjög skemmti-
legt að fylgjast með æfingum. Þetta
er sérsamið verk fyrir okkar dansara.
Ég á von á líflegu og skemmtilegu
verki en það er mikill húmor í hreyf-
ingunum.“
En hvað hefur listræni stjórnand-
inn í huga við verkefnavalið?
„Það er mikil breidd í dansara-
hópnum. Það er mjög gaman að geta
valið fyrir svona fjölbreyttan
hóp dansara og maður
getur gert alla mögu-
lega hluti,“ segir
Katrín, sem vill bjóða
upp á fjölbreytta
dagskrá. „Ég vel líka
það sem mér finnst
hæfa hverju sinni,
hvað mér finnst
eiga erindi við
samfélagið.
Einnig fylgist
ég að sjálf-
sögðu með því
sem er að gerast í dansheiminum þar
sem Anton er rísandi stjarna. Hann
hefur ekki samið mörg verk einn og
sér heldur vinnur jafnan með koll-
egum sínum í Les Slovaks. Þannig er
ég sífellt að taka áhættu í danshöf-
undavali en sé svo sannarlega ekki
eftir því í þetta skipið miðað við æf-
ingarnar sem komnar eru.“
Verkið Svanurinn eftir Láru Stef-
ánsdóttur verður sýnt aftur. „Það er
verk sem hefur verið mjög vinsælt
hjá okkur. Við sýndum það til dæmis í
Austurríki í sumar við mjög góðar
viðtökur. Þetta er aðgengilegt verk
fyrir alla fjölskylduna,“ segir hún en
það verður sýnt í Tjarnarbíói alla
sunnudaga í nóvember. „Þannig að
fólk getur komið með börnin sín og
farið að gefa öndunum í leiðinni.“
Svo er Ferðalag á dagskrá hjá
dansflokknum í maí. „Við erum með
óhefðbundið og skemmtilegt verkefni
í vor sem við höfum kosið að kalla
Ferðalag. Þá verða frumsýndar dans-
myndir eftir mig og Reyni Lyngdal. Í
tengslum við þær myndir verðum við
með óvæntar uppákomur og blöndum
saman listformum,“ segir Katrín.
Ferðalag og fræðsla
„Dansflokkurinn er eflaust sá ís-
lenski sviðslistahópur sem hefur farið
hvað víðast en síðan 2000 hefur flokk-
urinn sýnt í yfir 20 löndum, 50 mis-
munandi borgum í þremur heims-
álfum,“ segir í tilkynningu og verður
komandi leikár engin undantekning.
Íslenski dansflokkurinn sýnir
verkið Transaquania – Into Thin Air í
tengslum við Bókamessuna í Frank-
furt í haust. Verkið er eftir danshöf-
undana Ernu Ómarsdóttur og Da-
mien Jalet og myndlistarkonuna
Gabríelu Friðriksdóttur. Það verður
sýnt í hinu virta sviðslistahúsi Mou-
sonturm í Frankfurt dagana 14. og
15. október.
Dansflokkurinn hefur ennfremur
alltaf lagt áherslu á fræðslu, segir
Katrín. „Við höldum því áfram í ár
með því að bjóða unglingum upp á
stutt námskeið,“ segir hún. Gleðjast
áreiðanlega margir yfir þessum frétt-
um en námskeið með þessu sniði voru
haldin síðasta vetur við miklar vin-
sældir og komust færri að en vildu.
Ljósmynd/Hemmi
Dansmynd Úr dansmynd eftir Reyni Lyngdal og Katrínu Hall.
Dansgleðin verður í fyrirrúmi
Spennandi leikár framundan hjá Íslenska dansflokknum Verkefnavalið er fjölbreytt
Rúsínan í pylsuendanum er verkið Minus 16 eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Golli
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Katrín verður aðaldómari í nýj-
um dansþætti Sjónvarpsins
sem hefur göngu sína í vetur
en þættirnir verða framleiddir
í samstarfi við Sagafilm.
„Loksins fáum við dansþátt
í íslenskt sjónvarp! Ég hlakka
til að takast á við þetta
spennandi verkefni og held að
það verði mikil lyftistöng fyrir
dansinn í heild sinni. Dans er
auðvitað mjög flott sjónvarps-
efni,“ segir Katrín, sem telur
að svona þáttur geti verið
mikill hvati fyrir fjölmarga
dansara og lengra komna
dansnemendur enda verður
öllum dansstílum, frá sam-
kvæmisdönsum yfir í hipp
hopp, tekið fagnandi. Ein-
staklingar, pör og hópar geta
verið með og þátttakendur
semja sín atriði sjálf með
faglegri hjálp. Það verða
áheyrnarprufur, sem verða
auglýstar síðar, en þær fara
fram í október. Athugið að
aldurstakmark er 16 ár. Fyrsti
þátturinn verður á dagskrá í
októberlok en hann verður
sýndur á laugardags-
kvöldum fram í desember.
Dans er flott
sjónvarpsefni
NÝR DANSÞÁTTUR Á
DAGSKRÁ SJÓNVARPSINS
Listræni stjórnandinn
Katrín Hall.
Vinsælt verk Svanur-
inn eftir Láru Stefáns-
dóttur er fyrir alla fjöl-
skylduna.
Sýnt aftur Großstadts-
afari eftir Jo Strömgren
verður nú á Stóra sviði
Borgarleikhússins.